Morgunblaðið - 17.09.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976
3
Friðrik og Guð-
mundur saman á
mót í Júgóslavíu
Tveir seldu í
Danmörku
TVEIR islenzkir bátar seldu sfld í
Danmörku í gær og fengu gott
verð fyrir aflann sem fyrr. Kap 2.
frá Vestmannaeyjum seldi 47
lestir fyrir 3.4 millj. kr. og var
meðalverð pr. kíló kr. 72.58.
Harpa frá Reykjavik seldi 46.8
lestir fyrir 3.3 millj. kr. og var
meðalverð pr. kiló kr. 70.96.
Dálítið af afia beggja bátanna
fór i bræðslu.
Sæmileg sala
Jóns á Hofi í
Þýzkalandi
JÓN á Hofi frá Þorlákshöfn seldi
88 lestir af netafiski i Bremerhav-
en f gærmorgun fyrir 112.900
mörk eða 8.4 millj. króna. Meðal-
verð pr. kiló var kr. 95. 12.1 lest af
afla bátsins, aðallega karfi, var
dæmd ónýt.
1 söluskeytinu frá Bremerhav-
en segir að fiskurinn, sem Jón á
Hofi var með, hafi ekki verið góð-
ur, en hann var orðinn nokkuð
gamall.
Vitað er að tveir bátar eiga að
selja í V-Þýzkalandi i næstu viku,
og eru það Ársæll Sigurðsson 2.
og Sæbjörg VE. Þá er skuttogar-
inn Dagný frá Siglufirði á leið f
söluferð til Englands.
Ljóðabók eftir
KristíánKarlsson
islenzku ljóðin eru mjög
nýleg.“
Ljóðabók Kristjáns
skiptist i þrjá kafla. Flest
ljóðin eru ort af tilefni og
yrkja á ensku og is-
lenzku. Hann sagðist
hafa lesið og talað mest
ensku á tímabili. Þá varð
enska honum nokkuð
töm, „en ég efast nú um
að erlend tunga verði
manni nokkurn tíma eins
töm og manns eigin.“
Ljóðabókin er 62 blað-
síður prentuð í Víkings-
prenti.
Guðmundur á 1. borði Olympíusveitarinnar
HELGAFELL hefur sent frá sér Ijóðabók, Kvæði, eftir Kristján
Karlsson. Bókin er fyrsta ljóðabók Kristjáns, sem annars er
löngu landsþekktur bókmenntafræðingur.
„Ég hef alltaf eitthvað
fengizt við að yrkja,“
sagói Kristján, er Morg-
unblaðið ræddi við hann í
gær. „Ég átti lengi heima
vestan hafs og orti þá
svolitið á ensku og eru
einhver sýnishorn af því
með í bókinni. Þvi, sem
ég orti áður, hef ég bara
fleygt. Síðan hætti ég og
í sumum tilfellum eru
þau tilbúin. Fyrsti kafl-
inn er ortur af ýmsum
tilefnum, annar kaflinn
er um fólk og síðasti kafli
bókarinnar er ýmis ensk
kvæði. Alls eru 25 kvæði í
bókinni, þar af 9 á ensku.
Kristján Karlsson var
spurður að þvi, hvort
honum væri eins tamt að
Kristján Karlsson.
Stórmeistararnir okkar, Friðrik
Ólafsson og Guðmundur Sigur-
jónsson, fá litla hvfld eftir
Reykjavfkurskákmótið, þvf 29.
september hefja þeir báðir þátt-
töku f sterku skákmóti f
Júgóslavfu. Er þetta annað mótið
f sumar, þar sem þeir eru báðir
meðal þátttakenda, hitt mótið var
IBM-mótið f Hollandi.
Friðrik Ólafsson veitti Mbl. þær
upplýsingar i gær að mót þetta
væri allsterkt, af styrkleikagráðu
11, en Reykjavíkurmótið var af
styrkleikagráðu 10. Þetta verður
16 manna mót og verður teflt i
borginni Novisado, sem er 80
kílómetra frá Belgrad. Ekki hafði
Friðrik fengið nákvæmar upplýs-
ingar um keppendur, aðeins er
vitað um Ljubojevic, Velemirovic,
Matanovic og Ivkov. Þá er vitað
að þarna tefla tveir sterkir
rússneskir skákmenn.
Þegar mótinu í Júgóslavíu
lýkur fær Guðmundur ekki nema
viku hvíld því hann hefur fallizt á
það að tefla á 1. borði íslenzku
skáksveitarinnar, sem keppir á
Ólympfuskákmótinu í Israel, en
það mót hefst 24. október.
Skeiðará:
Rennslið yfir 1200
rúmmetrar á sekúndu
SKEIÐARÁ— Þessi mynd var tekin i Skeiðarárhlaupinu
1972, á þeim stað þar sem áin kemur beljandi undan
jöklinum. Þegar þessi mynd var tekin var rennslið í ánni
ca 5000 rúmmetrar á sekundu.
Nefnd skipuð til þess að
semja frumvarp um upp-
lýsingaskyldu stjórnvalda
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur
skipað nefnd til að semja laga-
frumvarp um upplýsingaskyldu
stjórnvalda. 1 nefndinni eiga sæti
Einar Karl Haraldsson, frétta-
stjóri, formaður Blaðamanna-
félags Islands, Sigurður Líndal,
prófessor, og Baldur Möller, ráðu-
meytisstjóri, og er hann formaður
nefndarinnar. Við störf sín ber
nefndinni að hafa hliðsjón af
þingsályktun frá 19. maí 1972,
lagafrumvarpi um upplýsinga-
skyldu stjórnvalda, sem lagt var
fyrir Alþingi 1973 og 1974, og
þeirri umræðu sem orðið hefur
um málið í þvi sambandi, á
Alþingi og utan þess.
I)óms- og kirkjumálaráðunevtið.
16. september 1976.
SKEIÐARÁ heldur áfram að vaxa
og sfðdegis 1 gær mældist rennsli
I ánni 1250 rúmmetrar á sekúndu,
og hafði þvi vaxið um 300
rúmmetra á sek. frá þvf f fyrra-
dag.
Áin á samt eftir að vaxa
mikið til að ná vatnsrennslinu
eins og það mældist mest f sfðasta
hlaupi, eða um 5700 rúmmetrar á
sekúndu.
Að sögn Jóns Valmundssonar
vegaverkstjóra við Skeiðarárbrú
rennur áin nú á samtals um 400
metra kafla undir brúnni og er
aðeins farin að renna út fyrir
venjulegan sumarfarveg. Þá sagði
Jón, að áin rynni nú með nokkr-
um krafti meðfram varnargarðin-
um að austanverðu við brúna.
Tveir mælingamenn frá Vega-
gerð rikisins komu austur í gær
og i gærkvöldi var von á verk-
fræðingi. Þá eru um 20 manns í
vinnu við að mála brúna yfir
Skeiðará, og er það verk nú langt
komið. Fleiri verkfræðingar og
mælingamenn frá Vegagerðinni
munu vera vætanlegir þegar
hlaupið i Skeiðará nálgast
hámark, sem verður líklega eftir
helgi.
Jón Valmundsson sagði að
jökulfýlan i ánni hefði minnkað
nokkuð eftir því sem rennsli í
ánni hefði aukizt.
Bridge:
Akureyring-
ar unnu Sigl-
firðingana
Siglufirði 16. september.
DAGANA 11. og 12. september fór
fram bæjarkeppni i bridge milli
Siglufjarðar og Akureyrar. Fimm
sveitir frá hvoru bridgefélagi
kepptu og spilaðar voru tvær um-
ferðir. Úrslit urðu þau að Akur-
eyringar sigruðu með 129 stigum
gegn 61. Eftir fyrri dag keppninn-
ar var staðan 51 gegn 46 Siglfirð-
ingum I vil. Spilað var á Hóli,
iþróttamiðstöð okkar
Siglfirðinga. m).
3. milljónasta fernan
ÞRIÐJA milljónasta fern-
an af Tropicana er komin
fram. Hana keyptu hjónin
Birgir Lárusson, Arnar-
tanga 47, Mosfellssveit, og
Agnes Geirsdóttir og hlutu
þar með 100 þúsund
krónur í verðlaun. Á
myndinni tekur Agnes við
verðlaununum úr hendi
Hauks Gröndal fram-
kvæmdastjóra Sólar h.f.,
Birgir heldur á syni þeirra
hjóna, Geir Rúnari, 4ra
ára.