Morgunblaðið - 17.09.1976, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976
5
Ljóðatónleikar Ameling
og Baldwins á morgun
Fjölbreytt tónleikahald Tónlistarfélagsins í vetur
STARFSVETUR Tónlistarfélags
Reykjavlkur hefst á laugardag-
inn, 18. sept., með tónleikum I
Háskólabfói. Þar kemur fram hin
heimsfræga hollenzka sópran-
söngkona Elly Ameling ásamt
pfanóleikaranum Dalton
Baldwin. Elly Ameling er ein af
frægustu ljóðasöngkonum heims
f dag og Dalton Baldwin er einnig
talinn með fremstu listamönnum
á sfnu sviði.
Tónlistarunnendum mun i
fersku minni þegar hann heim-
sótti Island í fyrra ásamt franska
söngvaranum Gérard Souzay.
Tónleikarnir verða haldnir eins
og áður segir í Háskðlabíói laug-
ardaginn 18. sept. kl. 2.30. Á
efnisskrá tónleikanna eru valin
mjög falleg sönglög eftir Franz
Schubert.
Næstu tónleikar eftir tónleik-
ana á laugardaginn eru þann 28.
sept. og þar er á ferðinni
Zetteravistkvartettinn frá Sví-
þjóð. Tónleikar þessir eru liður i
Norðurlandasamvinnu varðandi
tónleikahald á vegum Nordisk
Solistrád. En undanfarin ár hefur
hvert land valið tónlistarmann
eða tónlistarfólk til þess að ferð-
ast um og halda tónleika. Frá Is-
landi fór á sinum tíma Halldór
Haraldsson, . píanóleikari. Frá
Finnlandi ferðuðust söngvarinn
Jorma Hynninen og píanóleikar-
inn Ralf Gothóni. Ög frá Noregi
fóru þeir Aage Kvalbein, selló-
leikari, og Jens Bratlie, píanóleik-
ari.
Gunnar Kvaran og Gísli
Magnússon munu halda tónleika
fyrir félagið þann 9.10.76. Guðný
Guðmundsdóttir, Hafliði M. Hall-
grimsson og Philip Jenkins koma
fram á tónleikum í janúar.
Franski fiðluleikarinn Jan
Dobrezelewski kemur til með að
halda tónleika i febrúar. Italski
fiðluleikarinn Pina Carmirelli og
Árni Kristjánsson halda tónleika
í marz. Ursúla Ingólfsdóttir held-
ur tónleika fyrir félagið i april.
Selma Guðmundsdóttir mun einn-
ig halda sina fyrstu opinberu tón-
leika i april. Siðustu tónleikar
starfsvetrarins verða í mai, en þá
mun hinn heimsfrægi söngvari
Peter Piers halda tónleika.
Tónlistarfélagið getur bætt við
sig nokkrum félögum fyrir næst-
komandi starfsvetur.
Elly Ameling, sópransöngkona, og Dalton Baldwin,
píanóleikari.
Ollerupflokkurinn sýnir
1 Laugardalshöllinni
FIMLEIKAFLOKKAR danska
Ollerupskólans halda sýningu í
Laugardalshöll klukkan 20.45 í
kvöld, en flokkar þessir hafa að
undanförnu verið í sýningarferð
um landið og fengið góðar viðtök-
ur, að sögn þeirra aðila, sem að
heimsókninni standa.
Á Ölympíuleikunum 1912 kom
Niels Bukh fram með nýja gerð
fimleika, sem hann sýndi um víða
veröld með danskri æsku allt til
dánardægurs. Núverandi skóla-
stjóri við skóla Niels Bukh er
staddur hér á landi og stjórnar
hann sýningum flokkanna. Sem
fyrr segir hafa flokkarnir sýnt á
nokkrum stöðum á landinu, en
fyrsta sýningin var við vígslu hins
nýja íþróttahúss Vestmannaey-
inga s.l. sunnudag.
Þessi tvíhneppti
„blazer-jakki’’
vakti óskipta
athygli gesta á
sýningunni
ÍSLENSK FttT/76
Hann er hannaður af
Colin Porter og er úr þéttofnu
„Cavaliry Twill” terelyn-
og ullarefni
OPIÐ TIL
NYKOMIÐ:
SKYRTUR □ PEYSUR
□JAKKAPEYSUR □LEÐURFRAKKAR
O.M.FL.
KL. 12 LAUGARDAGA