Morgunblaðið - 17.09.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976
21
Elías Davíðsson kerfisfræðingur:
Opið bréf til sam-
göngumáJaráðherra
NtJ er svo komið, að samgöngu-
málaráðuneytið hefur ákveðið að
hefja árið 1979 rekstur jarðstöðv-
ar til f jarskipta. Eins og ráðuneyt-
ið er vafalaust kunnugt, mun að-
eins einn aðili reka gervihnetti til
almennra fjarskipta hér á þessu
svæði, en það er samsteypan
INTELSAT. Það er þvi hjá þess-
um aðila, sem ísland mun kaupa
fjarskiptaþjónustu í framtfðinni,
jafnvel þótt Mikla norræna rit-
símafélagið kynni að verða milli-
liður í þessum viðskiptum.
Þar sem stjórnvöld 6g sérfræð-
ingar þeirra hafa ekki séð ástæðu
til að skýra frá vinnubrögðum sín-
um, samskiptum sínum við fram-
tíðarviðskiptaaðila Islands né
svara þeim rökstuddu viðvörun-
um um stefnu þeirra í fjarskipta-
málum, sem birtust í ítarlegum
greinum mfnum um miðjan júnf
s.l. (Þjv. 15/6 og 17/6), sé ég ekki
annarra kosta völ, en að senda
háttvirtum ráðherra opið spurn-
ingabréf í von um að almenningi
verði sýnd lágmarkskurteisi, sem
ætlast má til af stjórnvöldum f
lýðræðisþjóðfélagi, hvað varðar
upplýsingamiðlun um mikilvæg
mál.
í þessu sambandi, vænti ég þess
að háttvirtur ráðherra svari eftir-
farandi spurningum:
1. Hvers vegna hefur almenningi
ekki verið skýrt frá eðli þess fyr-
irtækis — INTELSAT —, sem
kemur til með að selja Islending-
um aðgang að gervihnöttum sín-
um?
2. Hvers vegna hefur ekki verið
skýrt frá þvf að INTELSAT er
rekið af bandarískum auðhring-
um, f gegnum fyrirtæki að nafni
COMSAT?
3. Hvers vegna hefur ekki verið
skýrt frá því, að INTELSAT er og
hefur verið allt frá upphafi tæki
bandarfskrar útþenslustefnu,
enda stofnað af frumkvæði
Bandaríkjastjórnar?
4. Hvers vegna hefur ekki verið
skýrt frá eðli þeirra samskipta,
sem INTELSAT hefur um árabil
rækt við starfsmenn Landsfmans?
5. Hvers vegna hefur verið þagað
yfir nöfnum þeirra tveggja stór-
fyrirtækja, sem þegar hafa boðið
yfirvöfdum jarðstöð til sölu?
6. Hvernig hyggjast stjórnvöld
tryggja sjálfstæði landsins í fjar-
skiptamálum, þegar og eftir að öll
fjarskiptin eru komin í hendur
INTELSAT?
7. Munu Islendingar hafa nokkra
möguleika á að slfta viðskiptum
10%þjóðar-
innar sáu
ÍSLENZK
FÖT 76
SYNINGUNNI ISLENZK FÖT
’76 lauk f gær eftir tveggja
daga framlengingu. Forráða-
menn sýningarinnar eru mjög
ánægðir með undirtektir þær,
sem sýningin hlaut en alls
munu um 21 þúsund manns
hafa lagt leið sfna f Laugar-
dalshöllina. Þýðir það, að um
það bil 10% þjóðarinnar hafi
séð sýninguna eigin augum, og
er það einsdæmi, að svo stuttar
sýningar dragi að sér svo mik-'
inn f jölda áhorfenda.
I sýningarhappdrættinu
komu upp númerin 16693 og
18715 fyrir tvo siðustu dagana,
og eru það úttektir frá Belgja-
gerðinni og Gefjun, að verð-
mæti 25 þús. króna. Aðal-
vinningurinn, sem dreginn var
úr öllum seldum númerum,
kom á 1682, en sá vinningur er
úttekt hjá öllum sýningaraðil-
um að heildarverðmæti 200
þús. krónur.
sinum við INTELSAT, án þess að
þeir bíði af þvl verulegt tjón, úr
því INTELSAT er eini aðili, sem
getur boðið fjarskiptaþjónustu af
þessu tagi?
8. Hver verður samningsaðstaða
Islands gagnvart aðila eins og
INTELSAT, sem er í raun og veru
með einokun á þessu sviði og mun
því ráða algjörlega fjarskipta-
töxtum og öðrum skilmálum?
9. Með tilliti til þeirra hagsmuna,
sem liggja að baki INTELSAT,
má ekki búast við að INTELSAT
smám saman sölsi undir sig aðrar
tegundir upplýsingamiðlunar I
þágu umbjóðenda sinni (frétta-
miðlun, gagnabankar o.fl.)?
Ég vona að háttvirtur ráðherra
sjái sér fært að gera almenningi
grein fyrir afstöðu stjórnvalda til
ofangreindra spurninga.
Með fyrirfram þökk og virð-
ingu.
Elias Daviðsson
(sign)
Elias Davíðsson, kerfisfræðingur
Kópavogi.
— Kosið í Svíþjóð
Framhald af bls. 13.
kosningabaráttunnar þau mis-
tök að taka Fálldin ekki alvar-
lega og reyna að gera andstöðu
hans við kjarnorkuna kjána-
lega og vanhugsaða í augum
kjósenda. Fremur ódýr af-
greiðsla hans á málinu kemur
honum nú i koll, þvi að kjarn-
orkan er orðið eitt stærsta mál-
ið i kosningabaráttunni og sam-
kvæmt skoðanakönnunum
styðja 48% kjósenda stefnu
Miðflokksins i þvi máli. Er það
4% aukning fráþví i júni. Þeim
sem styðja stefnu stjórnarinnar
hefur fækkaó um 2% og eru nú
30% af kjósendafjöldanum.
Þjóðarflokkurinn og Hæg-
fara einingarflokkurinn hafa
að mestu leyti stutt stefnu jafn-
aðarmanna í orkumálum og
hafa þvi komizt i nokkurn
vanda vegna stefnu Fálldins.
Er það borgaraflokkunum mjög
mikilvægt að geta sýnt kjósend-
um samstöðu i sem flestum
mikilvægum málum. Þeir hafa
því reynt að fara undan i flæm-
ingi þegar þeir hafa þurft að
gefa ákveðin svör um orkumál-
in. Hafa leiðtogar flokkanna,
Per Ahlmark og Gösta Bohman,
sagt að þeir telji eðlilegt að
kjósendur fái að skera úr um
þetta mál með þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Veltur á
kommúnistum
Ljóst er að jafnaðarmenn fá
ekki hreinan meirihfuta í kosn-
ingunum og það mun þvi velta
á Vinstriflokknum — kommún-
istum — hverjir verða við völd
i Sviþjóð eftir næstu helgi.
Flokkurinn hefur siðan í vetur
verið klofinn á milli meirihlut-
ans, sem~ vill frjálsa afstöðu
gagnvart Sovétrikjunum að
dæmi evrópskra bræðraflokka,
og minnihlutans, sem er Sovét-
sinnaður. Flokkurinn verður að
fá 4% greiddra atkvæða til að
fá þingsæti. Bregðist það skipt-
ast þingsæti hans á milli stóru
flokkanna og er þá næstum ör-
uggt að hlutur borgaraflokk-
anna verður meiri.
Annað óvissuatriði er nýir
kjósendur. Kosningaaldur hef-
ur verið lækkaður úr 20 árum í
18 og þvi mun 14 milljón manns
kjósa í fyrsta skipti. En stærsta
spurningin verður þó hvort
hinn venjulegi kjósandi sé, þeg-
ar á hólminn er komið, reiðubú-
inn til að taka afstöðu gegn
rikisstjórn, sem fært hefur
Svfum óumdeilanlega mestu
velferð, sem þekkíát í heimin-
um.
ÞESSI F0T
ISLENSK FOT/76
□ Denim buxur frá St. Cooper
□ Herrapeysur [ Dömupeysur
[_Herraskyrtur [j Buxnadragtir
□ St. Terelyne & ullarbuxur úr hinu
sterka og þétta „Cavaliry Twill”
□ Kúrekastígvél [ ; Kickers skór
og margt fleira
0PIÐ TIL KL. 12 LAUGARDAGA
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptiborði 28155
pje