Morgunblaðið - 17.09.1976, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976
Systir okkar
GUÐLAUG GUÐMUNDA BJARNADÓTTIR
VHilsgötu 16
Reykjavlk
lézt í Borgarspitalanum, 1 5 þ m
Systkinin
Maðurinn minn, faðír tengdafaðir og afi
FRIÐRIK STEINSSON
fyrrv. skipstjóri
Hagamel 45
lézt i Borgarsjúkrahúsinu 1 5 september 1976
Anna Marta Guðnadóttir
Birna Gunnhildur FriBriksdóttir
Egill Jónsson
og börn
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
HRÓLFUR BENEDIKTSSON
prentsmiðjustjóri
Barónsstíg 19
andaðist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 16 sept
Ásta Guðmundsdóttir
Erna Hrólfsdóttir Jón Öm Ámundason
Birna Hrólfsdóttir Einar Sveinsson
Ásta Hrólfsdóttir Agnar Svanbjörnsson
Hrefna Hrólfsdóttir
og barnabörn
+
Faðir okkar
ÁGÚSTGUÐBRANDSSON
frá Hækingsdal
verður (arðsettur frá Fossvogskirkju, laugardaginn 18 sept kl 10 30
Hrafnhildur Ágústsdóttir
Rakel Ágústsdóttir
+
Útför móður okkar. tengdamóður, ömmu og langömmu
GUÐLAUGAR EIRÍKSDÓTTUR
frá Fáskrúðsfirði
til heimilis að
Plómsturvöllum Eyrarbakka
fer fram fra Eyrarbakkakirkju, laugardaginn 1 8 september kl 2 e h
Ftagnar Runólfsson Lilja Sigurðardóttir
Sigrún Runólfsdóttir
Helga Runólfsdóttir Gisli Hjörleifsson
Eirikur Runólfsson Stefaníu Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabórn
+
Þökkum mmlega sýnda samúð við andlát og útför
SIGURJÓNS SIGURÐSSONAR
Þórufelli 18
Kristín Aðalheiður Óskarsdóttir
börn, barnabörn
og systkini hins látna
Lokað í dag
milli kl. 1—4, vegna útfarar Asgeirs Magnússonar,
fyrrv. framkv.stj. Líftryggingafélagsins Andvöku og
Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga h.f.
Líftryggingafélagið Andvaka
Endurtryggingafélag Samvinnutrygginga h.f.
Lokað í dag
frá kl. 1 3 til kl. 15 vegna jarðarfarar
ÁSGEIRS MAGNÚSSONAR, framkvæmda-
stjóra
Almenna verkfræðistofan hf.
— Minning
r
Asgeir Þ.
Magnússon
Framhald af bls. 15
Það er erfitt að koma orðum að
hugsunum sínum, þegar góður
vinur og starfsfélagi fellur frá á
miðjum starfsdegi.
Náin kynni mín af Ásgeiri
Magnússyni urðu þvf miður allt of
stutt, eða aðeins frá þvi að hann
tók við stöðu framkvæmdastjóra
Islenska járnblendifélagsins h.f.
fyrir rúmu ári siðan. Á þessu ári
höfum við hins vegar unnið náið
saman og því kynnst vel.
Ásgeir var einn af þeim mönn-
um, sem báru það með sér, strax
við fyrstu sýn, að hann var traust-
ur og blátt áfram og fljótur að
komast að kjarna hvers máls.
Nánari kynni staðfestu þetta mat
enn frekar. Það var þvf engin
tilviljun að á Ásgeir hlóðust
margvisleg trúnaðarstörf. Það
segir ef til vill meira en flest orð,
að hann einbeitti starfi sfnu f
félagsmáium að verkefnum sem
voru mannbætandi og stefndu að
betra samfélagi.
Ásgeir tók ótrauður við starfi
framkvæmdastjóra í Islenska
járnblendifélaginu h.f., umdeildu
félagi, sem er að fara inn á nýjar
brautir í atvinnulífi landsins.
Jafnframt var það mikið lán fyrir
félagið að fá mann, sem naut
trausts allra þeirra mörgu, sem
þekktu hann, og var fljótur að
ávinna sér traust annarra, bæði
innlendra og erlendra, sem kynnt-
ust honum. Við, sem unnum með
honum þennan tíma, minnumst
þess hvernig hann mætti öllum
erfiðleikum með sama rólega og
góða skapinu og óbugandi þraut-
seigju og ósérhlífni.
Um leið og ég kveð þennan góða
vin og starfsfélaga, votta ég hans
ágætu konu, móður og efnilegu
börnum mfna dýpstu samúð.
Gunnar Sigurðsson.
í dag er til moldar borinn að
Görðum, Alftanesi, Ásgeir
Magnússon. Hann er kvaddur frá
þeirri kirkju, sem hann af mikilli
óeigingirni og fórnfýsi vann að
byggingu að, bæði sem sóknar-
nefndarmaður og formaður sókn-
arnefndar Garðasóknar.
Þegar við stofnun Garðasóknar
árið 1960 var hann kjörinn í sókn-
arnefnd og átti sæti í henni alla
tíð síðan, fyrst sem varamaður í
sóknarnefnd og siðan eða frá ár-
inu 1969 sem formaður sóknar-
nefndar Garðasöknar og gegndi
hann því, þar til á síðast liðnu ári
að hann baðst undan endurkjöri
sem formaður sökum mikilla
anna, en samt sem áður vann
hann aö málefnum kirkjunnar
áfram af sama dugnaðinum og
áður og var ævinlega reiðubúinn
til hjálpar og aðstoðar ef á þurfti
að halda.
Sóknarnefnd og söfnuður
Garðasóknar flytur Ásgeiri
Magnússyni innilegar þakkir fyr-
ir allt hans starf í þágu safnaðar-
ins og biður þess að hönd Guðs
megi vera eftirlifandi eiginkonu
hans og börnum til styrktar á
þessari erfiðu skilnaðarstund.
Guð blessi minningu Ásgeirs
Magnússonar.
Helgi K. Hjálmsson.
Hve.rn gat grunað að svo snögg-
lega yrði klippt á lífsþráð Ásgeirs
Magnússonar? Jafnvel þeir, sem
hittu hann fyrir skömmu, gátu
ekki merkt að þar færi sjúkur
maður.
Fyrir örfáum vikum, mér finnst
sem í gær, skiptumst við á nokkr-
um orðum sem jafnan áður, er við
hittumst á förnum vegi. Og um
miðjan júlímánuð bar fundum
okkar saman norður í landi, er
hann var á leið til laxveiða ásamt
félögum slnum. Áttum við þar
saman ánægjulega kvöldstund.
Mörg voru mót okkar orðin frá
+
Okkar irmilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát
og útför mannsins mins, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
HAGERUPSÍSAKSEN
Sérstakar þakkir til lækna og h|úkrunarliðs á Gjörgæzludeild Landspit-
alans.
Margrét Isaksen
Óskar ísaksen Margrét Sigurðardóttir
Harald ísaksen Ingibjörg Þorgrimsdóttir
Hafsteinn ísaksen Hanna Hansdóttir
Kristinn Isaksen Unnur Þorsteinsdóttir
Esther Ísaksen Bjarni Kristjánsson
Erla ísaksen Heinz Steimann
Hjördls Jósefsdóttir
barnabörn og barnabarnabórn
Skrifstofur okkar
verða lokaðar
kl. 1 til 3. e.h. í dag vegna útfarar Ásgeirs
Magnússonar framkvæmdastjóra.
Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Lokað í dag
milli kl 1 og 4 vegna útfarar Ásgeirs Magnússonar,
fyrrv. framkv.stj. Samvinnutrygginga.
Samvinnutryggingar g/t.
VEGNAJARÐARFARAR
Ásgeirs Magnússonar, framkvæmdastjóra,
verður skrifstofan lokuð í dag, föstudaginn 17.
september 1976
íslenska járnblendifélagið hf.
því við kynntumst fyrir 16 árum,
skömmu eftir að ég hóf störf i
Garðahreppi, sem þá var, en þar
hafði Asgeir nokkru áður byggt
sér og fjölskyldu sinni hið glæsi-
lega hús að Hrauntúni við Alfta-
nesveg.
Við áttum síðan ýmis samskipti,
viðkomandi sveitarfélaginu, sókn-
inni eða félagsmálum.
Ég þarf ekki að rekja starfsferil
Asgeirs í smáatriðum, svo kunnur
sem hann er. Hann vann hjá Sam-
vinnuhreyfingunni frá því er
hann lauk lögfræðiprófi, 1951, og
allt fram á mitt ár 1974, lengst af,
eða í 16 ár, sem framkvæmda-
stjóri Samvinnutrygginga og Líf-
tryggingafélagsins Andvöku. Ég
hef ekki kunnugleika til að dæma
störf hans þar. En einsýnt þykir
mér að álykta, að vöxtur og við-
gangur þess félags sé fyrst og
fremst árángur af starfi Ásgeirs,
þótt aðrir hafi að sjálfsögðu kom-
ið þar við sögu.
Ásgeir varð sfðan forstjóri Bæj-
arútgerðar Reykjavíkur um eins
árs skeið. Þetta stærsta útgerðar-
félag landsins naut starfskrafta
hans á tlmum, sem voru þvi fjár-
hagslega erfiðir, eins og öðrum
fyrirtækjum í þeirri grein.
Hinn 1. júlí 1975 varð Ásgeir
svo framkvæmdastjóri Islenzka
járnblendifélagsins. Með stofnun
þess fyrirtækis voru Islendingar
að leggja inn á nýja braut í stór-
iðjumálum, umdeilda að vfsu, en
stóra f sniðum á okkar mæli-
kvarða. Með þvf að taka að sér
framkvæmdastjórn i þessu fyrir-
tæki lagði Asgeir og inn á nýja
braut i lífi sínu. Á miðjum aldri
skiptir hann um starf, tekur að
sér að byggja upp nýtt fyrirtæki
frá grunni, þar sem engin hlið-
stæða var fyrir hérlendis. Slíkt
krefst áræðis, en umfram allt
hæfileika til að leysa hin vanda-
sömustu mál, sem upp koma, sum
óvænt, önnur sem búast mátti við.
Áræðið og hæfileikana hafði Ás-
geir. Ég fullyrði raunar, að Ásgeir
hafi verið einn af fáum, sem geng-
ið gat nánast að hvaða starfi sem
var. Sæti hans er þvf vandfyllt,
hvernig sem á er litið, ekki sizt
það, er hann siðast skipaði sem
framkvæmdastjóri Járnblendi-
félagsins.
Hann sinnti ýmsum félagsstörf-
um. Mikill trúnaður var honum
sýndur, er hann varð æðsti yfir-
maður Frímúrarareglunnar á Is-
landi fyrir fáum árum. Ekki
þekki ég til þess félagsskapar, en
hér hlýtur að vera um virðulegan
sess að ræða, sem Asgeir hefur
skipað með sóma.
Hann var áhugasamur og ötull
Rótaryfélagi, forseti klúbbs síns,
Rótaryklúbbsins Reykjavík-
Austurbær, eitt ár. Þar rfkir nú
söknuður meðal félaganna, þegar
sá, er þeir sýndu mestan trúnað,
með þvi að tilnefna hann umdæm-
isstjóra, er nú horfinn úr hópn-
um. Hann var umdæmisstjóri
Rótary á tslandi 1970—1971. Þá
áttum við ýmis samskipti, þar sem
ég skilaði umdæmisstjórastarfinu
til Ásgeirs. Það var létt verk. Ás-
geir fljótur að átta sig á viðfangs-
efninu og vel undir það búinn að
taka starfið að sér. Hann reyndist
Rótaryhreyfingunni traustur leið-
togi, framkoma hans til sóma á
innlendum og erlendum vett-
vangi. Islenska Rótaryumdæmið
þakkar honum einstaklega vel
unnin störf. Á skrifborði mínu á
ég fagran grip, sem Ásgeir gaf
mér, er hann tók við starfi um-
dæmisstjóra, ljúf minning um
þessa daga og kynni við góðan
dreng.
I sveitarfélagi slnu skiidi hann
+
Eiginmaður minn, faðir og
tengdafaðir
INGIMUNDURÞÓROARSON
Skálatanga. Innri-
Akraneshreppi
verður |arðsunginn frá Akranes-
kirkju, laugardaginn 18 septem-
ber kl 1 e h Þeim sem vildu
minnasl hans er vinsamlega bent
á Sjúkrahús Akraness
Sigurveig Eyjólfsdóttir
Gunnlaugur Ingimundarson
Rósa Marla Salomonsdóttir