Morgunblaðið - 17.09.1976, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976
Sex reknir útaf -
þrjú misheppnuð víti
1 STUTTUMALI:
Landsleikur I Laugardalshöll
16. sept.
llrslit: ISLANDS — SVISS
24—18 (10—9)
Gangur leiksins:
M(n. island
0:1
1:1
1:2 (iraber
2:2
2:3 Ziillig
Ágúst
1.
4.
6.
7. Viggó
9.
11. Viggó
13.
14.
14. BJörgvin
15.
16.
17. ólafur
21. Ólafur
23. Ólafur
24. Björgvin
25. Björgvin
27. Vióar (v)
28.
30.
33.
33. ólafur
35.
36. ólafur
37.
38. ólafur
41. Viggó
42. Björgvin
53.
44.
45. Viðar
47. Geir
48. Viðar
49. Geir
50.
Sviss
Schár
arssyni á 18. mín. Zíillig ógilti
vítakast í seinni hálfleik með
því að stíga á línu.
Brottvfsanir af velli: Magn-
ús Guðmundsson 2 mín., Björg-
vin Björgvinsson 2 mín.,
Bjarni Guðmundsson 2. mín.,
Graber 2 mín., Jörg Hubner 2
mín og Affolter í 2 mín.
Áhorfendur 348.
3:3
3:4
3:5
4:5
4:6
4:7
5:7
6:7
7:7
8:7
9:7
10:7
10:8
10:9
10:10
11:10
11:11
12:11
12:12
13:12
14:13
15:12
15:13
15:14
16:14
17:14
18:14
19:14
19:15 Affolter
Schár
Schár
J.Hubner
Jehle
Ziillig (v)
Ziillig (v)
Zullig
Jehle
Affolter
Valur leikur
á Selfossi
N.K. laugardag fer fram á Sel-
fossi leikur milli knattspyrnuliðs
heimamanna og Islandsmeistara
Vals. Hefst leikur þessi kl. 14.00,
og tilefni hans er 40 ára afmæli
Ungmennafélags Selfoss. Einn Is-
landsmeistaranna, Hermann
Gunnarsson, nær merkum áfanga
I leik þessum, þar sem hann leik-
ur þar með sinn 250. meistara-
flokksleik fyrir Val. Er ekki óllk-
Iegt að Hermann verði fyrirliði
Valsliðsins I leiknum.
Svissneskir varnarleikmenn þjarma óþyrmilega að Viðari Sfmonarsyni fyrirliða fslenzka landsliðsins f
leiknum f gærkvöldi.
52. Arni 20:15
54. Viðar 21:15
55. Viggó 22:15
58. 24:16 Zullig (v)
58. 24:17 Zullig
60. 24:18 Zullig
Mörk tslands: Ölafur Einars-
son 6, Björgvin Björgvinsson 5,
Viggó Sigurðsson 4, Viðar Sím-
onarson 4, Geir Hallsteinsson
2, Árni Indriðason 2, Agúst
Svavarsson 1.
Mörk Sviss: Ziillig 8, Schár 4,
Affolter 2, Jehle 2, Jörg Hubn-
er 1, Graber 1.
Misheppnuð vltaköst: Zeier
varði vítakast frá Viðari Sim-
onarsyni á4. mín. og Ólafi Ein-
Góður sprettur íslenzka liðsins
nægði til 6 marka sigurs vfir Sviss
tSLENZKA handknattleikslands-
liðið fékk nokkra uppreisn æru
eftir tapið fyrir Svisslendingum I
Iþróttahúsinu á Akranesi á
þriðjudagskvöldið, er það vann
góðan sigur yfir sama liði I Laug-
ardalshöllinni I gærkvöldi.
24—18 urðu úrslit Ieiksins, en
munurinn gat þó orðið enn meiri,
ef fslenzku leikmennirnir hefðu
OHRÆDDUR VIÐ
VIÐFANGSEFNIÐ
- sagði Janus Szerwinski sem
fylgdist með leiknum í gærkvöldi
— ÉG get ekki sagt annað en að
ég var ánægður með sumt sem
ég sá til fslenzka liðsins f þess-
um leik, sagði Janus Szer-
winski, hinn nýi pólski þjálfari
fslenzka landsliðsins, sem
fylgdist með landsleik tslands
og Sviss f Laugardalshöllinni f
gærkvöldi. Szerwinski kom til
landsins f fyrradag og gerir hér
nú aðeins stuttan stanz, þar
sem hann hélt utan aftur f
morgun og mun ekki koma
hingað aftur fyrr en 15.
október. Fékk hann sig ekki
iausan úr vinnu ytra fyrr, en
Szerwinski er háskólakennari.
— Islendingarnir náðu ágæt-
um köflum f þessum leik, sagði
Szerwinski, sérstaklega þó f
seinni hálfleik, er liðið vann
vel saman og náði árangri. Hins
vegar gekk mjög miður hjá því
undir lok bæði fyrri hálfleiks
og seinni hálfleiks og þá missti
það leikinn nokkuð niður.
— Ég tel að það sé hægt að
gera mikið með þetta iið, sagði
Szerwinski, og ég er sannarlega
óhræddur að takast á við við-
fangsefnið. Eg hef irú á því að
árangur náist ef leikmennirnir
fórna sér og ég fæ góðan stuðn-
ing frástjórn HSl.
Þegar þjálfarinn var að þvf
spurður hvort hann teldi ekki
of stuttan tfma gefast til undir-
búnings landsliðsins, sagði
hann að svo væri sennilega. —
En ef ég fæ strákana vel með
mér, held ég að árangur ætti
ekki að láta á sér standa, sagði
hann.
Þegar Szerwinski var spurður
um einstaka leikmenn fslenzka
liðsins f gærkvöldi, vildi hann
Iftið segja annað en það að svo
væri ævinlega að menn kæmu
mismunandi frá leikjum, og
hann teldi að sumir leikmanna
íslenzka liðsins þyrftu á séræf-
ingum að halda. Um leikaðferð
fslenzka liðsins f leiknum vildi
hann ekki tjá sig heldur, en
sagði, að nauðsynlegt væri fyrir
lið að skipta um gfr öðru
hverju, og mun þar hafa átt við
að íslenzka liðið hafi leikið
leikinn f gærkvöldi á of jöfnum
hraða.
ekki flýtt sér um of og verið of
ákafir á lokamfnútum leiksins.
Þegar 2 mfnútur voru til leiks-
loka var tsland með 9 marka for-
ystu, og með knöttinn, en f stað
þess að auka muninn, misstu leik-
mennirnir klaufalega af knettin-
um í þrfgang og Svisslendingum
tókst að minnka muninn og
sleppa með viðunandi tölur frá
leiknum.
Miðað við allt eðlilegt er
fslenzka liðið örugglega 10—15
mörkum betra en það svissneska
og þvf erfitt að átta sig á því hvað
hefur gerzt á Akranesi. Sá leikur
er bezt gleymdur sem fyrst, en
tölurnar verða því miður ekki
máðar úr skýrslum um landsleiki
Islendinga.
Eftir að hafa heyrt um lands-
leikinn á Akranesi bjó maður sig
undir það versta þegar haldið var
f Laugardalshöllina í gærkvöldi,
og það hafa örugglega fleiri gert,
þar sem áhorfendur voru færri á
þessum landsleik en verið hefur á
landsleik um langan tfma, eða um
OLAFUR Einarsson skorar eitt sex marka sinna f leiknum.
350 talsins. Sem betur fer reynd-
ist óttinn þó ástæðulaus, þótt ís-
lenzka liðið héldi reyndar
skrekknum í viðstöddum lengi vel
I leiknum. Var það ekki fyrr en
stundarfjórðungur var eftir af
leiknum að það komst virkilega
vel í gang — stöðvaði hlaup Sviss-
lendinga í sóknarleiknum og
neyddi þá til þess að reyna að
skjóta, og lék þá sfðan sundur og
saman f sókninni. Þá loksins
kannaðist maður vel við islenzku
handknattleiksmennina. Þetta
geta þeir, og þetta munu þeir
sennilega gera þegar þeir hafa
fengið meðhöndlun hjá hinum
færa pólska þjálfara Janusi
Szwerwinski.
Það þarf raunar engan að undra
þótt nokkrar veilur væru í
islenzka liðinu í gærkvöldi. ís-
lenzkir handknattleiksmenn hafa
enn ekki hafið keppnistímabil sitt
og það er sama hvað hver segir
eða ætlar sér — sumaræfingar
handknattleiksmanna hér eru
alltaf meira og minna I molum.
Miðað við þessar aðstæður verður
ekki annað sagt en að íslenzka
liðið hafi komizt bærilega frá sfnu
í leiknum f gærkvöldi og raunar
gerði það marga fallega hluti —
fallegri en von var á.
Leikmennirnir komust ákaflega
misvel frá leiknum. Sumir virtust
hreinlega utangátta og var Ágúst
Svavarsson þar fremstur í flokki.
Miklu þyngri og seinni en hann
var t.d. f fyrra og dró úr hraðan-
um í sóknaraðgerðum Islendinga.
Má mikið vera ef Pálmi Pálmason
hefði ekki komið betur út með
liðinu, og næsta furðulegt að
landsliðsnefnd skyldi hafa talið
að ekki væri rúm fyrir hann í
fslenzka landsliðinu núna. Aðrir
leikmenn sem virtust mjög daufir
f þessum leik voru þeir Magnús
Guðmundsson og Bjarni
Guðmundsson.
Menn leiksins voru hins vegar
þeir Viggó Sigurðsson, Björgvin
Björgvinsson, Geir Hallsteinsson
og Ölafur Einarsson. Viggó barð-
ist af miklum krafti i leiknum,
„fórnaði sér“ eins og það er
kallað. Hann var reyndar ekki
saklaus af villum í leiknum, og
það voru hinir, sem hér haf a verið
Framhald á bls. 20.