Morgunblaðið - 29.09.1976, Page 19

Morgunblaðið - 29.09.1976, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1976 19 Anna í heiðinni — komin út hjá bókaklúbb AB HJÁ bókaklúbbi Almenna bóka- félagsins er komin út bókin Anna á heiðinni eftir norska rithöfund- inn og blaðamanninn Dagfinn Grönoset, sem ritað hefur ýmsar bækur um afdalafólk f Noregi. Þýðendur eru þau Sigrfður Snævarr og Jóhannes Halldórs- son. I fréttatilkynningu frá Al- menna bókafélaginu segir svo: Anna á heiðinni er næsta sér- stæð ævisaga einnar slikrar af- dalakonu — sem gengið hefur i gegnum óvenjulega erfitt líf — útkjálkakonu bæði í rnannlífinu og i landinu. Eftir örðuga bernsku lifði hún með manni sin- um flökkulífi um skeið við ör- birgð og strit. Hún kom til Haugsetvollen við Istervatn í Noregi í apríl 1928, þar sem mað- ur hennar seldi hana fyrir 300 krónur. Siðan hefur hún verið á þessum afskekkta stað, fórnaði sér fyrir heimilisfólkið og lifði það allt. Árið 1972 var hún orðin einbúi á Haugsetvollen, hálfníræð að aldri, virt af öllum þeim sem hana þekktu. Anna á heiðinni hefur verið gefin út i 160 þúsund eintökum í Noregi og notið fádæma vinsælda. Bókin er 140 bls. að stærð með allmörgum ljósmyndum af Önnu við störf sin. Unglingameistaramót í skák í nóvember FYRSTA unglingameistaramót tslands, eftir hinni nýju skipan á Skákþingi lslands, verður haldið sfðari hluta nóvembermánaðar n.k. Þátttaka miðast við skák- menn fædda 1956 og slðar. Sigurvegarinn hlýtur titilinn Unglingameistari tslands 1976 og fær rétt til þátttöku fyrir íslands hönd í alþjóðlegu unglingaskák- móti sem fram fer i Hallsberg i Svíþjóð um áramótin. Þá verður haldið í Reykjavík dagana 8.—11. nóv. Norðurlanda- mót framhaldsskóla, en sveit frá Menntaskólanum í Hamrahlfð hefur undanfarin tvö ár tekið þátt í slíku móti og varð Norðurlanda- meistari 1974. Þátttaka hefur þegar verið tilkynnt frá Danmörku og Finn- landi. Vantar þig ljós? I salarkynnum Arkitektafélags Íslands að Grensásvegi 11 stendur nú yfir sýning þar sem innlendir framleiðendur og innflytjendur sýna fjölbreytt úrval af ýmiss konar Ijósum, loftljósum, veggljósum, útiljós- um, kösturum, tengium, perum o.fl. Sýningin hefur hlotið nafnið Lýsing ’76 og i tilefni hennar hefur Daði Ágústsson raf- magnstæknifræðingur verið fenginn til að halda erindi um ljóstækni, en það eríndi verður auglýst sérstaklega. Sýning þessi er einn liður í þjónustu Arkitektafélags Íslands við fagmenn og hús- byggjendur og er tilgangurinn sá að áuðvelda þessum aðilum að fá samfellt yfirlit yfir það helzta sem fáanlegt er á við- komandi sérsviði. Sýningin mun standa til 3. okt. og er opin alla daga frá 14.00—22.00. Unnið að uppsetningu sýning- arinnar Lýsing ’76 Skortur á kennurum í mynd- og handmennt Á ALMENNUM fundi í Félagi íslenzkra smíðakennara, sem haldinn var 9. sept. s.I., kom fram að tilfinnanlegur skortur er á kennurum í mynd- og handmennt. Því skora smíðakennarar á menntamálaráðherra og aðra for- ráðamenn skólamála að efna margendurteknar yfirlýsingar um aukna verkmenntun í land- inu. I þvi sambandi álíta smíða- kennarar að brýnast sé að gera mynd- og handmennt að kjarna- námsgein allra framhaldsskóla á bilinu milli grunnskóla og háskóla og telja að slík ráðstöfun yki stórlega aðsókn að smíða- kennaradeild Kennaraháskóla Islands. Einng benda þeir á, að öll að- staða f smiðakennaradeildinni sé mjög hrörleg og þvi nauðsynlegt að beita sér fyrir skjótum umbót- um þar. Stríðsglæparéttar- höld haldin í USA Washington, 27. september — AP. BANDARISKA innflytjendaeft- irlitið mun reyna að fá senda úr landi frá Bandarfkjunum sjö menn sem sakaðir eru um morð og óhæfuverk á vegum nasista- stjórnarinnar f Vestur- Þýzkalandi á timum heimsstyrj- 200 ára afmæli Bolsoj-leikhús- ins minnst I TILEFNI af 200 ára afmæli Bolsoj-leikhússins f Moskvu, hef- ur verið opnuð sýning á ljós- myndum frá starfi þess f sýning- arsal MtR að Laugavegi 178. Sýn- ingin verður opin frá kl. 17.30 til 19 á þriðjudögum og fimmtudög- um og kl. 14—18 á laugardögum. Þá verður einnig efnt til fyrir lestra og kvikmyndasýninga i tengslum við þessa sýningu. Nat- alja Konjús, ballettmeistari við Bolsoj, mun segja frá ferli sínum á sunnudaginn kl. 15. Meðal kvik- myndanna, sem verða sýndar. er óperan „Evgení Onegin” eftir Tjaikovsky, „Boris Godunof” eft- ir Mussorgski og „Spaðadrottn- ingir eftir Tjaikovsky. Þá verð- ur einnig sýnd heimildakvikmynd um Maju Plísetskaju, eina fræg- ustu ballettdansmey vorra tfma. aldarinnar sfðari. Að sögn for- svarsmanna stofnunarinnar var ákvörðun f máli þessu tekin eftir að lögfræðingar hennar höfðu yf- irheyrt vitni I lsrael og kann svo að fara að allt að 30 fsraelsk vitni verði flutt til Bandarfkjanna til að vera við réttarhöld yfir sjö- menningunum, sem ekki verða nafngreindir fyrr en formlega hefur verið höfðað mál gegn þeim en það verður trúlega innan 60 daga. Menn þessir munu hafa átt aðild að strfðsglæpum f Lettlandi og Litháen og þeir komu allir til Bandarfkjanna skömmu eftir styrjaldarlok. Þrfr þeirra hafa ekki fengið bandarfskan rfkis- borgararétt, en reynt verður að fá hina fjóra svipta þeim réttindum á þeim forsendum að þeir hefðu aldrei átt að fá að fara inn f landið vegna aðildar að glæpum þessum. <3\ CJ (gFoo / SUÐURLANDSBRAUI32 Vorum að fá Wilton gólfteppi í mörgum gerðum og stærðum t.d.: 1 70X240 cm 200x300 cm 250x350 cm 300x400 cm FRIÐRIK BERTELSEN, LÁGMÚLA 7, SI'MI 86266 SKÓLi JAFNT FTRIR ÁHUGAFÓLK ’ SFM SKÓLAFÓLK SÁLARFRÆÐl BÓKF4RSl°'fy SKRIFT 06 LETURGtRt- SKÖU ÞAK SEM ÞÚ ÁKVEÐUR HVAÐ ÞÚ LÆRIR x'* - ■■■ •...••• SKÓU SEM STARFAR ALLT ÁRIÐ SKÓU SEM HEFUl 36 NÁMSGRF.IN. \ BJÓÐA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.