Morgunblaðið - 08.10.1976, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER 1976
5
Gigtarfélag
íslands stof n-
að á morgun
ALÞJÓÐASAMTÖK gigtar-
félaga hafa f samvinnu við
alþjóða heilbrigðisstofnunina
helgað árið 1977 baráttunni
gegn gigt (World Rheumatism
Year).
Á morgun kl. 15:00 verður
stofnað Gigtarfélag tslands 1
Domus Medica, félag áhuga-
fólks um gigtvarnir, greiningu
og meðferð gigtsjúkdóma. Gigt-
sjúkdómafélag (slenskra lækna
hefur forgöngu um stofnun
þessa nýja félagsskapar og
hefur fengið til liðs við sig
ýmsa aðila, svo sem gigtar-
sjúklinga og fulltrúa ýmissa
heilbrigðisstétta, t.d. sjúkra-
þjálfara, iðjuþjálfara og
hjúkrunarfræðinga.
finnanlega skortir viðunandi,
fræðslu um þennan sjúkdóm.
Gigtsjúkdómar færast í vöxt
og finnast í fólki á öllum aldri,
einnig í börnum og mega flestir
búast við þvi að komast í kynni
við þá einhvern tímann á æv-
inni.
Gigt veldur margvíslegum
þjáningum hjá gigtveikum og
er ein algengasta orsök skertr-
ar starfsorku og afleiðingar af
því eru vinnutap og er þess
vegna einn dýrasti sjúkdómur,
sem herjar þjóðfélagið.
Gigtlækningum hefur fleygt
fram á undanförnum árum.
Þekking á gigtsjúkdómum fer
stöðugt vaxandi, bæði hvað
varðar varnir og lækningu.
Undirbúningsnefnd Gigtarfélags Islands á fundi með forsvars-
mönnum norrænu gigtarfélaganna ( Reykjavík 23. jún( 1976.
Veikko Laine, Finnlandi, Einar Engellau, Svlþjóð, Einar A.
Jónsson, tslandi, Magnús Jónasson, tslandi, Aage Reimer, Dan-
mörk, Carla Just-Olsen, Danmörk, Kári Sigurbergsson, tslandi,
Jón Þorsteinsson, tslandi, Halfdan Boe, Noregi, Erling Thoralvs-
son, Noregi, Einar Ingólfsson, Isl. Á myndina vantar Jóhann
Gunnar Þorbergsson.
Undirbúningsnefnd skipa:
Stjórn Gigtsjúkdómafélags
íslenskra lækna, Jón Þorsteins-
son, Kári Sigurbergsson og
Jóhann Gunnar Þorbergsson,
og ennfremur eru í nefndinni
Einar A. Jónsson, aðalféhirðir,
Einar Ingólfsson, lögfræðingur,
og Magnús Jónasson, læknir.
Gigtlæknar harma hve alltof
algengt sé að gigtsjúklingar
komi of seint til meðferðar.
Astæður fyrir því geta verið af
ólíkum toga spunnar, en megin-
ástæðan er eflaust sú, að til-
Liðagigt er til að mynda ekki
ólæknandi eins og margir
halda. Sífellt koma fram ný og
betri lyf og sífellt er beitt nýj-
um og betri aðferðum, bæði í
endurhæfingu og bæklunar-
lækningum. Félagsleg aðstoð er
og talin mikilvægur þáttur í
gigtlækningum.
Gigtarfélagið hyggst ná til-
gangi sínum með þvi að annast
fræðslu um gigtsjúkdóma og
m.a. með því að gefa út leið-
beiningarit fyrir gigtsjúka,
Framhald á bls. 25
233 fulltrúar sitja
30. þing BSRB sem
hefst á mánudag
30.ÞING BSRB verður sett kl. 10
f.h. mánudag 11. okt. n.k. ( Súlna-
sal Hótel Sögu. Fulltrúar eru 233
frá 33 bandalagsfélögum, en
félagafjöldi þeirra var 12.134 um
slðustu áramót.
Þingflulltrúum var send
skýrsla stjórnar með mánaðar-
fyrirvara og hefur hún siðan
verið send öllum félagsmönnum.
Einnig hafa fulltrúum verið send
drög að ályktunum um lagabreyt-
ingar, sem kveða m.a. á um
hvernig haga skuli uppsögn kjara-
samninga, verkfallsboðun og alls-
herjaratkvæðagreiðslu vegna
breyttra laga um samnings- og
verkfallsrétt.
I drögum að tillögum um kjara-
mál felst stefnumótun fyrir gerð
fyrstu kjarasamninganna með
verkfallsrétti á næsta ári. Einnig
liggja fyrir tillögur um skattamál,
efnahagsmál, jafnréttismál,
fræðslustarf og hugsanlega aðild
við hlið ASÍ að norrænu samstarfi
stéttarsamtaka.
Áformað er að fjalla um skýrslu
stjórnar á mánudag og þá verða
lögð fram mál frá stjórn og ein-
stökum fulltrúum. Nefndir starfi
fyrri hluta þriðjudags en síðan
hefjist afgreiðsla mála. Þinginu
lýkur sfðdegis á fimmtudag.
Veski tapaðist
VESKI tapaðist I gær annað
hvort í nágrenni við Skáta-
búðina á Snorrabraut eða við
Hlemm. t veskinu var banka-
bók, nafnskfrteini og ökuskír-
teini og 4.960 krónur f
peningum. Finnandi veskisins
er vinsamlegast beðinn að
koma því til skila 'l lögreglu-
stöðina eða til viðkomandi.
KOFLOTTAR
FLAUELSBLÚSSUR
HERSEY-
OG FROTTEBOLI
HÚFUR OG TREFLA
KJOLA
PILS
HERRAJAKKAPEYSUR
HERRALEÐURJAKKA
■■ • ...
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22
LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155