Morgunblaðið - 08.10.1976, Síða 27

Morgunblaðið - 08.10.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1976 27 United stærst SWISSAIR hefur birt lista yfir 25 stærstu flugfélög heims hvað snertir farþegafjölda, vöruflutninga, farþega-kflómetra, flotastærð og starfs- mannafjölda. Ef stærðin er metin eftir fjölda farþega, þá eru banda- rfsk flugfélög f 5 efstu sætunum. Efst er United Airlínes, sem flaug með 29,92 milljónir farþega 1975 þá Eastern með 27.68 m., Delta 26.53 m., American með 21.17 m., og TWA með 16.27 m. Þau ffugfélög utan Bandarikjanna sem fluttu flesta farþega segir Swissair vera Nippon, British Airways og Air Canada. United og Eastern eru einnig stærst hvað snertir fiotastærð með 375 og 239 flugvélar. Siðan koma American (232), TWA (231), og Delta (189). Utan Bandaríkjanna eru mest British Airways með 166 flugvélar og Air Canada með 122. Pan American hefur mesta vöruflutninga en næst á eftir koma Flying Tiger Lines, Luft- hansa, Japan Airlines og United. British Airways hefur flest starfs- fólk (52.102), næst eru United (46.609) og American Airways (35.014). „íslenzk fyrirtæki” vekja áhuga erlendis MIKIL eftirspurn hefur verið eftir bókinni „tslenzk fyrirtæki", sem nýlega kom út hjá Frjálsu framtaki. Að sögn Jóhanns Briem, framkvæmdastjóra spyrjast erlend fyrirtæki, stofnanir og við- skiptarit mikið fyrir um bókina en í henni er m.a. að finna ýmsar viðskiptalegar upplýsingar á ensku. I „tslenzkum fyrirtækjum" eru viðtækar upplýsingar um fyrirtæki, svo sem stofnár þeirra, nafnnúmur, söluskattsnúmer, telexnúmer, stjórn, starfsmenn og starfsmannafjölda, framkvæmdastjórn, starfssvið og fleira. Einn- ig er sagt frá starfssviði ráðuneyta og opinberra stofnanna, sendiherrum, ræðismönnum og fleiru. Þá er að finna viðskipta- og þjónustuskrá, sem nær til fyrirtækja um allt land svipaða þjón- ustuskrá simaskrárinnar yfir Reykjavík. Birgdastöð SÍS í gagnið um áramót Samband íslenzkra samvinnufélaga mun taka í notkun nýja birgðastöð sina við Elliðavog í Reykjavik nú um eða fljótt eftir áramót. Birgðastöðin, sem ætluð er sem geymsluhúsnæði fyrir vörur, sem dreift er til kaupfélaga, breytir mjög lageraðstöðu SlS. Hún býður upp á vinnuhagræðingu og fullnægir ein þörfum Sambandsins fyrir geymsluhúsnæði en það skiptist nú á þrjá staði. Ekki er ljóst hver kostnaður við bygginguna verður en upphaflega var áætlað að hann yrði um 1100 milljónir. Ekki tókst að fá upplýingar um stærð húsnæðisins. Venezuela vill hækka olíu Venezuela mun beita sér fýrir verðhækkunum á oliu og benzíni á næsta fundi samtaka oliuframleiðslurikja (OPEC). Haft er eftir oliumálaráðherra Venezuela, Valentin Hernandes, að stefnt sé að 20% hækkun. Nýr Fiat - júgóslavneskur CRVENA Zastava i Júgóslavíu og Itölsku Fiat-verksmiðjurnar hafa gert samkomulag um framleiðslu á nýjum smábíl í Júgó- slavíu, Zastava 102. Framleiðslan á að hefjast 1979 og á fram- leiðslugetan að vera 50.000 bílar á ári, sem fara bæði á innlendan og erlendan markað. Fiat mun sjá júgóslavneska fyrirtækinu fyrir verkfærum og bilhlutum. TV-Guide mesta aug- lýsinganáman í USA ÞEGAR kveikt á sjónvarpinu á 69 milljónum heimila í Bandaríkj- unum, hafa um 20 milljónir manna notað tímaritið TV-Guide til að velja sjónvarpsrás, skrifar bandaríska timaritið Business Week. TV-Guide slær öll met hvað varðar tekjur af auglýsingum. Árið 1975 voru auglýsingatekjurnar 127.4 milljónir Bandaríkja- dala og komst tímaritið þar með fram úr Time, sem fram að þvi hafði allra blaða mestar tekjur af auglýsingum. Næst á eftir Time komu Newsweek, Sports Illustrated, Readers Digest, Business Week og Womans Day. Ástæðan fyrir velgengni TV-Guide er álitin vera sú, að tímaritinu er að mestu dreift i gegnum kjörbúð- ir, þar sem því er komið fyrir á áberandi stað við 300 þúsund kassa í 91 þúsund verzlunum. 10 stærstu fyrir- tækin í Danmörku SAMKVÆMT bókinni „Danmarks 1000 störste virksom- heder“ er Det östasiatiske Kompani stærsta fyrirtækið i Danmörku en það var einnig stærst í fyrra. Var velta fyrir- tækisins 16.1 milljarður d.kr. I öðru sæti er Fællesforeningen for Danmarks Brugsforeninger. Því næst koma ESS-FOOD númer 3, Dansk Landbrugs Grovareselskab 4, F.L. Smidth samsteyan 5, De forenede bryggerier 6, Gulf Oil 7, Dansk Esso 8, Póstur og sími 9, og Superfos i 10. sæti. fGÆÐA (STEREO) _TÆKI FRÁ fliD PIOMEER SA-7300 magnarinn er óvenju nákvæmur magnari. SA-7300 er vandlega byggður af reyndum tækni- mönnum Pioneer og er vissulega þess verður að á hann sé hlustað. CT-F2121 framhlaðna kassettutækið er ekki aðeins óvenju glæsilegt heldur einnig eitt það fullkomnasta sem völ er á. CT-F21 21 er með innbyggðu „Dolby system". PL-510 plötuspilarinn er sá nýjasti frá Pioneer og sá hljóðlátasti á markaðnum. Frábær spilari. HPM-60 hátalararnir nýju frá Pioneer virðast ætla að ná geysilegum vinsældum vegna gæða og verðs. KOMIÐ OG HLUSTIÐ. Hljómdeild LAUGAVEG 6E Stmi tti skiptibotOi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.