Morgunblaðið - 08.10.1976, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKT0BER 1976
30
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURDUR B. JÓNSSON
^ Grundargorði 31
er látinn
Sigrtður Danlelsdóttir.
og börn.
t
BALDUR B. SIGURLAUGSSON
bifreiðastjóri
Skólagótu 8
Ísafirði
lézt á ísafirði 6 október
Sofffa Ingimarsdóttir og börn.
Móðir min, tengdamóðir og amma
MARTHA MARÍA EYÞÓRSDÓTTIR
Skarphéðinsgötu 6
lést I Landakotspítala 6 október.
Fyrir hönd systkina hinnar látnu
Sigrfður Einarsdóttir, Jón Geir Árnason,
Diana Vera Jónsdóttir
t
Utför föður okkar tengdaföður og afa,
GUNNARS SIGURÐSSONAR
Sóleyjargötu 12
Akranesi
fer fram frá Akraneskirkju, laugardaginn 9 október kl 1 4
Helga Gunnarsdóttir
Sigurður Gunnarsson
Gunnlaugur Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson
tengdabörn og barnabörn
t Faðir okkar, tengdafaðir og afi.
GUÐMUNDUR EYJÓLFSSON
frá Eiðum
verður jarðsunginn frá Landakirku, i Vestmannaeyjum, laugardaginn 9.
okt kl 4
Stella Guðmundsdóttir, Róbert Arnfinnsson
Sigurður Guðmundsson, Kristfn Karlsdótir,
Arni Guðmundsson, Jóna Hannesdóttir,
Ólafur Guðmundsson, Guðlaug Jóhannsdóttir.
Anton Guðmundsson, Úlfhildur Úlfarsdóttir.
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐBERGUR G. JÓHANNSSON
sjómaður
frá Hafnarfirði
sem andaðist 30. september, verður jarðsungínn frá Frikirkjunni i
Hafnarfirði, laugardaginn 9 október kl 1 0 30 f h
Blóm vinsamlegast afþökkuð þeir er vilja minnast hins látna er bent á
starfsemi K.F.U.M.
Guðný Guðbergsdóttir
Guðbjörg Guðbergsson
Jóhann Rúnar Guðbergsson
Guðmundur Guðbergsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð vegna jarðarfarar
ÓLAFS JÓNSSONAR
Vesturgötu 94
Akranesi.
Sigrfður Órnólfsdóttir
Arnór Ólafsson Marfa Ágústsdóttir
Kristján Ólafsson Fjóla Runólfsdóttir
Gréta Ólafsdóttir Jón S. Kristjánsson.
t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður
og afa,
SIGURÐAR BREIOFJORÐS jónssonar.
sérstakar þakkir færum við starfsfólki og læknum deild 1 — B Landspít-
alans fyrir góða umönnun og hjúkrun
Ásgeír SigurSsson Gúrún Gunnarsdóttir
Valgeir Sigurðsson Sigrfður Sæmundsdóttir
Steinunn SigurSardóttir Árni Steingrfmsson
Auður Sigurðardóttir Sigurjón Guðmundsson
Kristfn Sigurðardóttir Jón Steingrímsson
Sigrlður Sigurðardóttir Jóhannes Þór Guðbjartsson
Edda Sigurðardóttir Óttarr Ingimarsson
Hilmar Sigurðsson Rúnar Sigurðsson
og barnabórn
Marta Jónsson
- Minningarorö
Fædd 19. ágúst 1891
Dáin 3. október 1976
í dag verður til moldar borin
frú Marta Máría Jónsson. Marta
er fædd 1891 að Grenjum í Alfta-
neshreppi, Mýrum, en þar bjuggu
þá foreldrar hennar Sesselja
Soffía Nielsdóttir og Bjarnþór
Bjarnason bóndi. Marta ólst upp í
hópi sjö systkina, en þau voru
Þórdfs, Sigriður, Hildur, Jón, Ás-
geir og Sveinn. Af þeim eru enn á
lífi þeir Ásgeir og Sveinn. Hildur
lést einnig á þessu ári.
Marta vann að búi foreldra
sinna, eins og þá var títt til sveita
og er enn. Síðar fluttu foreldrar
hennar og fjölskylda til Borgar-
ness, og starfaði hún þar ein-
hvern tima hjá systur sinni Þór-
dísi, sem rak þar gistihús ásamt
eiginmanni sínum. Marta giftist
Friðriki Jónssyni kaupmanni,
sem var annar hinna kunnu
Sturlu bræðra. Þeir áttu stóran
þátt í vexti athafnalifs Reykjavík-
ur í byrjun þessarar aldar. Þau
eignuðust tvö börn, Sigþrúði og
Sturlu.
Sigþrúður er gift Arinbirni Kol-
beinssyni lækni. Sturla er erfða-
fræðingur, og hans eiginkona er
Sigrún Laxdal.
Heimili Mörtu og Friðriks var á
Laufásvegi 49, og var þar mjög
gestkvæmt alla tið. Margt í heim-
ili, svo einna helst minnti á stóru
sveitaheimilin hér áður. Eigin-
mann sinn missti Marta árið 1936.
Marta tók síðar þátt í uppeldi
dótturbarna sinna, en hún eignað-
ist alls sex barnabörn. Hélt hún
sitt eigið heimili alla tíð. Marta
var vissulega stórbrotin kona,
kvenskörungur ef svo mætti
kalla.
Ég, sem þetta skrifa, kynntist
Mörtu ekki fyrr en hún var að
verða 75 ára. Hún var þá enn
glæsileg kona, sem bar aldur sinn
svo af bar. Ekki var hægt að finna
stöðnun f afstöðu hennar til
manna og málefna. Var þar sem
miklu yngri kona væri. Lifandi
áhugi og skilningur á Iffinu. Þó
áhuginn mótaðist mest af um-
hyggju fyrir fjölskyldunni voru
áhugamálin mörg og margvísleg.
Hin almennu mál þjóðfélagsins
ljóð og skáldskapur og vandamál
daglegs lífs. Minni hennar brást
ekki, og fróð var hún um þá tíma,
sem nú fjarlægjast, svo og lfðandi
stund. Á áttugasta aldursári
veiktist Marta og voru síðustu ár
hennar stöðug barátta við að end-
urheimta mátt sinn. Kom þrek
hennar og viljastyrkur þar að
góðu haldi.
Hér er horfin á braut kona sem
skilað hefur sfnu ævistarfi með
heiðri og áunnið sér virðingu og
traust allra sem til þekkja.
Við kveðjum með virðingu eina
mikilhæfustu konu þeirrar kyn-
slóðar, sem nú er óðum að hverfa.
Bergsteinn Gizurarson.
Það fer ekki milli mála, að eftir-
minnilegastur og áhrifaríkastur
af þrem afburðakennurum guð-
fræðideildar háskólana á námsár-
um mínum þar var Haraldur
Níelsson prófessor. Það ver því
mikið gleðiefni, þegar ég kom
sem ungur prestur að Borg, að
ekki færri en fimm af systkinum
hans voru búsett í prestakallinu,
ásamt fleiri eða færri af börnum
þeirra og barnabörnum, og reynd-
ist mér allur sá ættbálkur ein hin
styrkasta stoð í starfi mfnu þar,
og við margt af þvf fólki hafði ég
nána samvinnu og tengdist vin-
áttuböndum, sem reyndust heil
og traust. Og jafnvel brottfluttum
niðjum þeirra kynntist ég meira
eða minna, því að oftlega komu
þeir á æskustöðvarnar til sam-
funda við fjölskylduna, sem öll
var mjög samrýnd. öll þau kynni
voru mér mikils virði, en verða
ekki nánar rakin hér. En eitt
þeirra systkina varð okkur hjón-
um fjölskylduvinur öðrum frem-
ur, og þó einkum eftir að við
«
fórum til Reykjavíkur, og við urð-
um næstu nágrannar. Það var frú
Sesselja Níelsdóttir, en maður
hennar, Bjarnþór Bjarnason,
hafði andazt í Borgarnesi fyrsta
sumarið sem við vorum á Borg.
Hún var nú flutt til dóttur sinnar,
Mörtu Maríu, ekkju Friðriks
Jónssonar guðfræðikandidats og
kaupmanns, sem bjó í næsta húsi
við okkur. Jafnframt tókust þá
nánari kynni við frú Mörtu og
börn hennar, sem við höfðum að-
eins kynnzt lauslega. Þau kynni
reyndust okkur mjög mikils virði,
og urðu okkur mjög dýrmæt, þeg-
ar mest reið á. Ekki spillti það, að
okkur veittist einnig sú ánægja,
að vera í nábýli við hana einnig að
sumrinu, þegar hún dvaldist í
sumarbústað sínum við Laxfoss,
en við í Lindarbrekku við Hreða-
vatn.Urðu þá einnig gagnkvæmar
heimsóknir, og nutum við gest-
risni hennar og alúðar í ríkum
mæli. Tryggð hennar og vinátta
við okkur hefur aldrei brugðizt.
Það er ekki ætlunin með þess-
um línum að rekja æviferil frú
Mörtu nánar né störf hennar,
enda munu aðrir væntanlega gera
það. En við hjónin og fjölskylda
okkar vildum ekki láta hjá liða að
tjá henni látinni þakkir fyrir
órofa tryggð hennar, höfðings-
skap hennar og einlæga vináttu,
og það vil ég gera með þessum
fátæklegu orðum. Svo viljum við
einnig votta börnum hennar, frú
Sigþrúði og doktor Sturlu, og
börnum þeirra og öðrum ættingj-
um og venzlafólki, samúð okkar
og þakklæti fyrir alúðarvináttu.
Björn Magnússon.
Marta fæddist að Grenjum,
Álftaneshreppi, Mýrasýslu, 19.
ágúst 1891. Foreldrar hennar
voru Bjarnþór Bjarnason bóndi
og kona hans, Sesselja Nielsdótt-
ir, er þar bjuggu. Bjarnþór var
bróðir Asgeirs I Knarrarnesi og
þeirra systkina. Bjarnþór var lit-
ríkur persónuleiki, gamansamur
og fyndinn þegar svo bar undir.
Sesselja, móðir Mörtu, var dóttir
hjónanna Sigrfðar Sveinsdóttur
og Nielsar Eyjólfssonar bónda að
Grímsstöðum (næsti bær við
Grenja).
Sesselja var gædd miklu and-
legu atgervi og minnti í mörgu á
afa sinn, sr. Svein Níelsson, ann-
álaðan mælskumann. — Börn
þeirra Sigrfðar og Níelsar voru
sjö. Fimm þeirra reistu bú í fæð-
ingarhreppnum, og ólu þar
lengstan hluta ævinnar. Tvö syst-
kinanna, Þurfður og Haraldur,
áttu hins vegar heima f Reykja-
vík. — Þess má geta, að ekkert
ættmenni er nú lengur að finna í
byggð þessara fimm systkina. —
Þjóðflutningar virðast eiga sér
stað, einnig í smáum stfl.
Af sjö börnum þeirra Sesselju
og Bjarnþórs eru nú á lffi aðeins
þeir tveir, bræðurnir Ásgeir list-
málari og Sveinn B. Valfells fram-
kvæmdastjóri.
Marta var gift Friðriki Jónssyni
kaupmanni, sem reyndar var guð-
fræðingur að mennt. Börn þeirra
tvö eru: Sigþrúður, gift Arinbirni
Kolbeinssyni lækni, og dr. Sturla
náttúrufræðingur, kvæntur Sig-
rúnu Laxdal.
Þeir bræður Sturla og Friðrik
Jónssynir voru um langt árabil
miklir afhafnamenn hér f Reykja-
vík. Starfræktu sölubúðir, ráku
kúabú auk annarra umsvifa. Þeir
urðu líka einna fyrstir til þess að
byggja myndarleg íbúðarhús eins
og t.d. sendiherrabústað Dana við
Hverfisgötu og stóru húsin við
Laufásveg, og er þar nú sendiráð
Breta.
Heimili þeirra Mörtu og Frið-
riksvar alla tfð svipmikið. Friðrik
var menntaður, listhneigður,
hygginn fjáraflamaður að enskri
fyrirmynd, Marta tfguleg kona,
góðum gáfum gædd, unni bók-
menntum, einkum ljóðum er hún
löngum hafði á hraðbergi, og
kunni svo undrum sætti. — Um
árabil höfðu þau hjón vetursetu I
Edinborg. Las Marta þá enska
höfunda, og æ síðan, en hún réð
yfir staðgóðri kunnáttu í enskra
tungu. Fyrir kom að Einar skáld
Benediktsson sótti þau hjón heim
I Edinborg, en hann var vinur
þeirra bræðra. Feður þeirra voru,
sem kunnugt er, verðir laga og
réttar á íslandi, Jón Pétursson
háyfirdómari, og Benedikt
Sveinsson assessor.
19. ágúst s.l. varð Marta Jóns-
son 85 ára. Dóttir hennar Sigþrúð-
ur og Arinbjörn læknir höfðu af
þvf tilefni fjölmennt gestaboð. Af-
mælisbarnið undi þessari til-
breytni glöð í bragði, af heilum
hug. — Fyrir fimm árum lamaðist
Marta svo að erfitt var upp frá því
um hreyfingar án aðstoðar. And-
legt þrek hennar virtist að mestu
ólamað og hetjulundin dugði
henni vel þessi fimm erfiðu ár.
Til dæmis sagði hún mér frá þvf f
þessu síðasta afmælisboði að ný-
lega hefði hún heyrt sungið þetta
fallega erindi eftir Hannes Haf-
stein og hafði það yfir orðrétt:
Með slegið gullhár gengur sól
að gleðibeð
með dag á armi og dregur gljúpan,
gullinn kjól
af glæstum, hvefldum móðurbarmi
og breiðir hann við rekkjurönd
og roðnar, er á beð hún stfgur
og brosi kveður lög og lönd
og I júftf ægisfaðm svo hnfgur
Þessi síðasti afmælisdagur, sem
varð óvenjuleg kveðjustund, verð-
ur börnum frú Mörtu, venslafólki
og vinum dýrmæt minning, en
hún lést hálfum öðrum mánuði
síðar, 3. október. Aðstandendum
öllum flyt ég samúðarkveðjur.
Helgi Hallgrfmsson.
t Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall MAGNÚSAR BRYNJÓLFSSONAR Holtsgötu 21. Hafnarfirði. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
HALLDÓRU JÓNSDÓTTUR,
Guðný Ólöf Magnúsdóttir, Brynjólfur Brynjólfsson, Jóhanna Brynjólfsdóttir, Einar Sigurjónsson, Jón Oddur Brynjólfsson, Guðný Hálfdanardóttir, Ásthildur B. Cates, James M. Cates. frá Súðavfk sérstakar þakkir færum við Súðvikingum fyrir veitta aðstoð við útför hinnar látnu.
Bára Brynjólfsdóttir. Börn, tengdabórn og barnabörn.