Morgunblaðið - 08.10.1976, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÖBER 1976
FIMM LEIKMENN SLOVAN
BRATISLAVA í LANDSLIÐI
TÉKKA ER VANN RÚMENA
LEIKMENN Slovan Bratislava,
sem leika með tékkneska lands-
liðinu, voru atkvæðamestir er
Tékkar mættu Rúmenum I vin-
áttulandsleik sem fram fór I Prag
I fyrrakvöld að viðstöddum rösk-
lega 25.000 áhorfendum. Sérstak-
Iega var það hinn frægi leik-
maður Ondrus sem lét að sér
kveða og var konungur vallarins.
Skoraði hann sjálfur eitt mark og
átti gððan þátt I tveimur öðrum
Jan Pivarnik, fyrirliði tékkneska
landsliðsins.
mörkum sem Tékkar skoruðu I
leiknum, en þeir sigruðu 3:2.
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir
Tékka, þar sem Rúmenum tókst
að skora þegar á 8. mlnútu eftir
slæm varnarmistök Einn af
varnarleikmönnum Tékka ætlaði
að senda knöttinn til mark-
varðarins en hinn fljóti framherji
Rúmenanna, Balaci, komst á milli
og skoraði.
Tékkar jöfnuðu síðan á 39.
mínútu og var þar að verki tengi-
liðurinn Panenka, en Rúmenar
náðu aftur forystu snemma I
seinni hálfleik. Þegar það mark
var skorað var einnig um að ræða
slæm varnarmistök hjá Tékkum.
Eftir aukaspyrnu töldu Tékkar að
leikmaður Rúmena væri rang-
stæður og hreyfðu hvorki legg né
lið er hann sendi knöttinn í mark
þeirra. Dómarinn var hins vegar á
öðru máli og dæmdi markið gilt.
Það sem eftir lifði leiksins voru
Tékkarnir I nær stanzlausri sókn
og fór svo að undir lok leiksins
skoruðu þeir tvö mörk. Hið fyrra
gerði Dobia eftir sendingu frá
Ondrus en Ondrus gerði svo
sjálfur síðasta markið sem reynd-
ist vera úrslitamark leiksins.
Fimm leikmenn frá Slovan
Bratislava — liðinu sem Fram lék
við í UEFA-keppninni — voru í
tékkneska landsliðinu að þessu
sinni.
Landsleikur Tékka og Rúmena
i fyrrakvöld var „upphitun" fyrir
tékkneska liðið sem leikur sinn
fyrsta leik i undankeppni heims-
meistarakeppninnar 13. október
n.k. og mætir þá Skotum I Prag.
.Aðeins þrjú lið eru í riðlinum,
Tékkóslóvakia, Skotland og
Wales. Gera Tékkar sér miklar
vonír um sigur i riðlinum, og hafa
vissulega ástæðu til eftir sigur í
Evrópubikarkeppni landsliða fyrr
á þessu ári.
1 Lirt Dankersen sem kemur hingað I heimsókn. Efri röð frá vinstri: von Oepen, Kramer, Waltke, Axel
Axelsson, Arsenijevic (þjálfari), Ölafur H. Jónsson, Buddenbohm og Busch. Neðri röð frá vinstri:
Meisolle (aðstoðarþjálfari), Siidmeier, Meyer, Niemeyer, Karcher, Grund, Becker og Böversen
(nuddari)
Leika skemmtilegan
og hraðan handknattleik
- sagði Stefán Gunnarsson um Dankersen-
liðið sem leikur hér fjóra leiki í næstu viku
— ÉG TEL að Dankersen sé betra
en a.m.k. flest fslenzku hand-
knattleiksliðin, sagði Stefán
Gunnarsson, hinn kunni hand-
knattleiksmaður úr Val á fundi
sem Fram boðaði til með frétta-
mönnum f gær til þess að kynna
A Kópaskeri seljast 200
raðir - engin á Akranesi!
- DREGIÐ VERÐUR UM FLESTA LEIKI NÆSTA GETRAUNASEÐILS
— ÞAÐ var búið að ákveða leik-
ina á seðlinum fyrir löngu,
prenta miðana og senda þá út,
sagði Ólafur Jónsson hjá ts-
lenzkum getraunum I viðtali
við Morgunblaðið I gær, en sú
staða er nú komin upp I sam-
bandí við leiki þá sem eru á
næsta getraunaseðli að menn
geta sparað sér vangaveltur um
úrslit þeirra. Fjórir leikir sem
eru á seðlinum hafa þegar farið
fram, og útlit er fyrir að a.m.k.
fimm leikjum verði frestað.
Kann svo að fara að aðeins tveir
leikir sem eru á seðlinum fari
fram, leikir Norwich og
Middlesbrough og Nottingham
Forest og Sheffield United.
Það er undirbúningur Eng-
lendinga fyrir landsleik þeirra
við Skotland sem setur svona
mikið strik I reikninginn. Hing-
að til hafa leikir í 1. deild haft
algjöran forgang í ensku knatt-
spyrnunni, en nú hefur blaðinu
verið snúið við og landsliðið er
komið I öndvegi.
Ölafur Jónsson sagði að í
reglugerð Islenzkra getrauna
væru ákvæði um það, að ef einn
eða tveir leikir sem eru á seðl-
inum fara ekki fram, eru þeir
felldir út þegar seðlar eru
metnir til vinnings, en ef þrír
eða fleiri leikir falla niður er
dregið um alla þá leiki sem ekki
fara fram. Mun dráttur fara
fram hjá getraunum á svipuð-
um tima á laugardaginn og úr-
slit leikja I ensku knattspyrn-
unni liggja venjulega fyrir.
Ölafur Jónsson sagði að sala
getraunaseðla hefði verið frem-
ur dræm það sem af væri. —
Hún tók þó góðan kipp i siðustu
viku, og við erum bjartsýnir á
að þetta fari betur f gang þegar
á haustið liður, sagði hann, —
hins vegar höfum við orðið fyr-
ir vonbrigðum með kerfisseðl-
ana. Þeir seljast alls ekki eins
mikið og við áttum von á, og
virðist sem menn kunni enn
ekki að notfæra sér þá. Sölu-
aukning í þeim hefur þó verið
nokkuð jöfn og þétt, en við átt-
um von á mun meiri áhuga á
þeim, heldur en orðið hefur.
— Annars er greinilegt að
sölumennirnir hjá félögunum
eru orðnir þreyttir á þessu
starfi, sagði Ölafur, — það lend-
ir á sömu mönnunum ár eftir
ár, og þvi er vel skiljanlegt að
þeir séu ekki eins atkvæðamikl-
ir í sölustarfinu og var til að
byrja með. Einhvern veginn er
það þannig að félögunum tekst
ekki að dreifa þessu starfi á
fleiri félaga sina. Einstök félög
standa sig frábærlega vel og
hafa verulegar tekjur af sölu
seðlanna. Má þar nefna Knatt-
spyrnudeild KR sem selur
helmingi meira en nokkur önn-
ur deild hér í Reykjavík. Mun
það ekki langt frá lagi að deild-
in hafi haft 600—800 þúsund
krónur í tekjur af þessari sölu-
starfsemi í fyrra. Aðrar deildir
sem standa sig vel I Reykjavík
eru t.d. handknattleiksdeild
Fram og knattspyrnudeild
Vals.
Ólafur sagði að dofnað hefði
enn meira yfir sölustarfinu úti
á landi en á Reykjavikursvæð-
inu, og væri nú svo komið að
hætt væri að senda seðla á
nokkra staði. — Það er annars
furðulegt hvað þetta er mis-
jafnt, sagði Ólafur. Á Kópa-
skeri eru t.d. seldar um 200
raðir í hverri viku, og virðist
sama á hverju dynur hjá þeim.
Hvergi á landinu eru seldir
fleiri seðlar en þar. Næst kem-
ur svo Keflavík, en þar er lika
mikill kraftur í sölunni og dug-
legir menn sem fást við hana.
Aftur á móti eru Akurnesingar
— þeir hinir miklu knatt-
spyrnuáhugamenn — ekkí einu
sinni með I getraunastarfinu í
vetur.
komu vestur-þýzka liðsins G.W.
Dankersen hingað til lands I
keppnisferð, en Stefán dvaldi tiu
daga fyrir skömmu hjá vini sfn-
um, Olafi H. Jónssyni, og fylgdist
þá bæði með æfingum Danker-
senliðsins og leikjum þess.
— Aðalmunurinn á Dankersen
og íslenzkum liðum er sá að hjá
þeim er valinn maður I hverju
rúmi, sagði Stefán. Liðið er með
mjög góðar skyttur, góða línu-
menn og markvarzlan er einnig
ágæt. Flestir leikmenn liðsins eru
stórir og þéttir á velli. Liðið leik-
ur skemmtilegan og hraðan hand-
knattleik, og er engan veginn eins
gróft I varnarleik sinum g þýzku
liðin hafa yfirleitt fengið orð fyr-
ir.
Dankersen kemur hingað til
lands n.k. sunnudag og mun leika
hér fjóra leiki. Fyrsti leikur liðs-
ins verður I Laugardalshöllinni
n.k. mánudagskvöld og þá mun
það mæta gestgjöfum sinum,
Fram. 1 Hafnarfirði leikur liðið
n.k. miðvikudag 13. október við
Islands- og bikarmeistara FH. Á
fimmtudagskvöld mætir Danker-
sen svo Val I Laugardalshöllinni
og laugardaginn 16. október leik-
ur Dankersen við úrvalslið lands-
liðsnefndar I Laugardalshöllinni.
— Það er alllagt slðan það kom
til umræðu að fá Dankersen hing-
að, sagði Ólafur A. Jónsson, tals-
maður handknattleiksdeildar
Fram á fundinum I gær. — Þegar
svo Fram átti rétt á haustheim-
sókninni núna var málið sett i
fullan gang. Reyndust leikmenn
Dankersen hafa mikinn áhuga á
þvl að koma hingað, en mörg ljón
voru þó I veginum. Þegar búið var
að ganga endanlega frá Islands-
ferðinni kom vestur-þýzki lands-
liðsþjálfarinn til sögunnar og til-
kynnti að hann hefði valið fjóra
af leikmönnum Dankersen I
landsleik við Noreg og þeir
fengju þvl ekki fararleyfi til Is-
lands. Leikmennirnir vildu hins
vegar ekki sætta sig við þetta og
var þeim þá hótað þvl að færu
þeir með liði slnu kæmu þeir ekki
til greina I þýzka landsliðið I
framtlðinni. Eftir langa fundi og
stranga urðu málalok þau, að að-
almarkvörður Dankersen mun
leika með landsliðinu, tveir leik-
mannanna fengu leyfi til þess að
fara til Islands og einn ákvað að
gefa landsliðið upp á bátinn og
koma hingað.
— Þegar þetta mál var leyst
kom annað upp, sagði Ólafur, —
það að tveir leikmanna Danker-
sen, Axel Axelsson og félagi hans,
áttu að ganga undir próf I skóla
sfnum 13. október. Tók einnig
langan tfma að fá málum þannig
komið fyrir, að þeir fengju próf-
unum frestað.
Dankersen kemur þvf með sitt
bezta lið hingað, að þvf undan-
skildu að markvörðurinn, Rainer
Niemayer, mun leika með þýzka
landsliðinu. Hinn markvörður
liðsins, Martin Karcher, er þó
enginn nýgræðingur og á hann
t.d. 13 landsleiki að baki með vest-
ur-þýzka landsliðinu. Alls koma
hingað 12 leikmenn, einn þjálfari
og 6 fararstjórar og aðstoðar-
menn.
Ásgeir á fullri ferð
ÁSGEIR Sigurvinsson var maður-
inn á bak við góðan sigur
Standard Liege I leik við Ware-
gem I belglsku 1. deildar keppn-
inni ( fyrrakvöld. Standard
sigraði I leiknum 3—1, og er nú I
fjórða sæti I belgfsku 1. deildar
keppninni með 8 stig. Anderlecht
og FC Briigge hafa hlotið 11 stig
og Antwerpen 9 stig.
Ásgeir Sigurvinsson hefur sem
kunnugt er verið töluvert frá
vegna meiðsla að undanförnu, en
hefur nú náð sér sæmilega og
sýndi sína beztu takta I leiknum I
fyrrakvöld. Atti hann mestan þátt
I sfðasta marki Standard I leikn-
um þótt það væri annar sem að
lokum renndi knettinum I netið.
Lið Guðgeirs Leifssonar,
Charleroi, tapaði hins vegar I
fyrrakvöld á heimavelli sínum við
RWD Molenbeek 0—2. Urslit ann-
arra leikja I Belgíu I fyrrakvöld
urðu þessi:
Antwerpen — CS Briigge 2—1
Malinois — Beveren 2—2
Courtrai — FC Liegeois 2—0
Anderlecht — Ostend 4—0
Lokeren — Lierse 2—1
FC Bríigge — Beerschot 4—1
Beringen — Winterslag 0—2