Morgunblaðið - 13.10.1976, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.10.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1976 13 Þingmannafrumvarp og tillögur: Sundlaug við end- urhæfingardeild Borgarspítalans Umboðsnefnd Alþingis, bann við gjöfum til opin- berra starfsmanna, vot- heysverkun og ferðafrelsi EFTIRTALIN þingskjöl vóru lögð fram I gær: 1) frumvarp til laga um umboðsnefnd Al- þingis, flm. Benedikt Gröndal, 2) tillaga til þingsályktunsar um samningu iagaákvæða, er banni opinberum starfsmönn- um að veita viðtöku umtals- verðum gjöfum, flm. Sighvatur Björgvinsson o.fl., 3) tillaga um votheysverkun, flm. Þor- valdur Garðar Kristjánsson, 4) tillaga til þingsályktunar um sundlaug við Grensásdeild Borgarspftala, flm. Magnús Kjartansson, Jóhann Hafstein, Einar Agústsson og Eggert G. Þorsteinsson, 5) tillaga til þingsál. um ferðafrelsi, flm. Magnús Kjartansson. Umboðsnefnd Alþingis Alþingi hefur þegar sam- þykkt tillögu um að undirbúa embætti umboðsmanns. Stjórn- arfrumvarp þess efnis hefur verið lagt fyrir, en ekki hlotið afgreiðslu. Hér er málið tekið upp á nýjum grundvelli, þ.e. að í stað þess að setja á legg emb- ætti umboðsmanns Alþingis verði kjörinn fastanefnd þings- ins, er sinni hlutverki hans, en það er að styðja menn til að ná rétti sinum, hindra að stjórn- völd beiti nokkurn mann rang- indum og stuðla þann veg að góðri, opinberri stjórnsýslu. Bann við gjöfum til opinberra starfsmanna Tillagan felur það i sér að dómsmálaráðherra feli aðilum, er vinna að endurskoðun á lög- um um réttindi og skyldur op- inberra starfsmanna, að gera sérstaka tillögu um ný og af- dráttarlausari fyrirmæli en nú er að finna í lögum, er banni opinberum starfsmönnum að veita viðtöku umtalsverðum gjöfum, endurgjaldslausri þjónustu, sérstökum fríðindum eða óvenjulegri fyrirgreiðslu umfram starfsréttindi. Votheysverkun Tillaga Þorvaldar Garðars um votheysverkun felur það i — Greinargerð Framhald af bls. 12 EFTA og EBE, mun verða lagt fram fljótlega eftir þingbyrjun. Tekjur ríkis- sjóds í hlutfalli af þjódartekjum Eins og undanfarin ár fylgir frumvarpinu yfirlit yfir fram- kvæmdir samkvæmt A- og B-hluta fjárlagafrumvarps 1977, sem ráó- gert er að fjármagna með lánsfé, og fjáröflun til þeirra. Þessi fram- kvæmda- og lántökuáform mynda síðan hluta af lánsfjáráætlun þeirri, sem nú er unnið að og fjallar um alla lánastarfsemi i landinu á næsta ári. Tölurnar I fyrrgreindu yfirliti munu taka einhverjum breytingum í þessari áætlunarvinnu. Lánsfjár- áætlun 1977 Lánsfjáráætlun 1977 verður lögð fram á Alþingi fyrir eða um sér að ríkisstjórnin geri ráðstaf- anir til að stuðla að almennri votheysverkun, m.a. með því að: 1) kynna bændum reynslu þeirra, sem um árabil hafa byggt heyöflun sína að öllu eða mestu leyti á votheysverkun, 2) veita hærri stofnlán til bygg- ingar votheyshlaðna en þurr- heyshlaðna og 3) veita sérstök stofnlán til að breyta þurrheys- hlöðum í votheyshlöður. Tillag- an er m.a. rökstudd með til- tækri reynslu í heyöflun viða um sveitir á undangengnum óþurrkasumrum. Sundlaug við Grensásdeild Borgarspftala Flutningsmenn þessar ar til- lögu hafa allir dvalizt á Endur- hæfingardeild Borgarspitalans við Grensásveg. Þeir benda á að bygging sundlaugar vió endur- hæfingarstöðina sé brýnt fram- faramál að dómi stjórnenda hennar. Vitna þeir i itarlega greinargerð þar um, er yfir- læknir deildarinnar, dr. Ásgeir B. Ellertsson, hefur samið. Þar er einnig vitnað til tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins um þetta efni sem einróma var samþykkt í borgar- stjórn Reykjavikur. Flutnings- menn leggja áherzlu á að þetta mál fái skjóta afgreiðslu i með- förum þings og verði tekið með í f járlagadæmið fyrir árið 1977. Ferðafrelsi (f Bandarfkjunum). Tillaga Magnúsar Kjartans- sonar um þetta efni er I formi áskorunar á utanrfkisráðherra „Að tryggja fulla gagnkvæmni i samskiptum við önnur ríki að þvi er varðar ferðafrelsi. Skal stefna íslenzkra stjórnvalda vera sú að ryðja úr vegi öllum hindrunum á ferðafrelsi. Vilji önnur riki ekki fallast á þessa skipan, heldur leggi hömlur á ferðir Islendinga, skulu þegnar þessa ríkis sæta sömu tálmun- um ef þeir kjósa að ferðast til íslands." — í greinargerð telur flutningsmaður að íslendingar njóti ekki gagnkvæms ferða- frelsis í Bandarikjum Norður- Ameríku. miðjan nóvember. Lánsfjáráætl- un er til þess gerð, að um leið og fjárlagaákvarðanir eru teknar, fá- ist skipuleg yfirsýn um lánastarf- semina i landinu og erlendar lán- tökur þjóðarinnar. Með gerð láns- fjáráætlunar fyrir árið 1976 var stigið stórt skref til samræmingar á sviði lána- og fjármála. Hún var fyrsta heiilega áætlunin um láns- fjármarkaðinn, sem gerð hefur verið hér á landi, og að sjálfsögðu hefur komið í ljós, að framkvæmd hennar þarf að bæta í ýmsum atriðum. Mun fjármálaráðuneytið gera tillögur um það. Gæti t.d. verið æskilegt, að þegar í áætl- unargerðinni væri tekin ákvörð- un um lánskjör, samskipti einstakra fjáröflunaraðila o.fl. Ljóst er að gerð lánsfjáráætlunar- innar hefur orðið til þess að auð- velda að mun stjórn fjármála og peningamála í landinu, og skiptir miklu, að áframhaldandi aðgerðir á þessu sviði verði samstilltar að þeim markmiðum 'að draga úr verðhækkunum og viðskipta- hallanum við útlönd. Ljósm. Ól. K. M. Gunnar Þórðarson og Steven Sinclair undirrita samninginn ( gær. Plata Gunnars á markað vestan hafs í febrúar FORMLEGA var í gær gengið frá hljómplötu- samningi milli Gunnars Þórðarsonar, hljómlistar- manns, og bandaríska um- boðsfyrirtækisins L. K. Products í Los Angeles. Bandríska fyrirtækið hef- ur með því einkarétt á hljómplötuútgáfu með framlagi Gunnars um allar álfur í eitt ár. Samningur- inn nær þó ekki til íslands, þar sem Gunnar hefur eft- ir sem áður algjörlega frjálsar hendur um hljóm- plötuútgáfu. Að sögn Gunnars er að því stefnt að gefa út I febrúar á næsta ári í Bandaríkjunum breiðskífu þá, sem hann lét frá sér fara fyrir nokkru. Plata þessi er til hér á stúdíóbandi og verður stuðzt við það að miklu leyti nema hvað bæta á hljómgæði hennar og lag- færa með ýmsum hætti. Auk þessa felst í samningnum að Gunnar á að gera aðra plötu fyrir bandaríska fyrirtækið, ef það ósk- ar þess. Fyrirtækið greiddi Gunnari all- verulega fjárhæð við gerð samn- ingsins en auk þess mun Gunnar fá um 6% af plötusölunni. Hann er hins vegar algjörlega sjálfráð- ur um tónlistina sem hann lætur frá sér fara og hefur fyrirtækið bandaríska þar aðeins tillögurétt. L.K.-Products sendi hingað til lands fulltrúa sinn, Steven Sin- clair, til að ganga frá samningn- um við Gunnar en en Sinclair mun auk þess sjá um kynningu á Gunnari og íslandi vestan hafs. Hefur plötu hans — a.m.k. til bráðabirgða — verið gefið nafnið Ice and Fire, og hyggst Sinclair nota sérkenni landsins og framandleika f augum Banda- rikjamanna til að koma hinum nýja, fslenzka viðskiptavini L.K. Products á framfæri vestra. Rádstefna um almennings- bókasöfn A Fimmtudag og föstudag, 14. og 15. október, verður haldin ráð- stefna um almenningsbókasöfn á vegum Sambands fsl. sveitarfél- aga. Ráðstefnan er haldin f sam- vinnu vió menntamálaráðuneytió. Félag bókasafnsfræðinga og Bókavarðafélag lslands og f beinu framhaldi af ráðstefnunni verður haldinn landsfundur bókavarða. Við setningu ráðstefnunnar flytur Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra, ávarp og bókafulltrúi rikisins, Stefán Júlíusson, flytur fyrsta framsögu- erindið um samstarf almennings- bókasafna og skólabókasafna. Nokkrir sveitarstjórnarmenn og bókaverðir fjalla um fjármál al- menningsbókasafna og í ljósi þess að ríkissjóður hætti um síðustu áramót aðild sinni að rekstri bókasafna og fjallað verður um framtíðarskipulag bókasafns- þjónustu í landinu. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Esju og fyrri dag hennar verða heimsótt bókasöfn i Reykja- vík, Garðabæ og í Hafnarfirði. Félag einstæðra foreldra:__________ Fyrsti fundur vetrarins hald- inn annað kvöld Um þessar mundir er vetrar- starf Félags einstæðra foreldra að hefjast, og verður fyrsti fundur- inn á þessu hausti að Hallveigar- stöðum annað kvöld, fimmtudag- inn 14. október. Á fundinum verður sagt frá kaupum FEF á húseign í Skerja- firði nýlega, skipað verður í starfsnefndir og lýst eftir tillög- um til stjórnarkjörs, auk þess sem flutt verða skemmtiatriði og selt kaffi, en fundurinn hefst kl. 21. fyrir Stór-Reykjavíkursvæðið! Einstök þjónusta — yður að kostnaðarlausu Við mælum flötinn og gefum yður fast verðtilboð. Þér komið og veljið gerðina, við mælum og gefum yður upp endanlegt verð — án skuldbindinga af yðar hálfu. Athugið að þetta á við bæði um smá og stór verk. f teppadeild JL-hússins finnið þér mesta teppaúrval á landinu — hvers konar teppi l öllum verðflokkum. Verð kr. 1180 til 13.000 ferm. jii Jón Loftsson hf. /A ^ A ^ | lZj □ EZ íZi D □ Hringbraut 121 Sími 10600

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.