Morgunblaðið - 13.10.1976, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1976
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1976
17
Útgefandi
Framk væmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auqlýsingar
hf. Arvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthfas Johannessen,
Styrmir Gunnarsson
Þorbjórn Guðmundsson
Björn Jóhannsson.
Áni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sfmi 10100
Aðalstræti 6, sfmi 22480
Áskriftargjald 1 100.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 60.00 kr. eintakið.
Víðtækt samstarf í
verðlags- og launamálum
Geir Hallgrímsson, forsætis-
ráðherra, hefur haft frum-
kvæði að þvi að efna til víðtæks
samstarfs um aðgerðir gegn
verðbólgunni. í fyrradag varfrá
þvi skýrt, að forsætisráðherra
hefði sent öllum þingflokkum
og ennfremur Alþýðusambandi
íslands, Vinnuveitendasam-
bandi íslands, BSRB og
Stéttarsambandi bænda bréf
og óskað eftir þvi, að þessir
aðilar tilnefndu fulltrúa í nefnd
ásamt fulltrúum rikisstjórnar-
innar, en verkefni nefndar
þessarar á að vera að gera
tillögur um hvernig ná megi
hraða verðbólgunnar niður i
það, sem tíðkast í nágranna-
löndum. Enda þótt vöxtur verð-
bólgunnar hafi minnkað um
helming á valdatíma núverandi
ríkisstjórnar er Ijóst, að hann er
ennþá tvöfalt til þrefalt meiri en
í flestum nálægum löndum og
gert ráð fyrir, að verðbólgan
muni nema um 25 til 30% á
þessu ári. Segir forsætisráð-
herra í bréfi sínu að „verðbólg-
an er því enn eitt alvarlegasta
vandamál, sem þjóðin á við að
stríða".
Sérstök ástæða er til að
fagna því frumkvæði, sem
rikisstjórn Geirs Hallgrímssonar
hefur haft í þessum efnum.
Þótt greina megi ýmis bata-
merkí í efnahagsmálum, hækk-
andi verðlag á útflutnings-
afurðum okkar erlendis og að
gjaldeyrisstaðan versni minna
en áður, eru horfur í efnahags-
málum þjóðarinnar engu að
siður mjög ískyggilegar. Því
veldur fyrst og fremst sú stað-
reynd, að enn er verðbólgu-
vöxturinn alltof mikill. Þessi
mikla verðbólga, sem nú hefur
ríkt í landinu á 4. ár, hefur
þegar haft mjög afdrifarikar
afleiðingar á allt efnahags- og
athafnalif. Þess vegna skiptir
það nú mestu að ná tökum á
verðbólgunni og draga úr
hraða hennar. Það mun ekki
takast, nema stjórnmálaöfl og
aðilar vinnumarkaðar taki
höndum saman.
Á sama tíma og þessi viðhorf
eru uppi i efnahagsmálum, er
það staðreynd, sem ekki þýðir
að horfa fram hjá, að mikils
óróa er farið að gæta í launa-
málum, enda þótt kjarasamn-
ingar, bæði opinberra starfs-
manna og annarra séu í fulli
gildi fram á næsta vor. Óróinn
vegna kjaramála er bersýnilega
mestur í röðum opinberra
starfsmanna og hann er svo
mikill, að einstakir hópar þeirra
hafa ýmist nú þegar gripið til
ólöglegra aðgerða, eða hafa i
hótunum um að gera það á
næstu vikum og mánuðum.
Jafnvel þótt menn kæmust að
þeirri niðurstöðu, að opinberir
starfsmenn hefðu rök fyrir sínu
máli, er auðvitað Ijóst, að sér-
stakar launahækkanir til þeirra
mundu óhjákvæmilega breið-
ast út um allt launakerfi þjóð-
félagsins. Raunar er ástæða til
að ætla, að nú þegar sé veru-
legt launaskrið i gangi.
Það eru þessi tvíþættu við-
horf — of mikil verðbólga og
órói í launamálum — sem
valda því, að þörf er sérstakra
aðgerða og að ástæða er til að
reyna að ná víðtæku samstarfi
milli ríkisstjórnar, þingflokka
og aðila vinnumarkaðarins um
stefnuna í verðlagsmálum og
launamálum á næstu misser-
um, ella kann illa að fara.
Það er augljóst, að kaupgjald
er mun lægra hér en í nálæg-
um löndum, enda þótt verðlag
á sumum vörum a.m.k. sé jafn
hátt og í sumum tilvikum jafn-
vel hærra en í nágrannalöndum
okkar. Þetta er þróun, sem
orðið hefur á nokkrum árum og
það er augljóst, að við höfum
orðið fyrir meiri áföllum af völd-
um þeirrar efnahagskreppu,
sem gengið hefur yfir hinn
vestræna heim á síðustu árum,
heldur en ýmsar nágrannaþjóð-
ir okkar, sem hafa verið betur I
stakkinn búnar til þess að taka
víð þessum áföllum. Þess
vegna höfum við dregizt aftur
úr í lífskjörum og hljótum að
horfast í augu við þá staðreynd
og viðurkenna hana.
Það er ekki nægilegt tilefni til
almennra launahækkana hér á
landi, þótt aðrar þjóðir hafi það
betra en við um stundar$akir.
Mjög almennar lau'nahækkanir
í landinu nú eða á næsta vetri
og vori hljóta auðvitað að verka
eins og olía á eldinn og kynda
enn undir verðbólguvextinum.
Þess vegna vaknar sú spurn-
ing, hvort hægt sé að ná víð-
tæku samkomulagi allra helztu
þjóðfélagsafla um stefnu í
launa- og verðlagsmálum, sem
kemur í veg fyrir áframhald-
andi óðaverðbólgu og tryggir
nokkrar lífskjarbætur, án þess
að um almennar launa ækkanir
sé að ræða.
í þeim efnum skiptir mestu,
ef útgjöld opinberra aðila yrðu
dregin verulega saman og
opinber gjöld og margvíslegar
álögur lækkaðar til muna. Eins
og nú horfir verður ekki séð, að
önnur leið sé fær í verðlags- og
kaupgjaldsmálum. Hvað sem
um það er, ber að vænta þess
að þeir aðilar, sem forsætisráð-
herra hefur skrifað, muni taka
boði hans vel og að þetta frum-
kvæði Geirs Hallgrímssonar nú
verði til þess að grundvöllur
skapist til þess víðtæka sam-
starfs í þessum efnum, sem
íslenzku þjóðinni er augljóslega
nauðsyn.
Enn eitt táknið
um goshættuna
— segir Eysteinn Tryggvason jarðeðlisfræðingur
— ÉG TEL að þessi gufu-
sprenging f nótt sé enn eitt
táknið um hina miklu gos-
hættu sem er við Kröflu,
sagði Eysteinn Tryggvason
jarðeðlisfræðingur í við-
taii við Morgunblaðið f
gær. — Þessi sprenging
þarf þó ekki að þýða, ef
eldgos verður við Kröflu,
að það verði á nákvæmlega
þessum stað. Er gosið hófst
f Öskju um þetta leyti árs
árið 1961 áttu svipaðir at-
burðir sér stað áður en
sjálft gosið hófst. Sfðustu
atburðir við Kröflu sýnast
mér vel geta verið fyrir-
boðar eldgoss á svæðinu,
sambærilegir við það sem
gerðist við Öskju fyrir 15
árum, sagði Eysteinn.
Aðspurður um það hvort tengsl
gætu ekki verið á milli boranna
og gígsins sem myndaðist í fyrri-
nótt, sagði Eysteinn, að hann teldi
það harla ólfklegt.
— Ég tel skynsamlegt að hætta
borunum á svæðinu þar til Ijóst er
hver framvinda mála verður,
sagði Eysteinn. — Svæðið er mjög
órólegt og ákaflega snöggar breyt-
ingar þar. Þannig hafa orðið mikl-
ar breytingar á hæð eða sigi
landsins og skjálftavirknin hefur
nær alveg dottið niður á um 3
vikum. Ég segi að þessar tíðu
breytingar tákni að eitthvað sé að
gerast fyrir neðan og greinilegt er
að mikill massi er á ferð. Hvort
hreyfing hans endar með gosi veit
ég ekki, en mörg tákn finnast mér
benda í þá átt, sagði Eysteinn
Tryggvason að lokum.
Verkstjórinn á Jötni:
„Öry ggisráðstaf anirnar
ekki upp á marga fiska
Almannavarnir:
„Ákvednir menn gleymdu
að kenna hinum á kerfið”
„ÞAÐ ER óhætt að segja
það, að þessar öryggisráð-
stafanir við Kröflu eru
ekki upp á marga fiska,“
sagði Örn Sigurjónsson
verkstjóri á Jötni, en hann
var á vakt á bornum þegar
gufuhverinn myndaðist
með leir- og grjótkasti úr
börmum hversins yfir Jöt-
un. „Það var hreinlega
ekkert eftirlit varðandi
öryggi á staðnum,“ sagði
örn, „Því þeir sem kunnu
á tækin voru í fríi. Ég
þurfti til dæmis að ræsa
kokkinn til þess að komast
að rofanum sem kveikir á
aðvörunarkerfinu, en rof-
inn var læstur inni.“
Vegna þessara ummæla Arnar
ræddi Mbl. við þá Jón Illugason,
formann almannavarnanefndar
Mývatnssveitar og Guðjón Peter-
sen hjá Almannavörnum ríkisins.
Jón sagði að strax og almanna-
varnanefndin var komin saman í
fyrrinótt, hefði hún hringt upp til
Kröflubúða en þá hefði engin
svarað. „Við reyndum árangurs-
laust að hringja uppeftir til að
biðja menn þar að setja að-
vörunarsírenur í gang en náðum
ekki sambandi. Bormennirnir
tóku þvi þá ákvörðun, þegar ekk-
ert heyrðist í okkur, að setja sjálf-
ir sírenurnar í gang og hófst þá
brottflutningur manna af svæð-
inu. Þarna brást eitthvað í kerf-
inu og við munum athuga þetta
sérstaklega," sagði Jón Illugason.
Guðjón Petersen sagði að ástæð-
an fyrir „bilun“ aðvörunarkerfis-
ins væri sú, að þeir menn sem sjá
áttu um kerfið fóru allir í helgar-
frí og voru ekki væntanlegir til
vinnu fyrr en á þriðjudags-
morgni. „Þessir menn áttu að sjá
um það að kenna öðrum á kerfið,
ef þeir yrðu ekki til staðar en það
gerðu þeir ekki. Þannig að enginn
á staðnum kunni á kerfið þegar á
reyndi. Var ég þó við Kröflu fyrir
nokkrum dögum, til að leggja
áherzlu á það að hver kynni sitt
hlutverk. Þetta var þörf lexía og
það verða gerðar ráðstafanir til
þess að þetta komi ekki fyrir aft-
ur,“ sagði Guðjón að lokum.
Þegar verst lét puðraðist jarðvegur úr hverbarminum upp f 10—30 metra hæð. Ljósmyndír mi>i Friðþjófur.
Gossagan” rakin í stuttu máli
Leirleðjan hreinsuð af tækjum við Jötun.
ALMANNAVARNA-
NEFND Mývatnssveitar
var tjlkynnt um leirgosið
strax og þess varð vart.
Gerði það Guðrún Gísla-
dóttir, sem var á skjálfta-
vakt í Reynihlíð. Bormenn
við Kröflu hringdu til Guð-
rúnar og hún hringdi
áfram til nefndarmanna,
samkvæmt ákveðnu kerfi.
Að sögn Jóns Illugasonar,
formanns nefndarinnar,
kom hún saman til fundar
eins fljótt og unnt var.
Voru sfðan gerðar ráðstaf-
anir samkvæmt þeirri
áætlun, sem samþykkt
hafði verið. Sagði Jón að
starfið hefði gengið vel,
nema hvað aðvörunarkerf-
ið við Kröflu hefði ekki
gengið nærri nógu vel.
Varzla var sett upp í
stjórnstöð Almannavarna í
sfmstöðinni í Reykjahlfð
og er áformað að hafa
vörzlu þar áfram.
Almannavarnanefndin skráði
niður það markverðasta í sam-
bandi við hinn nýja leirhver. Hér
á eftir verða raktir nokkrir punkt-
ar og að miklu leyti stuðzt við
skýrslu almannavarnanefndar:
Klukkan 4,35: Bormenn við
Kröflu tilkynna skjálftavakt
Orkustofnunar í Reynihlið sím-
leiðis, að leirgos sé nýhafið í
námunda við borinn Jötun.
Klukkan 4,40: Almanna-
varnanefnd kölluð út. Bormenn
við Kröflu setja sjálfir sírenur á
staðnum i gang og starfsmenn
byrja að yfirgefa staðinn. Al-
mannavörnum I Reykjavik til-
kynnt um málið skömmu siðar.
Klukkan 5,00: Jón Illuga-
son, Valgeir Guðmundsson og
Þorsteinn Gústafsson úr almannar
varnanefnd fara upp til Kröflu og
líta á aðstæður. Starfsmenn halda
áfram að yfirgefa Kröflusvæðið
og fara á hótelið í Reynihlíð, eins
og tiltekið var í áætluninni.
Klukkan 5,40: Valgeir til-
kynnir stjórnstöð, að leirhver hafi
myndað 50—60 metra frá bornum
Jötni og spúi hann leir og grjóti í
loft upp. Hverinn sé aðeins sunn-
an holu 9 (sem Jötunn var að
bora), milli holu 3 og holu 9.
KÍukkan 6,00: Þremenning-
arnir gefa nákvæmari skýrlu.
Segja til viðbótar að um sé að
ræða gufugos með grjóti og leir-
slettum. Strókurinn sé óslitinn,
50—60 metra upp í loftið. Allir
starfsmenn sem voru við Kröflu,
að undanskildum 10—15 mönn-
um, voru nú komnir niður í
Reykjahlíð. Álitið er að þetta séu
um 200 manns, eða 2/3 vinnuafls
á staðnum. Aðrir voru ókomnir úr
helgarfríi.
Klukkan 6,15: Gisli ólafs-
son yfirlögregluþjónn á Akureyri
hringir og tilkynnir að fylgzt
verði með umferð frá Akureyri til
Mývatns.
Klukkan 7.55: Fyrstu jarð-
fræðingarnir koma að Kröflu.
Klukkan 8.45: Tilkynnt aó
gufugosið sé hætt. Þetta stopp
stóð í 15 minútur, en þá byrjaði
hverinn að blása gufu að nýju en
ekki með sama krafti og áður.
Klukkan 9.03:Lögreglu-
„Heyrði dynja á
þakinu og um leið
var kallað: I>að
er komið gos
„Við vorum að ganga frá
holutappa á holu 9 þegar JfaSÁ
þetta byrjaði,“ sagði örn
Sigurbjörnsson verkstjóri
á Jötni við Mbl. “ eftir að
hafa lokið að fóðra og
steypa í holuna. Við vorum
alls 8 þarna hver á sínum
stað við vinnu. Ég var í
vélaskúrnum þegar ég
heyrði dynja á þakinu og
um leið heyrði ég kallað:
Það er komið gos.
— Við gerðum strax ráð-
stafanir og vorum fljótir að
koma okkur í burtu og vor-
um komnir frá svæðinu
eftir 10 mín. eða þar um
bil, því þetta magnaðist
óðafluga. Þó var þetta mest
milli kl. 7 og 9, en síðan fór
það að dala“. sagði örn.
Skjálftamælarnir
sýndu enga hreyfingu
GUÐRtJN Gísladóttir mælavörð-
ur I Reynihllð varð furðu lostin
þegar hún fékk hringingu frá bor-
mönnunum við Kröflu og henni
var tilkynnt að leirgos væri hafið.
Slritandi jarðskjálftamælarnir
þrír sýndu nefnilega enga hreyf-
ingu, ekki einu sinni mælirinn,
sem er uppi við Kröflu.
Skjálftatíðnin á Mývatnssvæð-
inu hefur verið mjög lítil undan-
farna daga, þetta 2—3 skjálftar á
sólarhring. „Skýringin er sú,“
sagði Páll Einarsson eðlisfræðing-
ur, „að landið er nú að siga eftir
risið. Þannig hefur slaknað á
spennunni, og mjög litió er um
jarðskjálfta."
Menn voru að velta því fyrir sér
upp við Kröflu í gær, hvers vegna
upphaf leirgossins kom ekki fram
á mælinum og var sú skýring gef-
in, að umbrotin hefðu verið svo
ofarlega í jarðveginum, að þau
hefðu ekki verið mælanleg.“
Fólksvagninn sem stóð við Jötun cftir leirbaðíð, en steinn braut
vélarhllfina eins og sjá má.
menn koma frá Húsavík. Þeir
tóku sér stöðu við veginn að
Kröflu og hleyptu þangað aðeins
fólki sem var í brýnum erinda-
gerðum.
Klukkan 9.26: Tilkynnt frá
Kröflubúðum, að nýi hverinn
gjósi likt og sjálfskaparvíti, þ.e.
borholan sem breyttist í hver í
fyrra. Þó dragi úr gosinu með
köflum. Hverinn færist aðeins
neðar í hlíðinni og stækkar og er
byrjaður að grafa i sundur veginn
að Jötni. Gera þarf nýjan veg til
að hægt verði að flutja Jötun til á
svæðinu.
Klukkan 10: Von á fjórum
alþingismönnum, Jóni Sólnes,
Ragnari Arnalds og Ingvari Gísla-
syni úr Kröflunefnd og Inga
Tryggvasyni, alþingismanni
Norðurlands-eystra.
Klukkan 10.30: Tilkynnt
höstuglega frá Kröflubúðum, að
þar hafi safnazt saman stór hópur
manna, sem ekkert erindi eigi á
staðinn eins og á standi. M.a. séu
þetta starfsmenn, sem eigi að
vera i Reykjahlíð. Beðió var um
hertar lögregluaðgerðir við veg-
inn að Kröflu. Fleiri lögreglu-
menn voru settir á vakt siðdegis.
Stöðvuóu þeir alla þá sem fóru að
Kröflu og rituðu niður nöfn
þeirra, sem þangað fengu að fara.
Klukkan 11.30: Jarðfræð-
ingar hefja fundarhöld. Fleiri
sérfræðingar voru komnir með
flugvél frá Reykjavík, m.a. orku-
málastjóri. Undir hádegi bættust
alþingismenn í hópinn.
Klukkan 13.00: Verulega
hefur sljákkað I nýja hvernum.
Um miðjan dag var vatni veitt í
hverinn og dró þá enn úr virkni
hans.
„Vorum vaktir upp
með sírenuvæli,,
ÞEGAR Morgunblaðsmenn komu
I Hótel Reynihllð snemma í gær-
morgun var þar fjöldi starfs-
manna við Kröflu. Margir spiluðu
en aðrir sátu þögulir og hugsandi
og enn aðrir lásu I blaði eða bók.
„Við vorum vaktir upp með
slrenuvæli I býtið f morgun,"
sagði Ingvar Ellasson rafvirki,
einn starfsmanna, við blaðamann
Mbl. „Við drifum okkur f fötin og
það gekk greiðlega að koma
mannskapnum niður á hótel.“
Morgunblaðsmenn ræddu við
nokkra fleiri starfsmenn við
Kröflu og bar þeim saman um að
biðin væri leiðinleg og flestir
sögðust bfða eftir vinki um að
mega að byrja vinnu að nýju.
Kröflustarfsmenn bfða f Hótel Reynihlfð. Flestir voru orðnir leiðir á
biðinni og vildu fara að vinna.