Morgunblaðið - 13.10.1976, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1976
10 Islendingar
sæmdir stór-
riddarakrossi
FORSETI lslands sæmdi I gær
eftirtalda tslenska ríkisborgara
heiðursmerki hinnar Islensku
fálkaorðu:
Vilhjálm Þ. Gíslason, fv. út-
varpsstjóra, stórriddarakrossi
með stjörnu, fyrir störf að menn-
ingarmálum.
Agnar Kofoed-Hansen flug-
málastjóra, stórriddarakrossi, fyr-
ir embættisstörf.
Brynjólf Ingólfsson ráðuneytis-
stjóra, stórriddarakrossi, fyrir
embættisstörf.
Séra Garðar Þorsteinsson pró-
fast, stórriddarakrossi, fyrir em-
bættisstörf.
Gunnar Guðjónsson, stjórnar-
formann Sölumiðstöðvar hrað-
SEX fslenzk sfldarskip seldu 406
lestir af sfld f Hirtshals f Dan-
mörku í gærmorgun fyrir 31.6
milljónir króna og var meðalverð
pr. kfló milli 77 og 78 krónur, sem
teljast verður dágott. Síldveiði
hjá skipunum hefur verið dágóð
að undanförnu, enda Iftið um
brælur.
Skipin, sem seldu í gær, voru
þessi: Eldborg GK seldi 105 lestir
fyrir 8.3 millj. kr., meðalverð pr.
kíló var kr. 79, Hrafn Sveinbjarn-
arson GK seldi 62 lestir fyrir 4.7
millj. kr., meðalverð kr. 77, Svan-
ur RE seldi 54 lestir fyrir 4.2
Sendibíl
stolið
UM HELGINA síðustu var stolið
Renault-sendibfl í Reykjavík. Bíll
þessi fannst í gær yfirgefinn og
var hann kominn nær austur und-
ir Hvolsvöll. Var bíllinn töluvert
beyglaður eftir ökuferðína.
Dregið í
happdrætti
Háskólans
t GÆR, þriðjudag, var dregið f 10.
flokki Happdrættis Háskóla ts-
lands. Dregnir voru út 10.260
vinningar að fjárhæð kr.
135.630.000.-.
Hæstf vinningurinn, ein
milljón kr., kom á nr. 58461.
Trompmiðinn og tveir aðrir voru
seldir f Aðalumboðinu, Tjarnar-
götu 4, og tveir f umboðinu í
Grenivfk.
Fimm hundruð þúsund króna
vinningur koma á míða nr 35609.
Trompmiðinn og tveir aðrir voru
seldir í umboðinu í Bókabúð Safa-
mýrar, Háateitisbr: - Einn mið-
inn var seld f iiveragerði og
einn miðinn í Borgarbúðinni i
Kópavogi.
Tvö hundruð þu und kr. vinn-
ingur kom á nr 25807, Allir
miðarnir voru' seldir.- i Aóal-
umboðinu, Tjarnárgötu 4.
Fimmtíu þús kr vinningar
komu á eftirtalin númer:
171, 2073, 2346. 3181. 3407, 3548,
6297, 6510, 7587. 10597. 11823,
14108, 21727, 22736. 23169, 23578,
24132, 24369, 25137, 26252, 26331,
30575, 32727, 33516, 33630, 35298,
36937, 37936, 44445, 44556, 45078,
45342, 47063, 48163, 48349, 48589,
48611, 52481, 52740, 53325, 53381,
54282, 54344, 56897. .'7005. 57959.
58460, 58462, 58885, 59598.
frystihúsanna, stórriddarakrossi,
fyrir störf á sviði viðskipta- og
fiskiðnaðarmála.
Helgu Magnúsdóttur, fv. for-
mann Kvenfélagssambands ís-
lands, stórriddarakrossi, fyrir
félagsmálastörf.
Kristján Guðlaugsson hrl.,
stjórnarformann Flugleiða h.f.,
stórriddarakrossi, fyrir störf að
flugmálum.
Odd Ólafsson alþingismann,
stórriddarakrossi, fyrir störf að
heilbrigðismálum.
Svein B. Valfells aðalræðis-
mann, stórriddarakrossi, fyrir
störf í þágu íslensks inaðar.
Þórarin Þórarinsson, fv. skóla-
stjóra, stórriddarakrossi, fyrir
störf að skólamálum.
millj. kr., meðalverð kr. 78, Grind-
víkingur GK seldi 76.8 lestir fyrir
5.9 millj. kr., meðalverð kr. 77,
Dagfari ÞH seldi 66.2 lestir fyrir
5.1 millj. kr., meðalverð kr. 77 og
Sveinn Sveinbjörnsson NK seldi
44.6 lestir fyrir 3.4 millj. kr., með-
alverð kr. 77.
Þeir fiska
sem róa
VEGNA slæms veðurútlits reru
aðeins þrfr reknetabátar frá Höfn
f Hornafirði í fyrrakvöld, en
áhafnir þeirra þurftu ekki að sjá
eftir því að hafa róið, þvf bátarnir
þrfr mokfiskuðu. Arney KE fékk
220 tunnur, Dalarafn VE 180
tunnur og Hvanney SF 120 tunn-
ur. Bítarnir lögðu net sfn á milli
Tvfskerja og lands.
Waldheim
r 1 • •• •
i kjori
New York, 12. október. Reuter.
KURT Waldheim, aðalfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sagði f dag að hann mundi
gefa kost á sér til endurkjörs þeg-
ar fimm ára kjörtfmabili hans
lyki f lok ársins.
Utanríkisráðherra Austurríkis
Willibald Pahr, sagði blaðamönn-
um að hann áliti að Kínverjar
mundu ekki leggjast gegn endur-
kjöri Waldheims. Talið er að hin
stórveldin fjögur sem eiga fasta-
fulltrúa i Öryggisráðinu muni
styðja hann þótt þau hafi ekki
lýst þvi yfir.
— Orkustofnun
vill . . .
Framhald af bls. 32
gær og þennan fund sátu auk
ráðsmanna þeir Sigurður Þór-
arinsson jarðfræðingur,
Eysteinn Tryggvason jarðeðlis-
fræðingur og Páll Einarsson
jarðeðlisfræðingur.
Frá Orkustofnun:
„Um klukkan 4.40 i morgun
urðu bormenn á jarðbornum
Jötni varir við það, að rigna tók
yfir þá leir og smáhnullungum.
í ljós kom, að rétt sunnan víð
borstað hafði myndazt leirhver,
sem blés frá sér gufu og leir,
hátt i loft upp. Voru þá strax
gerðar ráðstafanir til að flytja
fólk brott af virkjunarsvæðinu,
ef vera kynni að þetta væri
upphaf cldgoss. Gekk brott-
flutningurinn vel.
Þegar birti, sáust vegsum-
merki betur en áður, hverinn
blés gufu og leir, og var hver-
skálin þá orðin um 15 metrar í
þvermál. Gosið í hvernum datt
niður öðru hverju, þannig að
sjá mátti í botn hans. Ekkert
bendir til þess, að svo stöddu,
að hér sé um upphaf eldgoss að
ræða. Jarðskjálftamælir á
sjálfu Kröflusvæðinu sýndi
ekki teljandi virkni, miklu
minni en oft undanfarið. Lík-
legt er talið að opnazt hafi rás
eftir sprungu og I gegnum hana
streymi gufa upp af jarðhita-
svæðinu og rifi með sér ieir og
grjót af tiltölulega litlu dýpi.
Náin athugun fer nú fram á
því, hvort aðgerðir við nálægar
borholur, það er steypuvinna
eða dæling á köldu vatni niður i
holurnar, gæti hafa átt þátt i að
koma þessu gufugosi af stað.
Slikt hefur áður komið fyrir,
t.d. við Námafjall.
Rétt er að geta þess, að á því
svæði sem hér um ræðir, þ.e.
vestan undir Kröflufjalli, hafa
áður myndazt svipaðir leirhver-
ir, síðast í kringum 1940.
Hveravirkni á- þessu svæði
hefur farið heldur vaxandi á
liðnu sumri, og hugsanlegt er
að myndun nýja hversins sé
framhald þeirrar þróunar.
Vegna leir- og grjótflugs og af
fleiri ástæðum er ekki talið rétt
að halda áfram borun á því
borstæði, sem Jötunn er nú.
Verður hann fluttur frá þessu
borstæði. Ekki er talin ástæða
til annars en að halda áfram
framkvæmdum á virkjunar-
svæðinu að öðru leyti. Sérstök
gæzla verður höfð umhverfis
leirhverinn og er umferð óvið-
komandi fólki þangað bönnuð
af öryggisástæðum."
— Skák
Framhald af bls. 32
ekki til með að blanda sér í efstu
sætin. Aðspurður sagði hann að á
vissan hátt hefði fargjaldamálið
jafnvel sett þá eitthvað út af
strikinu.
Skáksamband Islands kom sam-
an til fundar í gær, þar sem
fjallað var um beiðni Júgóslava
um að Skáksambandið tæki þátt i
ferðakostnaði Friðriks og
Guðmundar á mótið í Novi Sad.
Niðurstaðan á fundinum varð sú,
að skeyti var sent til
Júgóslavanna þess efnis, að Skák-
sambandið myndi ekki taka neinn
þátt í ferðakostnaðinum, enda
mótið því algjörlega óviðkomandi.
Það var og tekið fram í skeytinu,
að Skáksambandið myndi síðar
bjóða hingað júgóslavneskum
skákmönnum og þá greiða allan
ferðakostnað þeirra.
— ASÍ os VSf
Framhald af bls. 32
Jóni Bergs, formanni Vinnuveit-
endasambandsins, sem kvað sam-
bandið hafa ákveðið þátttöku í
nefndinni og að á framkvæmda-
stjórnarfundi Vinnuveitendasam-
bandsins í gær hefði hann verið
tilnefndur fulltrúi þess í nefnd-
inni.
Eins og fram kemur á undan
munu þingflokkar stjórnarand-
stöðunar taka fyrir tilmæli ríkis-
stjórnarinnar um þátttöku í’
nefndinni. Karvel Pálmason, for-
maður þingflokks Samtakanna,
sagði að sér þættu þessi tilmæli
eðlileg en eftir væri að sjá hvort
hugur fylgdi máli, en Gylfi Þ.
Gíslason vildi hins vegar ekkert
segja um málið að svo stöddu.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
sambandi við Lúðvík Jósepsson
né heldur Kristján Thorlacius,
formann BSRB, og Gunnar
Guðbjartsson, formann Stéttar-
sambands bænda.
Megintilgangur nefndar þessar-
ar verður annars vegar að kanna
vandlega horfur í verðlagsmálum
á næstu misserum og greina
ástæður þeirra verðhækkana, sem
oróið hafa að undanförnu og or-
sakir verðbólguþróunar hér á
landi undanfarin ár og hins vegar
að gera tillögur um ráðstafanir til
þess að draga úr verðbólgu. Þess-
ar tillögur skulu taka mið af því
að þau markmið sem sett eru á
þessu sviði þurfi að vega og meta
við hlið annarra markmiða stefn-
unar í efnahagsmálum, svo sem
jafnvægis í utanrikisviðskiptum
og fullrar atvinnu.
— Setuverkfall
Framhald af bls. 2
ina að veita starfsmönnum sfnum
sömu kjör og tfðkast á frjálsum
vinnumarkaði fyrir sambærileg
störf, svo og láta starfsmenn sina
njóta sanngirni um túlkun og
framkvæmd umsaminna kjara-
atriða. Ósanngirni ríkisvaldsins í
þessum efnum er þegar farin að
skerða starfsvilja ríkisstarfs-
manna og lama starfsemi opin-
berra stofnana.
Núgildandi samningsréttar-
ákvæði hafa ekki náð að tryggja
ríkisstarfsmönnum eðlilegan
kaupmátt launa og er fullreynt að
Kjaradómur fer ekki að lögum.
Fundurinn krefst þess að stjórn-
völd verði þegar í stað við óskum
BHM um raunhæfar kjarabætur
og verkfallsrétt.
Vaxandi skæruhernaður og
uppsagnir sýna ljóslega hvert
stefnir ef stjórnvöld sjá ekki að
sér í þessum efnum.
Fundurinn skorar á stjórnir að-
ildarfélaganna að kanna allar
færar leiðir til aðgerða fyrir 15.
nóvember n.k. og vera við þvi
búnar að beita þeim.
— Leynd
Framhald af bls. 15
komulagi sem fyrst, en vildi ekki
segja hvernig Rússar hefðu tekið
opinberlega í þá ákvörðun Norð-
manna að lýsa yfir 200 mflna
efnahagslögsögu 1. janúar á fund-
inum í dag.
Vitað er að Rússar eru ekki
mótfallnir efnahagslögsögu en
telja að slík svæðakerfi eigi að
eiga sér stoð í hafréttarsamningi
sem enn hafi ekki náðst sam-
komulag um. Gregory Shigalov
aðstoðarutanríkisráðherra sagði í
gær að sú ráðstöfun margra
strandrfkja að færa út lögsögu
sína hefðu valdið miklum erfið-
leikum á Barentshafi. En hann
sagði að tóm væri til að leysa
vandann og Rússar stefndu aó
endanlegri lausn deilunnar við
Norðmenn sem fyrst.
— Víkingur
og Víðir
Framhald af bls. 3
ing sem á aðra „siðutogara". Áður
var valinn maður í hverju rúmi og
Víkingur oftast með aflahæstu
togurunum.
Samkvæmt samningi á Vfking-
ur að verða tilbúinn til loðnu-
veiða í byrjun næsta árs.
Júlíus
— Kína
Framhald af bls. 1.
ing og ferðamenn segja að sömu
sögu sé að segja frá landsbyggð-
inni.
Frú Mao og stuðningsmenn
hennar þrír komust öll til áhrifa í
Shanghai á dögum menningar-
byltingarinnar. Húgsanlegt er tal-
ið að margir mánuðir geti liðið
áður en handtökur þeirra verði
staðfestar. Ef fréttirnar reynast
réttar hafa fremstu leiðtogar rót-
tækra verið hreinsaðir.
Útlendingur í Peking segir að
hann telji að látið hafi verið til
skarar skrfða á fimmtudag, tveim-
ur dögum áður en hengd voru upp
veggspjöld þar sem sagði að Hua
væri eftirmaður Maos og vörður
settur við heimili hinna róttæku.
Sérfræðingar eru sannfærðir
um að þó nokkuð langt sé síðan
ákveðið var að Hua tæki við. Þeir
telja að skýringin á handtökunum
geti verið tilraun til að hnekkja
ákvörðuninni. Þeir telja mjög
ólíklegt að Chiang og stuðnings-
menn hennar hafi getað gert sér
vonir um nægan stuðning í hern-
um til að ná völdum.
Ekkja Maos og vinir hennar
komust til valda samtimis:
0 Chiang Ching var fjórða kona
Maos og fyrrverandi leikkona.
Hún gegndi engu pólitísku hlut-
verki fyrr en hún hjálpaði manni
sinum við að hleypa menningar-
byltingunni af stað.
0 Chang varaforsætisráðherra
var yfirmaður stjórnmáladeildar
hersins og þeirra valdamestur.
Talið var að hann gæti orðið for-
sætisráðherra.
0 Wang er um fertugt og var
yngstur af æðstu valdamönnum
Kína. Þar til í fyrra var hann
talinn líklegur arftaki Maos.
0 Yao var aðaláróðursmeistari
landsins og hafði mikil áhrif á
blöðunum. Hann er fyrrverandi
blaðamaður og sérfræðingur f
hugsjónafræði Maos.
MIÐJUMAÐUR
Hua, hinn nýi formaður, er al-
mennt talinn miðjumaður á kín-
verskan mælikvarða. Ef honum
tekst að treysta sig í sessi er talið
að hann muni fylgja þeirri raun-
sæju stefnu sem Chou En-lai fyrr-
verandi forsætisráðherra beitti
sér fyrir.
— Fjárlaga-
frumvarp
Framhald af bls. 1.
tölum um raunverulegan
rekstrarkostnað þessara stofn-
ana.
• Frumvarpið gerir ráð fyrir
SVIPUÐU HLUTFALLI RlK-
ISSKATTA AF ÞJÓÐAR-
TEKJUM og á þessu ári eða
29—30%, eftir þvf hvort olíu-
gjald er talið með rfkistekjum
eða ekki. Reiknað er með
óbreyttum óbeinum sköttum.
0 Gert er ráð fyrir að
TOLLTEKJUR ríkissjóðs
muni lækka um 600 milljónir
króna vegna tollalækkana
vegna samninga við EFTA og
EBE.
— Líbanon
Framhald af bls. 1.
sókn Sýrlendinga en ekki sé ljóst
hve mikinn þátt hægrisinnar eigi
í henni. Fyrir hálfum mánuði
hröktu Sýrlendingar Palestínu-
menn og stuðningsmenn þeirra úr
mikilvægum .virkjum í fjöllunum
austur af Beirút með 36 tíma
sókn.
Hæðnislegt þykir að sóknin
fylgir í kjölfar yfirlýsingar sendi-
manns Arababandalagsins, dr.
Hassan Sabri Al-Kholi, þess efnis
að samkomulag hafi tekizt f aðal-
atriðum um þróun í friðarátt í
viðræðum Sýrlendinga, Libana og
Palestínumanna í bænum
Shtoura í Austur-Libanon sem er
á valdi Sýrlendinga.
Sýrlendingar virðast reyna að
opna veginn frá vígi sinu í Jezzin
til Sídon sem er um 20 km í
vesturátt. Nær stöðugar stór-
skotaárásir hafa verið gerðar í tvo
mánuði á Roum frá Jezzin sem er
4 km. í austurátt. Yfirmaður
Palestfnumanna á svæðinu hefur
spáð því Iengi að Sýrlendingar
mundu ráðast á Roum ti, að opna
veginn til Sfdon og sækja sfðan til
Beirút sem er 40 km. í norður átt.
Sókn Sýrlendinga hefur verið
hröð og það er talið talsvert afrek
vegna þess að djúp gjá er milli
Roum og Jezzin, sem eru fjalla-
bæir. Palestfnumenn og
stuóningsmenn þeirra hafa sent
liðsauka til Sídon og vegarins til
Roum og treyst varnir sfnar þar
síðan þeir biðu ósigurinn fyrir
hálfum mánuði.
— Vill rann-
sóknarnefnd
Framhald af bls. 5
fyrri dóma, og hversu algengt sé,
að menn fái af ýmsum orsökum að
afplána dóma, t.d fyrir fjársvik
eða auðgunarbrot, annars staðar
en f viðurkenndum fangelsum
eða vinnuhælum, svo sem eins og
sjúkrahúsum eða heilsuhælum,
eða sleppi alveg við það.
Neðri deild Alþingis samþykkir
að veita nefnd þessari rétt til þess
að heimta skýrslur, munnlegar og
bréflegar, af embættismönnum
og öðrum starfsmönnum rfkisins
og ráða sér til aðstoðar sérfróðan
mann eða menn. Nefndin skai
ljúka störfum á vetrinum 1976—
1977 og skila Alþingi skýrslu um
störf sfn fyrir lok yfirstandandi
þings.
Kostnaður við störf nefndarinn-
ar greiðist úr ríkissjóði."
Sex seldu síld
fyrir 31.6 millj.