Morgunblaðið - 13.10.1976, Page 22

Morgunblaðið - 13.10.1976, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 1976 Olafur Jóhannes- son - Minningarorð Ólafur Jóhannesson, Skriðu- stekk 29, lést að heimili sínu þann 4. þessa mánaðar. Hann var fæddur 17. 10. 27 hér í bæ og hefði orðið 49 ára 17. þessa mánaðar. Foreldrar Ólafs eru hjónin Jóhannes Ólafsson og Kristín Alexandersdóttir, til heimilis að Austurbrún 6. Ég kynntist Ólafi er við vorum drengir í barnaskólanum við Tjörnina í Reykjavík og er margs að minnast frá þeim tíma. Oft minntist Ólafur á það er við vor- um á Tjörninni á skautum á veturna því Ólafur var mikill skautamaður og stundaði þá íþrótt lengi fram eftir aldri. Hann tók oft þátt I skautamótum sem voru haldin við Tjörnina. Hann vann oft til verðlauna og var hann skautakóngur íslands eitt árið. Ólafur byrjaði senmma að vinna fyrir sér. Sem unglingur stundaði hann algenga vinnu sem til lagðist á þeim tíma. Ólafur lagði stund á sjómennsku um tíma, á bátum og togurum. Hann vann lengi við efnalaugar hér i bæ, lengst af í Glæsi. Er Ólafur hætti því stofnaði hann þvotta- og bónstöð fyrir bíla hér I Reykjavík. Undanfarin 12 ár rak hann bónstöðina hjá Shell við Reykjanesbraut. Ólafur var félagslyndur maður og áhugasamur í þeim félags- + Móðir okkar SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Hvarfi, Víðidal andaðist 1 1 þ.m Þórdls Valdemarsdóttir, Guðrún Valdemarsdóttir, Ásgeir Valdemarsson, Erlingur Valdemarsson. Faðir okkar, + ÓLAFUR VIGFÚSSON, Hávallagötu 1 7, andaðist að Sólvangi, Hafnarfirði að morgni 12 október. Jarðarförin auglýst siðar Fyrir hönd ættmgja og vma, Anna Ólafsdóttir Herborg Ólafsdóttir t Eiginkona min og móðir okkar ÓLÖF BJÖRNSDÓTTIR lést i Landspitalanum þriðjudaginn 1 2 október Bóas Jónatansson. Erling S. Tómasson, Guðrún Bóasdóttir. Sigurgeir Bóasson. + Eiginmaður minn. EINAR B WAAGE, hljómlistarmaður. lézt i Borgarspítalanum aðfaranétt 12. þ m Jarðarförin auglýst siðar Magnea Waage. t Amma mín, GUÐRÚN AÐALBJÓRG JÓNSDÓTTIR. frá Sandfelli, Stokkseyri, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju, föstudaginn 1 5 okt kl 2 Fyrir hönd barna, Guðrún Jónasdóttir. t Hjartkær móðir mín, tengdamóðir og amma, MARTHA MARÍA EYÞÓRSDÓTTIR, Skarphéðinsgötu 6. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 1 4 okt. kl 3 e h Fyrir hönd systkína hinnar látnu, Sigrfður Einarsdóttir, Jón Geir Árnason. Diana Vera Jónsdóttir. t SIGURGEIR KARLSSON, Bjargi sem lézt 4 okt verður jarðsunginn laugardaginn 16 okt frá Melstaðarkirkju, kl 14 30 Kveðjuathöfn, fer fram frá Fossvogskírkju, fimmtudaginn 14 okt kl 1 3 30 Blóm vinsamlega afþökkuð Minrnngarkort fást ! Bókabúðinni. Hlíðar, Miklubraut 68 og á Hvammstanga. Anna Axe,sdótljri Arinbjörn Sigurgeirsson, Elfnborg Sigurgeirsdóttir, Axel Sigurgeirsson, Kristfn Sveinbjörnsdóttir, Karl Sigurgeirsson, Anne Marý Pálmadóttir og barnabörn. störfum sem hann var I og lét ekki sitt eftir liggja. Hann var meðlimur I F.R. klúbbnum og mikill áhugamaður I þeim efnum. Hann studdi skátahreyfinguna I sínu heimahverfi og var einn af stofnendum sportbátaklúbbsins Snarfara og vann mikið fyrir félagið. Ólafur var mikill áhuga- maður I blóma- og trjárækt enda bar garðurinn hans að Skriðu- stekk 29 þess merki, meðal annars gróðurhúsið sem hann var búinn að koma sér upp við heimili sitt. Fróðlegt var að koma heim til hans að sumri til er allt stóð í blóma. Það var hans eitt og allt að sýna garðinn og fræða mann um þau blóm sem hann var að rækta og koma upp. Ólafur var ákveðinn i skoðun- um, sama um hvað var rætt. Hann sagði sína meiningu og var hrein- skilinn. Ólafur var tvlkvæntur. Hann eignaðist þrjú börn í fyrra hjóna- bandi: Kristinu, gifta Eggerti Þorfinnssyni skipstjóra, Sigurð sem er látinn og Jóhannes sem er giftur Svanhildi Jónsdóttur. Seinni kona Ólafs er Thora Hammer Jóhannesson og eignuðust þau fimm börn: Þórunni 17 ára, Þór Ólaf 16 ára, Sigríði 14 ára, Jens 12 ára og Lárus 8 ára og eru þau öll I skóla. Fjölskyldu hins látna og öðrum ástvinum hans sendi ég samúðar- kveðju. Blessuð sé minning góðs drengs. Ólafur Guðmundsson. SVAR MITT QR EFTIR BILLY GRAHAM Ég er tvftugur og ætla að fara að kvænast átján ára gamalli stúlku. Hún heillar mig, því að hún segir, að hún vilji eiga tólf börn. Þetta finnst méð aðdáunarvert, þvl að nú um stundir beinist áhugi margra stúlkna helzt að fötum, frftfma og fæðu. Hvað finnst yður: Ætti ekki stúlka, sem vill eiga „tólf börn“, að vera efnileg eigin- kona? Sérhver eðlileg stúlka vill eiga „tólf börn“. í þessum orðum kemur fram móðurhvöt stúlkunnar. Sérhver taug, hver æð í likama hennar eflir þrá hennar til að verða móðir og til að vonir hennar og draumar sem konu rætist. Sérhver eðlileg stúlka vill verða móðir. Móðurást er þeim meðfædd, eins og fram kemur, þegar þær leika sér að brúöum. En ég skal vera hreinskilinn: Ég fæ ekki séð, að þar með sé tryggt, að stúlkan verði góð eiginkona. Hún gæti að vísu átt börn, jafnvel mörg, en ef hana skortir aðra eiginleika, þá geta orðið vandræði fyrr en varir í hugsanlegu hjónabandi yðar. Margar konur eru góðar mæður, en slæmar eiginkonur. Þær lifa börnum sínum, en hafa litinn tíma og litla tillitsemi gagnvart mönnum þeim, sem þær eru giftar. Sumar eru ráðríkar, gerast jafnvel húsbænd- ur á heimilum sínum (stjórna þá líka manninum) og ríkja með festu og valdi. Hér eru nokkrir eiginleikar, sem mér finnst þurfi að prýða góða eiginkonu: 1) Styrk trú á Guð. 2) Hæfileiki til að semja sig að öllum aðstæðum, þvi að í hjónabandi er mikil þörf á slíkum eiginleika. 3) Jafnaðargeð. 4) Kunnátta í meðferð barna og i heimilishaldi. 5) Einlæg ást á eiginmanninum. 6) Ást á börnum. Ég held ég mundi kjósa að finna þessa eiginleika í þessari röð. Minnizt þess, að svo til allar stúlkur eru færar um að eiga börn, en það þarf sitthvað fleira til að geta haldið heimili og vera góð eiginkona. Námskeið um markaðsmál og arðsemisáætlanir I þessum mánuði efnir Félag fslenzkra iðnrekenda til nám- skeiða fyrir stjórnendur fyrir- tækja. Hafa I því skyni verið + Innilegt þakklæti til allra sem sýndu vinarþel við andlát og útför fósturmóður minnar, JÚLÍÖNU GUÐRÚNAR EINARSDÓTTUR. sérstaklega skal þökkuð góð hjúkrun starfsfólks Heilsuverndarstöðvar- innar við Barónstíg um langt árabil Marla Ester Þórðardóttir + Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð við andlát og jarðariör systur okkar, PÁLFRÍÐAR HELGADÓTTUR. Guðrún Helgadóttir. Andrea Helgadóttir, Þorsteinn B. Helgason. Elln M. Helgadóttir, Sigrlður Helgadóttir. Anna M. Helgadóttir. + Innilega þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför litla drengsins okkar og bróður, RÓBERTS BÁRÐARSONAR. Torfufelli 21. Guðný Lúðvlksdóttir, Bðrður Sigurðsson, Lúðvlk Bárðarson, Gerður Bárðardóttir, Sigurður Bárðarson. fengnir hingað til lands tveir dan- ir, þeir René Morthensen frkvstj. og Vagn Thorsgaard Jacobsen verkfr. Fyrir tæpum tveim árum tók Félag fslenzkra iðnrekenda upp á því að veita fyrirtækjum ráðgjöf varðandi rekstur þeirra og hafa sfðan starfað tveir menn við það verkefni eingöngu. Nám- skeiðin eru haldin f framhaldi af þessu starfi og er þess getið f frétt frá Félagi fsi. iðnrekenda að Dan- irnir, sem fyrr voru nefndir, hafi getið sér gott orð fyrir leiðbein- ingar og staðið fyrir námskeiðum á Norðurlöndum, Englandi, Hollandi, Sviss og I Þýzkalandi. Fyrra námskeiðið, sem haldið verður 18.—20. október, fjallar um arðsemisáætlanir. Tilgangur þess er að kenna stjórnendum gerð áætlana sem auðvelt sé að aðlaga breytingum og gefa jafn- fram t hugmynd um hvernig bezt sé að bregðast við breyttum við- horfum í rekstri fyrirtækja. Sfð- ara námskeiðið, sem stendur frá 20. okt. og stendur einnig I þrjá dag, fjallar um markaðsmál og verður m.a. fjallað um hvernig hagkvæmasta vöruverðið næst, hvernig skipuleggja eigi sem árangursrfkasta markaðsáætlun og hvernig bezt verði fylgst með markaðsstarfseminni. Bæði nám- skeiðin fara fram á Hótel Loft- leiðum. + Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður og tengdamóður, GUÐLAUGAR STEFÁNSDÓTTUR Austurbraut 5, Keflavfk Eyjólfur Guðjónsson, Guðjón Eyjólfsson Guðlaug Ottósdóttir Marla Eyjólfsdóttir. Þorleifur Sigurðsson, Guðlaugur Eyjólfsson, Halla Glsladóttir, Sigurður Eyjólfsson, Guðrún Jónsdóttir. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á I mið- vikudagshlaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.