Morgunblaðið - 13.10.1976, Síða 29

Morgunblaðið - 13.10.1976, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÖBER 1976 29 VELVAhCAI>JDI Velvakandi svjirar f slma 10- 100 kl. l^—11 f.h. frá mánu- degi til föstudags. 0 Nýju krónurnar Eins og kunnugt er hefur ný- lega litið dagsins ljós ný gerð af krónupeningum. Jóhanna Stefánsdóttir skrifar eftirfarandi um nýju krónuna: „Kæri Velvakandi. Ég hef nú ekki fyrr beðið þig að taka línur frá mér, en nú get ég ekki orða bundizt. Þegar ég kom út í mjólkurbúð og fékk tilbaka svokallaðar krónur hélt ég að ver- ið væri að fá mér okkar gömlu tíeyringa, en þá var þetta nýja krónan. Hvað meina okkar bless- aðir bankastjórar með því að gefa hana þá ekki út í þeirri stærð sem krónan var? Er það vegna þess að þetta mun frekar týnast? Enda veit ég að það mun gefa þeim milljónir í þjóðarbúið og það er vel, ef það hefur þá nokkuð að segja i þá hit, sem aldrei er hægt að metta. En mér finnst það vera að fara aftan að þjóðinni að gefa út svona mynt. Dæmi svo hver sem vill. Jóhanna Stefánsdóttir." Undir þessi orð geta eflaust margir fleiri tekið, nýja krónan er ekki beint ásjáleg. En mörgum hefur fundizt jafnframt að þetta væri hin eina og sanna mynd, er krónan á skilið, hún sé ekki verð- meiri en svo að þessi litli búning- ur hæfi henni bezt. Það er líka rétt sem Jóhanna bendir á að hún er mjög áþekk 10 — og 25- eyringunum, en sennilega er ekkí hætta á að fólk eigi eftir að rugl- ast á þessum mynt-tegundum þar sem hinir fyrrnefndu eru nær al- gerlega horfnir úr umferð. Þessi nýja gerð krónunnar mun vera tilkomin vegna þess að hún er ódýrari en hin fyrri en Velvak- andi lætur ósagt hvort hefði verið hægt að hafa hana í þeirri stærð sem hin gamla, það hefði senni- lega verið æskilegra. Þeim, sem kunna á því skýringu, er velkom- ið að færa hana fram hér í dálk- unum. % Kennsla í afbrotum? Er það rétt að hingað sé að bera,st kvikmynd, þar sem glæpir og annað sem fyrir kemur i mynd- inni sé leikið af börnum? spurði kona nokkur í samtali við Velvak- anda. Og hún hélt áfram: Er ekki hægt að stöðva sýningar á svona myndum eða er ekki hægt að koma í veg fyrir að þær komi hingað til lands. Það vekur hjá manni hræðslu og kvíða allt þetta agaleysi og hversu ungt fólk er á um Jack eins notalega og unnt var I framsætinu. — Miguel! Jack þrýsti hönd hans. Senor! Mér þykir afar leiðin- legt hvað ég var lengi að þessu. En þegar ég sá hvaða leið þeir fóru vissi ég að það þýddi ekki annað en fá vörubíl. Chevrolettinn minn hefði fest sig strax. Má ég kynna yður yfir honum Jesús, Seavering. Augu Jacks Ijómuðu. — Jesús er I fjölskyldu með fólkinu sem ég hef búið hjá f Cabo San Lucas. Þetta er vöru- bfllinn hans. Hann varð að Ijúka verkefni sem hann hafði lofað áður en við gátum lagt af stað að leita yðar. — Eltir þú okkur f nótt? — Já. Eftir það sem kom fyrir vin yðar — að hverfa svona um miðja nótt... Ég gætti þess að vera langt á eftir og kveikti aldrei bflljósin. Það var heppiiegt að ég skyldi gera það, þá kom ég auga á vörubflinn sem beið á afviknum stað eftir ykkur. Hann ók á eftir fólksbflnum, þegar þið ókuð frá þjóðveginum. Hann hafði afskrifað Miguel f nótt og talið að hann væri að skemmta sér og þá hafði hann margan hátt ókurteist og slæmt. Það eru allt niður í 11 og 12 ára börn sem eru að slæpast úti síðla kvölds og nætur jafnvel og hvern- ig er það? Ná engin lög lengur yfir útivistartíma barna og ungl- inga? Þau eru öfurölvi hér að þar og það liggur við að miðbærinn í Reykjavík sé orðinn eins og ræn- ingjabæli, þar sem varla er þor- andi að vera á ferðinni á kvöldin um helgar. Það er víst nóg um glæpamat fyrir börnin og unglingana þó að ekki sé verið að bera á borð fyrir þau einhverja kvikmynd sem leikin er af börnum og ég held að biskupinn hafi einhvern tima farið fram á það, að ekki yrði sýnd hér kvikmynd. Getur hann ekki gripið inn í í þessu tilviki og farið fram á að umrædd mynd verði ekki sýnd hér? En ég tek fram að þetta er kannski mis- minni hjá mér, það er ekki víst að það eigi að fara að sýna myndina hér á landi, en finnst samt rétt að vekja athygii á þessu. Kvik- myndaeftirlit er starfandi og það er auðvitað hlutverk þess að segja til um hvort myndir teljast hæfar til sýningar fyrir börn og ung- linga en mér finnst einhvern veginn að það eftirlit sé ekki eins strangt og það var fyrir fáum árum. Hefur tíðarandinn ger- breytzt svo að tilslakanir eru leyfðar í öllum atriðum í kvik- myndum. Við eigum það efnilega æsku.og góða, þótt með undan- tekningum sé, að það er ekki vert að skemma hana á nokkurn hátt með lélegum kvikmyndum og hún má ekki fara i hundana aðeins vegna þess sem borið er á borð fyrir hana i kvikmyndahúsum landsins." Þetta var hugleiðing konunnar um málefni unglinga. Ekki getur Velvakandi frætt hana á því hvort myndin sem hún talar um eigi að koma hér til sýninga eða hvort aðeins var verið að segja frá til- vist hennar í blaði á dögunum. En hvað um það, hugleiðingin er rett- mæt og það er rétt að æskan er það efnileg að leggja verður rækt við að fóstra hana upp á heil- brigðan hátt, eða hvað segja les- endur um það? HOGNI HREKKVISI „Guð sé oss næstur. Það verður þrumukonsert í kvöld. SlGGA V/öGA g liLVtmi Nýkomin ungversk píanó Þeir, sem eiga pantanir, vinsamlegast hafi samband við okkur, nokkrum stykkjum óráðstafað. Sýnishorn á staðnum. Kristinn Bergþórsson, heildverzlun, Grettisgötu 3. Notaðir bílar til sölu Á söluskrá eru eftirtaldar bifreiðar: UAZ 469 B torfærubifreið, árg. 1975, ekin aðeins ca 7 þús. km. Billinn er með nýuppgerðri B.M.C. diesel vél. Lada 2103 (Topas) árg. 1 976, ekinn ca 5 þús. km. Lada 2103 (Topas) árg. 1976, ekinn ca. 10 þús. km. Lada 2103 (Topas) árg. 1975, ekinn ca. 20 þús. km. Ennfremur Lada 2101 og Lada 2102 (station). Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hí. Suðurluud'braut 14 - He>kja\ik - Sími llRtiOO A CHD EIGENDUFT^) r Volkswagen-, Golf-, Passat- og Audi m 5* Látið smyrja bflinn reglulega. SMURSTÖÐIN ER OPIN frá kl. 8 f.h. til kl. 6 e.h. HEKLAhf Laugavegi 170—172 — Sfmi 21240

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.