Morgunblaðið - 14.11.1976, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NOVEMBER 1976
— TILGANGURINN með þvf að
efna til ráðstefnu um mengun
ferskvatns á Hótel Sögu f fyrra-
dag, var að vekja til umhugsunar
um þessi mál. Og þó ekki sé hér
mikil mengun, þá er hún fyrir
hendi. Það hefur greinilega kom-
ið fram á þessari ráðstefnu. Á
þessa leið fórust Hákoni Jóhanns-
syni, formanni Landssambands
stangaveiðimanna, orð, er hann
sleit ráðstefnunni um kl. 6 sfð-
degis eftir daglangan erinda-
flutning og umræður. En lands-
sambandið átti upptökin að þess-
ari ráðstefnu og fékk til liðs við
sig Búnaðarfélagið, Heilbrigðis-
eftirlit rfkissin, heilbrigðisáðu-
neytið, landbúnaðarráðuneytið,
Landssamhand veiðifélaga, Land-
vernd, Náttúruverndarráð, veiði-
málanefnd og veiðimálastofnun.
Frá ráðstefnu um mengun ferskvatns á Hótel Sögu.
Ráðstefna um meng-
un ferskvatns vek-
ur til umhugsunar
Mörg fróðleg undirstöðuerindi
um viðfangsefnið voru flutt: Gutt-
ormur Sigurbjarnarson, jarðfræð-
ingur, talaði um vatnið sem auð-
lind, endurnýjun vatns, vatns-
þarfir, áhrif mannvirkjagerðar og
orkuvera. Þór Guðjónsson, veiði-
málastjóri flutti erindi um Líf í
fersku vatni, einkenni lífs, fersk-
vatn sem umhverfi lífs og íslenzk
séreinkenni. Sigurður Pétursson,
gerlafræðingur talaði um gerla-
rannsóknir í ferskvatni, tilgang
og gildi gerlarannsókna. Og Pétur
Sigurjónsson, forstjóri flutti er-
indi um mögulega mengun vatns
hér á landi og áhrif hennar, skil-
greindi mengun, breytilegt meng-
unarstig, áhrif lífrænna úrgangs-
efna á líf í vatni, og aðra áhrifa-
þætti, hvers sé að vænta og hvern-
ig verði snúist við hættum á þessu
sviði.
Eftir hádegisverðarhlé flutti
Guðmundur Pétursson forstjóri
erindi um áhrif mengunar á heil-
brigði vatnafiska. Baldur John-
sen, yfirlæknir talaði um um-
hverfasvernd við veiðivötn og ár,
um eftirlit með hreinsun frá-
rennslis og annars úrgangs.
Eyjólfur Sæmundsson, efnaverk-
fræðingur ræddi fyrirbyggjandi
ráðstafanir til varnar mengunar
frá þéttbýli. Og loks fluttu erindi
um mengunarlög og reglugerðir
prófessor Þorkell Jóhannesson og
Ingimar Sigurðsson lögfræðing-
ur.
Nokkrar umræður urðu og fyr-
irspurnir til fyrirlesara. Fundar-
stjórar voru Arni Jóhannsson,
Þorsteinn Þorsteinsson og Karl
Omar Jónsson.
útgeröamenn
ULSTEIN þverskrúfur
Vid viljum vekja athygli viðskiptavina vorra
á því.að tœknisérfrœðíngur frá ULSTEIN
verksmiójunum veróur staddur hjá okkur
dagana 15. til 19. nóvember.
Helsta X
framleiðsla ULSTEIN:
Skipasmíði
Skiptiskoifubúnaður
Þverskrúfur
Stöðugleikatankar
Þeim viðskipavinum, sem áhuga hafa á að
hitta hann, er vinsamlegast bent á að hafa
samband við véladeildina.
HEKLA hf
VÉLADEILD Laugavegi 170 -172 - Sími 21240
Kristniboðsdagurinn er í dag:
Sveitakonur selja mals á þorpstorgi 1 Konsó
Starfið í Konsó
kostar um 12 millj
ónir á þessu ári
Hinn árlegi kristniboðsdagur
verður að þessu sinni sunnu-
daginn 14. nóvember. Verður
kristniboðsins i Konsó þá
minnzt f mörgum kirkjum og
samkomuhúsum og tekin sam-
skot til kristniboðsstarfsins.
Skúli Svavarsson kristniboði
mun predika í útvarpsmessu.
Nú eru liðin 20 ár, sfðan
fyrsti Konsómaðurinn sneri
baki við hinni landlægu djöfla-
dýrkun og játaði trú á Krist.
Maður þessi heitir Barrisja
Germó og á heima í þorpinu
Dokottó, um hálfrar stundar
gang frá islenzku kristniboðs-
stöðinni. Barrisja var raunar
voldugur seiðmaður og djöfla-
prestur og hafði fært margar
fórnir um dagana, meðal ann-
ars kaffi að drykkjarfórn við
tré, sem stóð fyrir framan kofa
hans og talið var, að iilur andi
hefði aðsetur í. Sinnaskipti
hans vöktu óskipta athygli á
sínum tíma. Síðan hefur mikil
andleg hræring verið meðal
Konsómanna fyrir áhrif kristni-
boðsins, og má segja, að mörg
vígi djöfladýrkenda hafi fallið.
Þó eru enn stór svæði í Konsó,
þar sem fólk fer að míklu eða
öllu leyti á mis við kristna boð-
un og er fjötrað í hinum forna
sið. Um þessar mundir munu
vera um sex þúsund manns í
kristnu söfnuðunum í Konsó.
Sjúkraskýlið á fslenzku
kristniboðsstöðinni gegnir
veigamiklu hlutverki í Konsó-
héraði, enda er það eina lækn-
ingamiðstöðin meðal þjóð-
flokksins. Þangað leituðu um
40 þúsund manns í fyrra, eða
fleiri en nokkru sinni fyrr. Gíf-
urlegur skortur er á hvers kon-
ar hjúkrunarfólki í Eþíópíu, og
rfkir mikil fáfræði meðal al-
múgans.
Skóla hafa ísl. kristniboðarn-
ir rekið frá upphafi starfsins,
og hafa margir æskumenn í
Konsó sótt einu menntun sína
til kristniboðsstöðvarinnar. Á
liðnum vetri gegnu um 250
nemendur í skólann, auk nem-
enda í lestrarskólum, sem söfn-
uðirnir standa fyrir.
Herstjórnin f Addis Abeba
vinnur að því að koma á sósfal-
isma um allt landið og boðar
guðleysi. Samt hafa kristniboð-
ar enn þá fullt frelsi til starfa,
og í mörgum byggðum Konsó er
beinlínis beðið eftir því, að
kristniboðarnir komi og hefjist
þar handa.
Áætlað er, að kostnaður
kristniboðsstarfsins verði á
þessu ári aUt að 12 milljónir
króna, Kristniboðið er algjör-
lega háð stuðningi vina þess og
velunnara. Er þess að vænta, að
margir minnist starfsins á
kristniboðsdaginn og leggi
fram nokkurn skerf til málefn-
isins.
Benedikt Arnkelsson
Jólafatnaður
á börnin
Stuttir og siðir kjólar. Drengjaföt á 1—5 ára, buxur, skyrta og vesti frá
kr. 3.500.-. Terylenebuxur og peysur, margar gerðir. Loðfóðraðar
kuldaúlpur, húfur, vettlingar, ungbarnafatnaður, sængurgjafir.
Póstsendum.
Bella, Laugavegi 99.
Sími 26015.