Morgunblaðið - 09.12.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976
Þau stuðluðu á einn eða annan hátt að útgáfu plötunnar með flutningi Lárusar Pálssonar: Talið frá
vinstri: Óskar Halldórsson lektor, María Jóhanna, dóttir Lárusar, Svavar Gests, Hólmfrlður Pálsdóttir,
systir Lárusar, og Knútur Skeggjason tæknimaður. Myndina tók ljósm. Mbl. RAX á blaðamannafundi
vegna útkomu plötunnar.
Plata með flutningi
Lárusar Pálssonar
— hundraðasta hæggenga plata S.G.-hljómplatna
HLJÓMPLÖTUFYRIRTÆKI
Svavars Gests, ' S.G.-
hljómplötur, hefur gefið út
stóra plötu, þar sem Lárus heit-
inn Pálsson leikari flytur Ijóð,
gamanvfsur og eintalsatriði úr
leikritum. Plata þessi er há-
tfðarútgáfa f tilefni þess, að
hún er hundraðasta hæggenga
platan sem S.G.-hljómpIötur
gefa út.
Efnið á plötunni er fjöl-
breytt. Lárus flytur 19 ljóð, is-
lenzk og erlend og eru íslenzku
ljóðin eftir Jónas Hallgrfmsson,
Matthías Jochumsson, Stefán
Ólafsson, Jóhann Sigurjónsson,
Theodóru Thoroddsen, Tómas
Guðmundsson, Stein Steinarr
og Þorgeir Sveinbjarnarson, en
LÁRUS PÁLSSON
þau erlendu eru eftir Heine og
Fröding í þýðingum Jónasar
Hallgrímssonar og Magnúsar
Asgeirssonar. Þá syngur Lárus
gamanvísur eftir Sigfús Blönd-
al og Halldór Gunnlaugsson við
undirleik Fritz Weisshappels
og einnig flytur hann eintalsat-
riði úr leikritunum Hamlet og
Pétri Gauti.
Hljóðritanir eru allar úr safni
Rikisútvarpsins og spanna þær
yfir 25 ára tímabil. Þær elztu
eru frá árinu 1942, en þær
yngstu frá 1967. Knútur
Skeggjason tæknimaður og
segulbandavörður Ríkisút-
varpsins sá um afritanir efnis-
ins. Elztu upptökurnar voru á
plötum og því misjafnar að
gæðum vegna slits, en Knútur
hefur náð að bæta hljómgæðin i
afritun efnisins.
Á blaðamannafundi sem
Svavar Gests boðaði til vegna
Framhald á bls. 27
Ylræktarverið:
Rekstrargrundvöllur styrk-
ist við nýja upplýsingaöflun
Fífill GK með
mesta aflaverð-
mæti í Norðursjó
Gudmundur med bezta meðalverðið
FlFILL GK var með mest verð-
mæti Islenzku sildveiðiskipanna,
sem stunduðu veiðar i Norðursjó í
sumar og haust og seldu í Dan-
mörku. Fifill seldi sild fyrir 32.8
milljónir króna, en afli skipsins
var alls 543 tonn og meðalverð á
kíló kr. 60.48. Gullberg VE er f
öðru sæti, 29,7 millj. kr. aflaverð-
mæti. Gullberg seldi alls 394
lestir og var meðalverð á hvert kg
kr. 75.41. Albert GK seldi 365
lestir fyrir 28.8 millj. kr. og var
meðalverð á hvert kg kr. 79 í
fjórða sæti kemur Eldborg GK,
sem seldi 351,8 lestir fyrir 28.5
millj. kr. og var meðalverð á kiló
kr. 81.07.
Hæsta heildarmeðalverð i
sumar og haust fékk Guðmundur
RE, sem seldi alls 232.6 lestir
fyrir 19.1 millj. kr. og var meðal-
verð fyrir aflann kr. 82.41. Næst
hæsta meðalverðið fékk Eldborg
GK kr. 81.07, þá kom Keflviking-
ur KE með kr. 79.59 og Ljósfari
ÞH með kr. 78.65.
Aðalfundur LlU er mjög fjölsóttur og sækja hann útgerðarmenn
hvaðanæva af landinu. Ljðsm. Mbl.: Fraðþjófur.
Leyfi til síldveiða næsta haust:
Þeir sem ekki hafa feng-
ið leyfi sL 2 ár sitji fyrir
A AÐALFUNDI Landssambands
ísl. útvegsmanna í gær kom fram
hjá Kristjáni Ragnarssyni for-
manni sambandsins, að úthlutun
síldveiðileyfa hér við land hefði
valdið miklum deilum í haust. A
aðalfundinum myndi stjórn L.Í.U.
leggja fyrir fundinn tillögur um
hvernig veiðileyfum til nótaveiða
yrði úthlutað á næsta ári og væri
þar gert ráð fyrir að þeir aðilar
sem ekki hefðu fengið leyfi 2 s.l.
ár sætu fyrir öðrum um leyfi á
næsta ári. Kvað hann stjórnina
einnig leggja fram tillögur um
breytingu á lögum um fiskveiði-
landhelgina til þess að jafna að-
stöðu hinna mismunandi skipa-
stærða og þá fyrst og fremst að
auka réttindi báta af millistærð,
sem mjög virtust hafa verið af-
skiptir við setingu núgildandi
laga.
Góð færð á Suðurlandi,
þungfært annars staðar
FYRIRTÆKI þau, sem hugsan-
lega munu standa að undirbún-
ingsfélagi fyrir stofnun og rekstri
ylræktarvers hér á landi, eru um
þessar mundir að endurskoða
áætlanir um fjárhagsgrundvöll
sliks fyrirtækis, jafnframt þvi
sem unnið er að gerð áætlunar
um stofnkostnað.
Fulltrúar héðan voru nýlega í
Hollandi til að ræða frekar við
fyrirtæki það sem annast mun
sölu græðlingana, ef af verður.
Þórður Þorbjarnarson, borgar-
verkfræðingur, var í þessum hópi
og i samtali við Morgunblaðið
sagði Þórður að i viðræðunum
ytra hefðu fengizt frekari skýr-
ingar á því með hvaða hætti salan
færi fram, en hún verður í formi
umboðslauna til hins hollenzka
fyrirtækis. Svör fengust við þvi
hvernig tryggt væri að rétt verð
yrði gefið upp hverju sinni,
hvernig staðið yrði að sendingum
á græðlingunum, afgreiðslu toll-
skjala og tollgreiðslna og hvenær
uppgjör skyldi fara fram.
Þá sagði Þórður, að þarna hefði
komið fram, sem athyglisvert
mætti teljast, að meirihlutinn af
græðlingunum yrði sendur héðan
til Hollands órættur en þeir færu
siðan I rætingu hjá sölufyrirtæk-
inu, sem síðan seldi þá rætta,
Framhald á bls. 26
FÆRÐ er góð um þessar mundir
á Suðurlandi og allt vestur á Snæ-
fellsnes. Vfðast annars staðar á
landinu er illfært eða ófært vegna
snjóa, en þó var fært f gær alla
leið frá Reykjavfk til Akureyrar.
Aðeins var fært fyrir jeppa og
stærri bfla um Gilsfjörð og Reyk-
hólasveit, Þorskafjarðarheiði var
ófær og sömuleiðis Klettsháls.
Fært var fyrir jeppa og stóra bíla
yfir Hálfdán, en Hrafnseyrar-,
Breiðadals- og Botnsheiði ófærar.
Geðdeild Landspítalans rýf ur
einangrun geðlækninganna
- segir Jón G. Stefánsson, geð
læknir við Kleppsspítalann
EINANGRUN Kleppsspftalans
er mjög alvarleg og þótt vega-
lengdin til Landspítalans sé
ekki ýkja mikil, þá gætir þessa
strax hér hjá okkur — sagði
Jón G. Stefánsson geðlæknir á
Kleppsspítalanum, lektor og
kennslustjóri við læknadeild
Háskóla islands. „Við erum hér
talsvert einangraðir, þótt sam-
vinna sé milli spítalanna,
þ.e.a.s. þeir þjóna okkur og við
þjónum þeim. Samskiptin eru
þó talsvert erfið, vegna þess,
hve menn hittast Iftið. Með til-
komu geðdeildar Landspítalans
væri þetta mál leyst, þar
myndu skapast tengsl við aðrar
greinar læknisfræðinnar. Hef-
ur þetta gffurlega þýðingu fyr-
ir geðlæknisfræðina og geð-
læknisþjónustuna, svo og fyrir
aðrar greinar. Geðiæknisfræð-
in hefur orðið útundan í því
kerfi, sem rfkir á Landspítalan-
um, hana hefur vantað í kerf-
ið.“
Sem kennslustjóri lækna-
deildarinnar sagðist Jón hafa
sérstakar áhyggjur vegna þess
að ekki skuli vera meira sam-
band við Landspítalann en
raun er á. Hann kvað þetta
koma niður á kennslu i geð-
læknisfræði og einnig niður á
kennslu í lyflæknisfræði. Þetta
væri að vissu leyti því að kenna
að geðlækningar færu nær ein-
göngu fram „inni við sundin“
eins og hann komst að orði. „Sú
geðlæknisfræði, sem við erum
að fást við hér á Kleppsspítal-
anum er ekki beint sú tegund,
sem nauðsynlegast er fyrir
læknastúdenta að læra, heldur
er það sú geðlæknisfræði, sem
Framhald á bls. 26
Jón G. Stefánsson geðlæknir
1 Húnavatnssýslu og á Strönd-
um var sæmileg færð og t.d. fært
til Hólmavíkur. Ekki var fært úr
Skagafirði til Siglufjarðar, en ráð-
gert var að moka á þeirri leið í
gær. Fært var öllum bilum milli
Reykjavíkur og Akureyrar, en frá
Akureyri var ófært til Ólafs-
fjarðar og aðeins fært til Húsavík-
ur um Dalsmynni.
A Norðausturlandi var víðast
mjög þungfært. I gær átti að
moka á Tjörnesi og Kelduhverfi
þannig að fært yrði á Kópasker,
en ófært er út á Sléttu. Jeppafært
var á milli Raufarhafnar og Þórs-
hafnar, en ófært á milli Þórs-
hafnár og Vopnafjarðar. 1 gær
átti að ryðja veginn nióur í
Borgarfjörð eystri. Fagridalur
var öllum bílum greiður i gær,
þannig að góð færð var á milli
Egilsstaða og Eskifjarðar. Hins
vegar var aðeins jeppafært milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
og Fjarðarheiði var ófær. Frá
Fáskrúðsfirði var síðan fært til
Hafnar í Hornafirði og þaðan alla
leið til Reykjavikur.