Morgunblaðið - 09.12.1976, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.12.1976, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976 Jóhann Hafstein á Alþingi í gær: Núverandi staða og stefna íslenzks iðnaðar mörkuð í tíð „Viðreisnar” Á FUNDI neðri deildar Alþingis f gær var fram haldið fyrstu umræðu um frumvarp til laga um Iðn- tæknistofnun Islands, sem Magnús Kjartansson (Abl) flytur. Jóhann Hafstein (S) flutti nokkuð langa ræðu þar sem hann ræddi mest stefnumál Við- reisnarstjórnarinnar, í þeim tilgangi að hrekja ýmis ummæli sem Magnús Kjartansson hafði haft um það, sem hann nefndi stefnuleysi núverandi stjórnar og fyrrverandi „Viðreisnar“ í iðnaðarmál- um. Jóhann byrjaði sitt mál á að nefna leiðréttinguna á gengis- Jóhann Hafstein Ummæli um stefnuleysi Viðreisnarstjórnar í mál- efnum iðnaðarins hrakin skráningunni árin 1960 og 1961. Sagði hann þessar leiðréttingar hafa þá orðið iðnaðinum til hags- bóta, þar sem iðnaðurinn hefði verað beittur miklum rangindum með hinni röngu gengasskráningu sem fyrir hafði verið, og hafði tíðkazt í tið hins margþætta og oft óskiljanlega uppbótakerfis. Sagði Jóhann lífskjör ekki hafa í annan tíma verið betri en á liðnum ára- tug — viðreisnartímabilinu —, þegar þjóðartekjur á mann jukust um 60% og kaupmáttur almennra launatekna um 75%. Þá vék Jó- hann Hafstein að stefnu í stór- iðjumálum á sl. áratug. Sagði hann það vera á árunum eftir 1960 sem alvarlega hefði verið farið að tala um stóriðju hér á landi. Þann 5. mai 1961 hafi þáverandi iðnaðarráðherra skip- að stóriðjunefnd, og fjórum árum siðar, eða i ársbyrjun 1965 hafi undirbúningur hafizt við samn- ingu uppkasta að samningi við Alusuisse um álverið í Straums- vik. Sagði Jóhann að hugleiðingar um stóriðju á tslandi hefðu vafa- laust sprottið af þeirri nauðsyn sem hefði verið á að tryggja nógu mikinn vöxt í þjóðarbúskap okkar. Sagði Jóhann að til þess að vera öruggir um að dragast ekki aftur úr öðrum vestrænum þjóð- um hvað efnahag snerti, þá hefði verið talið vænlegast að freista þess að renna fleiri stoðum undir islenzkt atvinnulíf en það hvildi á þar sem ljóst hefði verið að fram- leiðsluaukningu iðnaðar fyrir innlendan markað hefði verið tak- mörk sett og að framleiðsluaukn- ing á sjávarútvegi hefði getað brugðið til beggja vona. „Með framangreindri hugsun var stefnumiðið að tryggja meira öryggi með aukinni fjölhæfni þjóðarframleiðslunnar, en ekki var verið að vanmeta hina geysi- miklu þýðingu sjávarútvegsins, sem lagt hefði til allt að 95% af útflutningsverðmætum þjóðar- innar,“ sagði Jóhann um stefnu Viðreisnarstjórnarinnar i stór- iðjumálum. Næst vék Jóhann að stefnumótun i málefnum iðnaðar- ins í heild i ráðherratíð sinni, en Magnús hafi oft fundið að, að það timabil hafi skort stefnu í iðnaðarmálum. Sagðist Jóhann hafa dregið stefnu stjórnarinnar saman á fundi Félags ísl. iðnrekenda á fundi þess í febrúar 1966. Þar hefði hann sagt m.a: „I fyrsta lagi: Stefnt er að því að rikja megi jafnrétti milli aðal- atvinnuvega landsmanna, og jafn- framt að þvi unnið, að hagsmunir einstakra atvinnugreina séu ekki fyrir borð bornir, ef það samrým- ist hagsmunum almennings, eða þjóðhagslegri framkvæmd. I öðru lagi: Stefnt er að þvi að létta tollum af vélum og hráefn- um iðnaðarins, samfara því að tollum sé almennt aflétt til þess að veita almenningi ódýrara og betra vöruval og draga með þvi úr dýrtíð í landinu. Séð verður til þess, að iðnaðurinn í landinu njóti í þessu sambandi eðlilegs aðlögunartíma og ráðstafanir gerðar í lánamálum og á annan hátt til að gera honum auðveldara að tileinka sér ýmsa tækni og aukna hagræðingu og framleiðni til eflingar þessari atvinnugrein i frjálsari viðskiptum. 1 þriðja lagi: Haldið verði áfram að efla Iðnlánasjóð, svo að iðnaðinum skapist viðunandi stofnlánaaðstaða, jafnframt því sem gert er ráð fyrir, að aðstaða hans I bankakerfinu haldist til jafns við aðrar atvinnugreinar. Samtímis hefur verið sköpuð aðstaða til umbóta, á sviði lána- mála með lögum og reglugerð i samráði við bankana til að breyta lausaskuldum iðnaðarins i löng og hagkvæmari lán. 1 fjórða lagi: Ríkisstjórnin hef- ur stuðlað að því að hefjast megi i landinu nýjar atvinnugreinar á sviði iðnaðarins, þar sem horfur eru á, að verð og gæði standist erlenda samkeppni, og þjóðhags- lega mikilvægt, að slíkar atvinnu- greinar eflist, svo sem innlend stálskipasmiði, samfara endur- byggingu gamalla og úreltra dráttarbrauta, og efling fisk- iðnaðar, m.a. með niðursuðu og niðurlagningu síldar til útflutn- ings. í fimmta lagi: Sett hafa verið lög um rannsóknir I þágu atvinnu- veganna og þar með stór-efldar rannsóknir á sviði iðnaðarins á MÞinci vegum tveggja stofnana. I fyrsta lagi Rannsóknastofnun iðnaðar- ins, sem vinna á að rannsóknum til eflingar og hagsbóta fyrir iðnaðinn í landinu og rannsókn- um vegna nýjunga á sviði iðnaðar og annarrar framleiðslu, rann- sóknum á nýtingu náttúruauð- linda landsins i þágu iðnaðarins, og veiti nauðsynlega þjónustu og kynni niðurstöður rannsókna I vísinda- og fræðsluritum. I öðru lagi Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins, sem vinnur að endurbótum í byggingariðnaði og lækkun á kostnaði við mann- virkjagerð, hagnýtum jarðfræði- rannsóknum og vatnsvarkjunar- rannsóknum, kynni niðurstöður rannsókna, veiti upplýsingar um byggingarfræðilg efni og aðstoð við eftirlit með byggingarefni og byggingarframkvæmdum. I sjötta lagi: Stefnt er að virkj- un stórfljóta landsins, byggingu stórra orkuvera, sem verði grund- völlur og orkugjafi fjölþættrar iðnvæðingar i landinu. Orkuver landsins séu eign tslendinga, en til þess að virkja megi í stórum stil og undir lántökum verði risið á sem hagkvæmastan hátt, er tryggi ódýrari raforku, og til þess að styrkari stoðum sé rennt undir atvinnulif landsmanna, verði er- lendu áhættufjármagni veitt aðild að stóriðju, ef hagkvæmt þykir samkvæmt mati hverju sinni og landsmenn brestur fjár- hagslegt bolmagn eða aðstöðu til framkvæmdanna. I sjöunda lagi: Rikisstjórnin hefur leitað og mun leita samráðs og samvinnu við samtök iðn- rekenda og iðnaðarmanna, Félag íslenzkra iðnrekenda og Lands- samband iðnaðarmanna, um hags- munamál iðnaðarins og stefnir að þvi að efla samstarf þessara aðila við iðnaðarráðuneytið og þær stofnanir iðnaðarins, sem undir það heyra, svo sem rannsóknar- stofnanir iðnaðarins og Iðnaðar- málastofnun lslands.“ Við mörg tækifæri önnur bæði á Alþingi og annars staðar, hefur stefna ríkisstónrarinnar i þessum málum síðar verið áréttuð“, sagði Jóhann Hafstein. Minntist Jóhann næst á ráð- stefnu sjálfstæðismanna í Reykja- vík um iðnþróun á árinu ’68 og sagði hann ályktun þess fundar og ræðu sína á fundi Félags ísl. iðnrekenda hafa verulega mótað iðnaðarmálastefnu þeirra ára. I álitsgerð ráðstefnu sjálfstæðis- manna sagði m.a. „Vinna þarf markvisst að því að efnahagsþróunin verði gerð óháðari aflabrögðum og mörk- uóum fyrir einhæfar sjávaraf- urðir en nú er, svo að hægt verði að tryggja batnandi lifskjör allra landsmanna samfara fullri atvinnu. Til að þvi markmiði verði náð, bendir ráðstefnan á eftirfarandi: 1. Arðsemi og framleiðni verði ráðandi sjónarmið við fjár- festingu í atvinnuvegum og laga- setningu þeirra vegna, hvort heidur um eflingu eldri eða stof- un nýrra fyrirtækja eða atvinnu- greina er að ræða. 2. Auka þarf skilning opinberra aðila og allrar þjóðarinnar á þvi, að vel rekin og fjárhagslega sterk fyrirtæki eru forsendur bættra lifskjara og framfara. Stefnt verði að stækkun rekstrareininga í hvers konar at- vinnurekstri, þegar sýnt þykir, að slíkt stuðli að aukinni rekstr- arhagkvæmni og samkeppnis- hæfni. 3. Aukin áherzla verði lögð á rannsóknir á orkulindum og náttúruauðæfum landins svo og hagnýtar rannsóknir i þágu iðnaðar og fjárframlög til rann- sóknarstarfsemi tryggð. Yfír 3 þúsund áhorf- endur á Kiamorkuna AHORFENDUR að sýningu Leikfélags ins í Austurbæjar- bíói, Kjarnorku og kvenhylli, eru nú orðnir yfir þrjú þúsund en leikurinn hefur verið sýnd- ur sex sinnum og eru nú aðeins eftir ein sýning fyrir jól, á laugardagskvöldið. Leikfélagið er nú með fimm sýningar á fjölunum, en fjögur verk eru nú sýnd í Iðnó: Æsku- vinir eftir Svövu Jakobsdóttur, Stórlaxar eftir Ferenc Molnar og Skjaldhamrar Jónaasar Árnasonar og Saumastofan eft- ir Kjartan Ragnarsson, en tvö síðasttöldu verkin hafa verið sýnd yfir hundrað sinnum. Myndin er úr Kjarnorku og kvenhylli og sjást þar Margrét Ólafsdóttir (frú Karitas), Klemenz Jónsson (kjarnorku- sérfræðingurinn Epihara), Guðmundur Pálsson (Þorleifur alþingismaður) og Gísli Halldórsson Valdimar, primus motor í pólitík). Bessi Bjarnason sem hinn fmyndunarveiki Síðustu sýningar á ímyndunarveikinni SÝNINGUM er nú að Ijúka f Þjóðleikhúsinu á gamanleikriti Moliéres IMYNDUNAR- VEIKKKINNI, sem sýnt hefur verið vm við mjög góða aðsóknnfrá því I fyrravor. Síðustu sýningarnar verða á fimmtudags- og laugardags- kvöld og verða sýningar þá alls orðnar 35. Bessi Bjarnason leikur hinn ímyndunarveika, en Herdis Þorvaldsdóttir leikur vinnukonuna Toinette. Leik- stjóri er Sveinn Einarsson. í sýningunni eru bæði dansar og tónlist og er hún eftir Jón Þórarinssön. Leikritið verður ekki tekið upp aftur eftir jól. 4. Skipulega verði unnið að því að hagnýta erlent fjármagn og sérþekkingu til uppbyggingar nýrra og eldri iðngreina, enda verði gengið tryggilega frá samningum hverju sinni, svo að íslenzkum hagsmunum verði aldrei teflt í tvisýnu. 5. Rutt verði úr vegi hindrunum og fundnar leiðir til að örva þátt- töku almennings í arðbærum at- vinnurekstri. 6. Þess verði gætt að Island einangrist ekki frá mikilvægum mörkuðum og lagt kapp á að efla leit að mörkuðum erlendis fyrir islenzka iðnaðarfrámleiðslu." Vék Jóhann einnig nokkuð að ýmsum lagasetningum i tið Við- reisnarstjórnarinnar og taldi upp mörg lög máli sinu til stuðnings, að til hefði verið mörkuð iðnaðar- stefna í tið hans sem iðnaðarráð- herra, og að Viðreisnarstjórnin hefði borið hag iðnaðarins fyrir brjósti, þar sem það hefði verið ljóst að iðnaðurinn hefði öðrum atvinnugreinum fremur orðið að taka á móti fjölgun mannafla á atvinnumarkaðinum. Hvað fjár- mögnun iðnaðarins snerti, sagði Jóhann Hafstein, að í hans tíð sem ráðherra hefði það ætíð verið stefna að efla fjárhagsstöðu iðnaðarins og að verulegur árangur hefði náðst i þeim efn- um. Þannig hefði iðnlánasjóður verið stofnaður, tvisvar sinnum hefðu lög verið afgreidd um lausaskuldir iðnaðarins, sem gert hefði það að verkum að þeim skuldum hefði verið breytt I föst lán, og loks hefði svo verið stofn- aður norrænn Iðnþróunarsjóður við inngöngu Islands í EFTA. Sagði Jóhann Hafstein að frum- varp Magnúsar Kjartanssonar fæli það í sér að stofnanir sem Rannsóknastofnun iðnaðarins og Rannsóknastofnun byggingar- iðnaðarins svo og Iðnþróunar- stofnunin yrðu lagðar niður, og væri það mikill agnúi þar sem þessar stofnanir allar ynnu merkt og mikilvægt starf i þágu iðnaðar- ins. Loks sagði Jóhann Hafstein: „Af hálfu Viðreisnarstjórnar- innar ríktý_alltaf það sjónarmið að Framhald á bls. 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.