Morgunblaðið - 09.12.1976, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976
FIMM OG HÁLFUR MÁNUÐUR
VAR STARFSTlMI KNAPPS
t FRÁSÖGN Morgunblaðsins f
gær um kostnað KSl af landsliðs-
þjálfaranum Tony Knapp var
ekki rétt farið með dvalartíma
hans hérlendis s.I. sumar. Kom
Tony Knapp hingað I aprfl og var
fram til 20. september, þannig að
starfsttmi hans hjá sambandinu
var um fimm og hálfur mánuður.
Lækkar kostnaðurinn þvf niður f
rösk 500 þúsund á mánuði. Fyrsti
leikurinn, þar sem Tony Knapp
stjórnaði íslenzku landsliði s.l.
sumar, var er unglingalandsliðið
keppti við Luxemburg f Evrópu-
keppni unglinga, en sá leikur fór
fram 14. aprfl. Var Tony Knapp
sfðan með fslenzka unglingalið-
inu f úrslitakeppninni f Ung-
verjalandi, þar sem leiknir voru
þrfr leikir. A-landsliðið lék svo
sex landsleiki á árinu og þrjá
úrvalsleiki og drengjalandsliðið
lék þrjá leiki, en Tony Knapp
stjórnaði einnig þajlfun þess.
Fyrst unnu Svíar
NORÐMENN og Svíar léku tvo
landsleiki í handknattleik um helg
ina og fóru þeir báðir fram í Noregi
Úrslit fyrri leiksins urðu þau, að
Sviarnir sigruðu 13—11, eftir að
staðan hafði verið 8—6 þetm í vil i
hálfleik, en seinni leikinn unnu
Norðmenn 13—12 eftir að hafa
verið 3 mörk yfir i hálfleik: 7—4.
Báðir þessir leikir þóttu nokkuð
harðir, en blöðin hrósa liðunum fyrir
góðan og vel útfærðan varnarleik. í
fyrri leiknum skoraði Claes Riben-
dahl flest mörk fyrir Svia. 5, en Sven
- svo Norðmenn
Tore Jacobsen skoraði fiest mörk
fyrir Noreg, 3. í seinni leiknum skor-
aði Ingemar Augustsson flest mörk
fyrir Svíþjóð, 3, en markhæstur í liði
Norðmanna urðu Terje Ekeberg og
Erik Nessem sem skoruðu 3 mörk
hvor.
Norsku og sænsku blöðin eru sam-
mala um það i umfjöllun sinni um
leiki þessa, að norski markvörðurinn
Morgan Juul hafi verið bezti maður
vallarins i báðum leikjum, og hafi
varið hin ótrúlegustu skot.
mmm
Leikmenn ftalska liðsins Juventus (f röndóttum búningi) tryggðu sér f gærkvöldi rétt til áframhaldandi
þátttöku f UEFA-bikarkeppninni. Þessi mynd er tekin f UEFA-leik við Manchester United og er það
Brian Kidd sem er að senda knöttinn f mark Italanna.
„flruggu" liðin
SEXTAN liða úrslit UEFA-
bikarkeppninnar f knattspyrnu
fóru fram f gærkvöld og verða það
grfska liðið AEK, ftalska liðið
Juventus, enska liðið Queens
Park Rangers, spánska liðið
Barcelona og Atletico Bilbao, a-
þýzka liðið Magdeburg, belgfska
liðið Molenbeek og hollenzka
liðið Feyenoord sem tryggðu sér
rétt til þátttöku f átta liða úrslit-
unum.
Flestir leikirnir f sextán liða
úrslitunum buðu upp á mjög
mikla spennu og hörku, en ekki
er hægt að segja að úrslit leikj-
anna hafi komið svo mjög á óvart.
Var það helzt í leik Kölnar og
Q.P.R. annars vegar og Milan og
Atletico Bilbao hins vegar sem
örugg forysta sem Q.P.R. og
Bilbao höfðu eftir fyrri umferð-
ina var verulega ógnað. Bæði liðin
komust þó áfram, en staða Q.P.R.
var þeim mun naumari, að marka-
tala liðsins og Kölnar var jöfn, en
enska liðið komst áfram, þar sem
það skoraði mark á útivelli.
Rauða-Stjarnan —AEK
Gífurleg barátta var i leik
júgóslavneska liðsins Rauðu-
Stjörnunnar frá Belgrad og
gríska liðsins AEK frá Aþenu í
leik þeirra i Belgrad í gærkvöldi.
AEK hafði unnið fyrri leikinn
2—0, og raðaði liði sínu upp i
vörn þegar frá upphafi leiksins í
gærkvöldi. Gekk þó illa að ráða
við. friska framherja Rauðu-
Stjörnunnar og þegar á upphafs-
mínútunum skoraði Baralic fyrir
lið sitt. Þegar svo Filipovic bætti
öðru marki við skömmu síðar var
staðan orðin jöfn. Þegar svo Savic
skoraði þriðja mark Rauðu-
Stjörnunnar ætlaði allt um koll að
keyra á áhorfendapöllunum, en
þar voru um 90 þúsund manns.
Fagnaðarlætin hljóðnuðu þó fljót-
lega. Grikkirnir náðu góðri sókn
og Vestur-Þjóðverjinn f liði
þeirra, Walter Wagner, skoraði.
í seinni, hálfleik var Rauða
stjarnan í stanzlausri sókn, en þá
tókst Grikkjunum að verjast öll-
um áhlaupum þeirra og halda
marki sínu hreinu. Urslitin urðu
því 3—1 fyrir Rauðu-stjörnuna og
samanlögð markatala úr leikjun-
um tveimur 3—3. Hið eina mark
sem AEK skoraði á útivelli kemur
því liðinu í undanúrslitin.
Schachtor
— Juventus
í Donetzk í Sovétríkjunum
mætti heimaliðið Schachtor
ítalska liðinu Juventus. Leikur
þessi þótti nokkuð tilþrifalítíll, en
sovézka liðið var þó heldur meira
í sókn og á 35. minútu tókst
Shevlyuk að skora eina mark
leiksins. Það nægði Sovétmönn-
um þó skammt, þar sem Juventus
hafði unnið fyrri leikinn 3—0 og
heldur þvi áfram i keppninni.
Köln — Q.P.R.
Fyrri leik þessara liða, sem
fram fór á heimavelli Queens
Park Rangers, hafði enska liðið
unnið 3—0, þannig að veganesti
þess í förinni til Vestur-
Þýzkalands gat tæpast verið
í krappan dans
komust
betra. Þegar svo Don Masson
skoraði fyrir Q.P.R. þegar á 4.
mínútu f leiknum f Köln, mátti
telja Englendingana örugga að
komast áfram. En Þjóðverjarnir
voru hins vegar ekki á því að láta
sig. Þeir hófu mikla sókn að
marki Q.P.R. og svo fór að lokum
að Q.P.R. mátti þakka þessu
marki Massons á útivelli að liðið
komst áfram í keppninni.
Köln skoraði þrjú mörk með
stuttu millibili i fyrri hálfleik og
gerðu þau Dieter Múller, Hannes
Loehr og Wolfgang Weber. Þegar
svo Múller bætti öðru marki sfnu
vað þegar i upphafi seinni hálf-
leiks og Dave Clement var rekinn
af velli, átti Köln góða möguleika
á að komast áfram. En þrátt fyrir
ævintýralega góð færi oftsinnis í
seinni hálfleiknum tókst Köln
ekki að bæta fleiri mörkum við og
verður þvf að bíta í það súra epli
að sitja heima þegar næsta um-
ferð keppninnar fer fram.
Barcelona
— Öster
1 Barcelona á Spáni lék heima-
liðið FC Barcelona við sænska
liðið Öster að viðstöddum 65.000
áhorfendum. Var þarna um að
ræða leik kattarins að músinni og
þegar upp var staðið hafði
Barcelona skorað fimm mörk
gegn einu, og heldur þvf áfram í
keppninni með samanlagða
markatölu 8—1. Eins og svo oft
áður var þá hollendingurinn
Johan Cruyff sem var maðurinn á
bak við sigur Barcelona. Hann
gerði reyndar ekki nema eitt
mark sjálfur, en átti góðan þátt að
þremur öðrum. Asensi skoraði 2
mörk fyrir Barcelona og Clares og
Heredia sitt markið hvor. Fyrir
öster skoraði Everson, þegar
langt var liðið á leikinn.
Milan
— Atletico Bilbao
Atletico vann fyrri leikinn 4—1
og þvá var ekki óeðlilegt að leik-
menn liðsins legðu megin áherzlu
á vörn i leiknum í Ítalíu. Staðan i
hálfleik var 0—0 og úrslit máttu
þvi heita ráðin. En f seinni hálf-
leik sýndi Milan sannkallaðan
stjörnuleik, ákaft kvatt af 40 þús-
und áhorfendum tókst Milan að
skora þrjú mörk og voru þá aðeins
6 mínútur til leiksloka. Calloni
gerði 2 þessara marka og Biasiolo
eitt. En þremur minútum fyrir
leikslok tókst miðherja Spánverj-
anna, Roja, að skjóta sér inn fyrir
vörn Milan-liðsins og varð hann
ekki stöðvaður nema með svo
grófu broti að dæmd var vita-
spyrna sem Madariaga skoraði úr.
Komst þvi Bilbao áfram í keppn-
inni — samanlögð markatala úr
leikjunum tveimur var 5—4, þvf i
vil.
Videoton
— Magdeburg
Aðeins 8 þúsund áhorfendur
fylgdust með leik þessum, enda
mátti segja að úrslitin væru
ákveðin fyrirfram þar sem
Magdeburg hafði unnið fyrri leik-
inn 5—0. Urslit f leiknum í Ung-
verjalandi var 1—0 sigur heima-
laðsins og skoraði Magy markið á
11. mínútu. Magdeburg kemst því
í undanúrslitin. Samanlögð
markatala var 5—1.
Schalke 04
— Molenbeek
Þrátt fyrir nær stanzlausa sókn
vestur-þýzka liðsins Schalke 04 að
marki belgíska liðsins Molenbeek
tókst því ekki að vinna upp eins
marks forskot belgiska liðsins frá
leiknum í Belgiu. Jafntefli varð í
leiknum i gærkvöldi 1—1 og voru
bæði mörkin skoruð i fyrri hálf-
leik. Abramczik gerði mark
Schalke 04 en Teugels skoraði
fyrir Molenbeek. Ahorfendur að
leik þessum voru um 40.000.
Feyenoord
— Espanol
1 leik þessum var aldrei spurn-
ing um hvort liðið myndi sigra,
heldur miklu fremur um hve stór
sigur Feyenoord yrði. Og úrslitin
urðu 2—0. Skoruðu Willy Kreuz
og Nico Jansen mörkin. Feyen-
oord vann einnig fyrri leikinn,
1—0 og heinni.
ÞRÓTTUR
Aðalfundur handknattleiks-
deildar Þróttar verður haldinn
fimmtudaginn 9. desember að
Langholtsvegi 124 og hefst kl.
20,30 stundvíslega.
Hreinn, Ágúst og Jón fá tilboð frá bandarískum háskólum
ÞRtR fslenzkir frjálsiþrótla-
menn hafa á síðustu dögum
fengið tilboð ýmissa banda-
rfskra háskóla um að gerast
keppendur skólanna og jafn-
framt að stunda þar nám. Yfir-
leitt er hér um gylliboð að
ræða, því vanalega bjóðast
skólarnir tii að greiða öll
kennslugjöld og fæði og
húsnæði viðkomandi, en þar
mun vera um að ræða fjárhæð-
ir sem skipta þúsundum
dollara. Þessir frjálsíþrótta-
menn sem um ræðir eru þeir
flreinn Halldórsson, Agúst Ás-
geirsson og Jón Diðriksson.
Hreinn fékk tilboð frá
Oregon State University svo og
frá University of Nevada. Sagði
Hreinn í viðtali við Mbl. að
hann mundi hafna báðum til-
boðum af ýmsum ástæðum, sem
hann vildi þó ekkí tilgreina
frekar, en þar á meðal voru
heimilisástæður. Ágúst fékk
tilboð einnig frá University of
Nevada svo og frá Eastern
Kentucky University. Sagði
Ágúst í viðtali við Mbl. í gær að
hann hefði vissulega mikinn
áhuga á að komast inn á móta-
kerfi bandarísku háskólanna,
því þar væri tryggð góð og
mikil keppni. „Með því að taka
einhverju boðanna mun
skapast sá möguleiki að
árangur manns á hlaupabraut-
inni breytist úr því að tilheyra
sæmilegri meðalmennsku í eitt-
hvað raunverulegt," sagði
hann. Sagði Ágúst ennfremur
að margir hefðu grætt gífur-
lega á að keppa fyrir banda-
ríska háskóla hvað afrek
snertir og því væru þessi boð
vissulega freistandi. Það væri
þó í mörg horn að líta áður en
einhverjar ákvarðanir væru
teknar, og nauðsyn væri að fá
frekari upplýsingar um skólana
og keppnir þeirra. „Mig hefur
löngum dreymt um að hlaupa
míluna á skemmri tíma en 4
mínútum, og þar sem ég tel mig
ekki vera nema um 3—4
sekúndur frá því marki, þá
verður þetta kannski eina tæki-
færið til þess,“ sagði Ágúst að
lokum.
Jón Diðriksson hefur fengið
tilboð frá Christian University
of Mexico og University og New
Mexico, en m.a. hefur Kenýa-
maðurinn Mike Boit stundað
þar nám nú síðustu misseri.
Segist Jón hafa hafnað boði
kristilega háskólans um að
koma þangað í janúar n.k., en
bað um að þeim möguleika yrði
haldið opnum að hann gæti
komið þangað haustið 1977.
„Tilboðið frá New Mexico er
mjög freistandi," sagði Jón í
gær „en maður verður að at-
huga þessi mál mjög vel áður
en gengið verður að nokkru.
Þegar stefnt er hátt verður
maður samt að reyna að nota
góð tækifæri þegar þau bjóðast,
og því ætla ég að nota tímann
og athuga minn gang,“ sagði
Jón að lokum.
Ljóst er að Hreinn Halldórs-
son mun afþakka þessi boð,
enda er hann þegar bundinn
heimili og á þess vegna erfiðara
um vik en þeir Ágúst og Jón.
Ekki er að efa að þeim hefur
verið boðið upp á tækifæri til
að skipa sér jafnvel á bekk
meðal beztu hlaupara í
heiminum, því mjög vel er séð
um íþróttamenn í háskólum
Bandaríkjanna, og svo til allt
bandaríska Ólympíuliðið
samanstendur af fólki úr
háskólunum. Þetta gæti
kannski orðið upphaf að því að
fleiri frjálsíþróttamenn fái slík
boð, en óneitanlega hafa t.d.
sænskar frjálsíþróttir notið
góðs af veru margla sænskra
íþróttamanna í bandarískum
háskólum.