Morgunblaðið - 09.12.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.12.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976 11 Aðventuhátíð í Vík í Mýrdal 4 ástar- og átaka- sögur frá Setbergi Fljótsdalsheiði, sem hafnar voru i tíð Viðreisnarstjórnarinnar, eftir að vinstri stjórnin tók við völdum, og var svo komið 1973 að rann- sóknum hafði alveg verið hætt. Þessi tillaga var send stjórn Sambands sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi, til umsagnar. Og nú getur herra Erling Garðar Jónasson, oddviti Egilsstaða- hrepps og formaður stjórnar Sam- bands sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi, flett upp í fund- argerðarbókum S.S.A. þvi þar hlýtur afgreiðsla málsins að vera bókuð. Stjórn S.S.A. brá mjög hart við og sendi rikisstjórn og þingmönnum simskeyti, þar sem skorað var á þing og stjórn að beita sér strax fyrir lagningu linu að norðan. Þetta var svar stjórnar S.S.A. þá um tillögu um virkjun og virkjunarrannsóknir í kjör- dæminu. Næst er að vikja að hinni svo- nefndu Bessastaðaárvirkjun. Og af því sem herra Erlang Garðar Jónasson, oddviti Egilsstaða- hrepps og formaður stjórnar Sam- bands sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi tekst varla að segja eitt orð satt um afstöðu mina til þess máls er rétt að vitna I Alþingistíðindi, þegar frumvarp til heimildarlaga um Bessastaða- árvirkjun var þar til umræðu. Hinn 21. nóv. 1974 hóf Sverrir Hermannsson ræðu sina á þessa leið: „Virðulegi forseti. Þegar nú þetta mál er til umræðu, frum- varp til laga um heimild til handa ríkisstjórninni til að fela Raf- magnsveitum rikisins að reasa og reka vatnsaflstöð við Bessastaðaá I Fljótsdal í Norður-Múlasýslu með allt að 32 MW., vil ég að minu leyti fagna framkomu þessa frum- varps, fagna þvi sérstaklega að mönnum sýnist nú tími til kominn að taka stórt skref til að bæta úr þeim sára orkuskorti sem þjáð hefir þennan landshluta um langa hríð.“ Á hitt vil ég leggja mikla áherzlu, að ég var óviðmælandi um virkjun Bessastaðaár nema sem fyrsta áfanga Fljótsdals- virkjunar. Enda er nú komið í ljós, að virkjunin er ótæk ella. Þeir sérfræðingar, sem ég ráð- færði mig við, reyndust hafa rétt fyrir sér og er nú svo komið að frumherjar Bessastaðaárvirkjun- ar, prófessor Jónas Eiiasson og Leifur Benediktsson eru þessu alveg sammála. Eftir að ný ríkisstjórn var tekin við I ágúst 1974 sótti ég mjög fram með þá skoðun mína að við ríkj- andi einstefnu í stórvirkjunum yrði ekki lengur unað, þ.e. keðju- virkjanir við Þjórsá og stóriðju á Suðvestur-horni landsins. Þessi skoðun átti sérstakt erindi við minn flokk, sem bar höfuðábyrgð í þeirri einstefnu. Haustið 1974 hafða ég fengið leyfi þingflokks Sjálfstæðis- Framhald á bls. 27 sinni, en frelsaði ekki heiminn. Það sannar sá timi, sem fylgdi á eftir, og allt það brambolt, sem átt hefur sér stað í myndlist síðan. Það er því lítt skiljanlegt, hvað þessir .ungu menn sækja i þetta löngu liðna timabil. Hér getur naumast um annað verið að ræða en Ihaldssemi og afturhald, sem oft á sterkan þátt í hugum ung- menna, eins og allir vita. Það er svo önnur saga, að ég hélt, að sumir eldri súmmaranna hefðu komist af fermingaraldrinum, en því miður virðist það nokkurt vafamál. Hvað um það? Enn verra er þó, að til eru þeir andans aular, sem ýta undir og dást að þessu uppátæki unglinganna, einvörð- ungu vegna hræðslu við, að þeir séu komnir úr takt við timann og séu orðnir ihaldssamir. Til að geta skapað frumlega hluti í listum, þurfa menn að vera vel skólaðir bæði tæknilega og listsögulega. Menn þurfa að þekkja samtið sina og gera sér grein fyrir, hvernig hún hefur þróast í það, sem hún er. Slikt verður ekki vitað nema með þrautlausri vinnu og rannsókn- um. Myndlist er margslungið fyrirbæri, og „það er fullkomið lifsstarf að vera maður“, sagði Jóhannes S. Kjarval. NÆSTKOMANDI sunnudag, 12, des., verður helgisamkoma I Vikurkirkju og hefst hún kl. 4. Sóknarpresturinn, sr. Ingimar Ingimarsson, flytur hugvekju, les- Markaður á ALBERT Magnússon á Stokks- eyri hefur um nokkurra mánaða skeið haft opinn Markað I bænum með margs konar varningi og m.a. ið verður upp, kirkjukórinn syng- ur undir stjórn organistans, frú Sigriðar Ólafsdóttur, og einsöng syngur frú Ragnheiður Guðmundsdóttir söngkona. Stokkseyri er hann með heimaunnar gips- vörur. Markaðurinn er opinn alla daga og helgidaga í desember frá BÓKAUTGÁFAN Setberg hefur sent frá sér f jórar þýddar bækur. Eru það ásta- og átakasögur. ,JIjónaband“ eftir Anne-Marie Rasmussen er frásögn norsku fiskimannsdótturinnar, Anne- Marie, sem fór sem ung stúlka til Bandarikjanna fyrir 20 árum, gerðist vinnukona á heimili Nels- ons Rockefellers, núverandi vara- forseta Bandarikjanna, og giftist Steven syni hans. „Þetta er hlýleg frásögn og mannleg," segir á kápusiðu. „Hér er á ferðinni raunveruleg ástarsaga, saga um hjónaband, hamingju, sambúðar- vandamál, ríkidæmi Rockefeller- fjölskyldunnar." Anne-Marie og Steven eignuðust 3 börn, en hjónabandið leystist upp fyrir nokkrum árum. — Þýðinguna gerði Guðrún Guðmundsdóttir. „Banco“ er önnur bók Henri Charriére, sama höfundar og skrifaði „Papillon". — Á kápu- síðu segir m.a.: „Henri Charriére skrifaði tvær heimsfrægar bæk- ur. Hin fyrri, „Papillon", kom út I fyrra á íslenzku. Nú er „Banco" á ferðinni i þýðingu Jóns E. Edwalds. t þessari bók er Papill- on laus við hlekkina, — en hvern- ig vegnar honum I frjálsu, mann- legu samfélagi?" „Fram I rauðan dauðann" eftir Douglas Reeman er stjóhernaðar- saga. — Á kápusiðu segir m.a.: „Douglas Reeman er þekktur fyr- ir sjóferðasögur sínar og stráðs- bækur. Hann var I sjóhernum í síðari heimsstyrjöldinni, en að stríðslokum og áður en hann lagði fyrir sig ritstörf var hann starf- andi leynilögreglumaður. Reynsl- an kemur að góðu gagni I sjó- ferðarsögum hans.“ — Þýðandi bökarinnar er Skúli Jensson. „Ástin er blind“ eftir Dorothy Eden er ástarsaga. „Dorothy Ed- en hefur samið um þrjátiu bækur, sem margar hafa komist á met- sölulista," segir á kápusiðu. „oft- ast tvinnar hún saman i sögum sínum ástarmál og dularfulla spennu, eins og í þessari sögu.“ Sagan byrjar i rómantisku um- hverfi á Mallorca, þar sem aðal- sögupersónan hittir ungan, glæsi- legan mann, en ástarævintýrið á eftir að breytast i dularfullan leyndardóm — Guðrún Guð- mundsdóttir islenzkaði bókina. kl. 13—22. LJÓSMYNDIR ÞJÓÐMÁLAÞÆTTIR Jóhaim Hafstein Um 100 ljósmyndir af húsum, mannvirkjum og mann- lífi í Reykjavík og út um land. Heiilandi fróðleikur í vönduðum myndum um horfið menningarskeið áður en vélöldin gekk í garó. ÞJOÐMALAÞÆTTIR eftir Jóhann Hafstein. Mikilsverð heimild um megin- þætti íslenzkrar þjóðmálasögu síðustu 35 ára — mesta umbrotaskeiðs í atvinnu- og efnahagsmálum sem yfir landið hefur gengið. eftir James Dickey. Æsispennandi bók, seiðmögnuð og raunsæ. Hefst eins og skátaleiðangur, endar eftir magnaða baráttu um líf og dauða bæði við menn og máttarvöld. LJÓÐ JÓNS FRÁ LJÁRSKÓGUM Skáldið sem bæði orti sig og söng sig inn í hjörtu íslendinga, þó að æviár hans yrðu ekki mörg. Steinþór Gestsson, einn af félögum Jóns í MA-kvertettinum, hefur gert þetta úrval. PLÚPP fer til Islands eftir sænska barnabókahöfundinn Ingu Borg. Bráð- skemmtilegt ævintýri í máli og myndum um sænska huldusveininn PIúpp og það sem hann kynnist á íslandi. Almenna Bókafélagið.j Austurstræti 18, Bolholti 6, simi 19707 simi 32620 I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.