Morgunblaðið - 09.12.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.12.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976 21 Jólablað Æskunnar BLAÐINU hefur borist jólablað Æskunnar, sem er 100 síður að stærð. Efni þess er m.a.: Jesús og jólin, eftir séra Sigfús J. Árnason, Tvö ljóð eftir fyrsta ritstjóra Æskunnar, Sig. Júl. Jóhannesson, Lappi og Gráfeldur, saga eftir Selmu Lagerlöf, Börnin biða eftir fljúgandi jólasveini, Saga jólatrésins, Óvæntur jóla- gestur, eftir Eirík Sigurðsson, Jólatréð úr tré, eftir Gunnar Gunnarsson, Jólastjarnan, Fyrstu sporin, eftir Sigurð H. Þorsteins- son, Sólarlag, eftir Sigurð Draum- land, Sólskinsdagar í Svíþjóð, eft- ir Svein Sæmundsson, Tvær latn- eskar bænir, eftir Benedikt Guð- mundsson, Tengslin skipta máli, ævintýri, Vestmannaeyjar, eftir Magnús H. Magnússon, Myndin morgunbjarta, eftir prófessor Richard Beck, Bardagi við úlfa á jólanótt, saga, Sá yðar sem ... saga eftir Einar Loga Einarsson, Fyrsta sund manns yfir Ermar- sund, Jólagaman, ljóð eftir Jóhönnu Brynjólfsdóttur, Jóla- kvöld í stjörnukoti, ævintýri, Verðlaunaferð Æskunnar og Flugleiða 1977. Hvað veistu um Bandarlkin, eftir Svein Sæmundsson, Lincoln og sonur hans Tad, Andrés önd og litlu strákarnir, Neskirkja í Aðaldal, Walt Disney — faðir Mikka mús- ar og Andrésar andar, Risinn Litlistóri, ævintýri, Prinsessan á Glerfjalli, ævintýri, Með á nótun- um, þáttur um hljómplötur og hljómsveitir, Heimilið, þáttur fyr- ir mömmu, Frá Unglinga- reglunni, Lassle og sveitastrákur- inn Jaff og Hvað segjaþeir? Ritstjóri er Grímur Engilberts, en hann hefur verið ritstjóri blaðsins í 20 ár. „Svanasöngur”, ný bók eftír Bjöm J. Blöndal NÝ bók, „Svanasöngur", er komin út eftir Björn J. Blöndal. Er það ellefta bók höfundar. „Hér fléttar höfundur saman náttúruskoðun, þjóðsögum og veiðisögum," segir á kápu- siðu.„Hann lýsir fegurð ánna, gæðum þeirra, minnist félaga sinna og vina, segir af þeim sér- stæðar og framúrskarandi skemmtilegar sögur. Björn J. Blöndal fléttar saman sögum og sögnum í skáldrænni frásögn". Bókin er 179 bls. að stærð. Ut- gefandi er Setberg. Björn J. Blöndal. Undir fölsku flaggi-ný bók frá Leiftri BÓKAUTGAFAN Leiftur hefur sent frá sér bókina „Undir fölsku flaggi" eftir Louise Hoffman i þýðingu Hersteins Pálssonar. Á kápusiðu segir um höfundinn að hann sé af þýzkum ættum eins og eftirnafnið gefi til kynna, en Louise fæddist á Irlandi, hlaut þar uppeldi sitt og hefur búið þar lengstum. Irland og örlög fólksins þar hafa alltaf verið helzta yrkis- efni hennar og þvi hafa bækur hennar notið sérstakra vinsælda þar, en annars njóta bækur henn- ar mikilla vinsælda meðal ungra stúlkna á Bretlandseyjum og víð- ar. Bókin er prentuð I Leiftri. Hún er 208 bls. Frétt til að skopast að skáldum? EINHVERN tíma í nóvember gat að líta í Morgunblaðinu frásögn af komu Spánverja — Padró trúi ég hann héti — hingað til lands. Hann var hér á ferðinni að þreifa fyrir sér um þýðingar íslenzkra ljóða á spænska tungu, og hafði ákveðið að þýða nálega 170 ljóð, að mig minnir, eftir nokkuð á annan tug ágætra skálda. Þá hafði þýðarinn spænski rætt við skáldin og glöggvað sig á helztu æviatrið- um þeirra. — Á útmánuðum ætl- ar hann að skreppa hingað upp, væntanlega til þess að reka smiðs- höggið á þýðinguna, sem skal á þrykk út ganga i júníbyrjun næsta sumar. (Þess má geta að Magnús Ásgeirsson þýddi nálega hálft fjórða hundrað kvæða, og var það ævistarf hans.) Og hvað var nú atarna? Var þetta ekki einhver „Lúsoddafrétt" til að skopast að skáldum? Padró hefur hug á fyrirgreiðslu hja mennta- málaráðuneytinu islenzka, til þess að geta helgað sig verkefninu óskiptur — þessa sex mánuði. Það kom fram i biaðinu. (Eitt kvæði á dag, og vinna á sunndögum!) Og ekkert hefur mér vitanlega verið borið til baka. Þegir nú hver þunnu hljóði. Kannski er mis- skilningur á ferð. Kannski hefur þessi mikilhæfi maður notað ævi- daga sína til þess að búa sig undir þýðingu íslenzkra ljóða? Það skýrist væntanlega í sumar. Við sjáum hvað setur. Baldur Óskarsson. Aths. Fréttin um þýðingastarf Padrós er að sjálfsögðu komin frá honum sjálfum, enda var hann hér á ferð. Padró er i hópi þekkt- ari ungra skálda á spænska tungu og hefur m.a. verið þýddur á sænsku af Artur Lundkvist, sem íslenzkir bókmenntaunnendur þekkja. En að sjálfsögðu er Mbl. ekki kunnugt um árangurinn af starfi Padrós frekar en annað sem á eftir að koma i ljós. Hin öra eftirspurn eftir innréttingum okkar hefur gert okkur kleift að bjóða nú ódýrustu eldhúsinnréttingarnar á markaðnum. í Haga eldhúsum er hver hlutur á sínum stað í léttu samræmi lita og forma. Enda um 283 mismunandi einingar að velja og fjórar gerðir - fjórar blómalínur, sem bjóða upp á marga valkosti um verð, efni og sam- setningu. Þannig er afar auðvelt að uppfylla óskir kaupandans, hvort sem hann er að endurnýja gamla innrétt- ingu eða flytja inn í nýja íbúð. Spyrjið, hringið eða skrifið og ^ biðjið um litmyndabækling. Við / tökum mál, skipuleggjum og teiknum - ykkur að kostn- / ^S* aðarlausu og gerum tilboð ^ $ án skuldbindinga af s ykkar hálfu. fÍAGIr Suðurlandsbraut 6, Reykjavík. Sími: (91) 84585. 4^ /^v / oS9 Hér eru eklhús Innrétlingarnar frö iHií®:® Verslunin Glerárgötu Akureyri. Sími: (96) 21507. 26, / / / O* 0' 'Ó' •• Gdi B Bfórosson I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.