Morgunblaðið - 09.12.1976, Page 26

Morgunblaðið - 09.12.1976, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976 Eldur í bílskúr í Hlíðargerði ELDUR kom upp í bílskúr við Hlíðargerði i gærkvöldi, en slökkviliðinu tókst fljótlega að slökkva eldinn. Maður var að vinna við logsuðu í skúrnum er neisti komst í benzínrör, benzínið lak niður og eldur varð laus í skúrnum. Bíllinn var dreginn út úr skúrnum, en mun vera mikið skemmdur. Skemmdir í bílskúrn- um urðu hins vegar litlar. Þá var slökkviliðið kvatt í Drafnarfell í Breiðholti, en búið var að slökkva eldinn þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang. Atvinnuleysi heldur minna en fyrir ári ATVINNULEYSI var heldur minna í nóvembermánuði síðast- liðnum en í sama mánuði í fyrra. Um síðustu mánaðamót voru 466 manns á atvinnuleysisskrá, en á sama tíma í fyrra voru þeir 473. Ástandið i Reykjavík er mun betra i ár, en í fyrra, 127 i fyrra en 82 um síðustu mánaðamót. Seyðisfjörður er sá staður á land- inu þar sem næstflestir eru at- vinnulausir, eða 57, en ástæðan fyrir atvinnuleysi þar mun vera tímabundið, þvi skuttogari Seyð- firðinga er i viðgerð á Akureyri. Á Bíldudal eru 48 manns á at- vinnuleysisskrá, en voru á sama tíma í fyrra 37. — Fjölmennur bændafundur Framhald af bls. 25 Óhagstætt fyrir • bændur að hafa miklar niðurgreiðslur Hannes Hannesson, Kringlu í Grlmsnesi, tók næstur til máls Sagði hann óhagstætt fyrir bændur að hafa niðurgreiðslur of miklar og furðaði sig á þeirri ákvörðun nkisstjórnarinnar 19 74 að greiða stórlega niður land- búnaðarvörur Hannes sagðist víst vera kominn á þennan Sláturfélagsafdur en spurði hvers vegna alltaf veri þá verið að kjósa þessa sömu gömlu menn til að vinna að málum bænda Gerði Hannes þessu næst að umtalsefni stofnsjóð Sláturfélagsins og sagði að hann væri hættur að þjóna tilgangi sínum. Sagði hann félaginu koma að litlu gagni þær 40 til 50 milljónir sem lagðar væru í stofnsjóðinn árlega Bændur yrðu að ieggja 1 V? % af öllu, sem þeir legðu inn í þennan sjóð og greiða af því tekjuskatta og útsvar en gætu þó verið vissir um að fá aldrei neitt úr stofnsjóðnum Taldi hann fyrir- tækið upp úr því vaxið að hafa þennan stofnsjóð Hjörtur Jónsson, Brjánsstöðum í Grímsnesi, ræddi fyrirgreiðslu til jarða- kaupa og sagði hana næsta litla Sagði hann Jón Bergs hafa staðið við þau loforð, sem hann hefði gefið hingað til og rangt væri að efast um vilja hans til að gera sem best fyrir bændur Hjortur spurði hvort ekki væri vanð fé til að girða þjóðgarrn>ínn á Þingvöllum. Hann ætti víst að vera friðéður en þar hefðu jafnvel fundist dauðar kmdur í fönn Sigurður Jónsson í Kastalabrekku sagði að sér fyndist að nokkuð væri sneitt hjá því að ræða um afurðasölu- félögin Spurði hann hvort það væri rétt að Mjólkurbúið hefði ekki sótt um lán til Byggðasjóðs t»l framkva^mda, þó þar fengist fjármagn með 12% árs- vöxtum og óverðtryggt Sagði hann 18 milljón króna lán úr Byggðasjóði hafa fært bændum 50 aura á hvern lítra Ekki sagðist Sigurður geta sett sig inn í afurðalánamálm í tilefni af orðum Jóns Bergs um hagnað af verslunum Sláturfélagsins sagði Sigurðir það skoðun sina að þessi hagnaður ætti að geta komið bændum til meiri ágóða Hrafnkell Karlsson, Hrauni, minnti á hversu lánamálin væru stefnumark- andi fyrir landbúnaðinn og sagði að Byggðasjóður hefði ekki verið nýttur nægilega fyrir landbúnaðinn Þá spurði Hrafnkell hvers vegna innheimta á 1% gjaldinu til Stofnlánadeildar hefði ekki verið framfylgt og fjármögnun Bjarg- ráðasjóðs Sagði Hrafnkell að flest rök hnigju að þvl að samið væri beint við ríkið en neytendur Hann spurði einnig hvað liði fram- kvæmd við þingsályktunartillögu um að bjarga mjólk frá skemmdum I verk- föllum. Þá sagðist Hrafnkell telja það utan verkhrings Sláturfélagsins ^ð reka verslanir og spurði hvers vegna slátur- hús S.S. I Laugarási væri ekki lagt niður, þannig að nýta mætti betur sláturhús félagsins á Selfossi Yngvi Markússon I Oddsparti ræddi vandamál kartöfluframleiðenda og spurði hvenær kartöflur ættu að hækka en oft hefði nýtt verð á þeim ekki tekið gild; fyrr en nær allar kartöflur væru búnar. Ekki viss um að rétt sé að semja við ríkið Halldór E. Sigurðsson. land- búnaðarráðherra svaraði nú ýmsum spurningum, sem til hans hafði verið beint og sagði að nýtt verð á kartöflum yrði ákveðið á næstu dögum Varðandi ákvörðun á verði sauðfjárafurða sagði ráðherrann að þar væri ekki alveg Ijóst hvernig verðhlutföllum milli gæra og kjöts yrði skipt og af þeim sökum hefði dregist að ákveða nýtt verð Um það hvort rétt væri fyrir bændasamtökin áð semja bemt við rikið um verð á búvör- um sagði ráðherrann, það hafa verið skoðun sína að þannig ætti að standa að málum, þegar hann varð ráðherra fyrir 6 árum En eftir að vera búinn að starfa að þessum málum í þann tfma sagðist hann ekki vera jafn viss um ágæti þess Halldór sagði það skoðun sína að núverandi fyrirkomulag hefði ekki haldið niðri verði á landbúnaðar- vörum til bænda Fram kom hjá ráðherranum að nú væri verið að kanna möguleika á þvi að fella niður söluskatt af kjöti en allar undanþágur á söluskatti gæfu mögu- leika á þvi að dregið væri undan Ráðherrann sagði það eðlilegt að Byggingasjóður tæki við fjármögnun íbúðahúsabygginga í sveitum af Stofn- lánadeildinni. Halldór sagði vegna fyrirspurnar um vinnslu á mjólk í verkföllum að nú sæti að störfum nefnd frá Stéttarsambandi bænda og ASÍ til að kanna möguleika á fyrirkomulagi þessarar vinnslu en of snemmt væri að spá um hver niður- staðan yrði Árni Jónsson sagðist geta tekið undir orð Jóns Bergs að barátta bænda hefði verið varnarbarátta en þó hefðu einstaka sinnum náðst sigrar Árni sagði innheimtu á gjöldum til Stofn- ládeildar vera vandamál þar sem ekki væri um skipulagða sölustarfsemi að ræða hjá eggjaframleiðendum. Ekki var Árni viss um að rétta leiðin í verðlagningu búvará væri að semja við ríkið Að síðustu svaraði Stefán Pálsson fyrirspurnum um Lífeyrissjóð bænda — Nýtt eftir- litskerfi Framhald af bls. 1 orrustuflugvéla Bandarikja- manna til fjögurra aðildarríkja bandalagsins. Talið er, að hið nýja eftirlits- kerfi geti tekið til starfa árið 1980, ef framkvæmdir hefjast eins og áætlað er og samkomulag tekst um skiptingu kostnaðarins. - Borunum lokið Framhald af bls. 48 gær var þar 13 stiga frost. I lok vikunnar verður væntanlega lokið mælingum á holu 10, en hún þykir lofa mjög góðu. Um holu 11 er hins vegar lítið hægt að segja enn sem komið er. — Miki Framhald af bls. 1. á verðbréfamarkaði í Tókýó I dag, og er það talið merki um velþóknun forsvarsmanna i efnahagsláfinu á því, að Fu- kuda taki við af Miki. Fukuda er efnahagssérfræðingur og hefur gegnt embætti forstjóra áætlunarstofnunar um fjár- festingar, sem rekin er af opin- berri hálfu. Hann nýtur stuðn- ings tveggja þriðju hluta þing- manna Frjálslynda lýðræðis- flokksins og helztu forvígis- mannai efnahagslifi landsins. Ýmsir halda þvi fram, að enn sé ekki víst að Fukuda verði fyrir valinu sem eftir- maður Mikis, þar eð viturlegra sé að kveðja til mann, sem lægt geti öldur ágreinings og úlfúð- ar innan flokksins. Stjórn flokksins útnefnir forsætisráð- herraefnið siðar i þessum mán- uði, en miðað er við að þingið samþykki útnefninguna á jóla- dag. — Austin Laing Framhald af bls. 1. lagsins sé sað ganga frá tillög- um um bráðabirgðaheimildir til veiða á miðum bandalagsins frá áramótum. Þetta eru einhliða ráðstafanir, sem bandalagið hefur frumkvæði að, án þess að ætlast til nokkurs I staðinn. Þessar tillögur eru fáránlegar og ég er þess fullviss, að beitt verður neitunarvaldi til að fella þær, en það er makalaust, að framkvæmdanefndinni skuli koma til hugar að leggja fram svona tillögur á þessu stigi málsins“. I lok útvarpsviðtalsins itrek- aði Austin Laing þá skoðun sina, að Bretar stæðu höllum fæti innan Efnahagsbandalags- ins, nema brezka stjórnin tæki upp harðari stefnu í fiskveiði- málum gagnvart bandalaginu en hingað til. Myndu forvigis- menn i brezkum sjávarútvegi hitta Gundelach að máli næst- komandi mánudag til að itreka sjónarmið sín. Morgunblaðið sneri sér til utanrikisráðuneytisins í gær- kvöldi og spurðist fyrir um við- ræður þær, sem Austin Laing talar um að fram eigi að fara í næstu viku, en þar fegust þær upplýsingar að engar slikar við- ræður væru ákveðnar. — Hveragerði Framhald af bls. 48 Hveragerði undanfarið og væri það orsök þess sem nú væri að gerast. I sjálfum matsalnum eru gólfin ekki heit, en hins vegar voru i gær brotin göt á húsgrunn við hliðina og streymdi þar upp 30—47 gráðu heitt loft. Jarðfræð- ingarnir sem könnuðu þessi mál í Hveragerði i gær töldu að úr þessu færi að draga verulega úr risi landsins undir húsinu, en það er 400 fermetra steinhús, byggt árið 1973. — Harold Brown Framhaid af bls. 1. embætti fjármálaráðherra, er Charles Schultz, hagfræðingur, sem gegndi mikilvægu starfi við gerð fjárlaga i stjórnartíð John- sons. Loks ræddi Carter við Brock Adams, þingmann og formann fjármálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, en hann kemur mjög til greina sem samgöngu- málaráðherra. Að viðræöufundunum loknum hélt Carter áleiðis til Washington þar sem hann situr á rökstólum með samverkamönnum sinum næstu tvo daga. — Jón G. Stefánsson Framhald af bls. 2 þörf er á að fást við á lyflækn- ingadeildum. Þessari kennslu væri unnt að koma á, þegar þau tengsl hafa skapast, sem geð- deild Landspítalans myndar, þegar hún kemst i gagnið. Það verður því ekki aðeins mikil- vægt fyrir geðlæknisfræðina að komast í beint samband við Landspitalann heldur og fyrir læknismenntunina í heild. Jón G. Stefánsson sagði, að geðlæknar fyndu ávallt fyrir því, að skortur væri á sjúkra- rúmum og hann kvaðst búast við því að læknar í fleiri grein- um hefðu sömu sögu að segja. Sumpart væri það vegna þess, að skipulag málanna væri ekki nógu gott, en greinilega fyndu læknar fyrir því að þeir yrðu að halda í við sig, er leggja þyrfti sjúkling inn. „I raun erum við læknar alltaf að reyna að kom- ast hjá því og stundum getur þetta verið bagalegt." Þá kvað Jón Kleppsspítalann orðinn allt of gamlan og þar væru húsakynni allt of þröng og lítil. Kleppsspítalinn er í raun löngu orðinn úreltur og staðall hans er í raun miklu lakari en gengur og gerist um sjúkrahús á íslandi. Þegar hann var reistur var uppi allt annar hugsunarháttur meðal fólks um geðsjúkdóma og geð- ræna kvilla. Vissulega hefðu þó farið fram endurbætur og ástandið hefði lagast mikið, þegar viðbygging við spítalann var reist, en spítalinn hefði alls ekki haft í tré við þá þróun, sem orðið hefði. Hann kvað sjúklinga vera of marga í her- bergjum og of þröngt væri um þá. Einnig skorti salerni og því þyrfti í raun að fækka sjúkling- um. Að öllum Iikindum kvað hann unnt að fækka eitthvað sjúklingum með tilkomu geð- deildarinnar, en vandinn væri i raun sá að læknarnir væru þar í raun milli tveggja elda — ann- ars vegar þyrfti að fækka sjúk- lingum vegna ónógrar aðstöðu, en hins vegar mætti ekki fækka vegna skorts á geðsjúkrarúm- um. Þarna væri því erfitt að fara milliveginn. „Það hefur verið reynt að auka þjónustuna," sagði Jón G. Stefánsson, geðlæknir, „og sú þekking, sem við höfum í dag á geðsjúkdómum, gerir nauðsyn- legt, að veita miklu meiri þjón- ustu en áður. Til þess þarf við geðlækningar fyrst og fremst mun meiri mannskap og fyrir fleira fólk þarf húsnæði og vinnuaðstöðu: Er það eitt af aðalvandamálunum, sem þó hefur leystst að nokkru er við- bótarbyggingin kom við spítal- ann. Hún bætti mikið úr, þótt hún næði í raun allt of skammt." Jón sagði, að þótt tíðarandinn hafi breytzt mikið, þá væru ávallt einhverjir erfiðleikar fyrir hendi, þegar menn þyrftu að leggjast inn á geðsjúkrahús. Hann kvað orðið Klepp oft hafa haft á sér eitthvert hræðilegt yfirbragð í vitund fólks. „Vona ég að það breytist, þegar við með tilkomu geðdeildar Land- spítalans, komumst í nánara samband og samstarf við aðra lækna og aðrar greinar læknis- fræðinnar". Jón G. Stefánsson kom fyrir þremur árum heim frá Banda- ríkjunum. Morgunblaðið spurði hann um samanburð á aðstöðu þar og hér heima í málefnum geðsjúkra. Hann sagði að hann hefði ekki tölur um rúmafjölda til samanburðar né þörf á aukn- um rúmafjölda, en kerfið þar vestra kvað hann vera tvenns konar. Annars vegar væru ríkissjúkrahús og síðan geð- deildir og spítalar, sem ýmist einkastofnanir eða háskólar rækju. Á þessu tvennu er óskaplega mikili munur — sagði Jón. Ríkisspítalarnir. eru illa mannaðir, húsnæði þeirra yfir- leitt gamalt, þar sem kerfið væri gamalt. 1 flestum tilfellum eru þetta spítalar, sem reistir voru upp úr aldamótum og þá tíðkaðist að hafa geðsjúkrahús aðskilin frá öðrum sjúkrahús- um. Oft eru því geðspítalar tals- vert langt fyrir utan borgirnar, þar sem það þótti gott á þessum tíma að hafa þá í umhverfi, sem var fallegt og sveitalegt, þettó hefði góð áhrif á fólk með til- finningavandamál. Þetta hefur orðið til þess að mun erfiðara er að manna spít- alana, þar sem svo virðist sem bæði læknar og hjúkrunarfólk vilji vera í sem mestum tengsl- um við aðra heilbrigðisþjón- ustu. Þá má og einnig vera að þetta kerfi hafi ekki verið fjár- magnað sem skyldi. Staðall þessara spítala er oft frekar lágur og oft mjög slæmur miðað við t.d. þá þjónustu, sem unnt er að fá hérlendis. Þjónustan hér heima er með því betra, sem ég hefi kynnst í ríkisrekn- um geðsjúkrahúsum. En séu þeir t.d. bornir saman við þá spítala, sem reknir eru í einka- eign eða á vegum háskóla, stöndumst við hér heima engan samjöfnuð. Þessar stofnanir eru miklu betur mannaðar og húsnæði og öll aðstaða er miklu betri en gerist hérlendis. — sagði Jón G. Stefánsson að lok- um. — Bátaflotinn Framhald af bls. 48 menn úr sætum i virðingarskyni við hina látnu. Björn Guðmundsson frá Vest- mannaeyjum var kosinn fundar- stjóri, en fundarritarar eru þeir Jónas Haraldsson og Ágúst Ein- arsson, báðir starfsmenn L.Í.Ú. — Kveðst vera ökumaðurinn Framhald af bls. 48 þessu, frá Reykjavík til Kefla- vfkur og að dráttarbrautinni I Keflavik kvöldið sem Geirfinnur hvarf en kveðst ekki hafa orðið vitni að þeim átökum, sem þar eaga að hafa átt sér stað. Mörg atriði eru þó enn óljós I framburði mannsins em yfir- heryslum er stöðugt haldið áfram í von um að þau skýrist frekar. — Alþingi Framhald af bls. 22 í sambandi við iðnþróun lands- manna mundi framvindan velta á einstaklingnum fyrst og fremst, framtaki þeirra, áræði og mann- gildi, en hins hafi menn svo getað krafist, með réttu, að það opin- bera léti ekki sitt eftir liggja og mismunaði ekki einstökum at- vinnugreinum“. Sagði Jóhann að núverandi aðgerðir í iðnaðarmál- um landsmanna væru byggðar á grunni þeim sem lagður hafi verið í tið Viðreisnar. Til máls tóku sfðan Magnús Kjartansson og Gylfi Þ. Gislason. Upphófst mikið karp þeirra á milli um atriði óskyld málefninu sem var á dagskrá. Magnús fór þó nokkrum orðum um ummæli iðnaðarráðherra við fyrri hluta umræðunnar um frumvarpið, og mótmælti Magnús því að hafafar- ið með nið um iðnaðarráðherra í framsöguerindi sinu. — Kissinger- samkomulagið Framhald af bls. 1. urra allir hafnað sllkri málsmeð- ferð. Smith er nýkominn til Genfar eftir mánaðar fjarveru frá ráð- stefnunni. Þá er einn leiðtogi blökkumanna, Nbadangina Sithole, einnig kominn þangað, en hann hefur átt viðræður við áhrifamenn í Afrfku sunnan- verðri um Rhódesíumálið undan- farnar þrjár vikur. Fulltrúi stjórnarinnar í Salis- bury sagði f dag, að-15 blökku- menn úr hópi óbreyttra borgara og þrfr skæruliðar hefðu fallið í átökum þar undanfarna daga. Hann sagði einnig, að svissneskur trúboði að nafni Paul Egli hefði verið handtekinn fyrir að aðstoða hryðjuverkamenn. — Ylræktarverið Framhald af bls. 2 þannig að ylræktarverið hér yrði þannig hlekkur f þvf að skila full- unninni vöru á markað. Yrði þessi hlið að teljast jákvæð. Þórður sagði, að Hollandsförin hefði þannig orðið til að styrkja fremur hinn fjárhagslega grund- völl fyrirtækisins, en nú væru fulltrúar þeirra fyrirtækja sem hugsanlega myndu standa að undirbúningsfélagi fyrir stofnun ilræktarversins að endurskoða áætlanir um rekstrarlegan grund- völl þess og vinna að áætlun um stofnkostnað. Kvaðst Þórður gera ráð fyrir, að niðurstöður hagfræð- inga um hina fjárhagslegu hlið fyrirtækisins myndu liggja fyrir í kringum rræstu helgi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.