Morgunblaðið - 09.12.1976, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976
27
— 3 dísilraf-
stöðvar
Framhald af bls. 48
ef keyra þarf þessar dlsilstöðvar
mikið og stöð sem framleiðir lA
megawatt kostar 18 þúsund
krónur ef hún er keyrð samfleytt
í einn sólarhring. Stöðvarnar sem
notaðar verða eystra voru áður
við Laxárvatn I Húnavatnssýslu
og I Stykkishólmi og ein þeirra
var keypt ný til landsins. Dísil-
stöðin, sem sett var upp á Höfn í
Hornafirði, var keypt ný til lands-
ins, en Hornfirðingar hafa átt í
talsverðum erfiðleikum undan-
farna vetur vegna rafmagnsleys-
is, en Smyrlabjargárvirkjun er
mjög viðkvæm I vetrarhörkum.
Rarik hefur gert tillögur um að
lögð yrði lína frá Kröfluvirkjun
til Austfjarða á tveimur næstu
árum. Hafa Rafmagnsveitur rfkis-
ins gert áætlun um þetta og er
áætlað að kostnaður við linuna og
aðveitustöð við Eyrarteigi í Skrið-
dal verði 1375 milljónir króna.
Næsta ár verður tekin í notkun
lína frá Grímsárvirkjun til
Reyðarfjarðar og tvöfaldar hún
flutningsgetuna og eykur öryggið
í raforkumálum Austfirðinga.
— Breiðdalsvík
Framhald af bls. 48
veita atvinnu fyrr en í fyrsta
lagi um mitt næsta ár. Til að af
kaupunum á honum geti orðið
þurfum við að fá fyrirgreiðslu
stjórnvalda og höfum fengið
vilyrði fyrir því. A vetrarvertíð-
inni verðum við síðan með tvo
báta, Emillu sem verið er að
kaupa frá Seyðisfirði og Selvlk-
ina, sem er 80 tonna bátur.
Samið hefur verið um að við
fáum 35% af afla Hvalbaks i
vetur og er ætlunin að flytja
okkar hlut landleiðina frá Fá-
skrúðsfirði. Reynslan á eftir að
skera úr um hversu vel gengur
að flytja fiskinn á milli, en um
erfiða vegi er að fara sem oft
lokast, sagði Sigmar.
Hraðfrystihúsið á Breiðdals-
vík hefur ekki verið starfrækt
að undanförnu og hefur það
aðallega bitnað á kvenfólki á
Breiðdalsvlk, sem þess vegna
hefur ekki getað stundað fisk-
vinnu. Karlmenn hafa hins veg-
ar flestir haft atvinnu og innan
við 10 eru atvinnulausir á
Breiðdalsvik. I þorpinu sjálfu
búa um 220 manns, en samtals i
sveitinni tæplega 400.
— Ný plata
útkomu plötunnar lagði hann
áherzlu á hinn stóra þátt sem
þær María Jóhanna, dóttir Lár-
usar, og Hólmfrlður systir hans
ættu I að af útgáfu þessarar
plötu hefur orðið. Svavar
kvaðst hafa dáð Lárus Pálsson
leikara mjög og teldi það því
mikinn heiður fyrar sig að geta
gefið út þessa plötu með flutn-
ingi Lárusar.
Óskar Halldórsson lektor
valdi efnið úr safni útvarpsins
og raðaði þvl á plötuna og einn-
ig skrifaði hann um ævi og leik-
feril Lárusar á bakhlið plötu-
umslagsins. Þar segir Óskar
m.a.:
„Lárus var jafnvígur á gleði-
leik og harmleik, en hæst reis
list hans I ljóðrænni túlkun og
náði þar sérstöðu. Ljóðskynjun
hans virtist dýpri og rlkari en
annarra, og framsögn hans,
mjúk eða sterk, auðug eða ein-
föld, nálgaðist einatt þá full-
komnun að öll önnur umf jöllun
textans virtist út I hött.“
Lárus Pálsson fæddist árið
1914. árið 1950 og þar starfaði
hann til æviloka. Hann rak
einnig leikskóla á árujum
1940—1954. Lárus Pálsson lézt
árið 1968.
— Jólasundmót
öryrkja
Framhald af bls. 3
það brýnt að geta lokið við þá
sundlaugarbyggingu sem hafin
væri við Hátún 12. Undir þetta
tók Guðmundur Löve, fram-
kvæmdastjóri Öryrkjabanda-
lagsins, og þeir sögðu að
Iþróttafulltrúi Reykjavíkur
hefði sýnt íþróttamálum
öryrkja mikinn áhuga. Allir
voru þessir menn sammála um
að öryrkjar gætu lagt stund á
íþróttir af mörgu tagi, en þeir
þyrftu oft hvatningu til þess að
fara af stað. Vildu þeir I þvl
sambandi hvetja aðstandendur
öryrkja til þess að benda þeim á
að taka þátt I sundmótinu nú
þegar lokaátakið væri framund-
an og aðeins 5 dagar eftir.
Magnús Pálsson íþróttakennari
öskjuhlíðarskóla sagði að þátt-
taka nemenda þar væra allgóð,
nú hefðu milli 60 og 80% tekið
þátt í því. Sagða hann að
nemendur hefður hreinlega
tekizt á loft er þeir heyrðu að
veitt væri viðurkenning fyrir
þátttöku I mótinu og fólkið
væri nánast óþekkjanlegt eftir
að hafa öðlazt aukið sjálfstraust
við þátttökuna.
— Bókmenntir
Framhald af bls. 13.
lýkur á brottför Hagalíns og
fjölskyldu til Noregs til móts
við menningu og umhverfi sem
skilið hefur eftir sig djúp spor I
lífi og list Guðmundar Gisla-
sonar Hagalfns. Hann var Ifka
vel undir þá ferð búinn, alráð-
inn I að læra og þroskast með
þjóð sem var honum kær.
Meðal annars hafði hann skrif-
ast á við Knut Hamsun og
kynnt sér norskar bókmenntir
af alúð. Þar réð ekki síst úrslit-
um Seyðisfjarðardvölin, en
norskir menningarstraumar
voru þar áberandi.
— Orkumál
Framhald af bls 11
flokksins til að endurflytja tillögu
mlna um rannsókn á Fljótsdals-
virkjun og að leitað yrði eftir
kaupanda að raforku með stóriðju
staðsetta i Reyðarfirði fyrir aug-
um.
Ég lagði alla áherzlu á, að til-
laga þessi fengi afgreiðslu sam-
hliða heimildarlögunum um
Bessastaðaárvirkjun. Svo varð þó
eigi og vakti það nokkrar deilur á
Alþingi við afgreiðslu frumvarps-
ins um heimildarlögin. Um vorið
1975, 16. maí, hlaut siðan tillaga
mln samþykki með þeirri breyt-
ingu að felldur var niður liður
ályktunarinnar um stóriðju, þar
sem um hann náðist ekki sam-
komulag við samstarfsflokkinn. I
endanlegri gerð var samþykktin
þannig:
„Tillaga til þingsályktunar um
rannsókn á byggingu Fljótsdals-
virkjunar.
Alþingi ályktar að skora á rikis-
stjórnina að hlutast til um að
Orkustofnun ljúki eins fljótt og
við verður komið rannsókn á
byggingu Fljótsdalsvirkjunar."
Að þessari ályktun ber vitan-
lega að fara. Fyrst og fremst þarf
að ljúka rannsókn á 1. áfangan-
um, sem menn mega mfn vegna
kalla Bessastaðaárvirkjun, sem
um leið er alveg nauðsynlegt að
sýna fram á framhaldsvirkjun og
fá yfirsýn yfir alla Fljótsdals-
virkjun.
I grein minni I Mbl. 12. nóv. s.l.
sagði svo:
„Það hefur áður verið á það
minnzt I greinarflokki þessum að
Svisslendingar hafa boðið okkur
fé og mannafla til rannsóknar á
Fljótsdalsheiði, án skuldband-
inga. Auðvitað yrði sú rannsókn
undir yfirstjórn Islendinga, eins
og allar slfkar rannsóknir eiga að
vera. En okkur skortir fé og okk-
ur skortir sérfræðinga.
Hvers vegna er boði Svisslend-
inga ekki tekið?
Hverjir standa þar I vegi? Fram
i dagsljósið með þá!
Það skal fullyrt hér að ekki
skortir áhugann I þessu efni hjá
æðstu stjórn orkumála. Hins veg-
ar þurfa Austfirðingar sjálfir að
ganga úr skugga um, að forystu-
menn þeirra i félagsmálum séu
ekki dragbítar á framgang þessa
máls.“
Þetta ætti að vera auðskilið öll-
um sæmilega læsu'm mönnum. En
herra Erling Garðari Jónassyni,
oddvita Egilstaðahrepps og for-
manni stjórnar Sambands sveitar-
félaga i Austurlandskjördæmi,
þóknast að taka til sin niðurlagið.
Það hefir aldrei að mér flökrað að
hann hafafyrr eða slðar neitt haft
með boð Svisslendinga að gera
eða nokkrum nokkurntlman dott-
ið I hug að leggja það mál fyrir
hann. Þannig markast öll grein
hans af misskilningi þegar bezt
lætur en að öðru leyti af einhverj-
um hvötum sem ég hirði ekki um
að ráða I hverjar séu.
Þá skal að lokum vikið að þeirri
skoðun minni, að vinda beri bráð-
an bug að lagningu línu frá
Kröflu og austur I Fljótsdal. í
grein minni i Mbl. 12. nóvember
sagði svo:
„Það er augljóst að Austfirðing-
ar munu' ekki njóta orku frá
Fljótsdalsvirkjun á næstunni,
þótt rannsóknum verði hraðað. A
meðan þarf að bregða á önnur ráð
til lausnar á hinum bráða vanda I
orkumálum landshlutans. Enginn
vafi er á því að bezta ráðið I því
efni er lagning linu að norðan frá
Kröflu, sem góðar vættir gefi að
komist hið fyrsta I gagnið. I fyrsta
lagi er þar um landsmál að tefla,
sem framhald á hringtengingu
orkuveranna; I öðru lagi hags-
munamál Kröfluvirkjunar ef von-
ir rætast um umframorku hennar
fyrstu árin en annars tæki orka
Byggðalínu (Landsvirkjunar)
við; I þriðja lagi hagsmunamál
Norðlendinga, þegar Fljótsdals-
virkjun getur flutt þeim rafmagn
eftir sömu línu og i fjórða lagi
hagsmunam’ál Austurlands að
leysa á þann veg orkuþörf slna,
þar til Fljótsdalsvirkjun tekur
við.“
I framhaldi af þessu má ég til
með að vitna orðrétt I grein herra
Erlings Garðars Jónassonar, odd-
vita Egilsstaðahrepps og for-
manns stjórnar Sambands sveit-
arfélaga I Austurlandskjördæmi,
til þess að menn geti metið mál-
flutning hans að verðleikum:
„Austfirzkir sveitarstjórnar-
menn hafa markað sér þá stefnu,
að virkjað verði I landshlutanum
það grunnafl, sem orkumarkaður
Austurlands þarf, jafnframt þvi
sem orkuver Norðurlands og
Austurlands verði tengd saman
þá báðum landshlutum til hags-
bóta.
Þessa stefnu styður núverandi
orkuráðherra. Að hans frum-
kvæði er rannsóknum á virkjun
Bessastaðaár lokið að heita má, ég
veit llka, að þessa stefnu styðja
allir þingmenn Austurlands, að
Sverri Hermannssyni undanskild-
um.“
Þetta siðasta er likast þvl sem
það hefi verið ritað niður eftir
manni sem talaði drukkinn upp
úr svefni.
LEGO
fyrir allan aldur
“ Það er um margt að velja hjá Lego.
Grunnöskjur í mörgum stærðum. Þær innihalda
þessa venjulegu Lego-kubba og líka mikið af
fylgihlutum, svo sem hurðir, glugga og hjól.
Duplo-kubbarnir eru átta sinnum stærri, og
sérstaklega ætlaðir yngstu börnunum. Þrátt fyrir
stærðarmuninn er hægt að blanda Duplo-
kubbunum saman við þessa venjulegu, og byggja
úr öllu saman.
í séröskjum eru kubbar ætlaðir tii þess að búa
til eitthvað ákveóið, svo sem höfn, tunglferju
eða flugvél. Nú er Profi það nýjasta í séröskju
frá Lego. í Profí eru margar gerðir líkana af
þekktum farartækjum, nýjum og gömlum. Profi
er hvorttveggja í senn líkan og leikfang.
Af þessu sést að leikföngin frá Lego eru fyrir
stelpur og stráka á öllum aldri, allt-frá eins og
hálts árs og upp úr, einnig fyrir foreldrana, sem
tjölmargir finna óskipta ánægju í leik með
börnum sínum.
REYKJALUNDUR
o
m®
Lífið er leikur meó LEGO