Morgunblaðið - 09.12.1976, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976
NILFISK
RAFTÆKJAÚRVAL-NÆG BÍLASTÆÐI
SÍMI 24420 . HÁTÚNI 6A
Radióbær eykur umsvifin
RADÍÓBÆR hefur nú flutt starf-
semi sína I nýtt húsnæði að Ar-
múla 38, en verzlunin var áður til
húsa að Njálsgötu 22.
Upphaflega var fyrirtækið
stofnað sem radíóverkstæði árið
1967 en fyrir fjórum árum hóf
það innflutning og sölu á hijóm-
flutningstækjum, útvörpum og
segulböndum í bíla, ásamt hátöl-
urum og öðru tilheyrandi. Auk
þess hefur verzlunin -nú hafið
sölu á hlómplötum, kassettum,
diskótektækjum fyrir skóla og
samkomuhús o.fl.
Einnig starfrækir verzlunin
verkstæði að Ármúla 38 sem veit-
ir þjónustu öllum þeim tækjum,
er verzlunin selur, ásamt allri al-
mennri viðgerðarþjónustu.
Ur nýju verzlunínni. Allar teikn-
ingar og umsjón með innrétting-
um annaðist Björn Björnsson.
Verkfræðingur hjá Almennu verkfræðistofunni hf. við tölvuvinnu.
Fyrsta tölvan
Skagfjörd
vinum sfnum upp á ýmiss konar
þjónustu sem krefst tölvu-
notkunar.
Á næstunni mun Kristján Ó.
Skagfjörð h.f. afhenda nokkur
stærri tölvukerfi, sem nota á til
ýmissa verkefna hér á landi.
(Fréttatilkynning)
Hreinn Líndal
á hljómplötu
HLJÓMPLÖTUUTGAFAN
Steinar h.f. hefur sent frá sér
plötu með Hreini Líndal, tenor,
við undirleik Ólafs Vignir
Albertssonar.
Á þessari plötu syngur Hreinn
16 létt lög, en platan er tvískipt
þannig að á annarri hliðinni eru
lög eftir islenzka höfunda, en á
hinni hliðinni eru létt itölsk lög.
Eins og fram kemur á bakhlið
plötuumslags hefur Hreinn Línd-
al bæði stundað nám og starfað
sem söngvari á Italiu við mjög
góðan vitnisburð.
Hreinn Lindal mun i vetur
starfa við söngkennslu i Keflavik
en næsta vor hyggst hann kanna
tilboð sem hann hefur fengið að
utan og fer þá væntanlega til
Bandarikjanna og víðar.
Á verði um
orð og athafn-
ir einstakl-
ingsins
MORGUNBLAOINU hefur borizt
eftirfarandi f réttatilkynning frá
félagi Sjálfstæðismanna I Austurbæ
og Norðurmýri:
Sjálfstæðisf lokkurinn er flokkur
sem styður frelsi og frjálst framtak
einstaklingsins.
Hverfafélög Sjálfstæðisflokksins
sýnir best hvernig flokkurinn fylgir
þessari stefnu. því þar gefast hinum
almenna borgara tækifæri til að
kynnast og ræða þau borgar og
þjóðmál sem efst eru á baugi hverju
sinni. Ekki einungis sln á milli heldur
einnig við þá sem eru I forsvari fyrir
þeim málefnum sem til umræðu eru.
Þetta auðveldar þeim sem I forsvari
eru að kynnast skoðunum og óskum
hinna einstöku félagsmanna og gerir
þeim auðveldara að gæta hagsmuna
umbjóðenda sinna.
Starfsemin I Félagi Sjálfstæðis-
manna I Austurbæjar- og Norður-
mýarhverfum hefur eflt kynni fólks í
hverfinu Þarna hittast ungir sem
aldnir og skiptast á skoðunum opin-
skátt. Hverfafélögin eru vettvangur
fyrir einstaklinga að koma fram
sjónarmiðum slnum slnum á þjóð-
málum og hafa áhrif á stefnumörkun
Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn er eini
stjórnmálaflokkurinn sem ætið hefur
staðið vörð um frelsi einstaklingsins
til orðs og athafna á lýðræðislegum
grundvelli.
Starfsfólk Kópavogs-
hælis telur brýnt að
fjölga starfsfólkinu
MIÐSTJÓRNARTEYMI Kópavogs-
hælis þ.e. ft^idur fulltrúa allra deilda
og starfshópa. forstöðufólk og sérfræð-
ingar hælisms.hefur nýlega samþykkt
ályktun þar sem segir að Kópavogs-
hælið sé enn ekki nægilega búið
tækjum til að gegna því meðferðarhlut-
verki sem þvi sé ætlað Segir að á
undanförnum mánuðum hafí verið haf-
izt handa um að gera breytingar sem
miði að þvi að meðferð verði virkari en
áður Telur starfsfólkið brýnast að
fjölgað sé starfsfólki til að annast og
þlálfa sjúklingana Vill miðstjórnar-
teymið jafnframt vekja athygli á þvi að
skv fjárlagafrumvarpi næsta árs sé
gert ráð fyrir niðurskurði á fjárveiting-
um til Kópavogshælisins
Skorar miðstjórnarteymið á fjárveit-
ingavaldið að taka þetta til greina og
tryggja stofnuninni nægilegt fjármagn
VEGNÁ hinna miklu framfara á
sviði tölvutækni og útbreiðslu á
smærri tölvum hóf tölvudeild
Kristjáns 0. Skagfjörð h.f. að
starfrækja sölu og þjónustuum-
boð fyrir tölvur frá Digital
Equipment Corporation um
sfðustu áramót.
Nú hefur fyrsta tölvusam-
stæðan verið afhent til Almennu
verkfræðiskrifstofunnar h.f.
Tölvan er af gerðinni PDP-11/04,
hefur 32 Kbytes minni, tvöfalda
diskettustöð, myndskjá með lykil-
borði og prentara, einnig með
lykilborði. Stýrikerfið er RT-11 og
gefur það möguleika til að nota
ýmis algengustu forritunarmálin,
svo sem Fortran IV, Basic, APL
og ALGOL. Almenna verkfræði-
skrifstofan er fyrsta verkfræði-
skrifstofan hér á iandi, sem aflar
sér fullkominnar tölvu til eignar
og mun hún nota tækin til verkf-
ræðilegra útreikninga ásamt
bókhaldsverkefnum. Með þessum
tækjakosti getur Almenna verk-
fræðiskrifstofan boðið viðskipta-
sterka ryksugan.
Traust
þjónusta
Afborgunarskilmálar
Styrkur og dæmalaus
ending hins þiÖgenga,
stillaniega og sparneytna
mótors, staðsetning hans,
og hámarks orkunýting,
vegna lágmarks loftmót-
stöðu í stóru ryksíunni,
stóra, ódýra pappírs-
pokanum og nýju kónísku
slöngunni, afbragðs sog-
stykki og varanlegt efni,
ál og stál.
Svona er NILFISK:
Vönduð og tæknilega
ósvikin, gerð til að vinna
sitt verk, fljótt og vel, ár
eftir ár, með lágmarks
truflunum og tilkostnaði.
Varanleg: til lengdar
ódýrust.
Hreppamenn
frumsýna
Delerium
búbonis
Syóra-Langholti, 8. des.
UNGMENNAFÉLAG
Hrunamannahrepps hefur
að undanförni æft gaman-
leikinn Delerium búbonis
eftir þá Jónas og Jón Múla
Árnasyni og verður leikrit-
ið frumsýnt á föstudags-
kvöld 10. desember. Leik-
stjóri er Jón Sigurbjörns-
son.
Fréttir héðan úr Hruna-
mannahreppi eru nú að-
eins góðar en nokkur snjó-
föl er á jörðu og sauðfé alls
staðar komið á hús fyrir
nokkru. Fjárheimtur
munu þó víða vera með lak-
ara móti og geta menn sér
þess til að nokkuð hafi ver-
ið um að fé hafi farist í
vatnsföllum á afréttinum í
sumar vegna vatnavaxta í
vor og sumar.
Félagslíf er blómlegt i sveitinni
um þessar mundir og félagsheim-
ili sveitarinnar notað til fjöl-
breyttrar starfsemi. Karlakór Sel-
foss heimsótti okkur Hreppa-
menn sl. laugardagskvöld og hélt
hér söngskemmtun og dansleik og
kunnum við þeim bestu þakkir
fyrir komuna og ánægjulega
kvöldstund. Sig. Sigm.
Svæðameð-
ferðin,
lækningabók
BÓKAUTGAFAN Örn og örlygur
h.f., hefur gefið út bókina
Svæðameðferðin — Zone Terapi
— eða frásagnir fóta eftir Eunice
D. Ingham, en bók þessi hefur
fengist hér á landi á erlendum
málum og notið mikillar eftir-
spurnar. Hér er um mjög sér-
stæða bók að ræða; lækningabók,
og í formála höfundar sem er
heimsþekktur, segir m.a.: I þess-
ari litlu bók minni ætla ég að
kappkosta að draga fram í dagsins
ljós og skýra taugaviðbrögð, sem
koma fram i fótum manna. 1
löngu starfi mínu sem sjúkra-
þjálfari hef ég komist að raun um
að hver likamshluti og líffæri
eiga sína taugasvörun I skýrt
mörkuðum stöðum fótanna. Með
nuddi réttra staða á fæti, eða fót-
um, má þvi hafa heillarík áhrif á
aumt líffæri, hversu fjarri sem
það er nuddstað. Hundruð sjúkl-
inga minna hafa fengið undra-
verðan bata. Á lækningamáli hef-
ur þessi aðferð hlotið nafnið
svæða-meðferð (svæða-terapi).
Frumkvöðull þessarar meðferó-
ar er dr. Wm. H. FitzGerald, mað-
ur í mestu virðingarstöðum.Hann
lauk háskólaprófi frá háskólanum
í Vermont og var síðan hálft
þriðja ár við Borgarspítalann í
Boston. Hann var fastráðinn við
spitala í London fyrir háls- og
nefsjúklinga og tvö ár aðstoðar-
maður prófessoranna Politzer og
Otto Chiari I Vín, en nöfn eirrj
eru þekkt í læknabókum um heim
allan.
Ég átti því láni að fagna að
vinna með þeim í nokkur ár að
lækningum, en einmitt þá beittu
þau þeim aðferðum, sem hér verð-
ur lýst, við sjúklinga svo skiptu
hundruðum, og það með ágætum
árangri.
Bókin Svæöameðferðin sem er i
kiljuformi er sett í Prentstofu G.
Benekiktssonar, prentuð hjá
Offsetmyndum h.f., og bundin i
Arnarfelli h.f.