Morgunblaðið - 10.12.1976, Síða 1
Föstudagur 10. des.
1976
Bls. 33 — 64.
Ofáir eru þeir íslendingar, sem komið hafa t verzlanir Marks &
Spencer í London i leit að fatnaði Og nú á seinni árum hafa vörur frá
verzluninni einnig sést á markaði hér ( Reykjavik Nýlega birtist grein
um þetta stórfyrirtæki og verzlunarmáta þess í bresku blaði og fer
hér á eftir til fróðleiks þýðing á frásögn brezka blaðamannsins Gaia
Servadio eftir að hún heimsótti aðalstöðvar fyrirtækisins:
„í lítilli tandurhreinni rannsóknastofu í West End i London standa fjórar
manneskjur og rannsaka af mikilli nákvæmni nokkur valin sýnishorn af smjöri.
Þau bragða á því, velta fyrir sér niðurstöðunni og krota hjá sér athugasemdir.
Eitthvert vandamál er á ferðinni. Óæskilegur raki hefur komist inn fyrir
umbúðirnar í einu sýninu, svo
að smjörið hefur runnið. Þarna
verður tæknin að koma til og
leysa úr. Samtímis eru aðrir á
öðrum stað í byggingunni að
rannsaka af jafnmiklum ákafa
úrvals tómata. A þriðja staðn-
um er leður i rannsókn, látið i
teygingu 250 þúsund sinnum,
til að kanna endingu og-brota-
þol. Öll efni og allar flikur verða
að fara í gegn um prófanir i
rannsóknastofunni. Brjósthald-
ari er þarna i athugun. Eru nú
allir 19 bútarnir, sem hann er
samansettur úr, nákvæmlega
eins á litinn? í öllum skotum
þessarar merkilegu byggingar
eru um 2500 starfsmenn að
rannsaka, bera saman, kanna
og endurskipuleggja. Starf
þeirra má kalla gæðamat. Og
gæðin, sem þeim er uppálagt
að reyna að halda, hafa ein-
mitt gert nafn Marks —
Spensers svo þekkt meðal
almennings.
Byrjunin var aðeins eitt borð
á útimarkaði ( Leeds í Yorks-
hire, sem i dag er o^ðið að
alþjóðlegu risafyriræki, er veltir
950 milljón pundum á ári, þeg-
ar skattar hafa verið frá dregn-
ir. í Stóra Bretlandi einu starfa
Sir Marcus Sieff, stjórnarformaður Marks and Spencers
Marks&Spencer
byrjaði með eitt söluborð á
40 þúsund manns og enn er
lagt kapp á að vera i góðu
sambandi bæði við starfsfólk
og viðskiptavini. Árlega fara 2
— 3 milljónir sterlingspunda í
það að reyna að tryggja að
hver skyrta, hvert handklæði,
hvert egg, hvert lak, hver inni-
sloppur og svo framvegis
uppfylli þær kröfur, sem gerðar
eru.
Þrátt fyrir gífurlega fjöl-
breytni í varningi, sem er til
sölu hjá „Marks & Sparks",
eins og það er stundum kallað í
gamni, þá framleiðir fyrirtækið
ekki sjálft vörurnar, heldur
kaupir þær inn sem nokkurs
konar umboðssali. Þegar
Marks & Spencer leitar til fram-
leiðanda, þá er farið fram á að
fá vörur eftir ákveðnum teikn-
ingum og í samræmi við þegar
gerða hönnun. Þessir 2500
starfsmenn í höfuðstöðvunum,
sem minnst var á hér að fram-
an, hafa það verkefni á hendi
að teikna og hanna og fylgjast
með þvi að samningskilmálum
sé nákvæmlega fylgt, hvort
sem um er að ræða smjör eða
fatnað, tómata eða flibba Þeg-
ar úrskurður er fenginn um að
allt sé í lagi, fá vörurnar fyrst
vörumerkið St. Michael, sem
margir islenzkir kaupendur
kannast við, og er síðan dreift til yfir 250 útibúa i Bretlandi einu, 70 i
Kanada og búða í París, Brússel, Lyon og fl. Yfir 90% af varningi, sem
þannig er seldur, er framleiddur i Bretlandi og kveðst stjórnarformaðurinn, Sir
Marcus Sieff, sem hefur „verið í" fyrirtækinu yfir 40 ár, stoltur af því. Sir Marcus
var þarna viðstaddur, klæddur Ijósbrúnum fötum, og benti blaðamanninum á St.
Michel vörumerkið á öllu, sem hann var i sjálfur, utan bindið. Hann sagði, að
markmiðið væri að fá góðar vörur á tiltölulega sanngjörnu verði Þetta tiltölulega
lága verð hefur, burt séð frá gæðunum, greinilega skipt sköpum i þessum
óhemjulega vexti fyrirtækisins. Sú stefna var tekin alveg í upphafi. Á uppruna-
lega söluborðinu á útimarkaðinum, sem nú er til sýnis í aðalstöðvunum í Baker
Street, stóð. „Spyrjið ekki um verðið — það er einn p>enný". Vörurnar lágu
frammi í körfum sem litlir óliulampar til hliðar lýstu ofan í. Undir borðinu voru
aðrar körfur með varningi til að bæta á. Þannig var strax lagt upp úr örri veltu.
Markaðsborðið varð að basar, basarinn óx upp í að verða verzlun, þá
verzlanakeðja og loks þessi alþjóðlegi verzlunarhúsahringur, sem hefur á
boðstólum fatnað og matvöru. Grundvöllurinn er enn hröð velta: magnið sparar i
framleiðslukostnaði, og sá sparnaður er látinn ganga til kaupenda án frekari
milliliða. Þarna kemur lika háefni i stjórnun til greina. Fyrir 20 árum, gerði Marks
& Spencer það að stefnu sinni að skera niður skrifstofuvinnu, sleppa allri
ónauðsynlegri pappírsvinnu. Síðan hefur veltan aukist um 650%.
Hálftima fyrir lokun fer Nor-
man Sheinholtz, fram-
kvæmdaóri, með mér um verzl-
unina i Oxford Stræti. Allar
matarhillurnar eru þegar tóm-
ar, nema hvað einmana kjúkl-
ingur liggur þar enn. í þessari
hitabylgju, sem gekk yfir Bret-
land í sumar, er búið að hreinsa
á tveimur dögum burtu úr hill-
unum 1 2 þúsund opna bómull-
arboli á 99 pens stykkið. Sala á
hverjum hlut er könnuð og
niðurstaða skoðuð reglulega.
Mismunandi vörur eru í hinum
ýmsu búðum, eftir því sem
hentar viðskiptavinunum.
Þrjátiu milljón viðskiptavinir á
viku.
Fyrirtækið er stolt af því að
starfsfólkið virðist ekki síður
hafa áhuga á að selja en við-
skiptavinirnir að kaupa. Þó það
nú væri — því þeir njóta ýmis-
konar aukaþjónustu — allt frá
tannlækni til hárgreiðslukonu á
vinnustað og stórlega niður-
greiddan hádegisverð. Fram-
leiðendur kvarta þó stundum
Þeir segja að erfíðlega geti
gengið að komast i gegn um
allar þessar prófanir, „þeir virð-
ast aldrei ánægðir" sagði græn-
metissali einn. „En þegar mað-
ur er einu sinni búinn að ganga
i gegn um þetta nálarauga, er
það hrein viðskiptaparadís."
Það sem um er að ræða, er
að leggja sig fram. Marks &
Spencer lögðu sig fram um að
afla sér orðstírs fyrir gæðavörur
og sanngjarnt verð og að sjálf-
sögðu leggja þeir sig nú fram
um að halda honum Fyrir
þessa 250 þúsund hluthafa
hefur Marks & Spencer alltaf
verið örugg fjárfesting. Jafnvel
nú í fjárhagserfiðleikunum í
Bretlandi, geta verzlanirnar í
London að minnsta kosti treyst
á hinn mikla straum ferða-
manna, sem koma til að njóta
hagstæðra gjaldeyrisskipta og
verzla i Bretlandi. Einnig flytja
Marks & Spencer út til 40
landa. Þeir selja jafnvel skyrtur,
saumaðar i Bretlandi, til Hong
Kong!
— Já, ég er vissulega stoltur
og ánægður, segir stjórnarfor-
maðurinn. — En við reynum
að vera alltaf móttækilegir fyrir
gagnrýni og hafa sveigjanleika
í umsvifum. Þeim sveigjanleika
fylgirt.d. það, að viðskiptavinir
Marks & Spencers geta alltaf
skipt vöru og fengið peningana
sína endurgreidda. Þessi hraða
velta veitir ekki svigrúm til að
máta fatnaðinn, svo að við-
skiptavinurinn verður að geta
komið aftur með flíkina, ef hann hefur ekki hitt á rétta stærð. Þetta virðist
skynsamleg ráðstöfun. En hún hefur sína ókosti. Því miður hafa svik og þjófnaðir
hvarvetna farið vaxandi og smásöluverzlanir í Bretlandi hafa orðið að gera
ráðstafanir gegn þjófum, sem koma með varning og fá hann endurgreiddan, þó
hann hafi aldrei verið „keyptur" þar í hinum venjúlega merkingu þess orða
Sameiginlegur skaði smásöluverzlana í öllu Bretlandi er talinn jafngilda umsvifa-
miklu lestarráni á 36 klst. fresti! Og heiðarlegu viðskiptavinirnir verða að borga
tapið. Til allrar hamingju halda heiðarleg viðskipti velli. Þegar ég gekk út úr
Marks verzluninni í Oxford Circus á lokunartíma, þá var siðasti kjúklingurinn
farinn úr hillunni!