Morgunblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976 ERLENDUR JÓNSSON, JÓHANN HJÁLMARSSON og SIGURÐUR HAUKUR Fjölmennt skáldaþing tSLENZK LJÓÐ 1964—1973. 319 bls. Bókaútg. Menningarsj. Rvfk 1976. ÞRÍR hafa valió í þetta safn: Eiríkur Hreinn Finnbogason, Guðmundur G. Hagalín og Fríða Á. Sigurðardóttir. 1 formála, sem þau undirrita öll, kveða þau sam- vinnu sína hafa gengið „með ágætum". Ennfremur segir í for- málanum: „Hér er ekki um að ræða úrval úr ljóðagerð áratugar- ins, heldur eins fjölbreytilegt sýnishorn hennar og við töldum stærð bókarinnar leyfa.“ Gerð er grein fyrir valinu og síðan ségir meðal annars: „Eíns og bækurnar sem valið var úr mega kallast úrval okkar úr um 240 bókatitlum þá eru og ljóð hvers einstaks höfundar sam- ræmt úrval okkar þriggja úr skáldskap hans á tímabilinu. Það er langt frá þvi að við veldum alltaf sömu ljóðin og værum sam- mála fyrsta kastið. En við unnum úr tillögunum þannig að við yrðum ávallt sammála um niður- stöðurnar." Um nefndarmenn langar mig að segja þetta: Hagalín þekkja allir. Hann hefur, auk eigin ritstarfa, verið gagnrýnandi áratugum sam- an, einnig sent frá sér ritgerðir um ljóðlist. Hann hefur þvi flest- um betur fylgst með því sem hér hefur gerst á vettvangi undan- farna áratugi. Þess utan var hann svo lengi bókafulltrúi ríkisins. Sú staða gerir kröfu til bókfræði- þekkingar. Eiríkur Hreinn hefur líka verið gagnrýnandi. Og meðan hann var borgarbókavörður fóru vitanlega um hendur hans allar bækur, ljóðasöfn sem annað, er út kom á sama tima. 1 nefnd af þessu tagi þarf að vera að minnsta kosti einn bókfróður maður. Hér voru þeir tveir. Um þekkingu Fríðu Á. Sigurðardóttur á íslenskri ljóðlist hef ég ekki minnstu hugmynd né heldur hvernig eða hvers vegna henni hefur snjóað ofan i þessa nefnd. Nema hvað ráða má af formálsorðunum að hún hafi reynst jafnoki karlanna — ger- andi ráð fyrir að hin góða „sam- vinna“ nefndarmanna hafi byggst á raunverulegu jafnræði. Sextíu og eitt skáld hafa þau þremenningarnir tekið upp í bók- ina. Dálaglegur fjöldi það. Af því hefur tvennt leitt: 1) háar gæða- kröfur hefur ekki verið unnt að gera 2) aðeins örfá ljóð var hægt að birta eftir hvert skáld að meðaltali; mörg skáldin eru þarna með tvö til fjögur ljóð hvert. Þetta er fjölmennt skáldaþing og sýnir að því leyti breiddina í íslenskri nútímaljóðlist. Hins veg- ar gefur það kléna hugmynd um ljóðlist hvers og eins. Ég skal koma með dæmi: Þóroddur Bðkmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON Guðmundsson frá Sandi sendi frá sér eitt ljóðasafn á áratugnum, sem um ræðir, og það stórt (Leikið á langspil, 1973). Það skiptist í þrjá sundurleita kafla. Úr því hafa nefndarmenn valið tvö kvæði en — bæði úr sama kaflanum, lík að formi og yfir- bragði, Hörpuljóð og Upprisu- hátíð. Bestu kvæðin í safni Þor- odds eru að mínum dómi Hreiður- tfð og kvæði sem Þóroddur orti eftir Guðmund Kjartansson. Þau hefði ég valið í sýnisbók. En þau tvö hefðu þó alls ekki nægt til að gefa allsæmilega hugmynd um ljóðlist Þórodds það held ég mér sé óhætt að fullyrða. Til þess þyrfti að minnsta kosti jafnmörg kvæði og kaflarnir eru I um- ræddri bók og helst fleiri. Meðal ungra skálda sem ég tel hafa fengið þarna of sparlega af- greiðslu nefni ég sérstaklega Steinunni Sigurðardóttur. Hún er með aðeins þrjú Ijóð en t.d. Nína Björk með sjö. Ég get fallist á að leggja þær að jöfnu ef lagt er á þær einhvers konar gæðamat. Steinunn á sérstæðan tón, kómíska myndvísi, en þarf að les- ast vandlega, er ekki öll þar sem hún er séð. Hitt ber svo að virða að allmörg skáld hafa fengið svo ríflega inni í þessu safni að á betra verður tæpast kosið í ekki stærri bók. Raunar finnst mér þeir hafa notið tvöfaldrar náðar nefndarmanna því valið úr ljóðum þeirra hefur jafnframt tekist betur, hygg ég, en valið úr bókum hinna Ijóðfáu. Sú tilviljun má vera allt í senn: ósjálfráð, náttúrleg og mannleg. Einatt sakna ég þarna góðs skaps og léttrar lundar, en skelli þeirri skuld ekki á nefndarmenn, þeir geta vart ausið af þvf sem naumast er til. Allmörg skáldin í þessu safni bera synd heimsins á herðum sér og telja auðsjáanlega fínt að vera leiðinleg. Til undan- tekninga telst t.d. Jón Rafnsson sem er bráðfyndinn. Mansöngur hans úr Rósarfmum ætti að lesast yfir hausamötunum á þeim sem bera „tilbúinn" pislarvættissvip. Kynlegt þótti mér að sjá þarna ljóð eftir Davfð Stefánsson. Sfð- ustu ljóð hans, sem gefin voru út að honum látnum, eiga tæpast heima þarna þó sú bók kæmi út á áratugnum. Nú á tímum kemur stundum fyrir að áður óbirt ljóð löngu látinna skálda komi f leit- irnar. Á þá undantekningarlaust að taka þau upp í söfn af þessu tagi? Ef til vill á þetta ekki allskostar við um Davíð því hann lést ekki fyrr en ’64. En „síðustu ljóð“ hans eru örugglega ort fyrir tíð þessara „Islenzku ljóða". En sem sagt — sextíu og eitt er skáldið, og hvilíkur f jöldi! En hvar er Ingimar Erlendur? Hann kom fyrst fram sem ljóð- skáld (Sunnanhólmar, 1959), var tekinn upp f tslenzk ljóð 1954—1963, sendi frá sér eina ljóðabók á þeim áratug sem þetta safn tekur til (Ort á Öxi, 1973) og er nú að nýju genginn í hóp ljóðskálda með bók á ári eða svo. Skiljanlegt gæti talist — þar sem þrír koma saman — að ein- hverjum einum félli ekki ljóð hans og vildi ekki hleypa honum inn. Hitt þykir mér kynlegra að þrír skuli hafa orðið „sammála” um að telja hann sextugasta og annað besta ljóðskáld íslendinga — eða lakari! Að lokum þetta: Frágangur íslenzkra ljóða 1964—1973 er ágætur, fyrirsagnir ljóðanna með of smáu letri en setning og prentun að öðru leyti góð, „bóka- skrá skáldanna", sem prentuð er á eftir ljóðunum, greinargóð, efnisyfirlit sömuleiðis, sem sagt gott. Baráttusaga Steinar J. Lúðvfksson: ÞRAUT- GÓÐIR A RAUNASTUND. VIII. 187 bls. örn og örl. h.f. Rvfk 1976. STEINAR J. Lúðvíksson segir f formála þessarar bókar: „Upphaflega var ætlunin að gera fyrstu fjörutfu árunum í starfssögu Slysavarnafélags íslands skil í þremur til fjórum bókum. En ekki var fyrr farið að safna heimildum og efni en f ljós kom að þarna myndi um mun stærra verk að ræða, og þótt þetta sé áttunda bindið f bókaflokki þessum höfum við, sem að útgáfu þessari stöndum, oftsinnis fundið til þess að geta ekki gert ýmsum atburðum betri og ítarlegri skil en unnt hefur verið að gera innan þeirra marka sem form bókar- innar býður upp á.“ Efnið reyndist sem sagt meira en ætlað var, bækurnar eru orðn- ar átta. Miðað við áraröð ætti þetta bindi að teljast hið fyrsta, tekur til áranna 1920--24 að báð- um meðtöldum. Er það ef til vill fróðlegast með hliðsjón af sög- unni allri, sýnir svo ekki verður um villst hvernig ástandið var þá og hvað síðan hefur gerst. Björgunartækni var þá skammt á veg komin, skipin illa búin til að rata og hættulegt að lenda f haf- villum við strendur landsins þeg- ar ekki var unnt að gera vart við sig til lands. Einna gerst skrifar Steinar þarna um Talismanslysið 1922. Lýsir hann siglingu skipsins frá því það hélt úr heamahöfn á Akureyri þar til það strandaði eft- ir ærna hrakninga og áföll við Önundarfjörð, einnig lýsir hann göngu skipbortsmanna frá strand- stað þar sem sumir létu líf sitt af vosbúð og kulda, þótt á land kæm- ust, meðal annars fyrir þá sök að þeir höfðu ekki hugmynd um hvar þeir voru staddir og héldu þvf ekki skemmstu leið til byggða. Þá er þarna alllangur þáttur sem heitir Krossmessugarðurinn mikli — um veðuráhlaup sem gerði fyrir Norður- og Vestur- landi um krossmessuleytið 1922. Annars eru flestar frásagnirnar örstuttar, allt niður f þrjár, fjórar línur, enda t.d. greint frá hverju einstöku tilfelli er maður féll út af byrggju þótt bjargast hafi. Þetta er því mest í annálsformi, aðeins lengri þættirnir færðir til sögustfls. Elstu frásagnirnar gefa sýn inn f eldri tfð, þar má t.d. rekast á orðið „kútter“. Og vanmætti landsmanna til björgunar má Bókmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON gerst marka af þvi hve margar fyrirsagnirnar enda á „ferst“ og „strandar” — „Kútter Valtýr ferst“, „M.b. Rán strandar", „Vélbáturinn Ægir ferst" og þar fram eftir götunum. Þetta var blómaskeið strand- siglinganna og á þessum árum koma við sögu skip sem margir minnast frá fyrstu áratugum aldarinnar, til að mynda gamli Gullfoss, Sterling og Botnfa. Áratuginn ’20 til ’30 mætti kalla gleymda tuginn, svo nauman Copin - tón ÞAÐ er sérkennilegt við tón- smfðatækni Chopin, að hann er algerlega bundinn píanóinu. Það er eins og honum hverfi öll geta til að leika sér með tónhug- myndir sfnar ef hann ritar fyrir önnur hljóðfæri. Þær verða sléttar, rúnar öllu því „melisma" sem píanótónsmíðar hans eru svo auðugar af. Þetta kemur greinilega fram í sellósónötunni op. 65, en þar er sellóröddin mjög einföld á köfl- um, á meðan pfanóröddin er full með alls konar tiltektum. Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON Þetta misræmi á tónsmíðagetu Chopin er talið stafa af þekkingarleysi hans á öðrum hljóðfærum, sem hann reyndi ekki að yfirstíga fyrr en á sfð- ustu árum æfi sinnar. Á háskólatónleikunum s.l. laugar- „Þingeyskt loft” og „Meira loft” Bðkmenntir eftir SIGURÐ HAUK GUÐJÓNSSON Kvæði og stökur. Höfundur: Jón Bjarnason frá Garðsvfk. Bókargerð: Prentsmiðja Björns Jónssonar Akureyri. Utgefandi: Bókaútgáfan Skjald- borg. Haustdagur á danskri grund. Regnsuddinn vætta stíga og torg, engu líkar en skaparinn væri að keppast við að sturta niður úr þessu risa hundaklósetti sem Kaupmannahöfn er að breytast á Gallaður úlpu og klofstígvélum hugðist ég ganga til móts við dag- inn, og snaraðíst út. En viti menn, beið mín ekki böggull við dyr. Einhver góður náungi hafði sent mér bækur Jóns bónda frá Garðs- vík á Svalbarðsströnd. Ég snéri um hæl, henti galla og hóf lestur. Sólskinið, norðlenzka, flæddi um stofu og hlátrasköllin kölluðu granna að gátt og skjá. Já, það var gaman að fá þessa aendingu, og nú get ég ráðlagt þér lyf við regn- leiða: Taktu bækurnar hans Jóns og lestu, og brjóst þitt mun fyllast birtu og yl. Jón gerir enga kröfu til þess að þú veljir honum skáldaheiti: „Það haf, sem skilur skáld og hagyrðing, er skipi mfnu ekki fært að stýra.“ (Þl/24) Hann ríður ekki í hlað þitt með kröfu um listamannslaun, heldur er hann kominn t.þ.a. rabba við þig um stund um það, hve dæma- laust það er gaman að vera til. Hann er bóndinn, hneigir höfuð í lotning fyrir ævintýri sköpunar- innar: „Og feginn vildi eg vera orðinn svanur og væng f himinblámans lindum þvo.“ (Þl/12) Jón er ekki nærsýnn, tekur lika eftir hinu smáa: „Sjá, yfir lækinn flýgur Iftil fluga. Sú för er engu minna kraftaverk.44 (Þl/12) Hann stígur fótum á angandi grund og yfir honum hvelfist himinn sem er hærri askloki, og þaðan brosir kærleikans Guð við honum, barni sínu. Þetta gleður Jón, en honum þykir kirkjan íhaldssöm og ,,. broslegt, hve hún getur orðið gröm, er gerist rifa milli stafs og hurðar.“ (Ml/15) Hann á viðkvæmt hjarta, eins og skáldin öll, finnur til skyld- leika við lamb og blóm. Þessara tilfinningu lýsir hann á eftir- minnilegan hátt í ljóðinu „Hið saklausa blóð“ (Ml/23), þar sem hann fylgir vinum og frændum á veizluborð okkar manna. A stundum finnst mér Jón of margorður, hann leiðir ekki að myndum — heldur lýsir þeim. Þetta er miður. Hann hefði þurft að hafa gagnrýninn félaga við hlið sér, er hann valdi til bók- anna. Þá hefðu þær orðið betri. Þetta sanna mér: Svanaflug; Frið- lausir menn; Ef til vill; Draumur, allt ljóð úr fyrri bókinni, og úr þeirri seinni minnist ég Vor á Akureyri; Bóndans önn; Við styttu Þorsteins Erlingssonar að Hlíðarendakoti, svo einhver séu nefnd. Jón hefir ekki haft tima til yfirlegu, i gegnum ljóð hans heyr- ist önn bóndans við moldarverk og hjörð. Það hefði verið gaman að sjá þann fola til gæðings tam- inn, sem steig svo létt til jarðar við fyrstu taumtökin: „Fyrir árdags blíða blænum bygljast föx á akri grænum, hnfga strá með vexti vænum. Vélin þylur, — Ijárinn slær. Til að falla grasið grær.“ (MI/47) Jón valdi að yrkja jörð í stað ljóða, brá þeim helzt fyrir sig t.þ.a. gleðja granna í afmælum og við jarðarfarir, því minnir skáld- fákurinn stundum á þingeyzkan gangnahest, sumarstaðinn. List er til í spori: „Góða vfsu, gleymdan hátt grófstu fram úr leynum þar sem hjartað hefur átt hrönn af óskasteinum.“ (ÞI/23) en hann er stuttstígur f langreið og mæð- inn. Listfengur hugur verður aldrei í fjötra færður, hann leitar sér farvegs og þroska. Hugur Jóns fann hann í lausavísunni, í henni rís hann hæst, þar nýtur frábær hnyttni hans og tungutak sér bezt:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.