Morgunblaðið - 10.12.1976, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
41
ólafur bóndl á Oddhóli og fyrrum í Álfsnesi
Ég vil nú hafa mínar
konur sjálfur
Dagur Þorleifsson skráði.
ölafur notar enga tæpitungu og dregur ekkert
undan, hvorki sín ævintýri né annarra, þar með
talin ástar- og fjármálaævintýri. Hann segir frá
mönnum eins og þeir komu honum fyrir sjónir,
án þess að hiröa um hverjir kunni að kætast,
reiöast eða hneykslast. Bók þessi mun lengi í
minnum höfð fyrir bersögli og bragðmikið grín.
Snjólaug Bragadóttir frá Skáldalæk
Enginn veit hver annars
konu hlýtur
Bókin segir frá ungum stúlkum á hálum brautum
höfuðborgarinnar og ástarævintýrum þeirra.
Þær taka á leigu gamalt hús við Grettisgötu.
Brátt bætast fleiri í hópinn, karlar og konur, og
ástin birtist í nargskonar myndum. Ýmist er
ástarfuninn að brenna upp báða elskendurna,
eða ástin tekið svo óvænta stefnu, svo enginn
veit að lokum hver annars konu hlýtur.
SnKibi« Rranvkxilf tn St.ikU.ii
Enginnveit
hverannarskonu
hiýtur
Séra Gunnar Benediktsson
Stiklað á stóru
frá bernsku tll brauðleysis
Frásagnargáfa þessa byltingasinnaða klerks,
hispursleysi og ritleikni er þjóðkunn. Aldrei hef-
ur hann verið hreinskilnari og opinskárri um
einkamál sín og ævikjör en í þessari bók, en
margþætt reynsla hans og félagsleg skyggni
gera minningar hans að samtíðarskuggsjá.
Ekkert mannlegt lætur hann sér óviðkomandi,
þekking hans víðtæk, penni hans léttur, en
hvass og markviss.
Joe Poyer:
Með báli og brandi
Þýðandi: Björn Jónsson
Höfundur þessarar bókar hefur á síðustu árum
verið að ryðja sér til rúms á erlendum skáld-
sagnamarkaði og má til marks um það nefna
sem dæmi, að hinn kunni Alistair Maclean sagði
um fyrstu bók Poyers, North Cape, að hún væri
besta ævintýraskáldsaga sem hann hefði lesið
um árabil. Atburðir þessarar bókar hefjast í
Júgóslavíu, sveigjast til Mið-Austurlanda og
þeim lýkur í Burma, þar berst maður við mann.
Magnús Magnússon
Hammer of the north
Myths and Heroes of the Viking age.
Bókin er í stóru broti. Aðalefni hennar er norræn
goðafræði og goðsagnir. Höfundur hefur kynnt
sér það efni rækilega bæði út frá íslenskum
fornritum og nýjustu sögulegum fornfræðilegum
heimildum. Bókin er tilvalið kynningarrit fyrir út-
lendinga en einnig áhugaverð lesning íslend-
ingum sjálfum. 120 litmyndir prýða bókina af
stöðum, munum og minjum sem frægir eru úr
sögunni.
Lewis og Clark
og ferðin yfir Norður-Ameríku
eftir David Holloway
í þýðingu Örnólfs Thorlacius
Lewis og Clark voru fyrstir hvítra manna til þess
að fara yfir þvera Norður-Ameríku og eiga því
mjög merkan og spennandi kafla í könnunar-
sögu veraldarinnar. Lewis og Clark er þriðja
bindið í bókaflokknum Frömuðir landafunda, en
áður voru komnar út bækurnar Magellan og
Kapteinn Scott. Hver bók er merkur kafli í þró-
unarsögu mannsins.
«g fertin jfir Nortur-Ameriku
Drnid Hollowaj
Ljós mér skein
á dimmum dögum
Endurminningar Sabínu Wurmbrand
í þýðingu Sigurlaugar Árnadóttur.
Bjargföst trú á guðlega handleiðslu veitti Sabínu
Wurmbrand, eiginkonu „neðanjarðarprestsins"
styrk til þess að lifa af ómannúðlega meðferð í
fangelsum kommúnista í Rúmeníu. Frásögn
hennar er sérstæð og áhrifarík og hlýtur að grípa
hug lesandans fanginn, sökum trúar og bjart-
sýni, þrátt fyrir pyndingar og hvers konar harð-
rétti sem eru megineinkenni í daganna þraut.
Steinar 1 Lúóviksson
Þrautgódir
Steinar J. Lúðvíksson
Þrautgóðir á raunastund
8. bindi björgunar- og sjóslysasögu fslands
Þessi bók fjallar um árin 1920—1924 og nú er
komið að þeim þætti í útgerðarsögu íslendinga,
þar sem skúturnar skipa sinn mikla sess. Meðal
atburða má nefna strand Talismans við Kleifar-
vík, Krossmessugarðinn mikla og strand Sterl-
ings við Brimnes. þá er í bókinni fjöldi Ijósmynda
frá þessu tímabili og þar á mpðal myndaflokkur
frá síldveiðunum fyrir Norðurlandi.
Hornstrendingabók
Þórleifs Bjarnasonar
að miklu leyti nýtt verk í þremur bindum og myndskreyttum kassa.
Prýdd 80 Ijósmyndum, sem margar hverjar hafa hvergi birst áður.
Hornstrendingabók greinir frá byggðarlögum Hornstranda og mannlífi þar um slóðir um langan
aldur, harðri lífsbaráttu fólksins í þessum afskekkta og hrjóstruga landshluta, en jafnframt
sérstæðri menningu þess og einkennilegum háttum. Drjúgur hluti bókarinnar er sagnaþættir og
þjóðsögur af Hornströndum, og tekst höfundi að bregða sterku Ijósi á liðnar aldir. Horn-
strendingabók er eitt af merkilegustu átthagaritum á íslenskri tungu og frábært rit vegna
fróðleiks og ritsnilli Þórleifs Bjarnasonar.
Baldur Guðlaugsson og Páll Heiðar Jónsson
Þrítugasti marz 1949
mestu innanlandsátök frá siðaskiptum
Þann 30. mars 1949 fékk innibyrgð spenna, tortryggni og gagn-
kvæm andúð útrás í athöfnum og átökum, sem ekki hafa orðið
önnur og meiri síðan um siðaskipti. Bókin er byggð á innlendum
og erlendum gögnum úr skjalasöfnum ráðuneyta og hæstaréttar
og viötölum við stjórnmálamenn, lögreglumenn, varaliðsmenn,
áhorfendur og sakborninga. í bókinni eru 60 Ijósmyndir, flestar
áðuróbirtar, þ.á m. úr kvikmynd.
Góð bók er gulli betri
ÖRN OG ÖRLYGUR
Vesturgötu 42, Sími: 25722