Morgunblaðið - 10.12.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
47
— Um skattamál
Framhald af bls. 45
ofan ef eitthvað á að gera framyf-
ir það að fá útákast í grautann
sinn.
Gamalt fólk og
skattkúfurinn
Væri þjóðin betur sett með því,
að allir trillukarlar settust á
kambinn, og engin trilla hreyfð,
engin grásleppuhrogn eða færa-
fiskur að landi dreginn. Hitt er
svo annað mál, að ekki er láandi
gömlum mönnum og konum, þótt
þeim ofbjóði skattkúfurinn sinn.
Fólk sem þrælar sér út í ákvæðis-
vinnu hvern einasta rúmhelgan
dag ársins, og marga helgidaga,
oft lengi á kvöld fram og nætur.
Þessa fólks umbun, eða hitt þó
heldur, er harðsvlraðasta skatta-
áþján fyrir það eitt að skapa þjóð
sinni óhemju tekjur, sem hún
engan veginn getur án verið. En
þetta fólk gerir sér heldur
kannski ekki grein fyrir þvl, hvað
stundum getur kostað að reka bú
eða bát, þegar eitt lltið sett af
stimplum I traktor kostar 100 þús.
kr. og annað eins að setja það I.
En hver stimpill er að stærð við
smákaffibolla.
En þegar nú á svo til höggs að
reiða, af okkar virðulega löggjafa,
að hvert einasta smáfyrirtæki,
hvort heldur er smábóndi i sveit
með sínar hundrað kindur, sem
smátrillukarlinn á mölinni.á að
láta fyrirtækið greiða sér áætlað
kaup, svo sem hverjum skatt-
stjóra þóknast að meta, kannski á
við rífleg forstjóralaun stórfyrir-
tækis, þá er það vald svo ofboðs-
legt I hendur lagt misvitrum og
misgóðum mönnum, að engan
veginn get ég haldið að nokkur
þingmaður geri sér I dag grein
fyrir hvað af getur hlotist. Og
hvað er þá orðið af hinni rómuðu
mannhelgi og mannréttindum, —
ef svo er fótum troðið frelsi
manna, að allt framtal þeirra má
strika út, og ákveða jafnt gamal-
menninu, sem kannski bjástrar
við að hafa ofan af fyrir sér með
nokkrum kindum uppi sveit. sem
ungmenni I fullu fjöri, sem sá
hinn sami gæti engan veginn á
nokkurn hátt staðið við sama borð
í atvinnulegu tilliti.
Hér er eins og stundum áður, að
þingmenn hafa ekki hugmynd um
hvað þeir eru að gera, eða um
afleiðingar gjörða sinna. Þetta
þykir nú stórt uppi sig tekið en
nóg eru dæmin sem sanna það.
Þar með er ekki sagt, að margt
gott geri þeir ekki.
Að hirða
með ránshendi
Það er þörf hugvekjá sem Stein-
grlmur Hermannsson hefur
hreyft við, og fáir vissu um — að
jafn hrikalegar tölur, að hundruð
milljóna liðst skattyfirvöldum að
hirða með ránshendi af hinum
almenna borgara sem upp hefur
komist, og leiðrést vegna kæra.
En hvað eru hitt mörghundruð
milljónir sem falla I þann farveg
og ekki er kært um. Allir vita það,
að stór hluti kærir ekki, þótt viti
sig hafa á réttu að standa og
margur lætur heldur í minni
pokann og fær ekki leiðréttingu
mála sinna þótt einnig viti sig
hafa á réttu að standa enda þótt
hampað sé þeim málsskotsrétti,
sem allir vita einnig að flestir
hafa ekki tök á að notfæra sér,
eða nenna ekki að standa I ára-
löngum málaferlum, eða hvaða
réttlæti er I þvl t.d. að áætla
manni 70—100 þús. kr. i hreinar
tekjur fyrir að eiga bll i eigin
þarfir.
Ég er ekki að mæla skattsvikum
bót. Það munu fáir gera. En ég
mæli hinu heldur ekki bót, að í
skjóli valds slns sé níðst af
ódrengskap á þeim sem líka rétt
eiga til drengskapar og réttlætis,
en það er I þessu máli, sem og
mörgum öðrum, að það er mann-
gildi þeirra sem með völdin fara,
sem þyngst eru á metunum að
ekki sé fótum troðin sú mann-
helgi og réttlætiskennd, sem
hverjum og einum er boðið að
njóta, í þvl llfi sem hann er fædd-
urtil.
Skattembætti Vestfjarðaum-
dæmis hefur nokkuð komið við
sögu að undanförnu, — og
kannski ekki að ófyrirsynju. Það
vildu sjálfsagt margir þá Lilju
kveðið hafa, sem Strandamenn
létu frá sér fara, og margur sjálf-
sagt viljað sagt hafa: takið
þennan kaleik frá mér. Hógfær
grein Grlms Jónssonar á tsafirði I
Vestfirsku fréttablaði talar þar
einnig sem rödd hrópandans. En
þótt þar kunni allt löglegt sem
gert er, munu þó mörgum finnast
að nokkuð hafi verið gengið frá
þvl spori sem áður áttu að
venjast.
Hagspekingar
vita ekki sitt
rjúkandi ráð
Þegar talað er um háa skatta, er
það jafnan viðkvæði ráðandi
manna, að spyrja: hvað vilja
menn missa af þeirri þjónustu,
sem rlkið veitir þegnum slnum.
Ef við hinn almenni þegn,
verðum að spara við okkur, dugar
ekki að spyrja þannig, og enda er
það útaf fyrir sig það aumingja-
legasta ráðleysi að spyrja þannig.
Það er engin hörgull á að stofn-
setja ný og ný embætti starfrækja
hundruð nefnda og ráða, með
kostnað uppá hundruð milljóna.
Og eigi eitthvað að gera, sem
manni fyndist að þingmennirnir
sjálfir mættu gefa sér tíma til að
fjalla um, þá er kosin til þess
nefnd á nefnd ofan, og svo kvart-
ar alþingi sjálft sem sárast, að allt
þetta nefndavald sé i raun og
veru búið að taka af þvl öll völd.
Eitt af því, sem snertir þessi
skattamál, og mikið er rætt um, er
hinn svokallaði söluhagnaður. Ef
miðað er við það, að hægt sé ára-
tugum saman að ræna af fólki fé
þess, eins og sparifénu, má e.t.v.
til sanns vegar færa með sölu-
gróða. En maður i Reykjavlk
keypti Ibúð I blokk fyrir 4
hundruð þúsund, kr., seldi hana
eftir 4 ár fyrir 4 milljónir. Þetta
var nú aldeilis sölugróði, bara 3,6
milljónir, en hann varð að bæta
við einni milljón samt til þess að
komast I nákvæmlega eins íbúð,
að öllu öðru en því að hún var 2
árum yngri sú sem hann keypti.
Það sjá náttúrlega allir hvað 400
þúsundin, þó vextirnir hefðu
bæst við á 4 árum, hefðu dugað
fyrir ibúðinni þeirri arna. En
hefði hann ekki keypt ibúðina
aðra aftur var þá ekki obbinn af
sölugróðanum skattskyldur. Hér
er það ekki sölugróðinn, sem
spilar inní dæmið, heldur hitt
hvað verðbólgan hefir gert alla
hluti svo snarvitlausa, að sjálfir
þjóðhagsspekingar þjóðarinnar
kunna ekki sitt rjúkandi ráð. Það
er gott dæmi um þetta sem kom
fram I ræðu landbúnaðar-
ráðherra, var það ekki á stéttar-
sambandsfundinum, að spýturnar
I byggingar I sveitum landsins
væru orðnar svo dýrar, að það
væri engin leið að útvega alla þá
peninga sem þyrfti til að borga
þær. Eitthvað á þessa leið hljóð-
aði nú sá boðskapurinn, og liklega
verið sannur.
Jens I Kaldalóni.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
^>22480
J JWorgmtblfitiib
SHEAFFER EATON
SheoHer Eoton dlvljlon ol Taxtron Inc.
TEXTRON
Geficf ykkur tíma til ad velja
Sheaffergjöf.
Vid gefum okkurgódan tíma
vid framleidsluna.
þótt heimurinn sé ó harcía hlaupum
er enn þess virdi ad stadnœmast vid
vissa hluti.
Og med því sumt fólk kýs enn ad
velja gjafir vandlega viljum vid framleida
Sheaffer skriftoeki ó sama hótt.
Sheaffer Imperial erframleiddur af
listidnadarmönnum, sem fara sér hœgt
og gœtilega.
Á þetta sérstaklega vid þegar verid
er ad skera nókvœmt mynstur í hreint
sterling silfur.
Gefid ykkur gódan tíma nœst
þegar velja þarf gjöf handa gódum vini.
Goetidad hinum gódkunna hvita depli ó
Sheaffer. Merkid tryggir ad valid var
vandad og beindist ad besta úrvali
skriftœkja í heimi hér. |ni|36rÍQl
by Sheaffer.
Sheaffer information: 25.155.
Allt í jólamatinn á
Vörumarkaösveröi
Lambakjöt
Leyft okkar
verð verð
per kg
Hangiframpartar 784 607
Hangikjötslæri 998 910
Úrb. hangiframp. .. . 1710 1395
Úrb. hangilæri .. 1980 1590
London Lamb 2215 2090
Fuglakjöt
Leyft okkar
verð verð
per kg
Kalkúnar ........ 1875 1628
Holdakjúklingar . 1140 1 047
Grillkjúklingar . 1120 963
Unghænur ......... 790 650
Kjötkjúklingar ...1140 1 047
Svínakjöt
Leyft okkar
verð verð
per kg
Læri ........ 1216 1155
Bógar ......... 990 940
Kótilettur 2310 2195
Úrb. hnakki . 1777 1 688
Úrb. læri 2310 2195
Hamborgarahryggur .. 2650 2515
Hamborgaralæri . 1770 1681
ATHUGIÐ!
Nautakjöt
á mjög hagstæðu verði
okkar verð
per kg
Snitchel .......... 1000
Gullasch ........... 900
Fillet ............ 1200
Mörbráð........ 1200
Roast beef ........ 1000
Innanlæri ........... 1000
Nautahakk ............ 740
Egg kr. 390— per. kg.
Strásykur kr. 89— per. kg.
Kaffi á gamla verðinu
okkar
verð
Leyft
verð
Emmess is .......210 1 89 líter
Möndluis peruís .230 207 llter
Fromage 3. teg..210 189 pk.
Emmess ís.
rúlluterta.......520 468
Epli — Appelsínur
Vínber — Melónur
Grapefruit
Klementínur
Ananas — Kókóshnetur
Gulrófur — Gulrætur
Rauðrófur — Rauðkál
Tómatar — Agúrkur
Hvítkál
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A,
matvörudeild s. 86111,
húsgagnadeild, s. 86112
vefnaSarvörudeild s. 86113
heimilistækjadeild s. 86117