Morgunblaðið - 10.12.1976, Side 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
Morgunblaðið
óskareftir
blaðburðarfólki
Vesturbær Úthverfi
Skólabraut Blesugróf
Hjarðarhagi 1 1—42 Miðtún
Austurbær Goðheimar
Bergstaðastrætí Upplýsingar í síma 35408
Góöar vörur — fallegar vörur
Nýkomið fjölbreytt úrval af
★ Kjólaefnum, ★ trotteetnum
★ gardínuefnum ★ nylonefnum
★ borðdúkum ★ °9 vatteruðum
★ eldhúsgardínum efnum
★ handklæðum ★ ódýr baðmottusett
Opið til kl. 10 í kvöld.Opið til kl. 6 laugardag
bækur — bækur — bækur — bækur — bækur — bækur bækur
Bókaútgáfan ísafold:
BÓKAÚTGÁFAN ísafold
sendir frá sér um 25—30
útgáfubækur f ár og haust,
sér endurprentanir
kennslubóka og annarra
taldar með og kennir þar
margra grasa.
Af óútkomnum bókum ísa-
foldar má fyrst nefna nýja
skáldsögu eftir Thor
Vilhjálmsson. Sú bók hefur
enn ekki hlotið nafn, en
bækur hans hafa jafnan vak-
ið athygli. Eftir Árna Óla
kemur út ný bók sem nefnist
Grúsk. Á langri ævi og löng-
um blaðamannsfer i hefur
Árni stöðugt verið að grúska í
gömlum fræðum og sögum,
og dregið fram í dagsljósið
ýmislegt sem öðrum er hulið.
Úr þessu grúski hans hafa
orðið til fjórar bækur og nú
bætist sú fimmta við.
Lýður Björnsson sér um
útgáfu Character Bestiæ
eftir sr. Pál Björnsson í Selár-
dal, en þetta er rit um galdra
á íslandi Heitir bókin i gerð
Lýðs Kennimark kölska og
er þrjár ritgerðir um galdra
eftir þá sr. Pál i Selárdal og
Daða Jónsson. Engin þessara
ritgerða hefur áður verið
prentuð. í bókinni er ýtarleg-
ur inngangur og skýringar,
og einnig er hún mynd-
skreytt. Þó síra Páll í Selárdal
hafi löngum verið kenndur
við myrkasta tímabil íslands-
sögunnar, þá var hann að
öðru leyti meðal merkustu
manna landsins. Hálærður
var hann og annálaður ræðu-
Hér
kennir
margra
grasa
skörungur, búhöldur og
brautryðjandi og framfara-
maður i útvegsmálum.
FólkiS á Steinshóli heitir 9.
bindið í ritsafni Stefans Jóns-
sonar, og það er Einar Bragi
skáld sem sér um þessa út-
gáfu eins og þær fyrri í rit-
safni Stefans. Myndskreyt-
ingar eru eftir Jón Reykdal
Nýjasta skáldsaga Anitru
heitir Tveggja kosta völ, en
áður eru komnar út 9 bækur
hjá ísafold eftir skáldið. Ger-
ist sagan í umhverfi Heið-
merkur í Noregi, og fjallar
um ástir, afbrýði og ættarerj-
ur.
Á þessu hausti mun bóka-
útgáfa ísafoldar endurútgefa
þrjár bækur sem hafa verið
ófáanlegar um langt árabil,
og munu aðeins vera til í
mjög takmörkuðu upplagi.
Þessar þrjár bækur eru:
íslandsferðin 1907 en
það er frásögn um för
Friðriks konungs áttunda og
rikisþingmanna til Færeyja
og íslands sumarið 1907.
Tveir danskir blaðamenn,
Svenn Poulsen og Holger
Rosenberg, fylgdust með
konungi alla ferðina og
skrifuðu bók þessa, sem er
meir en 330 bls. og með yfir
200 myndum.
í ís og myrkri eftir Friðþjóf
Nansen. í ferðabók þessari
segir frá þeim þætti Fram-
leiðangursins norska (1893
— 96 ) þegar Friðþjófur
Nansen fór við annan mann
frá leiðangursskipinu, og
gerði tilraun til að komast á
norður-Heimskautið en sneri
siðan suður á bóginn og
komst eftir fimmtán mánaða
svaðilför og mannraunir til
Franz-Jósefslands. Bókin er
yfir 300 bls. með fjöl-
mörgum myndum.
Þriðja bókin er Harpa
minninganna, minningar
Árna Thorsteinssonar tón-
skálds, sem Ingólfur
Kristjánsson færði í letur. í
ævisögu þessa aldna Reyk-
víkings blandast þróun
fæðingarborgar hans og af-
skipti hans af menningar-
málum og þá sérstaklega
tónlistarmálum landsmanna.
í bókinni eru um 80 myndir
af einstaklingum og hópum,
en Árni starfaði um árabil
sem Ijósmyndari.
„Ekkihægtað
drepa
bitastæða bók”
— segir Hilmar Jónsson
rithöfundur og bókavörður
HILMAR Jónsson rithöfundur
í Keflavfk hefur nú sent frá sér
sjöundu bók sfna og heitir hún
Hundabyltingin. Bækur Hilm-
ars hafa oft vakið talsvert um-
tal bókmenntagagnrýnenda og
þegar hann hitti okkur að máli
báðum við hann að segja okkur
deili á bókinni.
„Að vissu marki er þetta
heimildaskáldsaga," sagði
Hilmar. „Hún segir frá því þeg-
ar menn og hundar berjast um
völdin I þjóðfélaginu árið 1980.
Bókin er saga þess strlðs, en
ekki þeirra persóna er koma
þar fram. Lifandi mönnum eru
gerð upp orð og athafnir, en
þetta er gamansaga með heim-
spekilegu ívafi.“
„Hefur bókin boðskap?"
„Árni Bergmann segir í rit-
dómi sfnum I Þjóðviljanum þar
sem hann sallar bókina niður,
að ég hefi aðeins eitt áhugamál:
að græða peninga og það sé
boðskapur bókarinnar.
Vitaskuld er það spurning
hvort svara beri slíkum manni
sem Árna Bergmann. Hann hef-
ur ætíð reynt að drepa bækur
mínar og ætið mistekist það. Þó
held ég að þessi ritdómur hans
slái öll met í siðleysi, enda sagði
einn flokksbróðir hans við mig
að hann undraðist að nokkurt
blað skyldi birta slfkt nfð. Árni
veit vel um áhugamál mfn og
baráttu gegn spillingu í þjóðfé-
laginu. Hann veit fullvel að ég
hef gengið fram fyrir skjöldu í
baráttunni við spillt dómsvöld
nú upp á sfðkastið og hann veit
einnig að á mig hefur verið
höfðað skaðabótamál einmitt
vegna þeirrar baráttu. Þá er
Árna einnig kunnugt um að á
löngum ritferli hef ég svo til
ekkert opinbert fé fengið fyrir
ritstörf. Samt vogar hann sér að
fullyrða að ég skrifi einungis
fyrir peninga og eigi mér enga
hugsjón.
Hitt er svo að ég get svo sem
vel unað dómi Árna, því skjól-
stæðingar hans f rithöfunda-
stétt eru bókmenntalegir og sið-
ferðilegir niðurrifsmenn og það
er sorglegt til þess að vita að
einmitt f þá skuli rfkissjóður
fyrst og fremst hafa ausið fé á
síðastliðnum árum. Það hefur
verið of mikið gert af því að
styrkja rithöfunda sem skrifa
þannig að það væri miklu nær
að styrkja þá lesendur sem
Hilmar Jónsson
leggja það á sig að lesa verk
þeirra.
Sumir rithöfundar gera litið
annað en sækjast eftir frægð.
Ég lft á frægð sem eftirsókna
eftir vindi, en ég vil ekki að
einstefnumenn ráði ferðinni.
1967 skrifaði ég mjög „eldfima"
bók, sem Helgfell gaf út og
nefnist Foringjar falla. Hún
var svo “eldfim" að hvergi
mátti minnast á hana í fjölmiðl-
um. Nú segja mér bókaverðir f
Borgarbókasafninu að á þessari
bók liggi pantanir. I þessari
bók er nákvæm lýsing a því sem
verið hefur að gerast í dóms-
málum á Islandi. Það er ekki
hægt að drepa bitastæða bók,
eða höfund sem hefur eitthvað
að segja. Það er hægt að rægja
hann og hafa af honum fé með
níði og sleggjudómum, en slík-
ar rógstungur eru leiðigjarnar
og verða sjaldan langlífar."