Morgunblaðið - 29.12.1976, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.12.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1976 27 SÝR, flugvél Landhelgisgæzlunnar, fór í ískönnunarflug f gær og eins og meðfylgjandi fskort sýnir teygir fstunga sig frá mcginísnum í austur í átt að Grímsey. og — Podgorny Framhald af bls. 1. Zambfa, Tanzanfa Mosambique. Enn hefur ekki verið tilkynnt opinberlega hvenær Podgorny leggi upp f ferð sfna, en lfklegt er talið að það verði f marzbyrjun. Fréttaskýrendur telja, að heim- sóknin sé vfsbending um að Sovétmenn muni leggja aukna áherzlu á að ná stjórnmálaáhrif- um í Afríku sunnanverðri á næst- unni, og eigi ferðalag forsetans að vega upp á móti áhrifum þeim, sem Bandarfkjamenn hafi haft þar með tfðum ferðalögum Kiss- ingers utanrfkisráðherra vegna málefna þessa heimshluta að undanförnu. sagði Davfð að þeirri hugmynd hefði verið hreyft að Tónabær ' yrði rekinn sem klúbbur og fengju ekki aðrir aðgang að staðn- um en félagar þessa klúbbs. Með þessu móti yrði Tónabær ein- göngu starfræktur fyrir reykvíska unglinga en að sögn Davfðs hefur milli 30 og 40% af gestum staðarins sum kvöld verið unglingar búsettir utan Reykja- vfkur. — Þessi hugmynd hefur aðeins lítillega verið skoðuð enn, en stefna ráðsins er að starfsemin í Tónabæ verði eins og hjá öðrum borgarstofnunum ætluð Reykvík- ingum, sagði Davfð að lokum. Guðmundur Einarsson, forstjóri Skipaútgerðar rfkisins, sagði f gær að afgreiðslubann á olíu hefði ekki enn komið að sök hjá Skipaútgerðinni. Hekla og Esja yrðu í áburðarflutningum fram að áramótum og hefðu næga olíu þann tfma. — Tónabær Framhald af bls. 2 leiki snertir verða þeir einkum f formi diskóteks. Æskulýðsráð samþykkti fyrir nokkru samþyKkt þá, sem lögð var fram f borgarráði í gær og sagði Davíð, að samkvæmt henni væri gert ráð fyrir að endurvekja svokallaða Tónabæjarnefnd en sæti í henni ættu að eiga tveir fulltrúar Æskulýðsráðs, forstöðu- maður staðarins og þrír ung- lingar, valdir á sérstaklega aug- lýstri samkomu í Tónabæ. Þá sagði Davíð að Æskulýðsráð legði áherslu á að fjárveitingar fengj- ust til starfrækslu svokalíaðra úti- deilda við Tónabæ og annars stað- ar í bænum. Um starfrækslu Tónabæjar í framtíðinni sagði Davfð, að í sam- þykkt Æskulýðsráðs væri gert ráð fyrir því að stefnt yrði að því að komið yrði upp félagsmiðstöð i Tónabæ, þegar framkvæmdum við félagsmiðstöðina í Árbæjar- hverfi væri lokið. Að síðustu — Hluti olíu- skuldar . . . Framhald af bls. 28 standa skil á sfnum skuldum á gjalddaga, sagði Indriði. — Um olfukaup ríkisstofnana er í gildi samningur við Inn- kaupastofnun ríkisins fra þvf f janúar 1976. Skiparekstur rfkis- ins hefur ekki staðið við ákvæði um greiðslu á olfuúttektum á um- sömdum gjalddaga í samræmi við þessa samninga. A meðan slíkt ástand varir er okkur því nauð- ugur einn kostur að nota samningsbundinn rétt okkar og stöðva afgreiðslu á olíu meðan okkur er neitað um gjaldfallnar greiðslur. Ég leyfi mér þö að vona að ríkisreknu skipin stöðvist ekki af þessari ástæðu, heldur verði gjaldfallin skuld að fullu greidd án frekari dráttar, sagði Indriði að lokum. Pétur Sigurðsson sagði f samtali við Morgunblaðið að varðskipið Óðinn hefði látið úr höfn í gær. Ætlunin hefði verið að bæta við olfubirgðir skipsins, en þegar olía hefði ekki fengizt, hefði skipið haldið úr höfn án viðbótarinnar. Pörupiltar teknir RANNSÓKN ARLÖGREGLAN hefur haft hendur f hári fáeinna pörupilta f Reykjavfk, sem um skeið hafa stundað hnupl og þjófnaði f einum hluta borgar- innar. Hafa þeir m.a. brotizt inn f mannlausar fbúðir, verzlun og staðið að ýmsu öðru hnuplí. Piltarnir eru á aldrinum 12 til 16 ára, og hafa haft ýmis verð- mæti upp úr þjófnuðum þessum, sem þeir hafa síðan reynt að koma í peninga eftir föngum. Þannig stálu þeir til að mynda töluverðu af bókum úr annarri mannlausu íbúðinni og seldu þær síðan og einnig stálu þeir þar segulbandstæki og hátölurum, svo að eitthvað sé nefnt. Rann- sókn málsins er ekki lokið og því ekki að fullu ljóst hversu mikið þýfið raunverulega er. — Margeir Framhald af bls. 28 síðan sex skákmenn með 5 vinninga. Margeir er í 9.—11. sæti með 4,5 vinninga. Alls verða umferðirnar 13, og sagði Margeir f gær að hann væri bjartsýnn á framhaldið og miklar breytingar gætu orðið á röð efstu manna, enda væri mótið aðeins rétt rúmlega hálfnað. Lauk doktorsprófi frá háskólan- um í Manchester NÝLEGA eða hinn 19. nóvember 1976 lauk Þórdfs Kristmunds- dóttir lyf jafræðingur doktors- prófi við háskólann f Manchester f Englandi með ágætum vitnis- burði. Ritgerð Þórdfsar nefnist „Physico-Chemical Studies on Surfactant Solutions". Þórdis lauk esam.pharm.-prófi við Háskóla tslands 1971, en vann síðan f Laugarnesapóteki unz hún hélt til framhaldsnáms við háskólann í Manchester, þar sem hún lauk M.Sc.-prófi í lyfjafræði haustið 1974. Hefur hún nú verið ráðin til kennslu við Háskóla Islands í vetur, en mun f vor taka við kennslu- og rannsóknarstörf- um við háskólann f Manchester. Þórdís Kristmundsdóttir varð stúdent frá Menntaskólanum f Reykjavfk 1968. Hún er dóttir hjónanna Kristmundar Jakobs- snar, yfirsímritara f Gufunesi, og Ástdísar Gísladóttur. Þórdís er gift Eiríki Erni Arnarsyni, klfnfskum sálfræðingi sem qú Þórdfs Kristmundsdóttir vinnur að doktorsverkefni í sálfræði við háskólann f Manchester. Fimmtíu ára afmæli Fram á Skagaströnd UNGMENNAFÉLAGIÐ FRAM SKAGASTRÖND 1926-1976 Forsfðan á afmælisriti Fram. Ungmennafélagið Fram Skaga- strönd á 50 ára afmæli á þessu ári. Félagið hefur minnst þessara merku tfmamóta með ýmsum hætti. M.a. var i fyrsta skipti haldið héraðsmót U.S.A.H. í frjálsum íþróttum á Skagaströnd og um leið tekinn í notkun nýr íþróttavöllur þar. Afmælis- fagnaður verður f félagsheimilinu Fellsborg 29. des. n.k. og eru allir gamlir og nýir félagar hvattir til að koma. I tilefni afmælisins gefur Ungmennafélagið Fram út vandað afmælisrit. I þvf er m.a. ágrip af sögu félagsins, viðtöl afrekaskrá og margt fleira. Þeir sem áhuga hafa á að eignast þetta blað geta snúið sér til Guðmundar Hauks Sigurðssonar, Fellsbraut I, Skagaströnd. Danir reiðir KKI ERIK Melbye, talsmaður danska körfuknattleikssambandsins, er mjög harðorður f garð Körfu- knattleikssambands lslands f við- tölum sem birtust f dönsku dag- blöðunum fyrir jól. Ástæðan er sú að KKl ákvað á sfðustu stundu að hætta við þátttöku f afmælis- móti danska körfuknattleikssam- bandsins, vegna þess hve f járhag- ur sambandsins er bágborinn. Keppni þessi á að fara fram 7.—9. 74 nýstúdentar úr Hamrahlíð MENNTASKÓLINN við Hamrahlfð brautskráði 22. desember sl. 74 stúdenta og voru konur f meirihluta í þessum hópi, þær voru 41, en piltarnir 33. 13 stúdentanna luku prófi frá nýmálasviði, 2 af fornmálasviði, 22 úr félagssviði, 30 af náttúrusviði og 7 úr eðlissviði. Beztum árangri þessa hóps náðu Heiður Baldursdóttir félagssviði, Guðrún Edda Bentsdóttir nýmálasviði, Ástráður Eysteinsson náttúrusviði og Helgi Óksarsson náttúrusviði. i lok janúar verður brautskráður frá Hamrahliðaskólanum allstór hópur nemenda við öldungadeild skólans. Meðfylgjandi mynd er af hinum nýútskrifuðu stúdentum úr Hamrahlfðaskólanum. (Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson). janúar n.k. og auk Danmerkur áttu að taka þátt f henni landslið tslands, Skotlands og Írlands. — Framkoma íslendinganna er fyrir neðan allar hellur, lætur Melbye hafa eftir sér, við vorum búnir að skipuleggja mótið og leggja í mikinn auglýsinga- kostnað er afboð þéirra barst. Þeir segja í bréfi sínu að þótt ekki verði af heimsókn þeirra að þessu sinni vonist þeir eftir því að af- boðið verði ekki til þess að spilla því ágæta samstarfi sem verið hefur milli okkar og þeirra til þessa. — En það verður hægara sagt en gjört að eiga viðskipti framvegis við menn sem greini- lega er ekki treystandi segir Mel- bye. — Sem betur fer vorum við ekki búnir að semja um sjón- varpssendingar frá leik milli Is- lands og Danmerkur í keppni þessari — hefðum við verið búnir af því hefðum við heldur betur setið I súpunni. Melbye segir siðan f viðtölunum ■að danska körfuknattleiks- sambandið sé að reyna að fá lið inn í keppnina í stað íslending- anna, og standi til að safna saman i eitt lið þeim Bandaríkjamönnum sem leika með dönskum liðum, — slikt lið ætti að vera sterkara en íslenzka landsliðið, en samt sem áður missir mótið verulega svip sinn vegna þess að Islendingarnir koma ekki segir Melbye.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.