Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 1
33. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Spánn:
Gleði yfir frelsun
Oriols og Quilis
Madrid 11. desember Reuter-AP.
Fregnin um frelsun Antonios
Marie de Oriols, forseta þjóðar-
ráðsins á Spáni, og Villaescusas
Quilis hershöfðingja, forseta
æðsta dómstóls landsins, úr hönd-
um vinstrisinnaðra öfgamanna
hefur vakið mikla athygli og gleði
á Spáni. Tilkvnnt var f Madrid
sfðdegis f dag, að spænsku lög-
reglunni hefði tekizt að finna
báða mennina heila á húfi og
handtaka marga af mannræningj-
unum, sem eru f öfgasamtökum
vinstrimanna, GRAPO. Oriol var
rænt fyrir 9 vikum, en Quilis
fyrir 3 vikum og höfðu ræningj-
arnir krafizt þess að allir pólitfsk-
ir fangar f landinu yrðu látnir
lausir f skiptum fyrir þá, að öðr-
um kosti yrðu þeir Ifflátnir.
Mennirnir voru ekki i haldi á
sama stað og var Quilis frelsaður
úr prisundinni nokkru á eftir
Oriol. Báðir menn voru sagðir við
góða heilsu, en Quilis, sem hefur
þjáðst af hjartasjúkdómi, var
fluttur i sjúkrahús i öryggisskyni
til rannsóknar. Oriol var hins veg-
ar margar klukkustundir á lög-
reglustöð I Madrid til að skýra
lögreglunni frá fangavist sinni
áður en honum var ekið heim til
fjölskyldu sinnar. Var hann bros-
andi en þreytulegur er hann kom
út af lögreglustöðinni. Hvorugur
mannanna hefur enn sagt frétta-
mönnum fra lífsreynslu sinni.
Ekki var vitað hvort komið hefði
til átaka er mennirnir voru frels-
aðir, en ræningjar þeirra voru
vopnaðir vélbyssum, er þeir námu
þá á brott, Oriol 11. desember og
Quilis 24. janúar.
Skæruliðasamtökin GRAPO
komu fyrst fram á sjónarsviðið í
júlí sl. er þau lýstu sig ábyrg fyrir
sprengjutilræðum viða á Spáni og
sögðust hafa valið nafn sitt „1.
októberandspyrnuhreyfingin
gegn fasistum", eftir að félagar
úr samtökunum myrtu 4 lögreglu-
menn i Madrid 1. október 1975.
Vegatálmanir voru viða uppi i
Madrid og úthverfum meðan
lögreglan leitaði að nokkrum
mannræningjanna, sem komust
undan er tvímetiningunum var
bjargað. Oriol, sem er 63 ára, er
einn af auðugustu iðnjöfrum
Spánar og hann var dómsmálaráð-
herra i stjórn Francos hershöfð-
Framhald á bls 22.
Mengistu
tekur form-
lega völdin
í Eþíópíu
Addis Ababa 11. febrúar. Reuter.
MENGISTU Ilaile-Mariam
ofursti hefur formlega tekið völd-
in í Eþfóptu í sfnar hendur, en
tilkynnt var f Addis Ababa i dag,
að hann hefði verið kjörinn for-
seti herráðs landsins í stað Teferi
Bantes hershöfðingja, sem skot-
inn var til bana ásamt 6 herfor-
ingjum úr hópi stuðningsmanna
hans f blóðugum átökum f stjórn-
arhöll landsins f sfðustu viku.
Atnafu Abate ofursti tekur sæti
Megistus, sem fyrsti varafor-
maður ráðsins. Tilkynning þessi
kom á óvart því talið var að
Mengistu myndi láta velja ein-
hvern formann að nafninu til að
stjórna bak við tjöldin eins og
hann gerði meðan Bante var for-
maður.
Oriol á heimili sínu í Madrid í gærkvöldi ásamt eiginkonu sinni f.h. dóttur og
fjölskyldu. Quilis hershöfðingi. Ljósmyndarar fengu ekki að taka mynd af honum f
gær, þar sem hann var í rannsókn á sjúkrahúsi, en hann þjáist af hjartasjúkdómi.
Sovétríkin:
Grigorenko óttast
fjöldahandtökur
Bandaríkin taka málið upp hjá mannréttindanefnd S.Þ.
Moskvu 11. febrúar NTB-Reuter.
IIINN kunni sovézki andófsmað-
ur Pjotr Grigorenko, fyrrum hers-
höfðingi, sagði f bréfi til vest-
rænna fréttamanna f dag, að hann
teldi að sovézk yfirvöld undir-
Rhódesía:
Skoðanakönnunin
ekki lausn vandans
Salisbury 11. febrúar Reuter.
EKKI hefur verið tekin ákvörðun um hvenær fyrirhuguð skoðana-
könnun Rhódesfustjórnar meðal svartra fbúa landsins um hver leið-
togi þjóðernissinna nýtur mests trausts, verður haldin, en Ian Smith
forsætisráðherra landsins skýrði frá þvf f dag að loknum fundum með
John Vorster forsætisráðherra S-Afrfku, að Vorster hefði lagt blessun
sfna yfir hugmyndina og ásetning Smiths um að leysa vandamál
Rhódesfu með innbyrðissamningum við þjóðernissinna.
Smith vildi ekkert um viðræður
sínar við Vorster segja annað en
að þær hefðu verið vinsamlegar
og gagnlegar og rædd hefðu verið
öryggismál og framtíð Rhódesiu
og að þeir hefðu verið sammála
um hvaða stefnu skyldi taka.
Þetta var fyrsti fundur Smiths
með Vorster frá þvi í september
sl. er hann, eftir fund með Henry
Kissinger þáverandi utanríkisráð-
Framhald á bls 22.
byggju fjöldahandtökur andófs-
manna f náinni framtfð. Segist
Grigorenko óttast að ráðamenn f
Kreml hefðu tekið ákvörðum um
þetta og ætluðu sér þannig að
kveða f kútinn endanlega tilraun-
ir andófsmanna til að benda á
brot Sovétstjórnarinnar á
Helsinkisáttmálanum áður en
framhaldsráðstefnan um öryggis-
mál Evrópu verður haldin f
Belgrad f júnf nk.
Grigorenko, er náinn vinur og
samstarfsmaður visindamannsins
Jurys Orlovs, sem handtekinn var
í gær. Orlov er sem kunnugt er
leiðtogi vinnunefndar andófs-
manna, sem fylgjast með fram-
kvæmd Helsinkisáttmálans i
Sovétríkjunum. Hann var hand-
tekinn síðdegis í gær og síðar
gerðu öryggislögreglumenn
tveggja klukkustunda húsleit
heima hjá honum að því er eigin-
kona hans skýrði fréttamönnum
frá I dag. Orlov er f haldi i
Lefortovofangelsinu í Moskvu en
engin formleg ákæra hefur verið
lögð fram á hendur honum. Tass-
fréttastofan réðst hins vegar
harkalega að honum í dag og sak-
aði hann um ruddaskap og
óhlýðni við yfirvöld. Ta£s sagði að
Orlov hefði verið kallaður á skrif-
stofu ríkissaksóknarans 1.
febrúar sl. og hagað sér þar mjög
Framhald á bls 22.
Bandaríkin:
Sex ára fisk-
veiðisamning-
ur við Japani
Washington 11. febrúar Reuter.
STJÓRN Japans og Bandarfkj-
anna undirrituðu f dag 6 ára
samning um fiskveiðar Japana
undan ströndum Bandarfkjanna
innan 200 mflna fiskveiðilögsög-
unnar. (Jtfærslan tekur gildi 1.
marz nk. Talsmaður bandarfska
utanrfkisráðuneytisins sagði f
dag, að samningurinn myndi taka
gildi eftir að báðir aðilar hefðu
endurskoðað og kynnt sér ná-
kvæmlega framkvæmdahlið hans.
Sem kunnugt er hefur það vald-
ið ýmsum framámönnum i banda-
riskum fiskiðnaði áhyggjum, að
japönsk fyrirtæki hafi undanfarið
keypt sig inn i mörg bandarisk
fiskvinnslu og útgerðarfyrirtæki
til að tryggja að skip þeirra geti
veitt innan 200 mflanna, landað
aflanum i bandarískum höfnum,
þar sem hann verður unnin og
síðan seldur til Japans. Hafa
nokkrir þingmenn á austurströnd
Bandarfkjanna boðað lagafrum-
vörp til að stemma stigu við þess-
ari þróun.
Rússar og EBE ræð-
ast við næstu daga
London 11. febrúar AP.
BREZKA utanríkisráðuneytið
skýrði frá þvf f dag, að Sovét-
stjórnin hefði formlega til-
kynnt, að hún væri reiðubúin
til að taka upp viðræður um
veiðar innan 200 mflna fisk-
veiðilögsögu EBE. Talsmaður
utanrfkisráðuneytisins sagði,
að viðræðurnar yrðu um gagn-
kvæm veiðiréttindi og að Sovét-
menn hefðu gefið til kynna að
þeir gætu fallizt á Brussel sem
fundarstað. Gert er ráð fyrir að
viðræðurnar hefjist næstu
daga. Vandamálið fram til
þessa hefur verið að Sovét-
stjórnin viðurkennir ekki
Efnahagsbandalag Evrópu sem
slfkt, aðeins aðildarfkin hvert
fyrir sig. 1 tilkynningu Sovét-
stjórnarinnar segir, að hún sé
tilbúin til að hef ja viðræður við
Breta sem forsetaþjóð fram-
kvæmdaráðs bandalagsins.
Sovétmenn hafa hins vegar
ekki svarað viðvörunum banda-
lagsins um að þeir verði að
sækja um leyfi til veiða meðan
samningar hafi ekki tekizt, en
leyfistiminn hófst sl. mánudag.
Framhald á bls 22.