Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977 Hrútar búnir litareiötygjum: Merkja ána um leið og þeir lemba „HAGRÆÐING á fengitlma byggist mest á þvi hvort hægt er að treysta hrútnum. Með litareiðtygjunum, sem dr. Ólafur Dýrmundsson hefur kynnt hér á landi, merkir hrúturinn ána um leið og hann lembir hana.“ Þannig komst dr. Stefán Aðalsteinsson, búfjárfræðingur að orði i erindi, um hagræðingarmögu- leika i sauðfjárrækt sem hann flutti á Ráðunautafundi Búnaðarfélags tslands og Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins. Nefndi dr. Stefán framangreint atriði sem eina þeirra nýjunga, er orðið gæti til að létta sauðfjárbændum störfin og beitingu vinnuhag- ræðingu á sauðburði. Sagði dr. Stefán, að með notkun litareið- tygjanna væri hægt að láta hrútana lausa I ærhópnum, sem þeim er ætlaður og skrá á hverjum degi nýmerktar ær. Þess yrði þó að gæta að skipta um iit 1 reiðtygjunum áður en fyrstu uppbeiðurnar koma, svo þær merkist með öðrum lit á seinna beiðmálinu. STARFSMENN Reykjavfkurborgar vinna jöfnum höndum við viðhald á götum borgarinnar og stundum þarf einnig að taka upp leiðslur sem eru úr sér gengnar. Þessa mynd tók Ragnar Axelsson ljósmyndari Mbl. f Aðalstræti. Jarðstödin: Mikla norræna mun eiga 3/8 hluta stödvarinnar Á FUNDI fulltrúa mikla norræna ritslmafélagsins og nefndar sam- gönguráðuneytisins, sem haldinn var s.l. haust, náðist samkomulag um heildaruppkast að samningi milli tslands og Mikla norræna um samvinnu við byggingu og rekstur jarðstöðvar. t uppkastinu Fjögur skip komin yfir 7000 lestir SÁRALtTIL loðnuveiði var I fyrrinótt á miðunum austur af Kambanesi og tilkynntu aðeins fjögur skip um afla til Loðnu- nefndar á tfmabilinu frá kl. 21.30 ( fyrrakvöld fram til hádegis f gær, en leiðindaveður var á miðunum og ennfremur var erfitt að eiga við loðnuna. Syðsti hluti fyrstu loðnugöngunnar sem dreifðist á Hvglbakssvæðinu fyrir nokkrum dögum er hún kom f hlýja sjóinn fannst á ný f fyrri- nótt. Þá varð einn bátur var við torfur ASA af Stokksnesi og Hvftingum og eins var rannsókna- skipið Árni Friðriksson vart við torfur á þessum slóðum f gær- morgun. Jakob Jakobsson fiski- fræðingur sagði f samtali við Morgunblaðið f gær, að nú væri aðeins tímaspursmál hvenær loðnan kæmi upp að landinu, annaðhvort við Stokksnes eða á Lónsbugtinni. Eftir að loðnan er komin upp að landinu við Stokks- nes má búast við að hún gangi vestur með landinu með svip- uðum hraða og siðustu ár og ef svo verður fer hráefni að berast til verksmiðja á sv-horni landsins á næstu vikum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Loðnunefnd í gær voru fjögur skip búin að fá 7000 lestir eða meira. Þau eru Guðmundur RE, sem hefur landað 7850 lestum, Börkur NK með 7640 lestir, Sig- urður RE með 7180 lestir og Grindvfkingur GK með 7040 lestir. eru m.a. ákvæði um að sæsfmi skuli starfræktur til ársloka 1985, að stefnt skuli að þvf að jarðstöðv- arsamband hefjist f ársbyrjun 1979 og um skiptingu tekna milli aðila og innlausn Islands á hluta félagsins eftir 31. des. 1985. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, mun Mikla norræna eiga um 3/8 hluta jarðstöðvarinnar eftir 1985, á móti fslenzkum stjórn- völdum. Á tfmabilinu frá 1979 til 1985 verður reynt að nota sækapalinn eins mikið og hægt er, og sfðan jarðstöðina er álagið á kapalinn er orðið of mikið. I fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu barst i gær frá samgönguráðuneytinu, segir m.a. samgönguráðuneytið hafi þann 4. júni s.l. skipað nefnd til að taka upp viðræður við Mikla norræna ritsfmafélagið um fjarskiptasam- band milli Islands og annarra landa og um nýtt samband um jarðstöð og gerfihnött í stað sæsímasambands nú. Segir að nefndin hafi þrivegis átt viðræð- ur við fulltrúa félagsins, f Kaup- mannahöfn i júlí s.l., i Reykjavik í september og i Kaupmannahöfn i október. Á viðræðufundinum i Reykjavík náðist samkomulag um nokkur meginatriði, þ.á m. um að samvinna yrði um byggingu jarð- stöðvar, sem Island ætti að megin- hluta og að fullu eftir tiltekið árabil, en þangað til rækju aðilar þetta nýja fjarskiptakerfi sam- eiginlega. Þá segir i fréttatilkynningunni, að á fundi ríkisstjórnarinnar í fyrradag hafi verið samþykkt að ganga frá samkomulagi við Mikla norræna ritsímafélagið á grund- velli fyrirliggjandi samningsupp- kasts, með fyrirvara um að sam- þykkt Alþingis fengist við tiltekn- um atriðum, þar sem talið var að vafi léki á, hvort gildandi lög veittu nægilega rúma heimild. Lodnufrysting inæstuviku? Dagu . Akureyri, miðvikudaginn 9. febrúar 1977 jNegri í JÞistUfirdi Landeigandi frá Ghana vetrarmaður í Þistilfírði LOÐNAN úti fyrir Áustfjörðum er enn ekki nógu hrognmikil til þess að hægt sé að taka hana f frystingu. Eftir þeim upplýsing- um, sem Morgunblaðið aflaði sér f gær, þá er loðnan, sem er syðst á veiðisvæðinu, með 10.5 til 11% hrogn, en loðnan úti af Kamba- nesi mun vera með um 8% hrognainnihald. Frystihúsamenn vonast til að hrognainnihald loðn- unnar verði um 12% sfðari hluta næstu viku ef loðnan verður þá komin upp að landinu og að þá verði hægt að hefja frystingu. Ekki er leyfilegt að frysta loðnu á Japansmarkað nema hún hafi náð 12% hrognainnihaldi og aðeins má frysta f hluta af gerðum samn- ingum með þvf magni. Þegar lfð- ur á vertfðina eru hrogn hrygn- unnar orðin um og yfir 20% af heildarþyngdinni og þykir það eðlilega bezta frystingarloðnan. Siðustu daga hefur verið tölu- vert af átu í loðnunni, en menn eiga von á að átan hverfi úr loðn- unni er hún kemur í hlýja sjóinn við SA-land og hverfur hún á mjög skömmum tíma. Siglufjörðun Búa vel að læknum Siglufirði 11. feb. HVORKI meria né minna en 5 læknar eru nú hér á staðnum og erum við þvf óvenju vel sett f þeim efnum um þessar mundir. Tveir læknar eru I nýju heilsugæzlustöðinni, en þeir sinna jafnframt Fljót- unum, 1 skurðlæknir er I bænum, 1 heimilislæknir og 1 tannlæknir. Ibúar eru hins vegar um 2000. — m.j: Alþingi: Jón Sólnes vill leyfa bruggun sterks öls Vegna ummæla Jóns Sólness alþingismanns á Alþingi fyrir skömmu f sambandi við áfengislagafrumvarp sem ligg- ur fyrir þinginu, hafði Mbl. samband við þingmanninn og innti hann eftir því hvort hann hygðist flytja breytingartil- lögu við frumvarpið. Hann kvaðst hafa i hyggju að flytja breytingartillögu þar sem heimiiuð yrði bruggun sterks öls, en hann kvaðst vera að athuga þessi mál um þessar mundir. Engin skýr- ing á fugla- dauðanum í Viðfirði Neskaupstað 11. febrúar ENN hefur engin skýring fengizt á fugladauðanum f Við- firði, en að sögn Ragnars Sig- urðssonar hafnarstjóra er ætlunin að fara til Viðfjarðar og sækja þangað nokkra fugla sem sfðan verða sendir til rannsóknar. Ragnar tjáði fréttaritara Mbl. í dag að i byrjun ársins hefði mikið af svartfugli hrakizt inn i Norðfjarðarhöfn i mikilli austan átt, sem þá var Hefði hann fljótlega orðið var við að margir fuglanna drápust af einhverjum or- sökum. Þegar þetta var var engin loðna farin að berast hingað og engin oliu- eða grútarbrák neins staðar sjáan- leg. Getur Ragnar sér þess til að jafnvel sé einhver pest sem hrjái fuglinn. Ásgeir LIÐLEGA þrftugur Ghana-maður hefur undanfarið dvalið að Gunnarsstöðum f Þistilfirði hjá Jóhannesi Sigfússyni bónda þar. Hefur Áfrfkumaðurinn kynnt sér landbúnaðarstörf, en hann er vetrarmaður hjá Jóhannesi. t Ákureyrarblaðinu Degi segir frá þessu undir fyrirsögninni .JVegri f Þistilfirði" og þar segir enn- fremur að Ghana-búinn sé land- eigandi og sé að búa sig undir kjötframleiðslu svfna og sauða. Þrír sækja um í Hafnarfírði A FIMMTUDAGINN rann út um- sóknarfrestur fyrir prestaköllin f Hafnarfirði, sem auglýst hafa verið laus til umsóknar, Víði- staðaprestakall og Hafnarfjarðar- prestakall. Þrjár umsóknir höfðu borizt um þessi embætti f gær, en þær eru: Um Hafnarfjarðar- prestakall, séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir og sér Gunnþór Ingason, sóknarprestur á Suður- eyri við Súgandafjörð. Um Vfði- staðaprestakall sótti séra Sigurður H. Guðmundsson sóknarprestur á Eskifirði. Framhald á bls 22. Um 100% aukning á útflutn- ingi íslendinga til EBE VIÐSKIPTI tslendinga við hin 9 að- ildarrfki Efnahagsbandalags Evrópu bötnuðu um 7.627 milljónir króna á árinu 1976 miðað við árið á undan. Minnkun á viðskiptahalla íslendinga gagnvart Efnahagsbandalaginu dróst þvf saman um 34,7% milli þessara ára. Mestu mun hér muna um gildistöku bókunar 6, sem tók gildi upp úr miðju ári 1976, við undirskrift landhelgis- samningsins við Breta, sem aftur féil úr gildi hinn 1. desember sfðastliðinn. Útflutningur tslendinga til aðildar- landa Efnahagsbandalagsins jókst á ár- inu um 94,8%. Útflutningur íslendinga til Efnahags- bandalags Evrópu — samkvæmt tölum, sem birtar eru í janúarhefti Hagtíðinda — var á árinu 1975 11.731,3 milljónir króna, en á síðastliðnu ári nær tvöfald- aðist hann og varð 22.854,9 milljónir króna. Innflutningur frá Efnahags- bandalagslöndunum níu, Danmörku, Belgiu, Bretlandi, Frakklandi, Hollandi, írlandi, Italíu, Luxembourg og Vestur- Þýzkalandi, nam árið 1975 33.698,6 milljónum króna, en á síðastliðnu ári nam hann 37.195,2 milljónum króna. Aukningin þar er ekki nema 10,4%. Allar tölurnar sem nefndar hafa verið, eru á útflutningstölum f.o.b. en á inn- flutningstölum c.i.f.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.