Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 13
þess aö vekja hneykslan, nema máski á íslandi! í einni fínustu bókabúð i K.höfn sá ég mynd á bókakápu, sem enginn tók eftir öðrum frem- ur, en hér hefði vísast vakið hat- ramar blaðadeilur. — Á sama tíma og deilt er um fræga sænska úrvals mynd úr lífi Strindbergs, var hér í sjónvarpinu sýnd önnur sænsk mynd i lakasta gæðaflokki og er vart gat talist annað en grófasta klám. Myndir Egils Eðvarðssonar má segja að falli undir erótískar hug- renningar af snoturri gerð. Fágunin gengur máski full langt og hin mörgu smáform virka ósjaldan án sannfærandi sam- tenginar. Undanskildar eru þó myndir líkt og nr. 8 „Aslaug", sem er að auk kröftugust í út- færslu, og mynd nr. 18 „Ég þekkti það strax á hundinum" er mjög heiileg. Ég býst við að nokkrar slikar myndir hefðu vakið óskipta at- hygli á Haustsýningu, en að sjá tuttugu slíkar á einum stað sem hér, er nokkuð einhæft. Egill má þó vera ánægður með sinn hlut og sýningin verðskuldar alla athygli. OBEISLAÐUR FRUMKRAFTUR Á Mokka-kaffi sýnir Stefán Jónsson frá Möðrudal (Stórval) nokkur málverk, er hann hefur gert á undanförnum árum. Hann sýndi fyrir nokkrum árum í Galleríe SUM og verður að viður- kennast, að verk hans nutu sín öllu betur í þeim húsakynnum. Stefáni er þessi iðja sín mjög hjartfólgin og auðsjáanlega eiga grómögn jarðar, á islenzkt lands- lag og hesturinn hug hans og hjarta. Hér er sem fyrr um óbeizl- aðan málunarmáta að ræða, — frumkraft sem Stefán á erfitt með að hemja og stýra, en nær þó á stundum glettilega góðum árangri og víst er, að hann er fáum líkur sem málari og hauk- lyndur drengur. Myndir hans svo sem nr. 16 „Herðubreið" og 17 „Ur Þing- vallasveit“ eru báðar hinar sér- kennilegustu, og þær myndir hefðu sannarlega átt heima á sýn- ingunni „ÖGA MOT ÖGA", sem nú gengur um Norðurlönd og þá trúlega vakið athygli, viti ég rétt. Fleiri athyglisverðar myndir finnast vissulega á sýnginunni, en njóta sín naumast sem skyldi þar í þröngum húsakynnum. Það er vissulega prýði að mynd- um Stefáns Stórval og ekki ónýtt að njóta kjarnamikillar meðferð- ar hrjúfrar íslenzkrar náttúru á þessum ágæta stað. Bragi Asgeirsson. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977 13 Sinfóníutónlelkar Háskólábíó 10. febr. '77. Stjórnandi: Karsten Andersen. Flytjendur: Sinfónfu- hljómsveit íslands, Söngsveitin Fil- harmonía. Einleikari: Lárus Sveinsson, einsöng- vari; Guðmundur Jónsson. Efnisskrá: L. V. Beethoven: Sinfónía nr. 2 i D-dúr. J. N. Hummel: Trompet- konsert í E-dúr. Jón Þórarinsson: Völuspá — tónverk fyrir ein- söngvara, kór og hljómsveit. Á siðustu tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur þeirri nýbreytni verið komið á að skreyta sviðið með blómum Þetta hefur fallið tónleikagestum vel í geð Blómin eru augnayndi og auka á ánægju kvöldsins. Hinn nýi framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar á þakkir skildar fyrir framtakið Önnur sinfónía Beethovens er meðal þeirra hljómsveitarverka hans, sem heyrist hvað sjaldnast nú- orðið. Þótt undirtónn verks- ins sé þrunginn alvöru og þunga, og snöggar og ákafar styrkleikabreytingar visi veginn til þess sem síðar varð, ber sinfónían nokkurn keim af fyrirrennurum hans i sinfóniusmíðum, þeirra Haydns og Mozarts. Strax i þeirri þriðju kveður við dýpri og persónulegri tón. Enda hefur það farið svo, að fyrstu sinfóniurnar hafa fallið i Lárus Sveinsson komu. En önnur hljómkviðan er hugljúft verk, þar sem heiðríkja hins klassiska forms ræður ríkjum Hér tókst flutn- ingur misjafnlega og engan veginn hnökralaust. Óná- kvæmni i tóntaki og hik í upphafi, sem lagaðist þó er á leið, verkaði ekki vel. Strengjasveitin virtist fremur þung, og snerpuna og kraft- inn sem þarf til að bera tröllið Beethoven uppi vantaði. Karsten Andersen, sem leiddi nú hljómsveitina á ný, eftir nær tveggja mánaða hlé, megnaði ekki að mana menn sina til dáða Johann Nepomuk Hummel er nafn, sem ekki sést ýkja oft á tón- leikaskrám. Hann var þó virt- ur og velmetinn á sínum tíma. Hummel var nemandi Mozarts og vinur Beethovens og samdi margt, einkum fyrir pianó, enda sjálfur góður pianisti og talinn undrabarn á það hljóðfæri. Trompet- konsertinn, sem hérvarflutt- ur er áheyrilegt verk, fylgir formúlu hins klassíska stíls, og ber höfundi sinum fagurt vitni. Einleikari var Lárus Sveinsson. Tónn hans er mjúkur og þéttur. Hann mótaði hendingar fallega og músíkalskt og blés konsert- inn af mikilli leikni og ákveðni. Lokaþátturinn, sem gerir strangar kröfur til ein- leikarans, lék hann með sér- stökum glæsibrag Ástæða er til að óska Lárusi til hamingju með góðan árangur. Verk Jóns Þórarinssonar „Völvu- spá'' var samið að tilhlutan þjóðhátlðarnefndar Reykja- víkur og frumflutt á Arnarhóli sumarið 74. Verkið, sem er i fjórum samtengdum þáttum, fylgir hefðbundnum tón- smíðaaðferðum að mestu. Það er vandað að gerð og fagmannlega unnið. Formið er skýrt og heillegt, og tón- listin fellur vel og eðlilega að textanum. Og þó hljóm- sveitarþátturinn sé e.t.v. nokkuð einlitur á köflum, er þess ávalt gætt að gera kór og einsöngvara ekki erfitt fyrir, en gott jafnvægi er þar á milli. Þó virðist undirrituð- um, sem ekki hefur heyrt „Völvuspá" áður, einn staður I verkinu rjúfa nokkuð sam- hengið, en það er, þegar kórinn segir fram „sól tér skugga þeirra, sem á eftir Tðnlist eftir EGIL FRIÐLEIFSSON sortna, sígur fold I mar" o.s.frv. og síðan fylgir bassa- klarinettsóló á eftir, er sem hér var flutt af Sigurði I. Snorrasyni. Rismestur fannst mér lokaþátturinn vera, og einnig var meðferð vísunnar „hittust æsir á Iðavelli" mjög góð þar sem hin kontra- punktiska útvinnsla naut sin vel. Hlutverk Filharmóniu- kórsins var stórt í flutningi þessa verks. Æfingastjórinn, Marteinn Hunger Friðriks- son, hefur auðheyrilega unnið gott verk og er það vel. Það verður þó að segjast eins og er, að kórinn hefur ekki borið sitt barr, siðan stofn- andi og fyrsti stjórnandi hans, dr Robert A Ottósson, féll frá langt fyrir aldur fram, og söngur kórsins hefur tæp- ast þá reisn yfir sér sem oft áður Þarf það raunar ekki að koma á óvart. Sæti dr. Róberts er vandfyllt, og þar er enn skarð fyrir skildi. Margt var hér þó vel gert. Einkum hljómaði lokaþáttur- inn vel. Hjá kórnum má merkja greinilegar framfarir Guðmundur Jónsson gerði hlutverki sínu hin bestu skil að vanda. Það var hressilegt að heyra hann syngja svo undirtók i salnum „hátt blæs Heimdallur, horn eru á lofti". Hlutur hljómsveitarinnar var i flestu góður, og flutningur í heild hnökralitill. Það er fengur að „Völuspá" Jóns Þórarinssonar. Vonandi á verkið eftir að hljóma oft um ókomin ár. BÍLASÝNING Sýnum laugardag og sunnudag frá kl. 1-6 BMW 316 - BMW 320 - BMW 520 Komið og skoðið vinsælu BMW-bílana í húsakynnum okkar að Suðurlandsbraut 20. KRISTINN GIIÐNASON Hl. SUÐURLAN DSBRAUT 20, SÍMI 86633

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.