Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977 FLJOTLEGA eftir að „Rauðu Khmerarnir" báru sigur af hólmi í borgarastyrjöldinni í Kambódíu í apríl 1975, tóku að berast fregnir þaðan um fjölda- morð og hungurdauða. Landið var lokað, og fréttir fáar, nema frá ílóttamönnum, sem streymdu yfir til Thailands eða Vietnams. Margir höfðu að sjálfsögðu hug á að reyna að komast að sannleikanum í málinu, og svo vildi til í september 1975 að tveir þekktir ríthöfundar og blaðamenn sneru sér til aðal- stöðva timaritsins Readers Digest með óskum um að skrá sögu Kambodíu frá stríðslokum á vegum tímaritsins. Þetta voru þeir John Barron, einn af rit- stjórum Readers Digest og höf- undur bókarinnar „KGBiThe Secret Work of Soviet Secret Agents", sem eins og nafnið bendir til fjallar um leyniþjón- ustu Sovétríkjanna, og Ástralíumaðurinn Anthony Paul, sem er ritstjóri Asiuút- gáfu tímaritsins. Fengu þeir sér til aðstoðar aðra starfsmenn tímaritsins til að vinna úr gögn- um og safna frekari upplýs- ingum. Niðurstöður samstarfs þeirra Barrons og Pauls eru birtar i bókinni „Murder of a Gentle Land", sem út er að koma um þessar mundir, en út- dráttur úr bókinni er birtur í febrúarhefti Readers Digest. Er sá útdráttur vægast sagt hrollvekjandi, enda segja höf- undar það yfirvegaða skoðun sína eftir viðtöl við hundruð flóttamanna frá Kambódíu að 1.200.000 karlar, konur og börn hafi látið iífið í Kambódíu á tímabilinu apríl 1975 til desember 1976 vegna aðgerða yfirvalda kommúnista. Máli sínu til stuðnings vitna höfundar í viðtal, sem ítalska tímaritið „Famiglia Cristiana" átti við ríkisleiðtoga Kambódíu, Khieu Samphan, í Colombo á Sri Lanka (Ceylon) í ágúst í fyrra, en þar var Khieu staddur til að sitja ráðstefnu leiðtoga hlutlausra ríkja, sem svo eru nefnd. í viðtali þessu sagði Khieu meðal annars að í fimm ára styrjöld hefði meira en milljón Kambódiubúa fallið. Fyrir styrjöldina hafi íbúa- fjöldinn verið sjö milljónir, en væri nú aðeins fimm milljónir. Blaðamaður spurði Khieu hvað hefði orðið um mismunin á þessum tveimur tölum, eða um eina milljón manna, en Khieu svaraði: Það er furðulegt hve miklar áhyggjur þið Vesturlandabúar hafið af stríðsglæpamönnum. Fögnuður í fyrstu Lýsingar þeirra Barrons og Pauls á hörmungum Kambódíu- búa eftir að Rauðu Khmerarnir náðu yfirtökunum eru átakan- legar, og hefjast 17. apríl 1975, þegar hersveitir kommúnista loks náðu höfuðborginni Phnom Penh. I stríðsbyrjun árið 1970 er talið að um 13% þjóðarinnar hafi búið í borgum, en undir stríðslokin hafði mikill fjöldi íbúa dreifbýlisins flúið til borganna undan sókn Rauðu Khmeranna, og þá talið að helmingur þjóðarinnar byggi á þéttbýlissvæðunum, aðallega í höfuðborginni. Þegar svo sveitir rauðliða gengu inn í höfuðborgina árla morguns þennan vordag fyrir tæpum tveimur árum, þustu margir borgarbúa út til að fagna striðs- lokunum og því, að nú skyldu bræðravíg á enda. Fyrrverandi ríkisstjórn landsins undir for- sæti Lon Nols hershöfðingja hafði verið lítt vinsæl, og aðal- lega kunn af aðgerðaleysi og spillingu. Það var því lítil eftir- sjá í henni, og almenningur reiknaði með að nú yrði snúið við blaði. Að vísu töldu flestir Götumynd frá Phnom Penh Rauðir Khmerar við landamæri Fjöldadráp, sem engínn mélmæltí.. JOHANNES HELGI: GADDAVlR OG GLAPSTIGUR Ameríkubófinn, mynd sú sem svíar gerðu, var hneisa fyrir sjón- varpið, hún var svo skítsleg og vitlaus að engu tali tók. Svona nokkuð flokkast víst undir gadda- vírslitteratúrinn svo kallaða sem svíar hafa ræktað af ákefð og var um tíma næstum búinn að stinga sér niður hér á landi og tröllsleg- ur áróður hafður uppi fyrir ágæti hans, en íslendingar báru gæfu til að hafna þessum vesaldómi. Það hefur sýnt sig að við getum lítið sem ekkert af svíum lært í menn- ingarlegum efnum né þeim upp- klaktir eru í bókmenntastofnun- um þar. En snjóar Hemingways í hlíðum Kilimanjaro og heitt sum- ar Faulkners voru sjónvarpinu til sóma. Vonandi boða þær ágætu myndir stefnubreytingu. Sumar- ást Hrafns Gunnlaugssonar var magnað og mergjað leikrit, á pört- um kannski einum of, fátt um ljósa punkta í lífssjón höfundar- ins — en þeir eru eitt af því sem kemur sjálfkrafa með aldrinum, það gerir snerpan hinsvegar sjaldnast, hún er miklu oftar með- fædd en áunnin; fjölhæfni Hrafns er svo saga út af fyrir sig og eins leikstjórnin á Sumarást, þeir taumar voru í járnhendi Helga Skúlasonar. Nú bíður mað- ur eftir verki frá Hrafni, þar sem fleiri listafleti en þann svarta er að finna. Arndís Björnsdóttir, kennari, talaði skörulega um skattamál yf- ir hausamótunum á þingheimi. Framsetningin var afar einföld, ljós og kröftug. Þarna virðist stór- mikið efni í kvenréttindakonu á ferð. En þau munu mörg börnin sem ekki munu harma það að fá mæðurnar aftur inn á heimilin, þótt ekki væri nema hálfan dag- inn, en það muh bersýnilega leiða af skattalagafrumvarpinu nýja ef að lögum verður lítið breytt. Við höfum nýlega heyrt átakanlega lýsingu Karl Schtltz á því hve stutt leið únglinga á glapstigu er, ef verulegur misbrestur er á hirðu foreldra um börn sín. Til- finningatengsl eru þeir einu taumar sem foreldri getur stýrt barni sínu með á gæfubraut. Aðra tauma þekkjum við ekki. En það er ein af harkalegustu staðreynd- um lífsins, að langoftast fer sam- an lélegt upplag afkvæmis og lé- legir foreldrar, allt leggst þannig á eina og sömu sveif barninu til miska — og afraksturinn er ung- viði kalið á sálinni og einkar mót- tækílegt fyrir alþjóðlegum hat- ursáróðri sem hrópar á byssur og ofbeldi sem hina einu lausn jafnt á persónulegum vanda og vanda veraldar — og glæpahyski, svart og hvítt, fer eins og logi yfir lönd- in. Hevrt &séð KOMEDlA I ÞINGSJA 1 þingsjánni, þar sem þeir ræddust við Sverrir Hermanns- son og Gylfi Þ. Gíslason, prófessor og menntamálaráðherra hálfan annan áratug, urðu óvenjuleg endaskipti á hlutunum. Sverrir sat við hlið Gylfa og smeygði sér umsvifalaust í gervi prófessors sem allra náðarsamlegast og af óendanlegri elskusemi leiðbeinir tornæmum nemanda í einkatíma. Það var ekki hægt annað en að dást að sjálfstjórn Gylfa undir þessari kómedíu sem ruglað hefði margan manninn í ríminu. Ég varð einu sinni vitni að því í þing- sal neðri deildar undir einni stólparæðu Einars Olgeirssonar að þingmaður greip fram í ösku- vöndur: guð gæfi að kjafturinn á þessum manni bilaði. Ölafur Thors gall þá við í ráðherrastól: lappirnar munu bila löngu áður! — Einar varð hvumsa við — en hélt svo áfram; hvorugt bilaði. Sennilega myndi allt bila hjá Gylfa á undan háttvísinni. FJÓRAR SÆNGUR í STAÐ TÓLF Ingvar Gíslason og Magnús Torfi skiptust á sköðunum um frumvarp slðarnefnds um breyt- ingu á skylduskilum bókaútgef- enda til safna. Frumvarp Magnús- ar gerir ráð fyrir fjórum eintök- um í varðveisluskyni — en sam- kvæmt gömlu lögunum, sem eru allt frá tímum konungsveldisins, nema skylduskilin tólf eintökum. Þá þurfti prentleyfi frá konungi — og hann leiddi þessa kvöð í lög. Magnús Torfi var gagnorður að vanda og kom með ágæta samlík- ingu, líkti skylduskilunum, sem ekki eiga sér nokkra hliðstæðu í öðrum framleiðslugreinum, við það að landbúnaðarnefnd alþing- iS leggði á dúntekjubændur þá kvöð að sjá nefndarmönnum fyrir dúnsængum. En þá er að vera sjálfum sér samkvæmur; á fjór- um dúnsængum og tólf — í fríðu — er stigsmunur en ekki eðlis- munur. Ingvar gerir kröfu til sex. Af hverju ekki að varpa ránshefð- inni fyrir róða — og skylda ríkið til að kaupa af útgefendum þann eintakafjölda bóka sem það telur sig þurfa á að halda í varðveislu- skyni? Sængur legata og annarra sjóða lokaðist íslenskum náms- mönnum og listamönnum við sam- bandsslitin við Danmörku — og íslenskir listamenn fengu lítið sem ekkert í staðinn. Það væri sæmra að stofna íslenska sjóði til jafns við þá gömlu dönsku, lista- Hrafn Gunnlaugsson mönnum til framdráttar, heldur en að halda dauðahaldi i ránshefð frá sama tíma. Ég er ekki viss um að menn geri sér ljóst hvílík skatt- heimta — án hliðstæðu — tólf eintaka skylduskilin eru íslensk- um útgefendum. Forlag sem gef- ur út tuttugu titla á ári, algeng tala, afhendir bótalaust tvö hundruð og fjörutíu eintök — að verðmæti rösk hálf milljón króna, fyrir nú utan að sama forlag aflar rikissjóði söluskattstekna að upp- hæð u.þ.b. fimmtán milljónir. Það er ljót staðreynd að ríkissjóður fær meira í sinn hlut af bók en höfundurinn fyrir að skrifa hana. Norðmenn leggja ekki söluskatt á norskar bækur, telja það rangt af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.