Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977 LEIKFÉLAG Vestmannaeyja hefur um langt árabil verið snar þáttur í mannlífi Vestmannaeyja og þrátt fyr- ir böl og alheimsstríð falla ekki niður leikár hjá þeim fremur en að Þjóð- ahtíð Vestmannaeyja falli niður Á þetta hvort tveggja við um eldgos einnig, því hvorki þjóðhátíðin né starfsemi Leikfélags Vestmannaeyja féll niður gosárið 1 973 Við röbbuðum stundarkorn fyrir skömmu við Sigurgeir Scheving leikara og leikstjóra hjá Leikfélagi Vestmannaeyja og Unni Guðjónsdóttur formann LV og gamalreyndan leikara þótt ung sé að árum „Áhuginn hjá Leikfélagsfóiki er mjög mikill," svarðaði Sigurgeir," og í rauninni er það húsnæði sem er til staðar mjög vel nýtt, því það sem helzt vantar hjá okkur er aðstða fyrir leiktjöld og leikmuni Leiktjöldin í Plógi og stjörnum eru t.d. viðamikil og mikið af munum fylgir verkinu Við höfum einnig fengið mikið af gömlum munum gefins eftir gos og eigum því orðið talsvert magn." Unnur „Það er einnig slangur af nýju fólki í starfinu eftir gos, efnilegt fólk " Sigurgeir „Já, við höfum yfirdrif- ið af öllum tegundum og gerðum kvenfólks, en okkur vantar karlleik- ara " Unnur: „Þó höfum við aldrei stað- ið eins vel að vígi hvað karlmenn snertir, en ég hef verið í karlmanna- hraki öll þessi ár," segir Unnur og gamalkunnur hláturhnykkur fylgir á eftir Sigurgeir: „Við höfum hugmyndir um að byggja álmu í austur frá Bæjarleikhúsinu til þess að fá að- stöðu fyrir Leikfélag Vestmannaeyja varðandi leiktjaldaaðstöðu og fleira " í ársbyrjun 1976 sýndi LV Hart í bak við mjög góða aðsókn á 1 1 sýningum undir leikstjórn Unnar og vorið 1 976 tók félagið fyrir Klerka í klípu undir leikstjórn Sigurgeirs og var því verki emnig mjög vel tekið á 9 sýningum Þá má ekki gleyma árvissum hlut LV í Þjóðhátíð Vest- mannaeyja þar sem félagið flytur að jafnaði efni bæði fyrir börn og full- orðna listasprang Eftír Arna Johnsen Unnur: „Síðastliðið haust hófst samlestur hjá okkur á Plógum, en Magnús Axelsson var þá ráðinn leik- stjóri og kennari í 4 mánuði Hafði hann námskeið fyrir 12 manns og stóð það í V2 mánuð Plógurinn var síðan frumsýndur í nóvember og verður tekinn upp aftur nú í vetur og ef til vill förum við með hann til Reykjavíkur Þá settum við Rauð- hettu á svið um jólin og sýningar á þessu ágæta barnaleikriti urðu 8 talsins Magnús Axelsson var leik- stjóri og Sigurgeir Scheving að- stoðarleikstjóri en mikið af margs- konar undirbúningsvinnu lenti á Sigurgeir og ég tel að þetta stykki hefði ekki farið upp ef Sigurgeirs hefði ekki notið við Hann hafði eiginlega veg og vanda af fram- kvæmd málsins. Magnús Magnússon gerði leik- tjöld og Gaui í Gfslholti gerði fugl- ana En í stuttu máli þá er mikill hugur í mönnum " Sigurgeir „Þetta hefur verið mikil törn og sumir hafa nú reyndar farið fram á að við öndum aðeins hægar áður en við förum aftur af stað Alls hafa 50—60 manns starfað á ýms- an hátt með leikfélaginu að undan- förnu og það eru margar hugmyndir á lofti". Unnur „Við slöppum svolítið af í sálinni og stökkvum svo á ný." Sigurgeir: „Þegar áhuginn er mik- ill er líf og fjör og Magnús Axelsson er mjög hugmyndaríkur og útsiónar- samur leikstjóri, driffjöður þegar gefa þarf í." Unnur: „Að okkar mati er Plógur- inn, sem hann leikstýrir, með betri stykkjum sem við höfum farið á svið með og að sjálfsögðu liggur það eitt fyrir að halda áfram." Leikhópurinn sem lék Klerka í klfpu hjá LV f Eyjum f fyrra. Sitjandi frá vinstri: Eydís Ólafsdóttir, Kristín Baldvinsdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Inga Jóhannsdóttir, Sigurgeir Scheving leikstjóri og Ágústa Friðriksdóttir Fyrir aftan standa frá vinstri á miðri mynd: Bergur J. Þórðarson, Sigurgeir Sigurjónsson og Einar Hallgrímsson Á myndina vantar Þorbjorn Pálsson. „Slöppum svolítið af í sálinni og stökkvum svo á ný” Rabbað við leikfélagsfólk í Vestmannaeyjum Sigurgeir og Unnur rifja upp gamlar og góðar stundir með þvf að blaða í einni af leikskrám Leikfélags Vestmannaeyja. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir í Evjum. Laugaland: Tókst ekki að sprengja Jötun lausan „VIÐ höfum gert fjórar sprengi- tilraunir I dag til þess að reyna að losa bor Jötuns", sagði Dagbjart- ur Sigursteinsson, borstjóri á Laugalandi, f samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi, „en það reynd- ist árangurslaust. Við munum þó gera frekari tilraunir með sprengingum, en að öðrum kosti munum við liklega reyna að losa borinn með þvf að bora með rörum utan við stengurnar og þá verðum við að smfða sérstaka krónu á rörendann. Við boruðum á þann hátt um 900 metra niður f fyrra en aðstæður til borunar á þann hátt voru betri þá en þær eru nú.“ Maí sló Danker- sen út 21—14 Moskvu 11. feb., Reuter. SOVÉZKA handknattleiksliðið Mai sigraði v-þýzka liþið Danker- sen í seinni leik Iiðanna í bikar- keppni evrópska handknattleiks- liða í Moskvu i kvöld með 21 marki gegn 14. Mai kemst því áfram með 40 mörk gegn 38, en Dankersen sigraði i fyrri leiknum, 24—19. — Spánn Framhald af bls. 1. ingja. Quilis hershöfðingi er fyrr- um yfirmaður Spánahers og yfir- maður hersins i Madridhéraði. Hann er 64 ára. Rán þeirra voru hluti af mikl- um pólitiskum ofbeldisverkum í landinu, sem Suarez forsætisráð- herra sagði að miðuðu að þvi að grafa undan ríkinu, æsa herinn upp og stöðva lýðræðisþróunina í landinu. 15 mánuðir eru nú liðnir frá því að Franco lézt og Juan Carlos konungur tók við völdum og byrjaði þróunina i átt til lýð- ræðis. I framhaldi af þeirri þróun sótti kommúnistaflokkur lands- ins, sem hefur verið bannaður siðan 1933, í dag um löggildingu stjórnvalda og rétt til að bjóða fram í þingkosningunum, sem fram eiga að fara í vor. Gert er ráð fyrir að á morgun verði nánar skýrt frá björgun Oriols og Quilis. — Þrír sækja Framhald af bls. 3 Þessar upplýsingar fengust á Biskupsstofu i gær með þeim fyrirvara að hugsanlegt væri að fleiri umsóknir gætu enn borizt sem kynnu að hafa verið póstlagð- ar áður en umsóknarfrestur rann út. Þá er einnig runninn út um- sóknarfrestur fyrir Miklabæ í Skagafirði og Melstað i Húna- vatnssýslu. Um fyrra embættið sótti enginn, en séra Oddur Thorarensen sótti um Melstað. Um starf aðstoðar æskulýðsfull- trúa þjóðkrikjunnar á Norður- landi sóttu tveir, Jóhann Baldvinsson og Matthias Gests- son, báðir frá Akureyri. — Rhódesía Framhald af bls. 1. herra Bandaríkjanna, féllst á til- lögur hans og Breta um áætlun um valdatöku blökkumanna í landinu innan tveggja ára. Áætl- anir þessar fóru út um þúfur á Genfarráðstefnunni í desember. Stjórnmálafréttaritarar í Rhódesíu og S-Afriku telja að nýj- ar tillögur um lausn deilunnar í Rhódesíu hafi verið ræddar á fundi ráðherranna, en að engin ákvörðun hafi verið tekin. Frétta- ritarar í Rhódesíu segja að skoðanakönnun eins og su, sem Smith hefur í .hyggju að halda, muni án vafa leiða i ljós, að Abel Muzorewa biskup, leiðtogi sam- einaða afrikanska þjóðarráðsins, njóti mests stuðnings meðal blökkumanna i landinu, en biskupinn hefur lýst því yfir að hann muni ekki semja beint við Smith. Stjórnmálafréttaritarar eru einnig sammála um að þótt Smith gerði samkomulag við ein- hverja þjóðernissinnaleiðtoga myndi það ekki nægja til að binda enda á skæruliðastríðið á landa- mærum landsins, sem hefur kost- að 41 blökkumann lífið sl. 2 daga. —Rússar og EBE Framhald af bls. 1. Anthony Crosland utanrikis- ráðherra Bretlands lýsti því yf- ir, að eftir þann dag myndu sovézk fiskiskip vera ólögleg innan 200 mflnanna ef þau hefðu ekki leyfi. Talsmenn ut- anríkisráðuneytisins sögðu i dag, að EBE vildi ekki deilur við Sovétrikin um fiskveiðirétt- indi en áhyggjur yfir ofveiði Sovétmanna hefðu verið svo miklar að ekki hefði verið hægt að láta málið liggja á milli hluta meðan samningaviðræður stæðu yfir. EBE hefur tilkynnt Sovétmönnum að það hyggist veita 27 togurum þeirra leyfi til veiða innan 200 mílnanna en aðeins 17 í einu. Ekki er vitað til þess að gripið hafi verið til aðgerða gegn sovézkum fiski- skipum innan 200 mílnanna frá þvi á mánudag. Bretar tilkynntu í dag ein- hliða bann við spærlingsveið- um í Norðursjónum undan austurströnd landsins og N- og A-strönd Skotlands. Bruce Millan, Skotlandsmálaráð- herra, sagði í neðri málstofunni í dag að aðkallandi hefði verið að banna hömlulausar veiðar á spærlingi í bræðslu, þar sem veiðarnar stofnuðu i hættu ung- viði af bolfiskstofni. Hann sagði að ákvörðunin hefði verið tekin eftir að Bretar hefðu ár- angurslaust reynt að fá þetta mál f gegn í alþjóða fiskveiði- ráðinu og aðalstöðvum EBE i BrUssel. — Paradísar- heimt Framhald af bls. 40 ins í Hamborg, en Þjóðverjar munu að mestu standa straum af gerð myndarinnar. Til stóð að kvikmyndun færi fram f sumar, en vegna mikils undir- búnings var ákveðið að fresta kvikmynduninni þar til sumarið 1978. Gert er ráð fyrir að íslenzkir leikarar verði f öllum hlutverkum myndarinn- ar, en gert er ráð fyrir að kostnaður við gerð myndarinn- ar verði um 200 millj. fsl. kr. Myndin verður tekin á tslandi, f Bandarfkjunum og væntan- lega f Þýzkalandi eða á Norðurlöndum. Rolf Hádrich, sem vann að gerð kvikmyndahandritsins um Brekkukotsannál, vinnur nú að gerð kvikmyndahandrits um Paradfsarheimt ásamt höf- undinum, Halldóri Laxness. — Sovétríkin Framhald af bls. 1. dónalega, ögrað og móðgað starfs- menn saksóknarans og ekki hlýtt seinni boðunum um að koma á skrifstofuna. Slfkt væri refsivert skv. sovézkum lögum og þvf hefði Orlov verið handtekinn 10. febrúar eins og lög mæltu fyrir um. Refsing við slíkum brotum er 14000 ísl. kr. sekt, endur- hæfingarvinna, eða „þjóðfélags- legar þrýstiaðgerðir“. Orlov, sem er eðlisfræðingur, hefur verið atvinnulaus f 2 ár, eftir að hann var rekinn frá rann- sóknastofnun f Moskvu, er hann varði Andrei Sakarov opinber- lega. Fulltúi Bandarfkjanna hjá mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna skýrði i dag frá þvf á fundi nefndarinnar í Genf, að hann myndi leita álits allra nefndarfulltrúa, en þeir eru 32 talsins, á hugsanlegum aðgerðum í sambandi við handtökur andófs- manna undanfarið í Sovétrfkj- unum. Allard Lowenstein, sem Carter forseti skipaði fulltrúa Bandarikjanna hjá nefndinni, sagði f ræðu að hann vildi ráðgast við fulltrúa um hvað væri bezt að gera „f anda bræðralags og um- hyggju fyrir mannréttindum". Fulltúi Sovétríkjanna, Valerian Zorin, lýsti þegar yfir furðu sinni yfir málinu og sagði að það væri ekki á dagskrá fundarins og nefndin hefði engan rétt til að rannsaka innanrikismál í Sovét- rfkjunum. Carter forseti hefur lýst því yfir, að Bandarikjastjórn verði ekki hindruð í að láta opinberlega í ljós álit sitt á mannréttindamál- um A-Evrópu í leit sinni að bætt- um samskiptum austurs og vesturs. Lowenstein sagði, að hann myndi dreifa spurningalist- um meðal nefndarmanna til að fá hugmyndir þeirra um beztu leiðir til að afla upplýsinga um hand- tökurnar f Moskvu. 53 bandarfskir þingmenn skor- uðu f dag á Carter forseta að krefjast þess að Sovétstjórnin virti ákvæði Helsinkisáttmálans um mannréttindi. Lýstu þeir áhyggjum sínum í bréfi, sem for- setinn fékk, yfir handtöku rithöf- undarins Alexanders Ginzburgs og brottrekstri fréttamanns AP- fréttastofunnar, George Krimskys, frá Moskvu. — Orkunýting forsenda Framhald af bls. 23 Hinn þyrsti og þrjóski fiskiðnaðarmaður Jónas Arnason (Abl) sagði dæmisögu um þyrstan og þrjósk- an fiskiðnaðarverkamann á Vesturlandi. H:nn hefði í ógáti gripið til heitavatnsslöngu til að svala þorsta sínum. Þegar hann hefði orðið var við glott sam- verkamanna sinna, hefði hann sopið aftur á heita vatninu, held- ur en að viðurkenna mistök sín. Þetta væri dæmi um þrjósku og stolt Islendingsins, sem ekki vildi viðurkenna að hafa rangt fyrir sér. Eins hefði farið fyrir iðnaðar- ráðherra. Hann hefði sopið á heitavatnsslöngu Union Carbide. Þvermóðska hans væri slík að nú sypi hann aftur á heitri Elkem- slöngunni, þrátt fyrir fyrri reynslu, heldur en að viðurkenna mistök sín. Jónas sagði að hér yrði þjóðin sjálf að grípa í taumana. Sýnt væri, að þegar slíkt gerðist, samanber mótmæli Eyfirðinga gegn álverksmiðju, lyppaðist stjórnin niður. Þetta gæti víðar gerst. Það væri alls ekki vilji fólks í Borgarfirði að járnblendi- verksmiðja risi á Grundartanga. Jónas sagði hagspekinga gjarn- an sýna fram á ávinninga af stór- iðju, með tölum, bæði um atvinnu og afkomu. En erfitt væri að færa hamingju þjóðarinnar í talnabún- ing. Og hún yrði ekki búin til i stóriðjuverum. Hægt væri að tryggja þjóðinni viðunandi af- komu með þjóðlegum atvinnuveg- um, sem fyrir væru í landinu. Við myndum hinsvegar glata þjóðar- sál okkar, ef stóriðja næði hér fótfestu. Jónas greindi frá andstöðu bænda í Hvalfirði við fyrirhugað línustæði þar og deildi í því efni á takmarkaða mannasiði opinberra stofnana, er að þvi máli störfuðu, í samskiptum við bændur og land- eigendur. Pöntun pöntuð Garðar Sigurðsson (Abl) taldi beiðni Sunnlendinga um álver og höfn tilkomna vegna pöntunar iðnaðarráðherra. Hann sagði að samningurinn um álverið væri þungur baggi á þjóðinni og að fullyrðingar um forystu Magnús- ar Kjartanssonar í stóriðjumálum væru rangar. Alþýðubandalagið hefði frá öndverðu verið andvígt hvers konar stóriðjuviðræðum og framkvæmdum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.