Morgunblaðið - 12.02.1977, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977
VIÐSKIPTI
Umsión: Pétur J. Eiríksson
Bretar framleiða 1/4
olíuþarfar sinnar
Aö minnsta kosti 30 af 56
oliulindum Breta í Norður-
sjó verða farnar að gefa af
sér olíu eða gas fyrir 1980,
segir i opinberri skýrslu,
sem birt var í London á
miðvikudag. í dag er unnið
að framkvæmdum við 14
lindir og áætlanir eru um
að hefja framkvæmdir við
sjö lindir til viðbótar á
þessu ári. Á síðasta ári
hófst olíuvinnsla úr fimm
lindum. Olíuframleiðsla
Breta er nú komin upp í 20
milljónir lesta á ári, sem
samsvarar fjórðungi af
olíunotkun þeirra.
í byrjun næsta áratugar
er gert ráð fyrir að olíu-
framleiðslan verði svipuð
eða meiri en olíunotkun í
Bretlandi. Þungolía og til-
tölulega ódýrar hráolíur
verða framvegis fluttar
inn, en olíur af meiri
gæðum verða fluttar út,
segir í skýrslunni. Bretar
fluttu í fyrsta sinn út
Norðursjávarolíu 1976.
Svíar hallast
ad norskri olíu
SÆNSKA stjórnin hefur
hætt við byggingu olíu-
hreinsunarstöðvar, sem
átti að vera ríkisrekin,
vegna óviss efnahags-
ástands, að því er skýrt er
frá í síðasta hefti tfmarits-
ins Veckans affarer. Þess í
stað ætlar stjórnin að leita
langtímasamninga við
Norðmenn um sölu á olíu.
Embættismenn stjórnar-
innar hafa ekki viljað tjá
sig um upplýsingar blaðs-
ins, og er ástæðan fyrir
þögninni talin vera sú að
þeir vilji ekki flækja við-
ræðurnar um kaup á
norskri olíu.
Olíuhreinsunarstöðin, sem átti
að rísa í grennd við Gautaborg
átti að framleiða 8.300.000 lestir á
ári og sú framleiðsluviðbót hefði
gert Svía óháða erlendum olíu-
hreinsunarstöðvum. Veckans
affárer segir að olíukaup af Norð-
mönnum geti hafist 1978 og geti
magnið komist upp í fimm til sex
milljónir lesta á ári. ■
Fréttin um að hætt sé við olfu-
hreinsunarstöðina kemur í kjöl-
far víðtækra uppsagna f helztu
iðngreinum Svfa, sem stafa af
minnkandi útflutningi og litlum
horfum í efnahagsgrósku. L M
Ericson, sem er stærsta fjölþjóða-
fyrirtæki Svía, metið í starfs-
mannafjölda, hefur lagt til við
veraklýðsfélög að um helmingur
22.000 starfsmanna fyrirtækisins
í Svfþjóð verði aðeins látin vinna
fjóra daga vikunnar og að
minnsta kosti 1.000 verði sagt
upp. Sænski iðnaðurinn býst við
að framleiðsla hans dragist saman
á þessu ári í samræmi við fækkun
starfsfólks. Innan skamms hefjast
viðræður við launþegasamtök um
8% eða hærri launahækkanir.
Svíar hafa í hyggju að taka eins
milljarðs dollara lán á alþjóðleg-
um lánamarkaði f ár til að mæta
samdrættinum.
F jöldi vinnudaga sem
tapast hafa i verkföllum
Kanada,
49000252
20151536
7113127
íbúafjöldi.
Vinnudaga, sem töpuðust I
verkföllum 1 967 til 1974.
HÉR er gerður samanburður á
fjölda vinnudaga. sem tapast
hafa I verkföllum. Stólparnir
sýna fjölda vinnudaga, sem
tapast hafa I verkföllum eða
verkbönnum á árabilinu 1967
til 1974, borna saman við
meðalfólksfjölda á tlmabilinu I
hverju landi. Það þjónar litlum
tilgangi að gera millilandasam-
anburð á heildartölum vegna
mismunandi fólksfjölda. Það
gefur þvl ekki rétta mynd ef
svörtu stólparnir eru bornir
saman. Það er aðeins hægt að
meta þá með hliðsjón af íbúa-
fjölda hvers lands. Talan fyrir
Ísland 823.718 er fengin með
því að draga fjölda atvinnu-
leysisdaga frá heildarfjölda
verkfallsdaga, sem á tímabil-
inu voru tæplega 2,4 milljónir.
(Heimildir: International
Labour Exchange og Hagstof-
an).
Japanír hækka skipa-
framleiðsluverð sitt
JAPANIR ætla að hækka fram-
leiðsluverð sitt á skipum um 5 til
10% og er það fyrsti liður þriggja
liða áætlunar, sem þeir hafa
samið um við evrópskar skipa-
smfðastöðvar, sem miðar að þvf að
draga úr erfiðleikum skipasmfða-
iðnaðarins. Verðhækkunin er
gerð til að beina pöntunum á
nýjum skipum frá japönskum
skipasmfðastöðvum, sem verið
hafa alls ráðandi á heimsmark-
aði, til Evrópu og á að gilda frá 1.
janúar sfðast liðnum til desem-
berloka 1978.
Japönsku stöðvarnar munu
taka hækkunina sem hagnað til að
bæta sér upp hugsanlega fækkun
á pöntunum, að þvf er Muneto
Shashiki, deildarstjóri skipa-
deildar japanska samgönguráðu-
neytisins og formaður samninga-
nefndar Japana, sagði AP frétta-
stofunni. Skýrt var frá áætlun-
inni að loknum þriggja daga
fundi skipanefndar Efnahags-
framfara- og þróunarstofnunar-
innar OECD, á fimmtudag.
Samkvæmt japönskum heimild-
um er talið fullvíst að áætlunin,
sem lögð var fram af Japönum,
feli í sér aðgerðir, sem nægi til að
draga úr straumi pantana til
japanskra skipasmíðastöðva svo
fremi sem Evrópulönd grfpi jafn-
framt til nauðsynlegra hliðarráð-
stafana. Þvf var bætt við að ef
ástandið batnaði ekki f evrópsk-
um skipasmíðastöðvum að ofan-
greindu tímabili loknu, vegna
þess að ekki hefði verið gripið til
nauðsynlegra hliðarráðstafana,
mundu Japanir endurskoða af-
stöðu sína. Munu Japanir hafa
krafist þess að samkeppnisgeta