Morgunblaðið - 12.02.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRUAR 1977
29
Kunnugir minnast þess ekki að jafn margir hafi áður sótt bændafundi 1 Borgarfirði eins og sóttu
fundinn I Borgarnesi sl. mánudagskvöld.
Bændafundur í Borgarnesi:
Afkoma landbúnaðar-
ins ekki einkamál
bændastéttarinnar
HÁTT á þriðja hundrað manns
sótti almennan bændafund,
sem Búnaðarsamband Borgar-
fjarðar boðaði til sl. mánudags-
kvöld í Borgarnesi. Er þetta að
sögn kunnugra fjölmennasti
bændafundur, sem haldinn hef-
ur verið í Borgarfirði er menn
muna. Framsögu á fundinum
höfðu þeir Ilalldór E. Sigurðs-
son landbúnaðarráðherra og
Gunnar Guðbjartsson, for-
maður Stéttarsambands bænda.
Auk þeirra kom á fundinn Agn-
ar Tryggvason, framkvæmda-
stjóri Búvörudeildar S.I.S.
Fundarst jóri var Ragnar Olafs-
son.
Fjörugar umræður urðu á
fundinum að loknum fram-
söguræðum og alis voru fluttar
40 ræður af 26 ræðumönnum.
Mikil og almenn óánægja kom
fram hjá bændum með stöðu
kjaramála stéttarinnar og rikti
samhugur um að fylgja eftir
kröfum um úrbætur.
Ríkisvaldið
tryggi að
bændur nái
sambærilegum
tekjum og
viðmiðunar-
stéttirnar
Fundurinn samþykkti eftir-
farandi ályktanir:
Almennur bændafundur
haldinn i Borgarnesi 7/2 1977,
á vegum Búnaðarsambands
Borgarfjarðar, telur að það
þjóðfélagslega misrétti sem
bændur búa við í kjaramálum
sé algjörlega óviðunandi. Um
mörg undanfarin ár hafa bænd-
ur haft 20 til 30% lægri tekjur
en þær vinnustéttir aðrar, er
skulu hafa sömu tekjur og þeir
samkvæmt lögum.
Fundurinn telur að misrétti
þetta sé ekki einungis skaðlegt
bændastéttinni heldur þjóð-
félaginu í heild, þar sem það
hlýtur að leiða til hnignunar
landbúnaðarins. Bendir
fundurinn á að landbúnaðurinn
sé þjóðarbúinu ekki einasta
fyrir mestum hluta þeirra mat-
væla sem þörf er fyrir í landinu
heldur leggur hann einnig til
hráefni til þess útflutnings-
iðnaðar sem nú er vaxtarbrodd-
ur Islenskrar iðnaðarfram-
leiðslu. Enda er landbúnaður-
inn undirstaða atvinnulifs i
fjölmörgum byggðarlögum og
margir byggðakjarnar byggja
afkomu sina algjörlega á þjón-
ustustarfsemi við landbúnað-
inn og iðnaði úr framleiðsluvör-
um hans.
Fundurinn leggur þvi
áherslu á að afkoma land-
búnaðarins og vandamál eru
ekki einkamál bændastéttar-
innar einnar.
Fundurinn gerir þær kröfur
til rikisvaldsins, að gerðar verði
ráðstafanir til að bændur beri
úr bítum sambærilegar tekjur
og þær stéttir, sem laun þeirra
skulu miðast við samkvæmt lög-
um.
Það verði gert meðal annars
með eftirfarandi:
Við gerð verðlagsgrundvallar
verði tekið fullt tillit til alira
kostnaðarlióa og þeir látnir
koma þar fram eins og þeir
raunverulega eru. í þvi sam-
bandi bendir fundurinn á
kostnað við rafmagn og trygg-
ingar, vexti af fjármagni, fyrn-
ingu og viðhald fasteigna og
lausafjármuna o.fl.
Lánafyrirgreiðsla til siátur-
leyfishafa og annarra er hafa
búsafurðir til sölumeðferðar í
umboði bænda verði stóraukin.
a) Reksturslán verði hækkuð
það mikið að þau nemi 75% af
sauðfjárinnleggi i byrjun
september ár hvert og greiðist
út með jöfnum greiðslum
mánaðarlega frá byrjun hvers
árs.
b) Afurðalán hækki svo fært
sé að greiða bændum 90% af
verðlagsgrundvallarverði við
móttöku vörunnar.
Breytingar búvöruverðs komi
til framkvæmda án tafa ársfjór-
ungslega eins og ákveðið er I
lögum.
Vaxta- og geymslukostnaður
af birgðum landbúnaðarvara
verði greiddur mánaðarlega
samkvæmt birgðaskýrslum.
Viðhöfð verði meiri regla á
greiðslum útflutningsbóta en
var á siðastl. ári, þannig að
dráttur á þessum greiðslum
valdi ekki bændum óþægindum
og tjóni.
Skortur á
hagkvæmu
lánsfé til
stofnunar
búrekstrar
Almennur bændafundur,
haldinn i Borgarnesi 7/2 1977
telur að skortur á hagkvæmu
lánsfé til stofnunar búrekstrar
sé landbúnaðinum ákaflega
hættulegur. Það mikið fé er
bundið I nútima búrekstri að
ekki er á færi félítilla manna að
stofna til slfks atvinnurekstrar
nema þeir hafi aðgang að veru-
legu lánsfé. Vegna hægrar
umsetningar fjármagns i land-
búnaði, verða afborgunarskil-
málar að vera hagstæðir og
vextir hóflegir af lánum til
búreksturs.
Fundurinn skorar á stjórn-
völd að leysa þetta mál með þvi
að tryggja bændum, sem eru að
hefja búrekstur, greiðari að-
gang að lánsfé til kaupa á jörð,
bústofni og vélum en nú er.
Þá mótmælir fundurinn harð-
lega öllum hugmyndum um
aukna verótryggingu á lánsfé
til landbúnaðar.
Almennur bændafundur
haldinn í Borgarnesi 7/2 1977
skorar á landbúnaðarráðherra
að beita sér fyrir því að sett
verði löggjöf er tryggi bændum
aðstoð í veikinda- og slysatil-
fellum þannig að þeir haldi
tekjum sínum hliðstætt og ýms-
ar aðrar stéttir þjóðfélagsins
gera I slíkum tilfellum.
Skattalaga-
frumvarpið brýtur
í bága við
rðtgrðna
réttarvitund
Almennur bændafundur
haldinn i Borgarnesi 7/2 1977
telur að ákvæði í skattalaga-
frumvarpi, þvi sem nú liggur
fyrir Alþingi, um að áætla sjálf-
stæðum atvinnurekendum, þar
á meðal bændum, tekjur til
skatts, brjóti á bága við rót-
gróna réttarvitund og alda-
gamla hefð í skattamálum. Með
ákvæði þessu, ef að lögum yrði,
væri horfið frá því að skattlagn-
ing miðist við gjaldgetu og
efnahag skattþegna en tekin
upp einskonar nefsköttun.
Fundurinn leggur þunga
áherslu á mótmæli gegn þessu
ákvæði frumvarpsins, sem
hann telur að geti leitt til mik-
ils óréttlætis, ef að lögum yrði.
Þá varar fundurinn eindregið
við þeim ákvæðum frumvarps-
ins er virðast miða að skattlagn-
ingu hverskonar félagssamtaka
bænda, sem frá fyrstu tið hafa
verið skattfrjáls og studd á
ýmsan hátt af ríkisvaldinu. Nái
þessi ákvæði fram að ganga
yrði að lita á það sem beina
aðför að félagshyggju i landinu.
— Hin nýja
Jerúsalem
Framhald af bis. 14
maður Swedenborg er, hef ég
talið rétt að kynna sumar skoð-
anir hans rækilegar en venja
mun f venjulegri bókaumsögn,
þegar út kemur á islenzku rit
eftir hann, þvi hann mun ekki
kunnur að ráði hér á landi.
Swedenborg er óvenjulega
rökfastur i guðfræði sinni,
enda telur hann sjálfsagt að
beita skynseminni og þá ekki
sizt við lestur Ritningarinnar.
Hann sýnir í ritum sinum, að
það þarf ekki að vera nein fjar-
stæða að sameina trú og skyn-
semi, þótt uppi séu guðfræðing-
ar jafnvel enn i dag, sem halda
að slíkt geti ekki farið saman.
Ég fagna þessu riti og það er
einlæg skoðun min, að hún geti
orðið íslenzkum prestum að
verulegu liði í útskýringum á
ýmsum trúaratriðum.
Sveinn Ólafsson hefur vand-
að til þýðungu sinnar og gert
ítarlega grein fyrir henni í for-
mála. Bókin er sérlega falleg i
útgáfu bókaútgáfunnar Þjóð-
sögu, sem gefið hefur út ýmsar
athyglisverðar bækur, eins og
t.d. Þráðinn gullna eftir
Natalie N. Banks og
Meistarann og leitina eftir J.
Krishnamurti. Það er bersýni-
legt á vali þessarar bókaútgáfu
að þar ráða ekki fyrst og fremst
gróðasjónarmið. Öll vinna
hennar er sérlega vönduð.
— Kvæðamanna-
félagið Iðunn
Framhald af bis. 15
Kvæðamannafélag Hafnar-
fjarðar kemur i heimsókn sem
venjulega og dans stiginn.
Verðlaunasamkeppni verður
meðal félaga, og er það að geta
upp á, hver verði heiðursgestur
Kvæðamannafélagsins á þessari
árshátíð.
Auk félaganna eru margir
gestir ár eftir ár þeir sömu, enda
allir velkomnir svo lengi sem hús-
rúm leyfir.
Þar sem það er einmitt eldra
fólkið, sem liklegt er að hafi ekki
síst áhuga fyrir svona skemmtun,
er verði stillt svo I hóf, að óliklega
sitja margir heima af þeim ótta.
Ingþór Sigurbjörnsson.
—SLASK
Framhald af bls. 38
Að öðru leyti verður fremur
litið um að vera i handknattleikn-
um um þessa helgi. Alimargir
leikir i yngri flokkunum fara þó
fram um helgina, og að auki verð-
ur einn leikur í 1. deild kvenna
milli UBK og Vikings og fer sá
leikur fram I Garðabæ á morgun
og hefst kl. 17,35. Er þarna um að
ræða viðureign neðstu liðanna 11.
deildinni, og hafa UBK-
stúlkurnar ekki hlotið stig i mót-
inu til þessa. Þá verður einn leik-
ur i 2. deild karla. Fer hann fram
í íþróttahúsinu í Njarðvík á morg-
un kl. 15.45 og liðin sem eigast
þar við eru ÍBK og Fylkir. Eins og
í kvennahandknattleiknum er
þarna um að ræða tvö af neðstu
liðunum i deildinni, og hafa Kefl-
vikingar enn ekki hlotið stig I
keppninni.
— 90% fylgjandi
Framhald af bls. 19
gangurinn væri sá að koma I veg
fyrir frekari uppþot að undirlagi
kommúnista eins og þau sem urðu
I siðasta mánuði, en Sadat telur
að þar hafi verið um að ræða
tilraun kommúnista til valdaráns.
I óeirðunum létu 79 manns
lifið. Komið hefur verið til móts
við kröfur þeirra að nokkru leyti
sem þátt tóku I mótmælunum, en
þau voru vegna verðhækkana
stjórnarinnar. Hér eftir verður
smábændum og láglaunastéttum
ekki gert að greiða skatta, og
viðurlög við skattsvikum verða
hert stórlega.
— Blak
Framhald af bls. 38
UBK og meS sigri i þeim leik er UBK
komiS I úrslit keppni 2. deildar. Á
sunnudaginn verSa svo 2 leikir I
iþróttahúsi Hagaskólans og leika þá
b-liS Þróttar og UBK klukkan 15.00
en fS og UBK I Kvennaflokki klukk-
an 16.30.
Á mðnudaginn leika svo Stlgandi
og Vlkingur á Laugarvatni. Úrslit
þessara leikja virSast fremur Ijós,
óllklegt er aS Stlgandi bregSi út af
venjunni og vinni leik, þrátt fyrir
talsverSar framfarir undanfariS og
má þvf búast viS nokkuS öruggum
sigri bæSi Vtkings og Þróttar. Leikur
stúdenta og Laugdæla gæti hins ve-
ar orSiS taisvert tvlsýnn og ðbyggi-
lega verSur hann spennandi og vel
leikinn.
StaSan I 1. deld karla I blaki er nú
þessi: Þróttur 5 5 0 15— 5 10
is 6 5 1 16— 6 10
Vlkingur 6 4 2 15—10 8
UMFL 6 3 3 13—10 6
UMSE 7 1 6 6—19 2
Stigandi 6 0 6 3—18 0
H.G.
1 1 AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 jnorgtmblaþib
Vorum ad taka upp
enska frúarskó úr
mjúku hanskaskinni
Verð 5.750.-
Skóglugginn h.f.
Hverfisgötu 82
Póstsendum
simi 11788.
Frá Timburverzlun
*
Arna Jónssonar & Co hf.
HÚSGAGNAPLÖTUR — GABOONPLOTUR
með beykispænT 16 m/m 19 m/m 22 m/m
25 m/m
Beykikrossviður 3 m/m 4 m/m 5 m/m 6
m/m
Furukrossviður 4m/mtil 12m/m
Plöturnar fást hjá okkur
Timburverzlun
Árna Jónssonar & Co hf.
Laugavegi 1 48. Simi 1 1 333 og 11420.