Morgunblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977
31
Gudb jörg IS med 690
þúsund króna meðal-
skiptaverðmæti á dag
SKUTTOGARINN Guðbjörg IS
46 frá Isafirði var með hæsta
meðalskipsverðmæti pr. úthalds-
dag á s.l. ári, en sem kunnugt er
er Guðbjörg einn af minni skut-
togurunum. t skýrslu L.l.Ú. segir
að meðalskiptaverðmætið hjá
Guðbjörgu hafi verið kr. 690.000
og skipstjóri á togaranum er
Ásgeir Guðbjartsson. Annar í röð-
inni hvað skiptaverðmæti varðar
var Guðbjartur tS 16 með 639 þús.
kr. Af stærri skuttogurum var
ögri RE 72 með hæsta meðal-
skiptaverðmæti kr. 596.000, sfðan
kom Harðbakur RE 303 með
587.000. kr. og Kaldbakur EA 301
með 562.000. kr.
Guðbjörg IS 46 var einnig með
mestan meðalafla á úthaldsdag
12,6 lestir, næstur í röðinni af
minni skuttogurum var Guðbjart-
ur ÍS 16 með 11,2 lestir og síðan
Gyllir tS 261 með 11,1 lest. Hins
vegar var Ingólfur Arnarson RE
201 með mestan meðalafla á út-
haldsdag af stóru togurunum,
12,1 lest, annar í röðinni var ögri
RE 72 með 11,9 lestir og þar næst
Vigri RE 71 með 11,7 lestir.
Af minni togurunum var Dagný
SI 70 með hæsta meðalverð á kíló,
kr. 57,11, þá kom Guðbjartur ÍS
með 56.94 kr. og Páll Pálsson ÍS
102 með 56,16 kr. Kaldbakur EA
301 var með hæsta meðalverðið af
stóru togurunum kr. 55,26 á kíló,
þá kom Harðbakur EA 303 með
kr. 51,55 á kíló og Svalbakur EA
302 með kr. 48,13 á kíló.
I skýrslu Landssambands ísl.
útvegsmanna um yfirlit yfir afla-
magn, aflaverðmæti og úthalds-
daga togara fyrir s.l. ár, kemur í
ljós að aflahæsti togarinn á árinu
er ögri RE með 4.362 lestir og
ögri er einnig með mesta afla-
verðmætið, kr. 266.084. Guðbjörg
ÍS er með næst hæsta brúttóverð-
mæti afla, kr. 252.366., en heildar-
afli Guðbjargar á árinu var 4.183.
lestir.
65 stiga heitt vatn
úr borholu í Ölfusi
Þorlákshöfn, 10. febr.
BORHOLA sú, sem boruð hefur
verið með bornum Narfa 1 landi
Bakka ( Ölfusi til hitaveitu fyrir
Þorlákshöfn, lofar mjög góðu um
árangur. Holan var loftblásin en
þó ekki nægjanlega. Samt opnað-
ist æð á 465 metra dýpi og upp
kom 65 stiga heitt vatn.
Borað hefur verið I 503 metra
og var þá hætt I bili. Þá er eftir að
vita hvað holan kann að gefa og
hvert hún verður virkjanleg. Þeir
á bornum Narfa eru í 17 daga
verkúthaldi, sem þeir kalla, og ef
þessi hola heppnast og verður
virkjanleg hafa þeir borað tvær
virkjanlegar holur i þessu út-
haldi. Hin holan var boruð á
Hvammstanga. Ef svo fer mega
þeir vel við una afköst, N:rfa-
menn. Holan verður hitamæld á
fimmtudag i þessari viku, en á
mánudaginn á að hef ja boranir að
nýju. Eru miklar vonir bundnar
við það að verkið takist vel.
Ragnheiður.
BENID0RM - KVÖLD
Sunnudaginn 13. feb. kl. 19.30
GRÍSAVEISLA
Sýndar verða myndir frá liðnu sumri.
Hittumst öll og rif jum upp ljúfar minningar.
Ferðaminningar og skemmtiatriði m.m.:
Tískusýning: Karon samtökin
Sæmi og Didda
Baldur Brjánsson
Grín og gleði
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi og á
milli atriða.
Borðapantanir í síma 20221, eftir kl. 16.00. Verð kr.
1.850.-.
Feróamióstöóin hf.
Aóalstræti 9 Reykjavil<
sími 11255
Seffbssbíó
ný og eldgömul
5 manna hljómsveit
HAUKAR
í fyrsta sinn í nýjum búningi
í Selfossbíói í kvöld.
Haukarnir hafa verið
góðir- en a/drei betri
en núna
#
- A þessari stundu -
Nú má engan vanta á þennan
tímamótadansleik Haukanna.
Sætaferðir frá Umferðarmiðstöð-
inni.
Selfossbíó
Diskótek
í Templarahöllinni laugardaginn 12.2 kl.
20.00 — 23.30
Fæddr63 og eldri kr. 300
UTF Hrönn
Dansleikur í
Garðinum
frí kl. 9-2.
Hljómsveitin
ARBLIK
sér um fjörið.
Sætaferðir frá B.S.f. kl. 9.
HLUTAVELTA
ÁRSINS
Hlutavelta í Iðnaðarmannahúsinu við Ingólfsstræti
kl. 2 á morgun. Meðal vinninga er sólarlandaferð,
málsverður á Hótel Loftleiðum auk þúsunda
eigulegra muna. Engin núll.
Stjórn F.R.I.