Morgunblaðið - 12.02.1977, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977
33
félk í
fréttum
+ Það gengur á ýmsu í sjónvarps-
þættinum vinsæla „Húsbændur og
hjú'\ Nú þegar heimasætan er komin
í örugga höfn hjónabandsins fer son-
urinn James að gera foreldrum sinum
lífið leitt. Hann safnar spilaskuldum
sem hann er ekki borgunarmaður
fyrir og á nú von á barni með Söru
fyrrverandi þjónustustúlku foreldra
sinna. Sara trúir vinkonu sinni, Rósu
stofustúlku, fyrir vandræðum sinum
og lofar að tala við James og reyna að
fá hann til að gangast við barninu og
segja foreldrum sinum hvernig komið
er. Þetta gerir James og Belamy
hjónin ákveða að best muni vera að
tala við lögfræðinginn sinn um hvern-
ig komist verði hjá hneyksli.
+ Norski leikarinn Rolv Wesenlund betur þekktur und-
ir nafninu Fleksnes hefur verið ráðinn til leikhússins ð
Álaborg þar sem hann á að leika Leopold I hinni vinsælu
óperettu „Sumar í Týrol. Framkvæmdastjóri leikhússins
Per Pallesen var að því spurður hvort það væri sfgilda
útgáfan af óperettunni sem sýnd yrði, en hann svaraði að
með Fleksnes I aðalhlutverki hlyti hún að verða dálftið
frábrugðin hinni hefðbundnu.
+ Franska forsætisráðherrafrúin Margaret Trudeau hef-
ur sest á skólabekk. Hún hefur látið innrita sig f tveggja
ára nám f Ijósmyndun f Ottawa og sést hér með kennara
sfnum.
+ Þótt þorrinn sé ekki nema
rúmlega hálfnaður hér hjá okk-
ur keppast tískuhúsin í París við
að sýna vor- og sumartískuna, og
þar kennir margra grasa. Síddin
á kjólunum er allt frá mini-
pilsum og niður á ökla og mittið
þarf alls ekki að vera á sínum
stað. Hjá Dior var mikið um víða
kvöldkjóla, hentuga til að leyna
óæskilegum vexti. Pilsin eru
víð, gjarnan plíseruð eða felld.
Þessi tyrkneska buxnadragt úr
silkijersy er frá Dior.
Flugleiðir
tilkynna flutning markaðsdeildar í ný húsakynni
í aðalskrifstofu R-víkurflugvelli. Síminn er
27800.
Morgunblaðið
áskareftir
blaðburðarfólki
Austurbær
Hverfisgata
63—125.
Veturbær
Melabraut
Uppiýsingar í síma 35408
Frá timburverzlun
Árna Jónssonar & Co:hf.
Krossviður
Amerískur, oregonpine krossviður, vatnsþolinn
venjulegur. Þykktir. 3/82 - 1/2"- 5/8"
Vatnsþolinn húdaóur önnur hlið.
Þykktir 3/8" - 1/2"
Vatnsþolinn húðaðar báðar hliðar (steypumóta-
krossviður) Þykktir. 5/8" - 3/4"
Plöturnar fást hjá okkur
Timburverzlun
Árna Jónssonar & Co h/f
Laugavegi 1 48 sími 1 1 333 og 11 420
VIÐTALSTfMI I
Alþingismanna og %
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals i Valhöll,
Bolholti 7 á laugardögum frá klukkan gj
1 4:00 til 1 6:00. Er þar tekið á móti hvers kÍ
kyns fyrirspurnum og ábendingum og er
öllum borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 12. febrúar verða til viðtals:
Geirþrúður H. Bernhöft varaalþingismaður.
Markús Örn Antonsson borgarf ulltrúi, og
Sveinn Björnsson verkfræðingur, varaborgar-
fulltrúi.