Morgunblaðið - 12.02.1977, Side 37

Morgunblaðið - 12.02.1977, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1977 37 TT& VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10 — 11 FRÁ MANUDEGI ‘Inu'i/MTniPL'-uæ'UK mig. Og það í stórum stíl. Sigarett- an er ekki aðeins tóbak, — í þessu formi styttir hún líf manna mjög og deyja tugþúsundir manna á ári hverju. En áróðurinn heldur áfram og bjargar mörgum úr þrældómi tóbaksins, þessu eitraða efni, sem leggur iíkama reykinga- fólks i rúst smátt og smátt. Likam- inn er farartæki okkar sjálfra hér á jörð og þess vegna ættum við að fara vel með hann eins og maður sem fer vel með bílinn sinn. Allir vita það nú hvaða hættur stafa af reykingum og þarf ekki að taka það fram hér. Með reykingum leggst myrkrið hægt og hægt yfir, það kvöldar og nóttin er í nánd, likt og á frost- hörðu vetrarkvöldi. En það birtir á ný og eins er það ef hætt er að reykja timanlega. Sólin rís og vermir kalda jörð eins og sá gæti gert fyrir líkama sinn ef hann segðí skilið við reykingar. Sýnum áróðursmönnum þakk- læti fyrir verk þeirra, virðum rétt þeirra sem ekki reykja og förum að fordæmi þeirra. Með þökk fyr- ir birtinguna. Einar I. Magnússon." % Hvert eigum við að fara? „Ég hef áður spurt þessar spurningar, hvert við, aldurs- flokkurinn 17—20 ára eiguni að fara til að skemmta okkur, hitta kunningjana og dansa. Við reyn- um að halda partý, en þá kemur einhver og kvartar undan hávaða eða jafnvel lögreglan er kvödd á staðinn til að lækka niður í fólk- inu. Sjónvarpið hefur engan þátt fyrir okkur sérstaklega og varla er horfandi á það. Utvarpið hefur lög unga fólksins einu sinni í viku og á þann þátt er varla hlustandi vegna „stææanna" sem fylgja hverri kveðju. Einhver myndi spyrja: Hafið þið ekkert áhuga- mál annað en að fara á böll? Jú, auðvitað eigum við nóg önnur áhugamál, eins og t.d. alls konar iþróttir, dans og ferðalög og margt annað, en hvar er hægt að sinna þessum áhuganálum, t.d. á laugardagskvöldi? Það er furðulegt að giftingar- aldur stúlkna skuli vera 18 ár en pilta 20 ár og ef þau eru gift kemst hann inn á skemmtistaði en ekki hún. Furðulegt fyrir- komulag. Ef einu vinveitingah úsinu yrði breitt i stað fyrir okkur (þar sem ekki yrði selt vín) þá yrði ekki eins mikill gróði af húsinu og er þá peningagræðgin númer 1 í þessari borg? Erum við kannski verri gestir á skemmtistöðum heldur en 20 ára fólk og eldra? Ef svo er þá hvers vegna? Eg tek undir orð Sveins Sveinssonar í dálk Mbl. 27.1. s.l. um að leggja inn á sjóðsbók fyrir æskuna og ef ég hef skilið orð hans rétt þá getum við (ég og fleiri) farið niður í Alþýðubanka og lagt inn á Æskulýðssjóð. Ég vona að undirtektir verði góðar. Þá vona ég að einhver fróður maður í þessum málum gefi mér og fleirum svör við minum sprun- ingum og segi mér einnig hvers vegna sé gert upp á milli okkar. (15—16 ára hafa Tónabæ, 17—20 ára ekkert og 20 ára og eldri dans- og vínveitingahúsin). Með fyrir fram þökk fyrir birti bréfið og tekur undir þau orð að einhver fróður taki að sér að veita svör við þessum spurningum. Bíblíudagunnn á sunnudag HINN árlegi biblíudagur er á sunnudag 13. febrúar n.k. og er tilgangur hans að vekja athygli á gildi Ritningarinnar og styðja starfsemi Hins íslenzka bibliu- félags. Bibliufélagið starfar á hliðstæðan hátt og systurfélög þess erlendis, að styðja og efla útgáfu Biblíunnar, hérlendis og erlendis eftir þvi sem kostur er. Framlögum til Biblíufélagsins verður veitt móttaka við guðs- þjónustur á sunnudaginn og að lokinni guðsþjónustu I Háteigs- kirkju I Reykjavlk, sem hefst kl. 14:00 verður haldinn aðalfundur félagsins. Þessir hringdu . . . 0 Búðarhnupl Nærgöngul: —Það hefur verið nokkuð til umræðu að búðarþjófnaðir væru farnir að verða algengir og mun það satt vera. Það er vissu- lega hörmulegt til þess að vita að fullorðnir menn skuli ganga um bæinn eins og gráir kettir og stela í stað þess að fara að vinna. En þetta hefur verið opinbert leyndarmál alilengi, — hægt er að drýgja tekjur sínar með ýmsu móti. Heyrt hef ég t.d. um fólk hér í borg þar sem maðurdur og i virðingarstöðu en tímir ekki að SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á heimsmeistaramóti unglinga 1976, sem fram fór um síðustu áramót I Groningen i Hollandi, kom þessi staða upp í skák Vladimirovs, Sovétrikjunum, sem hafði hvítt og átti leik, og Marrer- os frá Puerto Rico! m m t E. mM Hi pH % wm Wmk i i m i A H i H ■ i ■ mm HJI mm 9 §J & §§ & W/ vl B £ 11 fw Bl fi 17. Rcd5! — Bxb2?, (Meiri mót- stöða veitti 17. ..Bxd5) 18. Hc8H og svartur gafst upp, því að eftir 18.. Dxc8, 19. Rxe7+ tapar hann drottningu sinni án nokkurra gagnmöguleika. Vladimirov hiaut 7 vinninga úr 8 fyrstu skákunum og var lang- efstur, en siðan skeði hið óvænta, hann hlaut aðeins ll/í vinning úr 5 síðustu umferðunum og varð þar með af efsta sætinu. Heimsmeist- ari unglinga 1976 varð Banda- ríkjamaðurinn Mark Diesen. kaupa blóm. Hin fina frú hans leggur stundum leið sina i kirkju- garðinn eða sendir börn sín þang- að. Þannig drýgir hún tekjur heimilisins en á nokkuð vafasam- an hátt. Blómin sem fást í kirkju- garðinum eru svo notuð til skreyt- inga eða gjafa handa kunningj- um. Allir geta ímyndað sér hvað fyrirmynd barna og unglinga kann að hafa í för með sér. Hvað finnst þér lesandi góður? Og frá þeirri spurningu lítum við á næsta mál — um # Leirkeragerð Forvitin: — Mig langar til að spyrja um það hvort það sé ekkert eftir- lit með leirkeranámskeiðum, hvort ekki séu í gildi ákveðnar kröfur um húsakost, fjölda nem- enda á kennara o.s.frv. Einnig hvort það sé ekki rangt að auglýsa sex vikna námskeið, sem siðan stendur yfir í aðeins tvær vikur og hvort fólk eigi þá ekki rétt á endurgreiðslu fyrir þann tíma sem ekki var kennt.— Vorum aó taka upp nýja sendingu af hinum þekktu Arauto barnaskóm Teg I. st. 18 — 23 Litur: rautt og brúnt Verð: 3.440. Teg. II st. 19 — 23 Litur: dökkbrúnt Verð: 3.240 - Teg. III st. 21 — 25 Litur brúnt Verð: 2.993 - Teg.IV st. 28 — 36 Litur: rauðbrúnt Verð: frá 3.986 - Teg. V Tvílitir: dökkbrúnt og Ijósbrúnt Verð: frá 4.734. Skóglugginn h.f. Hverfisgötu 82 Póstsendum Simi 11788. HOGNI HREKKVISI Hvar er sjerríið í súpuna? a 1 1 I 1 I I I I I 1 1 1 I I I 1 I I I I i ALLT MEÐ EIMSKIP A NÆSTUNNI FERMA SKIP VOR TIL ÍSLANDS SEM HÉR SEGIR: ANTWERPEN: Grundarfoss 14. febrúar. Tungufoss 23. febrúar. Úðafoss 28. febrúar. Grundarfoss 7. marz. ROTTERDAM: Grundarfoss 1 5. febrúar. Tungufoss 22. febrúar. Úðafoss 1. marz. Grundarfoss 8 marz. FELIXSTOWE: Dettifoss 1 5. febrúar. Mánafoss 22. febrúar. Dettifoss 1. marz. Mánafoss 8. marz. Dettifoss 1 5. marz. HAMBORG. Dettifoss 1 7. febrúar. Mánafoss 24. febrúar. Dettifoss 3. marz. Mánafoss 10. marz. Dettifoss 1 7. marz. PORTSMOUTH: Bakkafoss 14. febrúar. Selfoss 1 6. febrúar. Brúarfoss 1. marz. Bakkafoss 7. marz. Goðafoss 22. marz. HALIFAX: Brúarfoss 4. marz. KAUPMANNAHÖFM: írafoss 1 5. febrúar. Múlafoss 22. febrúar írafoss 1. marz. Múlafoss 8. marz. írafoss 1 5. marz. GAUTABORG: írafoss 1 6. febrúar. Múlafoss 23. febrúar. írafoss 2. marz. Múlafoss 9. marz. írafoss 1 6. marz. HELSINGBORG: Álafoss 21. febrúar. Álafoss 7. marz. KRISTIANSAND: Álafoss 22. febrúar. Álafoss 8. marz. STAVANGER: Álafoss 23. febrúar. Álafoss 9. marz. ÞRÁNDHEIMUR: Álafoss 24. febrúar. GDYNIA/GDANSK: Reykjafoss 28. febrúar. VALKOM: Reykjafoss 24. febrúar. VENTSPILS: Reykjafoss 22. febrúar. WESTON POINT: Kljáfoss 1 5. febrúar. Kljáfoss 1. marz. iReglubundnar ferðir ihálfsmánaðarlega jfrá; STAVANGER,§j KRISTIANSAND + OG IHELSINGBORG, I ALLT MEÐ EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.