Morgunblaðið - 15.05.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAl 1977
3
Raunveruleg peninga-
lykt i Austurstræti
ÞAÐ VAR ekki laust við að
einhverjir teldu sig finna
„peningalykt" i Austurstræti á
fimmtudagsmorgun og þar á
meðal var Ijósmyndari Mbl.
ÓI.K.M., sem tók þessar mund-
ir. Þegar málið var athugað
kom i ljós, að þarna hafði verið
um raunverulega peningalykt
að ræða, þvf þeir hjá Seðla-
bankanum voru einmitt að
brenna ónýta peningaseðla.
Seðlabrennsla fer fram að
jafnaði tvisvar i viku og eru
yfirleitt brenndir um 40.000
seðlar í einu, þannig að um
80.000 seðlar brenna i viku
hverri að jafnaði. Oftast eru
það 100-króna seðlarnir, sem
verða eldinum að bráð, en
röskur helmingur seðlamagns-
ins, sem í umferð er, eru 100-
króna seðlar og þeir endast
ekki nema í um ellefu mánuði.
500-króna seðlabrennur eru
sjaldgæfari, því þeir seölar
endast í tólf til þrettán mánuði
og allrasjaldgæfustu seðlarnir
á bálinu eru 5000-króna
seðlarnir, því þeir endast að
jafnaði í hálft fjórða ár.
Fyrstu útgerð-
artæknarnir
brátt útskrifaðir
1 LOK maí-mánaðar verða fyrstu
útgerðartæknarnir brautskráðir
frá Tækniskóla Islands. Á siðast
liðnu hausti innrituðust 24
nemendur til náms í útgerðar-
tækni við skólann, en námið er
skipulagt sem eins árs hraðferð
fyrir sjómann með stúdentspróf
eða raungreinardeildarpróf, en
það tekur eitt og hálft ár fyrir
stýrimann þriðja stigs og lengur
fyrir menn með minni almenna
menntun. 11 nemendur stunda nú
nám f 2, og 3. hluta og verða þeir
útskrifaðir hinn 27. maf n.k.
Náminu er skipt í tvo þætti,
annars vegar útgerðarfræði og
hins vegar rekstrar- og viðskipta-
fræði. Af helztu námsgreinum má
nefna bókfærslu, þjóðhagfræði,
fiskhagfræði og rekstrarhag-
fræði, reksturstækni og greinar
tengdar rekstursþættinum, t.d.
lögfræði og tryggingamál o.fl.
Stjórnskipuð nefnd undir forystu
Magnúsar Gústafssonar, tækni-
fræðings, gerði tillögur um náms-
efni og hófst kennsla i hinni nýju
deild á s.l. hausti.
Rithöfunda-
sjóður Islands
úthlutar
styrkjum
STJÓRN Rithöfundasjóðs tslands
ákvað á fundi sfnum 10. maí s.l.
að úthluta eftirtöldum 14 rithöf-
undum f viðurkenningarskvni
250 þúsund krónum hverjum um
sig: Ármanni Kr. Einarssyni,
Baldri Óskarssyni, Filippfu
Kristjánsdóttur (Hugrúnu), Geir
Kristjánssvni, Hrafni Gunnlaugs-
syni, Hreiðari Stefánssyni,
Ingólfi Jónssyni frá Prestsbakka,
Jóni frá Pálmholti, Kristjáni frá
D júpalæk, Kristmanni
Guðmundssyni, Pjetri Hafstein
Lárussvni, Sigvalda Hjálmars-
syni, Þorvarði Helgasyni og
Þórunni Elfu Magnúsdóttur.
Þá hefur stjórn Rithöfunda-
sjóðs íslands ákveðið að veita
Hirti Pálssyni, rithöfundi, J00
þúsund krónur til dvalar á
Norðurlöndum sbr. fjárlög fyrir
árið 1977. Einnig er þess getið i
frétt frá Rithöfundasjóði Islands
að menntamálaráðherra hafi sett
reglugerð fyrir Rithöfundasjóð
Islands um almenningsbókasöfn.
Stjórn sjóðsins skipa nú: Runólf-
ur Þórarinsson, stjórnarráðsfltr.,
Kristinn Reyr, rithöfundur, og
Ingimar Erlendur Sigurðsson, rit-
höfundur.
Notið bezta ferðatímann
Dragið ekki að panta. Flestar Útsýnarferðir eru að seljast upp
Costa Brava:
VERÐ FRÁ KR. 61.200 í 3 VIKUR
BROTTFÖR:
Maí: 20 Jún. 10 Júl: 1., 15. og
Ág: 12., 26. Sept: 2 , 9.
Costa del Sol
VERÐ FRA KR. 62.700 í 3 VIKUR
BROTTFÖR:
Maí: 8., og 29. Jún: 1 9.
Júl: 3., 17., 24. og 31.
Ág: 7., 14., 21. og 28.
Sept: 4., 11., 18. og 25. Okt: 9
Italía Lignano:
VERO FRÁ KR.: 63.400 í 3 VIKUR
BROTTFÖR:
Maí: 1 1 Jún: 1.
Júl: 6., 13., 20. og 27. Ág.: 3.,
10., 17., 24. og 31 Sept : 7.
BROTTFÖR 31. MAÍ
Napolí — Caprl —- Sorrento — Pompei —
Róm — Assisl — Flórenz — Siena — Pisa —
Ravenna — Feneyjar — Lignano.
Einstakt tækifaeri til að kynnast markverðustu
stöðum og fágætum listfjársjóðum Ítalíu, undir
leiðsögn kunnugs fararstjóra. 5 sæti laus.
AUSTURSTRÆT117, SIMI26611
Fe rða skrif stof a n