Morgunblaðið - 15.05.1977, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1977
OKI
NX-5 Ratsjá
Oki NX-5 er 24 sjómílna ratsjá
með 12’’ rétthyrndum mynd-
skerm sem gefur bjarta og
skýra mynd 28 sjómílur fram
og aftur, 5 Kw sendiorka og er
sérstaklega byggður fyrir
mikinn hristing.
Skrifið, hringið eða komið,
sendum allar upplýsingar um
hæl.
Viðgerða-
og varahlutaþjónusta.
Friðrik A. Jónsson h.f.
Bræðraborgarstíg 1,
Símar 14135 - 14340.
Landsmót
skáta 1977
ERT ÞÚ BÚINN
AÐ SKRÁ ÞIG?
Sumarbústaður
Sumarbústaður til sölu tilbúinn til flutnings.
Mjög hagstætt verð.
Upplýsingar í síma 51 002, og 421 92.
I S'./,
mo-JD ijfj
Merkir íornleifaíuníir í Svrlaníi:
Fyrir um það bil fjórtán árum
gerðist það I Tell Mardihk f
Norður-Sýrlandi, að bóndi nokkur
rak plóg sinn f stein mikinn á akri
sfnum. Við uppgröft kom f Ijós, að
hér var um að ræða korntunnu frá
tfma Abrahams, um 1800 fyrir
Krists burð. Bandarfskur fornleifa
fræðingur, prófessor við háskól-
ann f Michican, David Noes
Freedman, sagði um þennan
atburð, að hann væri einn merk-
asti fornleifafundur þessarar kyn-
slóðar og kannski aldarinnar.
En þessi uppgötvun hafði ekki
mikil áhrif f Sýrlandi. Þar hafa
áður fundizt merkar fornminjar og
ef sérhver gamall hlutur yrði rann-
sakaður með spaða fornleifafræð
ingsins, yrði hálft landið grafið
upp og reyndar virðist stundum að
svo hafi verið. Þetta varð þó til
þess, að nýútskrifaður kandfdat úr
Rómarháskóla, sem lagt hefur
stund á sögu Austurlanda nær,
Paulo Matthiae, fékk áhuga á að
athuga þetta nánar. Ekki aðeins
vegna þess sem fundizt hafði,
heldur fremur vegna þess hvar
það hafði fundizt. Allmikið af forn-
leifum hefur fundizt á svæðinu og
hann áleit að Tell Mardihk hefði
yfirfleiri leyndarmálum að búa.
Tell Mardihk, sem nær yfir 140
ekra svæði, var í þjóðbraut ferða-
manna, verzlunarmanna og her-
manna, sem fóru um löndin að
fornu og er t.d talið mjög víst, að
Abraham hafi farið þar um er hann
var á leið til Kanaanslands. Það líkist
mjög Tell Hariri, skammt frá landa-
mærunum við írak hjá Efrat, sem
franskir vtsindamenn rannsökuðu á
millistríðsárunum, og fundu þá
gamla borg, Mari. „Leitið og þér
munuð finna" er aðferð, sem forn-
leifafræðingar hafa stundum farið
eftir, sérstaklega þeir, sem rannsaka
sögu Biblíunnar, en Matthiae var á
verði og ætlaði ekki að láta neitt
hlaupa með sig í gönur. Árið 1 964
fór hann til Sýrlands ásamt litlum
aldar-
innar
-segja
fornleifa-
fræðingar
komið niður á þúsundir leirtaflna,
sumum vel raðað upp, öðrum brotn-
um og orðnum að hálfgerðu dufti.
Þetta var það athyglisverðasta, sem
fundizt hafði til þessa og allir þeir
hlutir, sem þeir höfðu fundið áður,
brons-, gull- og leirhlutir nærri því
gleymdust Ekkert er mikilvægara
forleifafræðingi en hið ritaða orð og
hér var næstum heilt bókasafn.
Prófessor Giovanni Pettinato, mál-
fræðingur, sem hafði verið með á
rannsóknum þessum, hélt fyrst að
hér væri um að ræða mál af súm-
erskum toga, en við nánari athug-
anir bentu fleiri atriði til þess að hér
væri um semitískt mál að ræða Og
þetta reyndist ekki aðeins semitásk
mállýzka heldur nýtt tungumál sem
Pettinato nefndi Eblaisku og þar
með var leyndardómur Ebla ráðinn.
Hann er á þeirri skoðun, að þegar
lokið verður við að grafa upp allt
Ebla-ríkið verði að endurrita alla
sögu Sýrlands. Það hefur verið mun
stærra og áhrifameira en hingað til
hefur verið haldið fram.
Ebla var verzlunarríki, til þess
bentu flestar af þeim rituðu töflum,
sem tekizt hefur að lesa af. Þar er
talað um flutninga. kornbirgðir,
verðlistar hafa fundizt, sem líkjast
mjög nútímaverðlistum. Timbur,
vefnaður og málmtegundir voru
verzlunarvörurnar og viðskipta voru
við Gaza, Hazor og Megiddo og
hugsanlega Jerúsalem
Árið 2300 fyrir Krist var Ebla
hernumið af Naram Sin, konungi
Akkad, en það náði aftur fyrri
völdum og áhrifum. Sjö öldum síðar
gerðu Hittítar innrás og brutu Ebla
niður, sem hefur síðan verið týnt
fram til þessa Konungsríkið Ebla er
því talið hafa varað í um 1000 ár og
var blómaskeið þess snemma á
þriðja á.rþúsundinu fyrir Krist undir
stjórn Eberum konungs. Pettinato
heldur því fram að Eberum sé Eber,
sem nefndur er f fyrstu Mósebók,
afkomandi Nóa og forfaðir
Abraháms og þar með forfaðir Gyð-
inga.
Giovanni Pettinato máffræðingur athugar hér Ebla-töflumar.
hópi fornleifafræðinga og hóf upp-
gröftinn.
Fyrstu misserin fannst borgarhlið
og girðing. sem virtist hafa verið
umhverfis stóra borg og síðan komu
leiðangursmenn niður á kornhlöður,
regnþró, heimili, musteri og
smiðjur, hluti úr leir fundu þeir,
bronzi og gulli og benti þetta til
fremur auðugs samfélags 40.000
manna frá gömlum tíma. En þetta
voru allt þögul vitni, því áletranir
voru fáar. En 1968 fundust fleiri
áletraðrar töflur og á einni þeirra
orðið Ebla
Ebla kemur fyrir í ýmsum ritum
frá Egyptalandi og Mesópótamíu allt
frá 3. árþúsundi fyrir Krist og var
það voldugt konungsríki og
verzlunarmiðstöð, en fræðimenn
hafa ekki verið á eitt sáttir um hvar
Ebla hafi verið Matthiae taldi að
það væri einhvers staðar í Norður-
Sýrlandi, en hafði ekki þorað að
vona að hann væri á réttum stað. En
hér var komið gamalt menningarríki
og orðið Ebla En hann vildi frekari
staðfestingu og uppgrefti var haldið
áfram.
Sex árum síðar fann einn manna
hans, sem var að hreinsa gólf, holu í
því og þegar holan var stækkuð var
Ebla töflurnar, sam geymdu áður
óþekkt tungumál
Á Ebla-töflunum eru líka nöfn,
sem hingað tel hefur verið haldið að
ættu uppruna sinn í Gamla testa-
mentinu, t.d. Ab-ra-mu, Abraham,
E-Sa-Um, Esau, Sau-Lu, Sál og Dau-
U-Oum, Davíð
En athuganirnar við Ebla standa
enn yfir og þeim verður ekki lokið •
bráð í ágústmánuði í sumar mun
Matthiae prófessor ásamt mönnum
sínum halda áfram athugunum, nú
fjórtánda sumarið í röð Og þeir
halda því fram, að þarna séu verk-
efni næstu 20 árináviðbót, svo það
gefur nokkra hugmynd um hversu
umfangsmikið starf er fyrir höndum.
Vinnan hefst kl 6 á morgnana, í
birtingu, og er haldið áfram fram á
kvöld. Allir hlutir, sem eru grafnir
upp, eru teknir og hreinsaðir og
síðan eru þeir flokkaðir og reynt að
aldursgreina þá Gestur, sem kæmi
til Tell Mardihk, gæti haldiðað þessi
hópur fornleifafræðinga, sem þar
starfaði, væri að dunda við að raða
saman „púsluspili" og má segja að
það sé rétt, þarna er verið að týna
saman brot úr sögunni'og raða þeim
saman
(Endursagt úr Observer-grein
C. Bermants)
10%/. /.oi / y/w