Morgunblaðið - 05.08.1977, Síða 3

Morgunblaðið - 05.08.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. AGÚST 1977 3 Þýzkur irmbrotsþjófur framseldur héðan 1961 eftir að hafa stofiiað varðgæzlufyrirtæki hér í JANÚARMÁNUÐI 1961 komst upp um vestur þýzkan afbrotamann í Reykjavlk og var hann framseldur yfirvöldum I Vestur Þýzkalandi. Hafði maður þessi þá dvalið hér f um tvö ár og komst upp um hann fyrir hálfgerða tilviljun nokkru eftir að hann hafði greint Islenzkum fjölmiðl- um frá stofnun fyrirtækis hér á landi. Bar fyrirtæki þetta nafnið Varðgæzlan sf. og hafði það markmið að gæta eigna fólks I Reykjavfk og koma f veg fyrir innbrot. Rifjaðist þetta mál upp i sambandi við mál hins vestur-þýzka Ludwigs Lugmeiers Upp koms um þá báða fyrir hálfgerða tilviljun Útlit er fyrir að Lugmeier verði rekin úr landi á sunnudaginn, en Frank Franken, en svo hét Þjóðverjinn sem ætlaði að vernda Reykvikinga árið 1961, var hins vegar framseldur 10 marz 1961 Er mál hans allt hið forvitni- legasta og verður það rakið lauslega hér á eftir I upphafi þriggja dálka fréttar efst á forsíðu Morgunblaðsins 28 jan- úar 1961 segir svo „Lögreglan handtók i gær, að þVi er blaðið hefur öruggar heimildir fyrir, Þjóðverjann Frank Franken, sem i haust skýrði blaðinu frá þvi, að hann væri i þann veginn að stofna fyrirtæki til að gæta eigna manna i Reykjavik Ástæðan fyrir handtökunni mun vera sú, að hann er eftirlýstur af v-þýzku lögreglunni fyrir innbrot." Siðan er rakið i fréttinni að maður þessi hafi komið til landsins sumarið 1 959, ráðið sig til starfa i sælgætis- gerð og kallað sig efnafræðing Siðan segir „Seinni hluta nóvembermánaðar skýrði hann svo nánar frá starfsemi fyrirtækisins, sem átti að heita Varð- gæzlan sf Hafði hann þá þegar sent til margra hugsanlegra viðskiptavina skjal, þar sem hann bauðst til að gæta eigna fyrirtækja að næturlagi Nafngreindi hann íslenzkan mann, sem hann kvað framkvæmdastjóra fyrirtækisins Ætlaði fyrirtækið að láta varð- menn lita eftir eigum viðskiptavin- anna með stuttu millibili alla nótt- ina Sagði Franken að ráða ætti áreiðanlega menn til þess starfa Ættu þeir að lita eftir þvi að ekki væri brotizt inn, ekki yrði tjón af vatnsskaða eða eldi og mundu jafn- vel slökkva á Ijósum og vélum ef þess yrði óskað Þá kvaðst Frank Franken enn- fremur hafa sótt um að fá að flytja inn varðhunda, sem nota mætti til að hafa upp á þjófum strax eftir innbrbt. Kvaðst hann mundu vinna með lögreglunni eftir þvi sem hpnta þætti, án þess þó að vera undir hennar stjórn Um áramótin auglýsti svo fyrir- tækið Varðgæzlan sf eftir 6 mönn- um til varðþjónustu, einum manni fyrir varðforingja og ungri stúlku á skrifstofu. Einnig var óskað eftir 3—4 herbergjum til leigu fyrir varð- stofur og skrifstofur. Var viðskipta- vinum loks óskað farsældar og góðs gengis á árinu 1961 Fylgdi auglýs- ingunni mynd af einkennisklæddum manni með hund Skilyrði til að fá atvinnu þessa voru auglýst þau að umsækjendur væru heiðarlegir og áreiðanlegir með ábyrgðar- og skyldutilfinningu, stundvísir, hófsamir, hefðu gott mannorð og væru heilsuhraustir Voru boðin góð kjör, m a hækkun í launaflokkum og metorðum eftir hæfileikum, frir einkennisbúningur, frítt sjúkrasamleg friar ferðir með strætisvögnum o.s.frv. Átti fyrirtæk- ið að taka til starfa strax eftir áramót- in.” í Morgunblaðinu daginn eftir er rakið hvernig slitnaði upp úr sam- starfi Frankens og íslendings þess, sem Franken kallaði framkvæmda- stjóra Varðgæzlunnar Einnig er þar greint frá þvi að Franken hafi stund- Framhald á bls 18. Sæmilegur loðnuafli: Víkingur með 1300 lestir SÆMILEG loðnuvviði var síðast- liðinn sðlarhrinK <>K frá því um hádvKi ■ fyrradag fram til ki. 18 I gær tilkvnntu sex skip um afla, samtals 2880 lestir. Sólarhringinn þar á undan tilkynnti aðeins eitt skip um afla. Súlan KA, sem var með 520 lestir og hefur nú fengið alls 2600 lestir af loðnu á sumar- vertíð. Andrés Finnbogason, starfs- maður loðnunefndar, sagði í sam- tali við Morgunblaðið i gær, að þá um daginn hefði verið vitað um mörg skip, sem hefðu verið komin með góðan afla, en vantaði herzlu- muninn á að fylla sig. 1 gær hefði verið erfitt að eiga við loðnuna, torfurnar staðið djúpt og mikill staumur. Með aflanum sem fékkst í gær, er sumarloðnuaflinn kom- inn i um 23000 lestir. Eftirtalin skip tilkynntu um afla til loðnunefndar frá hádegi i fyrradag til kl. 18 i gær: Keflvík- ingur 240 lestir, Víkingur AK 1300, Guðmundur Kristinn SU 110, Huginn 500, Svanur 330 og Gullberg 400. Inuk leikið á esperantó TVÆR sýningar voru á Inuk I gærkvöldi og var það I fyrsta skipti, sem leikritið var flutt á öðru máli en íslenzku, því leik- ararnir fluttu leikritið á esper- anto fyrir fulltrúa á esperanto- þinginu, sem eru um 1200 tals- ins frá 41 landi. Brynja Benediktsdóttir leik- stjóri sagði, að það hefði verið að beiðni Baldurs Ragnarsson- ar, að leikararnir lærðu hlut- verk sín á esperanto, en Bald- ur þýddi leikritið og var leik- endum til aðstoðar á æfingum. Brynja sagði að sýningarnar á Inuk færu nú að nálgast 300 á þremur árum og enn streymdu inn boð erlendis frá um að koma með leikritið til sýningar. Til dæmis hefði leik- hópnum verið boðið á leik- listarhátíð í Berlin nýlega, en ekki var hægt að taka því boði. Siðasta utanferð Inuk var á listahátíðina i Bergen. „Inuk gæti gengið í 10 ár í viðbót og við lifað eingöngu á þvi, ef við vildum," sagði Brynja. Inuk Nýtl og betra Ultra Brite t\ Æ Ultra Brite með f luor gerir andar dráttinn férskan og brosið bjart og heillandi. Hirðing tannanna er ekki einungis hreinlætis- og útlisatriði, heldur lika fjárhagsspursmál. Nútimafólk gerir auknar kröfur um hreinlæti og gott útlit. Þess vegna nota þeir, sem eiga dagleg samskipti við aðra U Itra Brite með hinu þægilega hressandi bragði. Ultra Brite er nú komið á markaðinn nytt og endur- bætt með fluor, sem varnar tannskemmdum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.