Morgunblaðið - 05.08.1977, Side 13

Morgunblaðið - 05.08.1977, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. AGOST1977 Grensásvegur Skeifan Fríðrík Þórðarsm frá Borgamesi—Minning Fæddur 25. október 1903 Dáinn 1. ágúst 1977 Friðrik Þórðarson var fæddur á Brennistöðum i Borgarhreppi. Foreldrar hans voru þau Halldóra Guðrún Vilhjálmsdóttir og Þórð- ur Arnason, bóndi i Hraunsmúla á Snæfellsnesi. Hann ólst upp hjá móður sinni og fóstra, Guðmundi Bjarnasyni trésmið. Þau fluttust til Borgarness 1920. Vann Friðrik við bifreiða- akstur og ýmis störf í sveit og við sjó. Skólaganga hans var ekki löng. Hann tók gagnfræðapróf frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1924. Fleiri urðu skólagönguár hans ekki eftir barnaskóla. Eigí að siður var hann vel menntaður maður mikið lesinn, minnugur, fylgdist vel með og tók mikinn þátt í þjóðmálum. Hinn 23. júli 1931 kvæntist Friðrik eftirlifandi konu sinni, Stefaniu Kristínu Þorbjarnar- dóttur frá Hraunsnefi í Norðurár- dal. Þau eignuðust tvo syni'. Þeir eru: Öskar fulltrúi í Reykjavik, kvæntur Guðlaugu Þorleifsdótt- ur, eiga þau 3 börn og Halldór skrifstofustjóri í Reykjavík, kvæntur Ernu Sveinbjarnardótt- ur, eiga þau 4 börn. Foreldrar frú Stefaníu, Guðný Bjarnadóttir og Þorbjörn Ölafs- son, bjuggu myndarbúi á Hrauns- nefi i Norðurárdal um 30 ára skeið, en fluttust til Borgarness 1938. Friðrik hóf starf hjá Verzlunar- félagi Borgarfjarðar í Borgarnesi 1933, varð þar siðan verzlunar- stjóri 1944—1963. Atti hann þar i harðri en drengilegri samkeppni við vel rekið kaupfélag. Var sú samkeppni bændum og öðrum viðskiptavinum i Borgarfirði til góðs. Jafnframt var Friðrik í hreppsnefnd frá 1934 um rúm- lega 30 ára skeið, þar af oddviti i 12 ár. Einnig i stjórn Skallagríms hf. og framkvæmdastjóri út- gerðarfélagsins Grims í Borgar- nesi. I Verzlunarráði Islands var hann 1955—1958. A mörgum fleiri sviðum lagði Friðrik styrka hönd á plóginn og þótti hann öruggur og réttsýnn í dómum sinum. Hann vann í fast- eignamati, skattanefndarstörfum, ýmisskonar matsgerðum o.fl. Hann átti sæti i stjórn Landssam- bands stangarveiðifélaga og var á s.l. vetri gerður heiðursfélagi í þeim félagsskap. I stjórnmálum lét Friðrik mjög til sin taka. Hann var sjálfstæðis- maður og barðist fyrir þeirri stefnu af einurð og ósérplægni. Þegar þau Friðrik og Stefanía fluttu úr Borgarnesi 1965 og hann að nokkru leyti fyrr, þótti mörg- um Borgfirðingi að þvi sjónar- sviftir. Eitt glæsilegasta heimili í Mýrasýslu var horfið á braut. for- ystumaður genginn frá störfum og glæsileg húsmóðir ekki lengur í tölu fyrirmyndarkvenna i Borgarfirði. Frú Stefanía studdi mann sinn vel í hverju starfi. Vilji hans var áhugi hennar. Þau voru bæði mjög gestrisin, en fyrirhöfnin við slíkt kom að sjálfsögðu fyrst nið- ur á henni. Margir áttu erindi við Friðrik. Heimili hans var opið, húsmóðirin tók á móti gestum af einlægni og myndarskap. Enginn getur skilgreint það, hversu mik- inn þátt góðar og myndarlegar húsmæður eiga i störfum eigin- manna sinna. Margir gleyma þessu. Við, sem oft komum á heimili þeirra Stefaniu og Frið- riks, fundum, hve gott var þar að vera og ég held, að störf frú Stefaniu á heimilinu hafi verið vel metin af manni hennar. Frú Stefanía er söngelsk og spilar mjög vel á orgel. Hún söng i kirkjukór Borgarness um margra ára skeið og var organisti (söng- stjóri) kórsins i 20 ár. Fórst henni það mjög vel úr hendi. Um árabil kenndi hún einnig söng við barna- skólann i Borgarnesi. Ævistarf Friðriks Þórðarsonar hefur markað mörg skír og mikil- væg spor í Borgarnesi, og er ekki rúm til þess að lýsa því hér. Þó langar mig til þess að minnast á nokkur atriði, sem mér eru minnisstæð frá samveru okkar í Borgarfirði í nær þvi 40 ár. Vatnsveitan í Borgarnesi var tekin í notkun 1941. Var vatn leitt yfir fjörðinn úr Seleyrargili. Tók setuliðið þátt í því verki. Á þess- um tíma átti Friðrik sæti í hrepps- nefnd og átti verulegan hlut í þessu verki. Jörðin Hamar í Borgarhreppi var keypt fyrir Borgarneskaup- tún árið 1943. Mætti það mál mik- illi mótspyrna af sumum hrepps- búum. Friðrik var þá oddviti i hreppsstjórn og lét mjög til sín taka um framgang kaupanna. Skrifaði hann bækling um málið, sem heitir „Jarðkaupamál Borg- ensinga“. Mun álit Borgnesinga i dag vera á þann veg, að kaupin hafi verið gerð af framsýni og stórhug. Nýr harnaskóli var byggður i Borgarnesi á valdatimum Friðriks Þórðarsonar. Tók hann til starfa snemma á árinu 1949. Þetta var á sínum tima mjög myndarleg bygging og þótti sum- um mikið i ráðizt. Var i fyrstu reistur hluti af húsinu, en annar hluti byggingarinnar var tekinn í notkun árið 1966. Rotaryklúbbur Borgarness var stofnaður 14. september 1952. Friðrik Þórðarson var einn af stofnendum hans og ávallt mjög duglegur og athafnasamur félagi þar. Hann var fimmti forseti klúbbsins, 1956—1957, og flutti oft mjög góð erindi um sögu verzl- unarmála, ferðalög erlendis o.fl. A skemmtisamkomum klúbbsins sómdu þau hjónin sér vel sjálfum sér og öðrum til ánægju og yndis- auka. Friðrik Þórðarson var einn af frumkvöðlum þess að Verzlana- sambandið var stofnað 1956. Heimilisfang þess er i Reykjavík. Var hann í stjórn þess alla tið og starfsmaður eftir að hann flutti frá Borgarnesi. Síðustu ár ævi sinnar átti Friðrik við mikla vanheilsu að striða og var oft á sjúkrahúsum eða á heilsuhælinu i Hveragerði svo vikum eða mánuðum skipti. Siðustu vikurnar var hann heima hjá sér og var um skeið óvenju hress. Frú Stefanía hafði orð í því við þann, er ritað þessar linur, að sunnudaginn 31. júlí, daginn fyrir andlát manns hennar, hafi vinir þeirra hjóna, Gunnar Ölafsson skipstjóri og kona hans Dýrleif Hallgríms, boðið þeim i ökuferð til Grindavikur. Hafi maður henn- ar notið þeirrar farar mjög vel, verið glaður og ánægður og inni- lega þakklátur fyrir þann dag. A sama hátt var hann sérstaklega glaður og hress fyrri hluta næsta dags, en þá kom kallið. Hann var látinn, þegar sjúkrabillinn hafði ekið honum stuttan spöl til sjúkrahússins. Friðrik Þórðarson var óvenju heilsteyptur maður. Hann vissi hvað hann vildi. Hann var hreinn og beinn í viðskiptum við aðra. Það var því gott að vinna með honum í félagsmálum. Hann dró sig engdn veginn i hlé, þegar á störfum hans þurfti aö halda og lét sig litlu skipta, hvað hann fékk að launum i fé eða þakklæti. Friðrik var barngóður maður og ekki síður eftir að aldur færðist yfir hann. Veit ég, aó barnabörn- in hans voru honum kær og þeim hjónum báðum. Þau sakna nú afa, sem var þeim svo góður og gaf þeim oft góðar gjafir. Við hjónin sendum frú Stefaníu, börnum þeirra hjóna og barnabörnum, ættingjum öllum hugheilar samúðarkveðjur og þökkum þann hluta af lifsleið- inni, sem okkur var sameiginleg- ur, spöl, sem var okkur til ánægju og gagns. Guðmudnur Jónsson frá Hvanneyri Þegar Friðrik Þórðarson er kvaddur í hinzta sinn, er margs að minnast frá þeim árum er við unnum saman. Kynni okkar hófust um það bil er hann var að Ijúka giftudrjúgu starfi í sinni heimabyggð. Þar var hann sem einn af útvörðum frjálsrar verzlunar í áratugi. Fæstir gera sér grein fyrir hve erfitt var að reka verzlun við sveitir landsins á kreppu og hafta- árunum. En vegna þekkingar sinnar, framsýni og dugnaðar, tókst honum að leiða fyrirtæki sitt yfir alla erfiðleika. Hann var vinsæll verzlunar- maður og átti lengi viðskipti við bændur í fjórum sýslum. 1954 átti Friðrik þátt í að stofna Verzlanasambandið h.f. og sat í stjórn þess til dauðadags. Enn- fremur var hann eínn af stofn- endum Hafskips h.f., Fóðurblönd- unnar h.f., og Verzlanatrygginga hf. Vann hann ötullega fyrir öll þessi fyrirtæki um árabil. Eftir að Friðrik fluttist til Reykjavikur störfuðum við saman i Verzlanasambandinu hf. Hann var þá á sjötugsaldri. Kraftur hans og dugnaður var þá með ólikindum og afköst sem eftir tvo. Svo fór fram til þess að hann veiktist í fyrsta skipti alvarlega. Hann náði sér furðu vel, eftir erfið veikindi og kom aftur til starfa. Krafturinn var að visu minni en áhuginn og ósérhlifnin hin sama. Eg hef aldrei fyrr kynnst manni sem fór sárlasinn heim um hádegið en var kominn aftur til vinnu sinnar um kaffi. Ómögulegt var að fá hann til að hlifa sér til þess var skapið of stórt og viljinn til að vinna vel of sterkur. I góðum vina hópi var Friðrik hrókur alls fagnaðar. Þá leyndist engum að hann var víðlesinn, stál- minnugur og hafði þvi likt vald á góðu íslenzku máli að unun var á að hlíða. Með Friðrik er genginn einn af þeim mönnum sem drjúgan þátt átti í mótun þess þjóðfélags sem við nú búum i. Hann hafði að leiðarljósi: Frjálst framtak og Frjálsa verzl- un. Liklega munu störf hans að þessum málum verða óbrotgjörn- ustu minnisvararnir. Það var hollt ungum mönnum að kynnast Friðrik. Eg votta frú Stefaniu, Halldóri, Öskari og fjölskyldum þeirra samúð mína. Arnold Bjarnason. Þegar Friðrik Þórðarson kveð- ur þykir mér hlýða að minnast hans nokkrum orðum, enda vor- um við samferðamenn um tugi ára. Friðrik fæddist 25. október 1903. Foreldrar hans voru Þórður Arnason, bóndi að Hraunsmúla i Kolbeinsstaðahreppi og Haildóra Guðrún Vilhjálmsdóttir í Borgar- nesi. Halldóra dvaldist seinni árin á heimili sonar síns og tengda- dóttur í Borgarnesi. Friðrik stundaði nám við gagn- fræðaskólann i Flensborg i Hafn- arfirði og útskrifaðist þaðan árið 1924 með mjög góðri einkunn. Notaðist Friðrik vel að menntun sinni, enda var hann bókhneigður og fróðleiksfús. Framan af ævi stundaði Friðrik ýmiss konar störf, meðal annars bifreiðaakst- ur og þótti hlutgengur að hverju sem hann gekk. Arið 1933 gerðist Friðrik starfs- maður hjá Verzlunarfélagi Borg- arfjarðar, h.f. í Borgarnesi. For- stjóri þess fyrirtækis var hann frá 1944—1963. Friðrik Þórðarson gegndi mörgum trúnaðarstörfum. t hreppsnefnd Borgarnesshrepps var hann frá 1934. Oddviti hreppsnefndar frá 1934—1938 og aftur frá 1942—1962. Friðrik var félagslyndur maður og lét mörg mál til sin taka, t.d. var hann fremstur í flokki þegar U.M.F. - Skallagrímur gekkst fyrir bygg- ingu samkomuhúss í Borgarnesi, en það var brýn nauðsyn. í seinni oddvitatíð Friðriks sá hann um byggingu nýs barna- skólahúss i Borgarnesi. En bygg- ingarmeistarinn var sá mæti mað- ur Kristján Björnsson á Steinum i Stafholtstungum. Kristján á Steinum byggði flestar meirihátt- ar byggingar í Borgarfirði, meðal annarra, Reykholtsskóla. En mesta afrek Friðriks i þágu Borg- arneshrepps var það, er hann fékk þvi framgengt, að jörðin Hamar i Borgarhreppi var keypt til handa Borgarneshreppi. Það sómabragð mun um langa framtíð verða tengt nafni Fríðriks. Hafa Borgnesingar og munu hafa mikl- ar nytjar af þessari ráðstöfun og forsjálni Friðriks. Friðrik Þórðarson var kvæntur Stefaniu Þorbjarnardóttur Ólafs- sonar og Guðnýjar Bjarnadóttur frá Hraunsnefi í Norðurárdal. Þessi glæsilegu hjón, Friðrik og Stefanía, settu svip á Borgarnes. Frú Stefanía er söngelsk, var um árabil organisti i Borgarneskirkju og stjórnaði kirkjusöngnum. Frið- rik gáfaður dugnaðar- og athafna- maður, sem lét mörg mál til sín taka, eins og áður var- minnzt á. Friðrik markaði spor og mun verða minnzt um Borgarfjörð. Tveir eru synir þeirra hjóna, Ósk- ar og Halldór, báðir búsettir i Reykjavík. Við hjónin sendum frú Stefaniu og bræðrunum samúðarkveðjur. Asgeir Þ. Ólafsson. „Þeir falla f valinn. sem hin unga öld f árdagsl jóma fram á svidið leiddi, og hafa borið bæði sverð og skjöld f baráttunni, sem að veginn greiddi.** Þannig var fyrir rúmu missiri mælt yfir moldum jafnaldra þess manns, er hér verður með fáum orðum minnzt. — Báðir voru fæddir á þriðja ári þessarar aldar, í sama héraði og við þau frum- stæðu lífskjör, sem þá voru al- gengust. Þeir fæddust þó inn I þann vakninga heim, sem ung- mennafélögin gæddu hvað mestu lifi, einmitt á þeim árum, sem Framhald á bls 22. 1, s: 83150 Höfum opnað stóran og glæsilegan sýningarsal að Grensásvegi 11 (í húsi Málarans). Opið 9—19 alla virka daga, nema laugardaga 12—19. Fjórir vanir sölumenn. Leggjum áherslu á góða þjónustu. asalan, ásvegi 11, sími: 83150

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.