Morgunblaðið - 05.08.1977, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.08.1977, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. AGUST 1977; ENN SYRTIR I AUNN HJA KR ENN syrtir f álinn hjá KR- ingum. Eftir tap peirra gegn Vestmannaeyingum f 1. deildar keppni Islandsmótsins I knatt- spyrnu I gærkvöldi er nánast eng- in von til þess að liðið hangi uppi í deildinni að þessu sinni. Liðið hefur aðeins hlotið 6 stig eftir 15 umferðir, — gæti hugsanlega hlotið 12 stig með þvf að vinna þá leiki sem það á eftir, en FH sem er þriðja neðsta liðið hefur hlotið 11 stig og Fram sem er næst þar fyrir ofan er með 12. Eyjamenn eru hins vegar á grænni grein, þótt möguleikar þeirra á tslands- meistaratitli að þessu sinni séu ekki miklir. Lið þeirra hefur sótt stöðugt í sig veðrið nú í seinni hluta mótsins og er tvímælalaust eitt bezta liðið í deildinni um þessar mundir, þótt það sýndi reyndar ekki sérlega mikið f leiknum f gærkvöldi. Auðséð var að KR-ingar voru staðráðnir f að selja sig dýrt f þessum leik og allan tfmann barð- ist liðið geysilega vel. Eyjamenn fengu aldrei stundlegan frið til þess að byggja upp leik sinn, og það var aðeins sárasjaldan sem þeim tókst að ógna KR-markinu, eftir góðar og skipulagðar sóknar- aðgerðir. Mörkin tvö sem Eyja- menn skoruðu í leiknum komu t.d. ekki þannig, heldur var að- dragandi þeirra fremur tilvilj- anakenndur. En það er Ifka fremur Iftið sem unnt er að hrósa KR-liðinu fyrir annað en baráttuna. Liðið er mun slakara nú en það hefur verið undanfarin ár, og hálfgerður los- arabragur á þvf. 1 liðinu eru þó margir ágætir einstaklingar, en einhvern veginn er það þannig að skipulagið vantar. Þótt ástandið sé þannig er óhætt að fullyrða að KR-ingar eiga Iftið erindi niður f aðra deild og standa mun framar en liðin sem þar eru. Góð byrjun Eyjamanna Vestmannaeyingar byrjuðu leikinn mjög vel í gærkvöldi og höfðu skorað tvö mörk áður en hálf klukkustund var liðin. Fyrra markið kom á 10. mínútu. Óskar Valtýsson átti þá ágæta sendingu inn að vítateigslínunni þar sem Karl Sveinsson kom aðvífandi og skaut hörkuskoti sem hafnaði í stöng KR-marksins og inn, algjör- lega óverjandi fyrir Magnús Guðmundsson, sem lék nú með aftur eftir langt hlé vegna meiðsla. Á 26. minútu bættu Eyjamenn öðru marki við. Dæmd var auka- spyrna á KR nærri miðjulínunni. Fhnar Friðþjófsson lyfti knettin- um vel í átt að KR-markinu og sigldi knötturinn yfir nokkra varnarleikmenn áður en marka- kóngurinn Sigurlás Þorleifsson náði til hans og sneiddi hann f markið, framhjá Magnúsi. KR átti mörg færi Eftir að þessu forskoti var náð var sem Vestmannaeyingar slök- uðu nokkuð á. Kom það sérstak- lega fram í seinni hálfleiknum, en þá sóttu KR-ingar til muna meira og tókst hvað eftir annað að skapa sér góð færi. En Sigurður Har- aldsson, markvörður Eyjamanna, greip þá nokkrum sinnum stór- skemmtilega inn i leikinn. Þannig bjargaði hann tvívegis vel með úthlaupum er KR-ingar voru komnir einir inn fyrir vörn Eyja- manna, fyrst Guðmundur Jóhannesson og síðan Sigurður Indriðason. Sigurður gat þó ekki bjargað marki um miðjan seinni hálfleik- inn, en þá kom fyrirgjöf fyrir mark Eyjamanna. Sigurður missti knöttinn framhjá sér og hann skoppaði síðan til Ottós Guð- mundssonar sem var algjörlega óvaldaður og átti ekki í erfiðleik- um með að skora. Slik urðu úrslit leiksins 2—1 fyrir Vestmannaeyinga og verður það að teljast nokkuð sanngjarnt, KR-ÍBV 1-2 Texti: Steinar J. Lúðvfksson. Myndir: Kristinn Ólafsson. þar sem þeir voru betri aðilinn í leiknum. Spöruðu Eyjamenn sig? Ekki er ótrúlegt að Vestmanna- eyingar hafi reynt að taka þennan leik eins rólega og þeim var mögulega unnt, með tilliti til þess að framundan er nú stórleikur hjá liðinu — er það mætir Val í undanúrslitum bikarkeppninnar á miðvikudagskvöld. Sá leikur er vissulega tilhlökkunarefni, og óhætt að fullyrða að Eyjamenn eiga manna mesta möguleika á að velgja Valsliðinu rækilega undir uggum. 1 gær voru það helzt þeir Óskar Valtýson og Sigurður Har- aldsson sem létu verulega að sér kveða, en bæði Tómas Pálsson og Karl Sveinsson áttu góða spretti. Bezti maður KR-liðsins var tvi- mælalaust Ottó Guðmundsson — rólegur og yfirvegaður leikmað- ur, sem sjaldan gerir mikiar vit- leysur. Þá vakti Börkur Ingvars- son einnig athygli í þessum leik. Ungur leikmaður sem er í mikilli og stöðugri framför. í STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur 5. ágúst. Islandsmótið 1. deild. Urslit: KR —ÍBV 1—2 (0—2) Mark KR: Ottó Guðmundsson á 65. mínútu. Mörk IBV: Karl Sveinsson á 10. mínútu og Sigurlás Þorleifsson á 26. mín. Áminning: Örn Guðmundsson, KR, fékk gula spjaldið fyrir gróf- an leik. Áhorfendur 356. Þjátfari í leikbann Á fundi aganefndar KSÍ I gær kvöldi var þjálfari 1. deildar liðs Þórs á Akureyri, Bretinn Reynolds, dæmdur f eins leiks keppnisbann og verður hann því ekki með liði sfnu er það mætir Val á Laugardalsvellinum á laugardaginn. Reynolds fékk rauða spjaldið f leik f 2. flokki milli Þórs og KA sem fram fór á Akureyri fyrir skömmu. Eyjamennirnir Valþór Sigþórsson og Sigurlás Þorleifsson sækja að KR-markinu í gærkvöldi. Milli þeirra er Sigurður Indriðason, og lengst til visntri er Magnús Guðmundsson markvörður, sem náði knettinum að þessu sinni. Reykjavíkurleikarnir H’ kJAVIKURLEIKAR f frjálsum um 1977, sem jafnframt er 30 .fmælismót FRÍ fara fram á Ldt, .drdalsvelli dagana 16. og 17. ágúst. Keppnin hefst kl. 20* fyrri daginn og kl. 19.30 síðari daginn. Keppt verður í eftirtöldum greinum: FYRRI DAGUR Greinar, þar sem ákveðnum kepp- endum er boðin þátttaka: 200 m hlaup karla, 1500 m hlaup karla, Minningarhlaup um Svavar Markús- son, 100 m hlaup kvenna, 400 m hlaup kvenna, kúluvarpi karla, og kringlukasti karla. Keppnisgreinar, þar sem lágmarksafrek er skilyrði til þátttöku: Langstökk karla (6,50 m) og hástökk kvenna (1.55 m). Grein- ar, þar sam þátttaka er opin: 800 m hlaup unglinga f. 1957 eða síðar, 1500 m hlaup kvenna og 1500 m hlaup karla B-hlaup. SÍÐARI DAGUR Boðsareinar: 100 m hlatin karla 400 m hlaup karla, 800 m hlaup karla, 200 m hlaup kvenna. Greinar, þar sem lágmarksafreka er krafist: 3000 m hlaup (9,30 min) stangar- stökk (3,80), langstökk kvenna (5.00 m) og hástökk karla (1,80 m). Greinar, þar sem þátttaka er opin: 400 m grindahlaup kvenna, 800 m hlaup kvenna. Keppt verður einnig ! kúluvarpi og kringlukasti karla siðari dag með sömu keppendum og fyrri daginn. Þátttökutilkynningar verða að ber- ast til FRÍ pósthólf 1099 eða á skrifstofu sambandsins i iþróttamið- stöðinni i Laugardal i siðasta lagi 9. ám'iAt n k Kevin Keegan ásamt hinum nýja þjálfara sfnum, Rudi Guten- dorf. Keegan nýtur sín vel hjá Hamburger 55 ÞÚSUND áhorfendur lögóu leið sína á kvattspyrnuvöfl þýzka knattspyrnufélagsins Hamburger SV f fyrrakvöld, til þess að fylgjast með leik þess og enska liðsins Liverpool, sem kom þangað f heimsókn. Fjöldi Englendinga fylgdi Liverpool- liðinu yfir sundið, ekki sfzt f þeim tilgangi að sjá Kevin Keegan, hinn fræga knatt- spyrnumann sem gekk nýlega úr röðum Liverpool-manna í Hamburger S''. Leikur liðanna var liður í svonefndri „Super- Cup“ keppni, en þar eigast við þau lið sem sigra í Evrópu- bikarkeppninni. Og áhorfendur urðu sannar- lega ekki fyrir vonbrigðum með ieikinn, sem var mjög góður af hálfu beggja liðanna, sérstak- lega þó Hamburger SV, þar sem Kevin Keegan var allt i öllu og lék sina fyrri félaga oft grátt. Segja fréttamenn sem fylgzt hafa með Keegan í mörg ár, að hann hafi aldrei verið betri, né notið sín betur en einmitt nú. Fyrsta mark leiksins í fyrra- kvöld kom á 19. mínútu og var það Keegan sem skoraði, eftir mjög fallegt spil þýzka liðsins. Það náði svo 2—0 forystu á 63. mínútu er Magath skoraði, eftir sendingu frá Keegan, en þar með fór líka Liverpool að sækja í sig veðrið. David Johnson skoraði á 65. mínútu og fjórum mínútum fyrir leikslok tóks David Fairclough að jafna. Bæði mörkin komu eftir skemmtilegar sóknarlotur hjá Liverpool, þar sem vörn Ham- burger-liðsins var dregin vel í sundur, og síðan gefnir stungu- boltar inn á markaskorarana. En Hamburger átti svo sið- asta orðið í leiknum. Mínútu fyrir leikslok skoraði Keller, sem komið hafði inná sem vara- maður, sigurmark þýzka liðsins viðgífurleg fagnaðarlæti áhorf- enda. Keegan er sagður falla mjög vel inn í leikkerfi Hamburger SV, en sem kunnugt er keppti það lið við Keflvíkinga i Evrópu-keppninni i fyrra. Sigr- uðu Þjóðverjarnir 3—0 í leikn- um úti, en jafntefli varð í leik liðanna á Laugardalsvellinum. Eftir að Keegan kom til Liver- pool hefur liðið m.a. leikið vin- áttuleik við spánska liðið FC Barcelona, sem hinn frægi leik- maður Johan Cruyff leikur með. Sigraði þýzka liðið í þeim leik 6—0. Eftir leikinn spurðu fréttamenn Johan Cruyff hvað honum fyndist um Kevin Keegan, og svaraði Johan Cruyff spurningum þeirra á þá leið, að það hefði ekki komið sér á óvart að Keegan hefði verið framúrskarandi í þýzka liðinu. — Hann er fæddur inn í vestur-þýzku knattspyrnuna, sagði Cruyff, — og ég er viss um að þarna mun hann njóta sín margfalt betur en hann gerði í hinni leiðinlegu og þunglamalegu ensku knatt- spyrnu. Sannleikurinn er sá, að séu menn á annað borð góðir knattspyrnumenn, þá blómstra þeir í þýzku knattspyrnunni. Víða annars staðar er leikurinn að stofni til barátta og puð, og þá gildir fremur að vera stór, sterkur og frekur. Fréttamenn spurðu Johan Cruyff einnig um hvort hann ætlaði sér að verða áfram hjá Barcelona, en að undanförnu hafa gengið um það sögusagnir að Johan Cruyff hefði hug á því að hætta þar, og fara annað- hvort heim til Hollands eða til Þýzkalanss. — Ég hef engin áform um að hætta hjá Barcelona, sagði Cryuff. — Fjölskylda mín er farin að kunna vel við sig þar, og ég er hættur að taka eftir því sem fór mest i taugarnar á mér til að byrja með f spænsku knattspyrnunni. Það eina sem ég er ekki fullkomlega ánægð- ur með er harkan — hún er alltof mikil og verður á kostnað hins fagra í iþróttinni. Sem kunnugt er bauð banda- ríska félagið New York Cosmos stórupphæð í Johan Cruyff fyrr á þessu ári, og virtist um tíma sem Cruyff hefði áhuga á *ð taka því boði. Nú sagði hann hins vegar að mái þetta væri úr sögunni, — hann hefði nánast engan áhuga á að fara vestur um haf, og gaf i skyn að slikt væri ekki furir nema knatt- spyrnumenn sem væru að kom- ast á „eftirlaunaaldurinn."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.