Morgunblaðið - 31.08.1977, Qupperneq 19
19
MOHGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGUST 1977
— Tító
Framhald af bls. 1
og Hua Kuo-feng skáluðu fyrir
nánari samskiptum Kina og
Júgóslaviu, en í ræðum þeirrá
beggja kom fram verulegur
ágreiningur í mati á ástandinu i
heiminum. Titó sagði meðal
annars, að þjóðarleiðtogar yrðu
að sýna þolinmæði og freista þess
að koma á slökun spennu í al-
þjóðamálum á vettvangi Öryggis-
málaráðstefnu Evrópu, en Kin-
verjar hafa hvað eftir annað lýst
andúð sinni á störfum ráðstefn-
unnar.
Hua Kuo-feng lýsti I ræðu sinni
stuðningi kínversku þjóðarinnar
við hlutleysisstefnu Júgóslava og
réttmæta baráttu þeirra gegn erl-
endri kúgun og árásarstefnu, eins
og hann komst að orði.
Það vakti athygli, að í ræðu
sinni vék Titó nokkuð frá þeim
texta, sem afhentur hafði verið til
birtingar að veizlunni lokinni, og
ávarpaði hann Hua formann, sem
„féiaga Hua“.
— Verða
Sovétmenn
Framhald af bls. 1
stofnuðu fiskistofnunum á
þeim slóðum í hættu. Þessi um-
mæli benda til þess að innan
Sovét-kerfisins riki ágreining-
ur um málið, en i fréttinni i
Nordlys segir, að með tilliti til
þeirrar auknu áherzlu sem
Sovétmenn leggi á orkumál um
þessar mundir og áhuga þeirra
á auknum olíuútflutningi til
Vesturlanda, geti vart leikið
vafi á að þeir keppi nú að nýt-
ingu nýrra olíulinda, einkum
þar sem engar nýjar olíulindir
hafi fundizt á landi á undan-
förnum árum.
Ymsar vangaveltur eru uppi
um stefnu Sovétmanna i orku-
málum, en frá 1975 hafa þeir
verið mesti oliuframleiðandi í
veröldinni. Olíuútflutningur,
Rússa til Vesturlanda hefur
aukizt verulega á undanförnum
árum um leið og hann hefur
minnkað til landanna austan-
tjalds. Sumir sérfræðingar telja
að í upphafi næsta áratugar
standi Sovétmenn andspænis
skorti á olíu nema til komi nýj-
ar olfulindir. Finn Sollie er
þeirrar skoðunar að olíuvinnsla
Sovétmanna á Norðurslóðum
verði farin að hafa efnahags-
lega þýðingu i kringum 1980, og
teiur hann að fyrstu tilraunir
verði gerðar i námunda við
suðurodda Novaja Zemlja, sem
skilur að Barentshaf og
Karahaf.
„Það er ástæða til að velta því
fyrir sér hvers vegna Rússar
gerðu út leiðangur Arktika á
Norðurpólinn," segir Sollie i
viðtali við Nordlys. „Það er
skoðun min að tilgangur þeirra
sé tvíþættur, — annars vegar
að sannfæra sina eigin þjóð um
ágæti vísindarannsókna á þessu
sviði, og hins vegar að sýna
umheiminum að norðurslóðir
séu i þann veginn að verða
greiðfærar mestan hluta ársins.
I ár fór fyrsta skipalestin frá
Múrmansk til Jamalskaga i
febrúarmánuði, sem er tveimur
mánuðum fyrr en tiðkazt hefur.
Þennan árangur má þakka ís-
brjótunum Lenin og Arktika,
sem eru af nýrri og fullkominni
gerð, en tilkoma þeirra opnar
þau hafsvæði, sem liggja að
norðlægum héruðum Sovétrikj-
anna, og það eru einmitt svæði,
sem eru að verða mikilvæg í
sambandi við orkuframleiðslu.
Norðurpólsleiðangur Arktika
er þannig af hálfu Rússa til-
raun til að sýna hversu mikla
áherzlu þeir leggja á norður-
slóðir".
Varðandi þá spurningu hvort
Rússar hafi nú orðið yfir að
ráða nauðsynlegri tækni til að
geta nýtt olíulindir á norður-
slóðum, segir Sollie, að þeir
hafi á undanförnum árum gert
marevisleear tilraunir . til að
afla sér nauðsynlegrar þekking-
ar á þessu sviði, m.a. í Noregi.
Þær tilraunir hafi þó ekki borið
tilætlaðan árangur, enda sé
vafasamt hvort Sovétmenn séu
reiðubúnir að hleypa erlendum
aðilum inn á svæði, sem séu svo
hernaðarlega mikilvæg sem
Barentshafið. Sollie telur þó að
Sovétmenn séu langt komnir
með að þróa sjálfir með sér
þessa tækni, og sé stórstígra
framfara að vænta á því sviði í
náinni framtíð.
I Noregi hafa menn ekki ver-
ið á eitt sáttir um hvort hafnar
skuli oliuboranir á norðurslóð-
um, en með tilliti til nýrra við-
horfa telur Sollie að Norðmenn
hljóti að endurskoða þá stefnu
sina að halda að sér höndum í
þessu efni.
— Iþróttir
Framhald af bls. 30
Neeskens og Rensenbririk eru
ekki með gegn okkur í kvöld, en
vil benda á að hver einasti lands-
liðsmaður Hollands gæti gengið
inn i landslið annarra þjóða og
staðið sig vel, jafnvel varamenn-
irnir. Ég sá Hollendingana vinna
Belga og Englendinga 2—0 og þar
var hreinlega um jarðarför að
ræða. Hollendingarnir voru i allt
öðrum gæðaflokki en andstæðing-
arnir í leikjum þessum og léku
þeir þó á útivelli í báðum tilfell-
um. Ég vildi, held ég, frekar
mæta Vestur-Þjóðverjum en Hol-
lendingum, jafnvel þótt þeir fyrr-
nefndu séu heimsmeistarar og
Hollendingar silfurliðið frá síð-
ustu heimsmeistarakeppni. Fari
Hollendingar með fullt lið á
heimsmeistarakeppnina í Argen-
tínu næsta surnar, þá hef ég mikla
trú á þvi að þeir verði heims-
meistarar, sagði Tony Knapp.
Ellert B. Schram bætti því við,
að þar sem leikur þessi væri liður
í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar myndu Hollendingar
reyna að skora jafnmörg mörk og
þeir framast gætu.
Yrðu tvö lið jöfn að stigum í
undankeppninni skæri markatal-
an úr um hvort þeirra færi áfram.
Arni Þorgrímsson, landsliðs-
nefndarmaður, hafði síðasta orðið
á blaðamannafundinum er hann
sagði:
— Hollenzka liðið er annað af
tveimur beztu landsliðum í heimi.
í þvi eru ellefu ballerínur.
— Þorláks-
höfn
Framhald af bls. 15
hreppurinn hyggst kaupa þrjár
íbúðir í fjölbýlishúsi Hannesar
' Gunnarssonar. A vegum Ölfus-
hrepps er einnig unnið að flutn-
ingi fjárrétta frá Hveragerði nið-
ur á Bæjarþorpsheiði og vatns-
veitu við Arbæ i Ölfusi.
' A safnaðarfundi, sem haldinn
var hér 9. júlí síðastliðinn var
samþykkt teikning að krikju stað-
arins. Hún er unnin hjá húsa-
meistara ríkisins, arkitekt er
Jörundur Pálsson. Það er í mörg
• horn að líta hér eins og sjá má af
framangreindu. I Þorlákshöfn
búa i kringum 950 manns.
— Ragnheiður.
Ekki bara litsjónvarp, heldur
PHILIPS
litsjónvarp
með eðlilegum litum
Myndgæði PHILIPS litsjónvarpstækja eiga
tæpast sína líka. Þar sérðu alla hiuti eins
eðlilega og hægt er. Rautt er rautt, blátt
blátt, grænt grænt o.s.frv. PHILIPS hefur
leyst vandamálið við villandi og óeðlilega
liti og það er eins og að vera sjálfur á
staðnum þar sem myndin er tekin, þegar
þú horfir á PHILIPS litsjónvarpstæki.
Oþarft er að koma með upptalningu á
tæknilegum atriðum hér en bendum aðeins
á að PHILIPS er stærsti framleiðandi
litsjónvarpstækja í Evrópu, hefur framleitt
yfir 40.000.000 sjónvarpstækja. Segir það
ekki sína sögu?
PHILIPS hóf hönnun litsjónvarpstækja
árið 1941 og hefur síðan stefnt markvisst að
tæknilegri fullkomnun.
PHILIPS litsjónvarpstæki fást í mörgum
geröum, með skermum frá 14” - 26”.
Viö viljum eindregið hvetja væntanlega
kaupendur litsjónvarpstækja til aö
kynna sér umsagnir hlutlausra aöila og þá
verður valið ekki erfitt.
Það er og verður PHILIPS.