Morgunblaðið - 31.08.1977, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31, AGUST 1977
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Röskur sendill óskast
sem fyrst til starfa hluta úr
degi í allan vetur. Uppl. í
síma 86100.
Páll Þorgeirsson og Co.
Ármúla 27.
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82, s. 31330.
Keflavík
Til sölu glæsileg 3ja herb.
íbúð ásamt sérherb. í kjallara.
Losnar fljótlega.
Fasteignasalan, Hafnargötu
27, Keflavík, simi 1420.
Sumarhús —
Veiðihús
Til sölu er litið nýbyggt
timburhús, fullfrágengið að
utan og innan. Mjög vandað.
Upplýsingar í síma: 10669,
eftir kl. 8 á kvöldin.
Til sölu — nálægt
Laugavegi — laust
strax.
er ný, lúxus saunabaðstofa.
(Tyleofn pantaður) og 3—4
herb. íbúð i steinhúsi, ný-
standsett, tvöfalt gler. Verð
8.5 millj. Útb. 6 millj. Veð-
leyfi 2—4 millj. Yðar
fasteignasali eða KJARAVAL
s. 19864. Hilmar Björgvins-
son, hdl. Harry Gunnarsson
sölustjóri.
Utsala — Útsala
20—80% afsláttur.
Dragtin, Klapparstig 37.
SIMAR. 11798 og 19533.
Föstudagur 2. sept.
kl. 20.00
1. Landmannalaugar. Gist i
sæluhúsinu.
2. HrafntinnuskerLoðmundur.
Gistítjöldum.
Laugardagur 3. sept.
kl. 08.00
Þórsmörk. Gist i sæiu-
húsinu.
Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni.
Ferðafélag íslands.
Hörgshlið 12
Samkoma í kvöld, miðviku-
dag kl. 8.
m
i'. n r-'.Ri i rðih
Föstud. 2/9 kl. 20.
Hvanngil
Emstur—Laufaleitir.
Gönguferðir um hrikalegt og
fagurt landslag á
Fjallabaksvegi syðra. Tjöld,
(stuðningur af húsum).
Fararstj: Þorleifur
Guðmundsson og Jón I.
Bjarnason. Farseðlar á
skrifstofunni. Lækjargötu 6,
sími 14606.
Útivist.
Steypum bílastæði og
gangstéttar. S. 81081 —
74203.
raðauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar
Til íslenskukennara
Kennslubækur fyrir 9. bekk grunnskóla. í stafsetningu og
greinarmerkjasetningu. Ritvör eða Listvör, í málfræði og
málnotkun Málið mitt.
Fyrir framhaldsskóla
Tindar, forníslenskar bókmenntir. Ugla, stafsenting
og greinarmerkjasetning. Njálssaga. skólaútgáfa.
Kennarar fá ókeypis eintak.
NB. Þrjár siðasttöldu bækurnar eru allar á nýjustu stafsetning-
unni og greinarmerkjasetningu.
Bókaútgáfan Valfell.
Sími 841 79 — Box 5164.
Innheimta þinggjalda í
Hafnarfirði,
Garðakaupstað
og Kjósarsýslu
Gjaldendur þinggjalda í umdæminu eru
hér með minntir á að greiða þinggjöld sín
á réttum gjalddaga, svo komist verði hjá
þeim óþægindum og innheimtuaðgerð-
um sem af vanskilum leiða. Lögtök fyrir
vangreiddum gjöldum ársins 1977 hefj-
ast 5. september n.k.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
og Garðakaupstað,
Sýslumaðurinn í Kjósasýslu.
Einbýli — Raðhús
Höfum verið beðnir að útvega til leigu
einbýli, raðhús eða sérhæð á Reykjavíkur-
svæðinu.
Húsafell, sími 81066.
Iðnaðarhúsnæði óskast
í Kópavogi, 300—400 fm. lofthæð
minnst 4,5 m. Upplýsingar í síma 41315
eftir kl. 6 á kvöldin.
Guðný Björnsdóttir
frá Hnefílsdal—Mnning
F. 20. niaí 1906.
I). 17. júlf 1977.
I»ú hafðir fagnað mcð grðandi Krösum
<»fí grátið hvert blóm sem dó.
Ol? Þ<*r hafði lærst að hlusta uns hjarta
í hverjum steini sló.
Os hvernig sem syrtí fsálu þinni
lók sumarið öll sín Ijóð
og þór fannst vorið þitt vera svo fa«urt
og veröldin Ijúf og góð.
Og dauðinn þig leiddi f höll sfna heim
þar sem hvelfingin víð og blá
reis úr húmi hnfgandi nætur
með hækkandi dag yfir brá.
Þar stigu draumar þfns liðna Iffs
f loftinu mjúkan dans.
Og drottinn brosti. hver bæn var orðin
að blómum við fótskör hans.
Tóm. Guðm.
Er minnast skal Guðnýjar
Björnsdóttur frá Hnefilsdal
kemur fyrst upp i hugann hversu
sérstæð kona hún var um margt,
og hve heimurinn væri betur á
vegi staddur ef við jarðnesk börn
ættum jafn mikla umhyggju og
rausn til handa meðbræðrum
okkar og værum jafn öfundarlaus
í annarra garð sem hún var.
Ba-nir hennar studdu margan
sjúkan og óstyrkan á lífsins braut
og kærleikur hennar náði til allra
sem um sárt áttu að binda.
í litlu stofunni hennar, þar sem
hún einnig svaf og ól upp dóttur-
dóttur sina, var ætíð pláss og
hjartarúm fyrir gesti og
gangandi, háa sem lága, og þá
ekki síður lága sem áttu ekki
margt athvarf.
Guðný fæddist í Hnefilsdal á
Jökuldal, N-Múl. 20 maí 1906,
dóttir hjónanna Björns Þorkels-
sonar, hreppstjóra og fræði-
manns, og Guðríðar Jónsdóttur.
Guðný átti tíu systkini. Tvö dóu í
æsku, Einar og Sigurborg, en níu
náðu fullorðinsárum. Af þeim eru
Sigurður, Óiafur og Einar látnir.
Eftir lifa Jón, fyrrv. bóndi á
Skeggjastöðum, Jökuldal,
Þorkell, fyrrv. bóndi, síðar
húsvörður í Rvík. Stefán forstjóri
Mjólkursamsölunnar i Rvík,
Sigríður húsfrú, Hlöðum við
Lagarfljót og Helga húsfrú að
Desjarmýrí, Borgarfirði eystra.
Ennfremur ólst upp með þeim að
miklu leyti Árni Hallgrímsson
bóndi Minni-Mástungu
Gnúpverjahreppi.
1 þessum stóra og mannvænlega
systkinahópi á mannmörgu og
menningarheimili ólst Guðný
upp. Foreldrar hennar voru bæði
vel menntuð á þeirra tíma mæli-
kvarða, Björn gagnfr. úr Flens-
borg, en Guðriður hafði numið i
kvennaskólanum á Akureyri.
Guðný sótti menntun sina í
héraðssk. að Eiðum. Næm var
hún og fróðleiksfús og ritfær vel,
þótt lítt héldi hún þvi á lofti.
Árið 1936 giftist Guðný Stein-
þóri Einarssyni frá Djúpalæk,
ágætum manni, sem dó langt um
aldur fram. Þau eignuðust fjögur
börn. Eitt dó nýlega fætt, en á lifi
eru Stella Björk, húsfrú i
Neskaupstað, Snælaug Alda,
tannlæknir í Danmörku og Hjalti
Framhald á bls. 29
— Minning
Guðmundur
Framhald af bls. 23
stæðisformaður á bifreiðaverk-
stæði Mjólkurstöðvarinnar við
Snorrabraut og starfaði þar hátt í
áratug. I samráði við stjórnendur
stöðvarinnar keypti Guðmundur
forláta rennibekk og fékk að setja
hann upp í einu horni verkstæðis-
ins þar sem hann gat unnið við
hann í frítímum sínum. Þessi
bekkur fylgdi Guðmundi alla tið
og er enn i notkun.
Á fyrstu árum siðustu heims-
styrjaldar hóf Egill vilhjálmsson
að flytja inn ósamsettar Dodge
bifreiðir. Réðist Guðmundur þá
til hans til þess að hafa umsjón
með samsetningu bifreiðanna.
Kaupið var 550 krónum á mánuði
og mun hafa þótt mjög gott á
þeim árum. Þarna starfaði Guð-
mundur í hartnær áratug.
Þegar Guðmundir flutti í sitt
eigið hús í Nökkvavogi 15 kom
hann rennibekknum góða og öðr-
um verkfærum sínum fyrir i
kjallaranum og stárfaði æ síðan
að bílaviðgerðum og ýmissi smiði,
eftir þvi sem verkefnin bárust að.
Ýmsir viðskiptavinanna höfðu
fylgt honum frá fyrstu tið og bil-
arnir margir hverjir því gamlir
kunningjar. Slíkir viðskiptavinir
fóru heldur ekki bónleiðir til búð-
ar, því að ef varahlutir fengust
ekki, eins og oft gerðist fyrr á
árum, þá kom að góðu haldi út-
sjónarsemi og verkleg snilli þessa
hagleiksmanns. Og ef verkfæri
voru ekki fyrir hendi til að smiða
hlutinn með, þá voru verkfærin
einfaldlega smíðuð fyrst.
Guðmundur var litt fyrir fjö-
menni gefinn og eignaðist þvi fáa
en trygga vini. Hann hafði gaman
af að spila og tefla en bezt mun
hann hafa kunnað við sig í fang-
brögðum við lax og silung við
góða veiðiá eða vatn. Og til þess
að stunda þá eftirlætisiðju áður
en vegheflar og malbik kom til
sögunnar þurfti traustan og góð-
an bíl. Og þegar bílasmiður hefur
fundið einn slíkan, því þá að
farga honum fyrir eitthvað annað
og kannski lélegra? Ekki Guð-
mundur Jónsson. Eftir að hafa átt
nokkra af fyrstu bílum borgarinn-
ar fann hann einn, sem dugði
honum til æviloka. Árið 1935 festi
hann kaup á Graham Page bfl,
árgerð 1929, og festi á hann núm-
erið R-627. Sá bíll kartaði með
sóma i fremstu röð gamalla bíla á
þjóðhátíðiardeginum síðasta, enda
talsvert breyttur frá því hann
kom á markaðinn fyrir hálfri öld,
búinn dráttarspili að framan með
vökvahemlum og sjálfskiptingu.
Þeir Guðmundur og Guðjón 0.
Guðjónsson bókaútgefandi áttu
saman veiðileyfi í Eystri Rangá
um langt árabil. Hvorugur var
alinn upp við síma og lögðu litt i
vana sinn að orðlengja um sjálf-
sagða hluti, eins og til dæmis það,
hvenær skyldi hefja veiðar að
vorinu. Guðmundur var ævinlega
mættur klukkan sex að morgni
fyrir utan hjá Guðjóni þann
fyrsta apríl, fyrsta veiðidag ársins
enda þótt þeir hefðu þá ekki hitzt
eða um.veiðiferð rætt frá því um
sumarið árið áður.
Guðmundur Jónsson var tví-
kvæntúr. Fyrri kona hans var
Rósa Bachmann Jónsdóttir, en
hún lézt árið 1951. Þau eignuðust
3 dætur og einn son. Dæturnar
eru: Guðrún Vilborg, gift Jónasi
Eysteinssyni, kennara, Hallfríð-
ur, gift Gunnari Guðmundssyni
rafverktaka og Vilborg Jóná, gift
Jóni Þorvarðarsyni, Ljósafossi.
Jón Bachmann starfaði lengi með
föður sínum að bifreiðaviðgerð-
um. Maki hans er Sigurlaug
Björnsdóttir. Barnabprnin eru 17
talsins og barnabarnabörnin um
miðjan þriðja tuginn.
Siðari kona Guðmundar var
Þorbjörg Bjarnadóttir, ekkja frá
Eskifirði, og lifir hún mann sinn.
Yngsta dóttir hennar er kona
undirritaðs og bjuggum við í ára-
tug í sama húsi og þetta heiðurs-
fólk. Börn okkar nutu þess að eiga
þau fyrir ömmu og afa og dreng-
urinn fékk veiðibakteríuna frá
gamla manninum, enda hafði
hann yndi af félagsskap i veiði-
ferðum.
Þau hjón fluttu í snotra fbúð að
Hrafnistu fyrir rösku ári, en
höfðu áður gefið Dvalarheimilinu
húseign sina að Nökkvavogi 15.
Þarna er þá genginn einn af
þessum hljóðlátu stólpum alda-
mótakynslóðarinnar, fólksins sem
lifði smátt en hugði hátt, lærði að
búa að sínu og gerði meiri kröfur
til sjálfra sín en annarra, þar sem
lífsins munaður var heilbrigð sál i
hraustum likama og bjartir sum-
ardagar í faðmi íslenzkrar nátt-
úru. Sá orðlausi boðskapur, sem i
slikum lifsferli speglaðist, er gott
vegarnesti ungum afabörnum,
sem eygja fá lifsgildi stærri en
þau sem fást fyrir peninga. Við
fráfall þessa glaða, fábrotna,
sjálfstæða og æðrulausa manns er
gott að minnast stuttrar samfylgd-
ar, votta ástvinum santúð og
þakka fyrir sig og sína.
Guðbjartur Gunnarsson.
Birting
afmælis-
og minning-
argreina
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast f sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera f sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
Ifnubili.