Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK 200. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mólúkkarnir: Krafizt 10 ára fangelsisdóms Assen, Hollandi 9. september Reuter. Kíkissaksóknarinn f Hollandi krafðist í dag að Mólúkkarnir 7, sem sakaðir eru um að hafa tekið 150 gísla f árásum á skóla og lest í Assen í maí sl. yrðu dæmdir í 10 ára fangelsi. Mólúkkarnir svöruðu engu fyrir réttinum er Kólera breiðist út í Jórdaníu Amman 9. septem- ber Reuter. Heilbrigðisráðherra Jórdaníu skýrði frá því í kvöld að vitað væri um 46 ný kólerutilfelli í landinu sl. sólarhring og að alls hefðu þá um 140 manns tekið veik- ina. Kólóleru hefur einnig orðið vart í Lí- banon og Sýrlandi, þar sem um 2000 manns hafa veikzt á undan- förnum vikum og 61 hefur látið lífið. Heilbrigðisyfirvöld í löndunum þremur hafa nú tekið saman höndum um leiðir til að komast fyrir veik- ina, en enginn hefur enn látið lífið af henn- ar völdum í Jórdaníu og Líbanon. Flest kól- erutilfellin hafa fund- izt í höfuðborginni Amman og þorpinu Crayme i Jórdandal. þeir voru spurðir hvort þeir væru sekir eða saklausir og skv. hollenzkum lögum verður dómar- inn að kveða upp úrskurð um sekt þeirra innan tveggja vikna og þá hvaða refsingu þeir eiga að sæta. Verjandi Mólúkkanna sakaði hollenzku stjórnina um að hafa legið á mikilsverðum upplýsing- um. Wim Kousemaker sagði að þrátt fyrir itrekuð tilmæli hefði stjórnin ekki lagt fram skýrslu um samningaviðræðurnar, sem fram fóru milli Mólúkkanna í skólanum og í lestinni og lög- regluyfirvalda, en slík skýrsla hefði getað varpað nýju ljósi á ýmis atriði réttarhaldanna. V-þýzkir þingmenn rfsa úr sætum og minnast fjórmenninganna, sem féllu er Schleyer var rænt. Dæmdir fyrir fá- heyrt illvirki Belfast 9. september Reuter. TVEIR öfgamenn úr hópi irskra mót mælenda voru í dag dæmdir í llfstið- arfangelsi fyrir fáheyrt illvirki. Mennirnir tveir, 21 og 23 ára að aldri, voru sekir fundnir um að hafa ráðizt á 40 ára gamlan kaþólskan mann i október sl., barið hann til óbóta og hellt siðan benzíni yfir hann og kveikt i honum og þannig brennt hann til bana. Þriðji maður- inn var dæmdur i 10 ára fangelsi fyrir að hafa verið i vitorði með hinum tveimur. HELMUT SCHMIDT kanslari V-Þýzkalands, á tali við Hanns Martin Schleyer skömmu áður en honum var rænt. Enn biðstaða í Schleyermálinu Bonn 9. september Reuter. SVISSNESKI lögfræðingurinn Denis Payot, sem fallizt hefur á að taka að sér hlutverk milli- göngumanns milli v-þýzku ríkis- stjórnarinnar og ræningja iðju- höldursins Hanns Martins- Schleyers, hafði í kvöld ekkert heyrt frá ræningjunum. Var símanúmeri Payots útvarpað f Þýzkalandi f dág og sagt að ræn- ingjarnir gætu haft samband við hann f Genf eftir kl. 17 að ísl. tfma. Skoraði Payot á fjölmiðla að koma til sín umsvifalaust öllum skilaboðum, sem þeir kynnu að telja vera frá ræningjum Schley- ers. Payot, sem er 35 ára að aldri og formaður svissnesku mannrétt- indasamtakanna, sagðist hafa tek- ið þetta hlutverk að sér af mann- úðarástæðum. Tilkynningin um Payot kom nokkru eftir að frest- ur, sem ræningjarnir höfðu gefið v-þýzkum stjórnvöldum, 12 á há- degi í dag, hafði runnið út. Vís- uðu stjórnvöld þessum timatak- mörkunum á bug og sögðu óraun- Veikindi Amins uppspuni; 15 líflátnir í Uganda Bea^ie NEW York 9. september Reuter. ABRAHAM Beame, borgarstjóri New York, beið ósigur f forkosn- ingum demókrata þar f borg f gær um frambjóðanda í kosningum, sem fram fara 8. nóvember nk. Tveir efstu menn á listanum urðu Mario Cuomo, ráðherra í fylkis- stjórn New York, með 19% og Edward Koch, fulltrúadeildar- þingmaður frá New York 20%. Beame fékk 18% atkvæða og Framhald á bls. 22. hæfar. 1 tilkynningu höfðu ræn- ingjarnir hótað að taka Schleyer umsvifalaust af lífi á hádegi ef stjórnvöld hefðu þá ekki gefið tryggingu fyrir að 11 skæruliðum, sem i haldi eru i fangelsum i V-Þýzkalandi yrði sleppt. Payot var annar þeirra manna, sem ræningjarnir höfðu gert kröfu um að.-yrði fenginn til að fylgja þeim og félögum þeirra 11 úr landi, hinn er v-þýzki prestur- inn dr. Martin Niemoeller, 85 ára gamall og fyrrum formaður heimskirkjuráðsins i Genf. Lögðu stjórnvöld til að ræningjarnir samþykktu Payot, sem milli- göngumann, þar sem óframkvæm- anlegt væri að láta öll samskipti fara i gegnum fjölmiðla. Mjög litlar fréttir hefur i dag verið að hafa af þróun þessa máls, þar sem stjórnvöld hafa nær tekið fyrir allan fréttaflutning. Hins vegar er vitað að lögregiuyfirvöld í V-Þýzkalandi halda áfram af fullum krafti að leita að dvalar- stað ræningjanna, þrátt fyrir hót- anir þeirra um að myrða Schleyer ef leit yrði ekki hætt. Hefur lög- reglan nú opnað sérstakan sima, Framhald á bls. 22. Kampala og Paris 9. september AP. 15 MENN sakaðir um samsæri um að ráða Idi Amin llganda- forseta af dögum og landráð voru i dag leiddir fyrir aftöku- sveit í miðborg Kampala, höf- uðborg Uganda, og skotnir einn á eftir öðrum að miklum mann- fjölda viðstöddum. 12 mann- anna voru dæmdir í sl. mánuði fyrir að hafa ætlað að drepa Amin 25. janúar sl. en hinir þrfr væru dæmdir 1 júlf fyrir landráð og morð. Pierre Renard, sendiherra Frakka í Úganda, sagði i dag að fregnir um að Idi Amin væri metvitundarlaus i sjúkrahúsi Idi Amin eftir skurðaðgerð væri hreinn uppspuni. Sendiherrann vildi ekki segja hvaða heimildir hann hefði fyrir þessu. Stjórn- málafréttaritarar hafa það*ftir heimildum i Kampala, að Amin hafi látið koma sögunni um meðvitundarleysi sitt á kreik til þess að draga athyglina frá af- tökunum i dag og öðrum ógnar- verkum, sem unnin eru að hans skipun í landinu. Ekki er vitað hvar forsetinn er niðurkominn. Útvarpið i Úganda útvarpaði tilkynningu frá Amin i kvöld, þar sem hann varaði fólk við að vera með undirróðursstarf- semi, það væri sama og sjálfs- morð. „Engir ólöglegir bústadir urbakka Washington 9. september AP — Reuter. CARTER Bandaríkjaforscti sagði f dag f samtölum við nokkra fréttamenn f Hvíta húsinu, að ákvörðun tsraelsstjórnar um að leyfa Gyðingum að taka sér ból- festu á vesturbakka Jórdanár væri ólögleg og skapaði erfiðleika f tilraunum manna til að finna á vest- Jórdan” lausn á deilunni f iöndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Talsmaður bandariska utanrík- isráðuneytisins sagði siðar í dag, að ísraelsstjórn hefði fullvissað Carter um að engir ólöglegir bú- staðir Gyðinga væru á vestur- bakkanum. Þetta kom í kjölfar ummæla Ariels Sharons, land- Framhald á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.