Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977 Sigurður Jónasson múrari—Minning í gær var til moldar borinn vinur minn Sigurður Jönasson, múrari, Lindarbraut 6 á Seltjarn- arnesi. Hann lézt á Landspítalan- um 29. ágúst siðastliðinn í blóma lífsins, aðeins 49 ára að aldri, eftir erfiða en hetjulega baráttu við þann sjúkdöm, sem að lokum hafði yfirhöndina. Fyrir rúmu ári, eða nánar til- tekið 12. mái, 1976, var hann gest- ur minn ásamt fleirum nánustu vinum minum í Orlofsheimili Múrarafélags Reykjavikur i Önd- verðanesi, til þess að samgleðjast mér á 40 ára afmæli mínu, en hann var þá við múrhúðun á sundlaug staðarins ásamt vinnu- félaga sínum. Hann varð að yfir- gefa það samkvæmi vegna las- leika, sem var upphaf þeirrar erf- iðu sjúkdómsbaráttu, sem hann háði þar til yfir lauk. Sigurður heitnum kynntist ég fyrst árið 1963, en það ár gerðist hann félagi í Múrarafélagi Reykjavíkur að iðnnámi loknu. Það var strax áberandi hversu mikinn og frjöan áhuga hann hafði á félagsmálum almennt, en var þó sérstaklega áhugasamur um velferð stéttar sinnar. Hann var fljótlega kjörinn til trúnaðarstarfa fyrir félag sitt. Átti hann meðal annars sæti í trúnaðarmannaráði Múrarafélags Reykjavíkur í 2 ár. I stjörn þess var hann kjörinn sem gjaldkeri styrktarsjóðs og gegndi hann þvi starfi í 6 ár. Er öhætt að segja að þar var réttur maður á réttum stað. Hann var einn af frumkvöðl- um að stofnun Múrarasambands Islands árið 1973 .og var kjörinn fulltrúí Múrarafélags Reykjavík- ur á stofnþing þess það ár. í stjórn húsfélagsins að Freyjugötu 27 átti hann sæti um árabil, og í úthlutunarnefnd atvinnuleysis- bóta frá 1971 til dauðadags. Mörg- um öðrum mikilvægum trúnaðar- störfum gegndi hann fyrir félag sitt af eljusemi og dugnaði, sem ég mun þó ekki tíunda hér frekar. Fyrir drengdkaparsakir átti Sigurður auðvelt með að vinna trúnað annarra, því að þar fór maður, sem allir fundu að hægt var að treysta og allra vanda vildi hann leysa, ef mögulegt var. Hann var ákveðinn í skoðunum og þéttur i lund og ódeigur baráttu- maður, þó svo að á móti blési. Eru mér i fersku minni margir samn- ingafundir, sem við sátum saman fyrir hönd félags okkar og hversu uppörfandi, tillögúgóður og örag- ur Sigurður var þá alltaf. Margar samverustundir áttum við Sigurður saman, og er mér þö minnisstæðust kynnisferð sú, sem við fórum saman árið 1969 til Þýzkalands og Danmerkur til þess að kynna okkur meðferð litarefna í steinsteypu. Við vorum báðir lítt fjáðir og kynntist ég þar vel ráð- deild og fórnfýsi Sigurðar, því hugurinn var alltaf heima hjá fjölskyldunni og með hverjum hætti hann gæti glatt þau sem mest, þegar heim kæmi. Eftir þessa ferð unnum við lítil- lega saman að iðn okkar og kynnt- ist ég þá fagmanninum Sigurði Jönassyni. Hann var þar sjálfum sér samkvæmur, kröfuharður, ekki sízt við sjálfan sig og átti þann metnað að skila miklu og góðu verki. Þegar ég, með þessum fátæk- legu orðum, kveð nú Sigurð, vin minn, er mér efst i huga þakklæti fyrir að fá að kynnast og vinna með slíkum afbragðsmanni og göðum félaga, sem hann var. Er nú höggvið stórt skarð þar sem hann er nú á brott, en minningin um góðan dreng mun lifa í hugum okkur félaga hans. Guð gefi eiginkonu hans, Svein- björgu Helgadóttur, og börnum þeirra styrk við fráfall elskaðs eiginmanns og föður og votta ég þeim innilega samúð okkar hjón- anna við þennan mikla missi. Blessuð sé minning hans. Kristján E. Haraldsson. Ailt hefðarstand er mótuð mynt en maðurinn gullið þrátt fyr allt.“ Burns — Stgr. Th. Þegar ég kvaddi Sigurð Jónas- son tæpum fjórum sólarhringum fyrir lát hans var brosið jafnein- lægt og fölskvalaust og er við hlupum um plön og stíga á Siglu- firði fyrir tugum ára; ljóminn í augunum var enn jafnhlýr; birtan og heiðríkjan yfir svip hans sú sama og fyrrum. Hann hafði þjáðst mikið. En þjáningarnar höfðu ekki megnað að brjóta and- legan þrótt haas. Það var eins og þeir eiginleikar, sem einkenndu hann frá barnæsku, hefðu skýrzt i eldi þrautanna. Gullið eitt var eft- ir. Sigurður Jónasson var fæddur á Siglufirði 2. mars 1928. Foreldr- ar hans voru hjónin Guðrún Sigurjónsdóttir og Jónas Guð- mundsson trésmiðameistari, ein- stakt dugnaðar- og ágætisfólk. Jónas er látinn fyrir allmörgum árum en Guðrún lifir son sinn þar sem hún dvelst aldurhnigin á Elli- deild Sjúkrahúss Siglufjarðar. Æskuheimili Sigurðar gleymist seint þeim er þvi kynntust. Það var ekki einungis hlýtt athvarf Sigurði og systkinum hans heldur og eftirsóttur dvalarstaður vina þeirra og frænda. Systkinin voru þrjú: Haukur, húsgagnabólstrari og kaupmaður á Siglufirði, kvæntur Rósu Magnúsdóttur; Sig- urður sem hér er um ritað; og Ásdís, húsmóðir í Reykjavík, gift Birgi J. Jóhannssyni tannlækni. Sigurður var ekki gamall að ár- um er dugnaður hans, kjarkur og þrautseigja komu í ljós. Ungur dvaldist hann í sveit á sumrum og reyndist enginn liðléttingur þó að ekki væri aldrinum fyrir að fara. Síðar kölluðu annir heimbyggðar að. Hann nam bakaraiðn á Siglu- firði og síðan kökugerðarlist í Kaupmannahöfn. A fertugsaldri sagði hann skilið við brauðgerð- ina og hóf að nema múraraiðn í Reykjavík en þar hafði hann þá átt heima um skeið. Átti hann þó fyrir allstórri fjölskyldu að sjá er þar var komið þvi að 5. desember 1953 kvæntist hann Sveinbjörgu Helgadóttur frá Isafirði Finn- bogasonar. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Þau eru: Þörunn, f. 14. jan. 1954, stúdent; Helgi Jónas, f. 20. júli 1956, iðn- nemi; Guðrún Lovísa, f. 16. júni 1958, menntaskólanemi; og Sigur- rós f. 22. des. 1959, menntaskóla- nemi. Sigurður Jónasson var óvenju heilsteyptur maður. Ef lýsa ætti honum i sem stytztu máli koma mér þrjú orð i hug: sannleiksást, heiðarleiki, trúmennska. Hræsni og yfirdrepsskapur voru eitur i hans beinum. Um hann gat eng- inn sagt að honum þætti „hægra um vik að heita en vera maður". Enginn gat fengið hann til að „vikja af götu sannleikans“. En hreinskilni hans var aldrei ill- kvittni blandin. Hann gladdist ef öðrum vegnaði vel, var vinur, sem treysta mátti, ef á bjátaði. Þær meinsemdir, sem öfund nefnast og illgirni, fengu aldrei búið um sig í hugskoti hans. Við vorum að vísu þau hamingjubörn að eiga bernskudaga okkar í skjóli þess góða fólks sem þá byggði Siglu- fjörð. En svo heil var skapgerð Sigurðar að það hefði að líkindum engin áhrif haft á jákvætt lífsvið- horf hans og bjartsýni þó að hann hefði alizt upp i óhollara um- hverfi. Tvennt fékk Sigurður Jónasson aldrei tamið sér: Að skara eld að eigin köku og að gefast upp. Störf hans fyrir Múrarafélag Reykja- víkur bera fyrri fullyrðingunni ljósast vitni og manndómur hans í baráttunni við Níðhögg þann, er lagði hann að velli, hinni síðari. I orrustunni við það ofurefli stóð hann þó ekki einn. Hann var mjög vel kvæntur. Eiginkonan var jafn- an við hlið hans og honum styrk- ust stoð er mest á reyndi. Og við hinztu skil þyrpast minn- ingarnar að: Nokkrir drengir að taka upp sand utan við gamla flóðgarðinn á Siglufirði. Hrúgurnar eru sel- fluttar upp á garðinn. Þar taka bilstjórar við og gjalda fyrir vör- una. Það er nauðsynlegt að hafa hraðan á svo að aðfallið gleypi ekki dýrmætt efnið. Hrúgan hans Sigga er stærst. Drekkhlaðnir bát- ar eru á leið inn fjörðinn. Fjöllin bergmála mótorskellina. Þara- fnykur blandast þeirri angan sem sumir aðkomumenn kalla pen- ingalykt. Sól er að ganga til viðar bak við Hafnarfjall. En smáar hendur láta ekki deigan siga g Siggi hjálpar þeim yngri og past- ursminni að bjarga feng sinum undan flóðinu. Árla morguns er siglt fyrir Stráka og Almenningsnöf á litilli trillu. Vorsól á bárum. Ég er ný- græðingur í sveitamennskunni en + Móðir okkar INGIGERÐUR Á. EYJÓLFSDÓTTIR, Tjarnargötu 45, lést í Borgarspítalanum 9 þessa mánaðar Guðrún Jacobsen, Lárus G. Lúðviksson, Sigurður H. Lúðvíksson. t Maðurmn minn. er látinn. EIRÍKUR BJARNASON frá Eskifirði Sporðagrunni 1. Etsa Figved + Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, JUNÍUS EINARSSON frá ísafirði, Hjallavegi 60. sem andaðist 30 ágúst sl verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 1 2 september kl 13 30 Guðríður Guðmundsdóttir, börn og tengdabörn. + Vinur minrt SVEINN HELGASON áður Langholtsveg 25 verður jarðsunginn að Borg á Mýrum í dag laugardaginn 10 septem- ber kl. 14:00 Brynjólfur Einarsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför. GUÐRÚNAR Þ. SVEINSDÓTTUR. Eyhildarholti. Eiginmaður. börn tengdaböm og bamabörn. + Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ODDS JÓNSSONAR. Presthúsum, Garði, fer fram frá Útskálakirkju i dag laugardaginn 10 september kl 14 00 Kristin Hreiðarsdóttir, Július Oddsson, Margrét Jónsdóttir. Sigrún Oddsdóttir. Hjálmar Magnússon, Sóley Oddsdóttir. Björn Kjartansson, Ingimar Oddsson, Anna Stina Oddsson, Eyjólfur Gislason, Helga Tryggvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns mins og föður GUÐMUNDAR INGIMUNDARSONAR húsasmiðameistara Háaleitisbraut 37. Jóhanna Þórðardóttir Sigurður Guðmundsson. Siggi Jónasar segir sögur alla leið- ina. Skrýtnir karlar og kostulegar kerlingar dansa fyrir hugskots- sjónum okkar. Frásagnargleði og næmt skopskyn teygja okkur inn fyrir landamæri þjóðsögu og æv- intýris. Og þó er þetta aðeins níu ára kaupstaðarsnáði að segja félögum sínum frá furðum þeim sem fyrir hann hefur borið eitt sumar í norðlenzkri sveit. Siglfirzkt vetrarkvöld, kyrrt og stjörnubjart. Eftir langa göngu- ferð milli hvítra fjalla er sezt að tafli og spilum í stofunni heima hjá Sigga Jónasar. Hráslagalegur nóvembermorg- unn í Kaupmannahöfn. Við mæt- umst af tilviljun á Ráðhústorgi, setjumst inn i hlýjuna í einu vertshúsinu og innan stundar bregða frásagnir Sigga ljóma og lifi yfir minningar um fjörðinn okkar góða. Og enn mætti lengi telja. Svo er þá allt i einu komið að endadægri. Á bezta aldri er Sig- urður Jónasson brott kvaddur. Aldrei framar mætum við honum á förnum vegi. Aldrei framar hlýðum við á frásagnir, yljaðar þeirri skopvísi sem honum var i brjóst lagin. Aldrei framar lítum við brosið hans falslausa. Við stöndum fátækari eftir. Og er við hjónin vottum ástvinum hans samúð minnumst við þess hversu vel honum tókst að lifa, hversu sannur maður hann var og hvern- ig hann hélt stórbrotinni reisn sinni í þrautum allt að banastund. En er þá öllu lokið? Höfum við kvatt Sigurð hinztu kveðju? Er ástæða til víls og vonleysis? Sig- urður Jónasson var maður starfs og vongleði. Ég hygg honum væri að skapi að á útfarardegi hans tækjum við undir með skáldinu frá Fagraskógi: „Því getum við fagnað lífi á deyjanda degi að dýrðinni miklu stafar um himinskaut." Ólafur Haukur Arnason Kveðja: Þóra Baldurs- dóttir F. 22. júlí 1962. D. 28. ágúst, 1977. Þann 8. september 1977 var til moldar borin hin ástrfka vinkona okkar Þóra Baldursdóttir. Það kom eins og reiðarslag er við fréttum að Þóra hefði látizt af fsii slysförum suður á Spáni 28. fyrra mán., en þangað fór hún með fjöl- skyldu sinni hress og kát eins og endranær og engum okkar datt í hug að svona hörmulega mundi Spánarferðin enda. Nú er stórt skarð í vinahópi okkar og vitum við öll að það muni seint gróa. Því vottum við foreldrum Þóru og að- standendum dýpstu samúð okkar allra. Vinir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.