Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977 29 Minning: Oddur Jónsson Presthúsum, Garði Hinn 31. ágúst síðastliðinn lést á sjúkrahúsinu í Keflavík félagi minn og vinur Oddur Jónsson frá Prestshúsum i Garði. Síðari hluta maimánaðar veikt- ist hann snögglega af þeim sjúk- dómi er til dauða leiddi. Var hann þá fluttur i skyndi á sjúkrahús, fyrst i Reykjavik, en síðar i Kefla- vik. Kom hann eigi aftur heim þaðan til dvalar. Oddur Jónsson fæddist að Keldunúpi á Siðu 25. október árið 1886 og var þvi á nitugasta og fyrsta aldursári. Hann var elstur 16 systkina og varð því ungur að byrja lífsbaráttuna, þar sem afla þurfti viðurværis þessum stóra hópi og engir styrkir til barn- margra fjölskyldna eins og nú er. Snemma var Oddur því talinn fullgildur við hin erfiðustu störf þess tíma, og oft valinn öðrum fremur til fylgdar yfir stórvötn og sanda Vestur-Skaftafellssýslu, enda var hann að eðlisfari áræð- inn en þó glöggur og útsjónarsam- ur. Til dæmis um það, var hann einhverju sinni að flytja húsavið á hestum ásamt öðrum manni yfir eitt af stórvötnum sýslunnar, vildi hann þá ekki fara þá sömu leið og fylgdarmaður hans valdi. Hann leitaði sér því nýs vaðs neð- ar i ánni og komst þar klakklaust yfir, en fylgdarmaðurinn missti allt af hestum sínum. Þegar hann svo kom að vitja Odds, var hann kominn yfir og nær þvi búinn að bjarga öllu þvi er hinn hafði misst. Ég segi þessa sögu tii merkis um útsjónar-eiginleika Odds og dugnað. Engan skal þvi undra að honum skyldi síðar vera falin störf, sem við þurfti slika hæfi- leika. Vann hann mörg sumur að vitabyggingum viðs vegar um landið, fyrst undir annarra stjórn, en síðar sem stjórnandi. Stjórnaði hann t.d. byggingum vitanna á Glettinganesi, i Höskuldsey og Selvogi. Einnig byggði hann vita- varðarhúsið í Höskuldsey og lag- færði ýmislegt er með þurfti. Oddur hafði mikið yndi af tón- list og söng. Lærði hann ungur að leika á orgel og var um skeið organisti i Prestbakkakirkju. Af litlum efnum braust hann í þvi að kaupa sér orgel, og reiddi það sjálfur á hesti sinum yfir illfær vötn og sanda til síns heima, svo hann gæti þjónað þessu hugðar- efni sinu. Síðar i lífi sínu hafði Oddur það til siðs að leika alltaf á orgel á sunnudagsmorgnum og byrjaði nær ætíð á sama sálminum: Drottinn minn. gud. þú ert bjarg mitt og borg. brugðist þú getur mér eigi. Þú ert mitt athvarf f sérhverri sorg, sól min á harmanna vegi. Frelsisins merki ég hef upp hátt, hjálpin úr upphæóuni kemur brátt. Ætla ég að þessi hafi einnig verið einlæg trú hans. Af öllum var Oddur vel liðinn og engan hefi ég heyrt um hann tala nema gott eitt, enda var hann afar viðfelldinn maður og lagði öðrum aldrei nema gott til og þeg- ar hann sagði frá þvi er á dagana hefði drifið, fengu hans samferða- menn þá einkunn hjá honum að vera harðduglegir afbragðsmenn. Hinn 1. nóvember árið 1914 gekk Oddur að eiga eftirlifandi konu sina, Kristínu Hreiðarsdótt- ur, uppalda á Mariubakka í Hörgslandshreppi. Byrjuðu þau búskap að Keldu- núpi á Siðu, en fluttust brátt það- an, fyrst til Hafnarfjarðar þar sem þau dvöldu i eitt ár, en siðan i Garðinn þar sem þau bjuggu í 62 ár. Þau Oddur og Kristin eignuðust fjögur börn, sem öll eru á lifi. Júlíus Guðjón og Sólveigu Sigrúnu sem búsett eru í Garðin- um, Jónínu Sóleyju búsetta í Reykjavik og Ingimar sem búsett- ur er i Linköping i Sviþjóð. Auk þess ólu þau upp frá bernsku Ey- jólf Gíslason, sem búsettur er i Garðinum. Eftir að þau hjón fluttust i Garðinn stóð hugur Odds til sjó- mennsku og útgerðar. Reri hann aðallega á opnum skipum með ýmsum ágætis mönnum, uns hann eignaðist sjálfur skip er hann gerði út af miklum dugnaði. Odd- ur þótti á þessum vettvangi sem öðrum afbragðs starfsmaður og góður stjórnandi og í alla staði áreiðanlegur og skyldurækinn. Siðar þegar Oddur hætti sjó- mennsku setti hann á stofn fisk- verkun, sem hann rak fyrst einn, eða þar til árið 1968 að hann bað mig að gerast félagá sirin við fyrirtækið. Fannst honum hann ekki vera maður til að standa í þessu einn, enda nær þvi 82 ára að aldri. Þetta var okkur báðum hagkvæmt og samstarfið ágætt. Oddur missti mjög heyrn á síð- ari árum ævi sinnar og háði það honum nokkuð í samræðum og á mannamótum, en hann bætti sér það fyllilega upp með lestri góðra bóka og blaða. Samt gat hann notið útvarps og sjónvarps í góðu tómi. Hann var mjög fróðleiksfús og oft fannst mér bjartsýni hans og áhugi á nýjungum, sérstaklega á verklegu sviði nær undraverð- ur. Aldrei i okkar samstarfi hefur borið skugga á, enda ekki við þvi að búast frá öðrum eins ágætis manni, hollráðum og hreinskilin- um. Þegar ég. nú kveð Odd Jónsson vin minn hinstu kveðju vil ég þakka honum félagsskapinn og biðja almáttugan guð að blessa sál þessa einlæga og góða vinar mins, og eins vil ég biðja alföður að styrkja og leiða hans eftirlifandi eiginkonu og ættlið þeirra allan. Sem lokaorð langar mig til að hafa þessa visu, sem ég veit að honum þótti mjög vænt um. Sá er hörðum mundum má marka æviferilinn. minnisvarðann mesta á meitlaðan á leustað sinn. Jóhann Jónsson. ívan H. Rasmusson rennismíðameis tari Nýlega er látinn hér i borg ívan H. Rasmusson rennismiðameist- ari. Hann var einn þeirra ágætu manna, sem hingað komu frá Danmörku á öðrum tug aldarinn- ar. ívan var sænskur að uppruna. Foreldrar hans voru hjónin Betty og Carl Emil Rasmusson, ættuð frá Sviþjóð. Forstjóri H/F Hamars var i upphafi O. Malmberg en hann veitti fyrirtækinu forstöðu þar til Benedikt Gröndal verkfræðingur tók þar við i byrjun þriðja ára- tugsins. Móðir ívans var systir frú Jó- hönnú, konu O. Malmbergs for- stjóra. Að tilhlutan Malmbergs hjónanna kemur ívan hingað til islands 2. febrúar 1921 og byrjar þá nám í Hamri. iyan varð fljótt góður íslendingur, þó hann héldi tryggð við fólk sitt og uppruna, enda skapfastur og drengur góð- ur. Ég, sem þessar linur rita, byrj- aði nám í Hamri árið 1930. Þá er ívan orðinn aðstoðarverkstjóri á renníverkstæði fyrirtækisins. Honum hafði sótzt vel námið og traustleiki hans og meðfæddir hæfileikar veittu honum brautar- gengi. A þessum árum starfa í Hamri margir erlendir menn, flestir danskir, en þó aðrir Norðurlandabúar. Það var lær- dómsríkt að kynnast þessum mönnum. Flestir höfðu þeir hald- góða þekkingu á iðn sinni, og allir höfðu þeir það sameiginiegt að vera góðir tslendingar, þó þeir væru trúir uppruna sinum innan þess ramma, sem samrýmdist vel hérlendri búsetu þeirra. Ivan giftist eftirlifandi konu sinni, Ölínu Bjarnadóttur frá Þingeyri, 14. janúar 1928. Hjóna- band þeirra varð farsælt og áttu þau saman gott heimili, sem þau hlúðu að og mótuðu með mikilli prýði. Þeim fæddust tveir dreng- ir, Werner, apótekari í Ingólfs- apóteki, og Carl, flugvélavirki. Framhald á bls. 23 — Ræða Matthíasar Framhald af bls. 14. Heilsugæzla Eitt helzta nýmæli laga um heilbirgðisþjónustu, sem gildi tóku hinn 1. janúar 1974, var það að landinu öllu var skipt i 27 heilsugæzluumdæmi. Innan þessara umdæma eru 40 starfs- svæði, þar af utan Reykjavíkur 39 starfssvæði þar sem gert er ráð fyrir 13 heilsugæzlustöðv- um þar sem starfar einn læknir og 26 heilsugæzlustöðvum þar sem starfa tveir læknar hið minnsta. Á Reykjavíkursvæðinu er gert ráð fyrir 9 heilsugæzlu- stöðvum samkvæmt áætlun sem borgarstjórn Reykjavikur hef- ur gert. í iögunum er skilgreind sú þjónusta, sem heilsugæzlu- stöðvar eiga að veita en hú er í aðalatriðum þessi: 1. Almenn læknisþjónusta,vakt- þjónusta og vitjanir til sjúkl- inga. 2. Lækningarannsóknir. 3. Sérfræðileg læknisþjónusta og tannlækningar. 4. Heilsuvernd,og er undir þess- um þætti taldar upp 12 heilsuverndargreinar og skipa þar að sjálfsögðu fyrsta sess mæðravernd og ung- barnavernd en einnig má minna á ýmiss konar aðra sjúkdómavernd svo sem berkla-, kynsjúkdóma- og geð- vernd og ýmiss konar eftirlit svo sem skóla-, iþrótta- og at- vinnusjúkdómaeftirlit. Þá má einnig geta þess að undir þennan þátt koma félagsráð- gjöf, hópskoðanir og skipuleg sjúkdómaleit. Ráðherra er heimilt að kveða á um aðrar heilsuverndargreinar svo og að heilbirgðiseftirlit sé i heilsugæzlustöðvum. Það er eðlilegt að nokkurn tíma hafi tekið að koma i kring þeim unfangsmiklu breyting- um, sem heilsugæzlukafli laga um heilbrigðisþjónustu gerir ráð fyrir. 1 byrjun skorti sér- fræðilegan mannafla til þess- ara starfa i ráðuneytinu og ger- ir það raunar enn, en þó hefur farið fram á vegum heilbirgðis- og tryggingamálaráðuneytisins allmikil könnun á húsnæðis-og mannaflaþörf heilsugæzlunnar og verið gerðar tillögur um stöðlun heilsugæzlustöðva. I þessu sambandi vil ég minna á rit heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins nr. 1/1976 Leiðbeiningar um hönnun heil- brigðisstofnana. I þeim álitsgerðum, sem frá ráðuneytinu hafa komið, þá er gert ráð fyrir því að þar sem einn læknir starfar ásamt starfsliði, þurfi húsnæði að vera 360—400 fm en þar sem tveir iæknar eru ásamt starfs- liði, 460—500 fm. Þá hefur ver- ið gert ráð fyrir því að þar sem læknir hefur móttöku með vissu millibili utan heilsu- gæzlustöðva, en hjúkrunar- fræðingur eða ljósmóðir hefur starfsaðstöðu að jafnaði, þá þurfi húsnæði að vera 100—110 fm. Það hefur enn ekki verið hönnuð heilsugæzlustöð fyrir fjölbýlisstaði, en nú er ein slík heilsugæzlustöð i hönnun í Breiðholti og önnur á Seltjarn- arnesi og má gera ráð fyrir að fyrir 10—12000 manna þjón- ustusvæði þurfi heilsugæzlu- stöð að vera 900—1200 fm., eft- ir því hve starfsemin i stöðinni er umfangsmikil. Af þessum tölum má sjá að kostnaður við uppbyggingu heilsugæzlustöðvakerfisins i dreifbýlinu verður hlutfalls- lega mikill miðað við þéttbýlið þar sem mun betri nýting hús- næðis hlýtur að fást. Að sjálfsögðu var þingmönn- um þetta ljóst þegar lög um heilbrigðisþjónustu voru sam- þykkt og þvi var sett inn i lögin ákvæði þess efnis að þau um- dæmi þar sem erfitt er að halda uppi heilsugæzlu skyldu hafa forgang um byggingu heilsu- gæzlustöðva. Ef litið er á, hvernig gengið hefur að byggja upp heilsu- gæzlustöðvakerfið í landinu, kemur í ljós að um siðastliðin áramót var staðan þannig: 1 Utan Reykja- Reykja- vík víkur 1. fm fm 1 byggingu 800 8168 I hönnun 1200 860 I frumathugun 900 820 Áætluð viðbótarþörf þar sem fé hefur enn ekki verið veitt á fjárlögum 4500 8160 7400 18008 eða samtals á landinu öllu 25.400 f m. Þessi upptalning sýnir að dreifbýlið hefur haft þann for- gang, sem lög um heilbrigðis- þjónustu gerðu ráð fyrir. Samt er það svo að enn er meira óbyggt utan Reykjavíkur en í Reykjavik af þvi sem lögin gera ráð fyrir að framkvæmt verði og er það að sjálfsögðu eðlilegt miðað við það sem áður var sagt um þörf dreifbýlisins og betri nýtingu húsnæðis á þéttbýlis- svæðum. Heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið hefur gert áætlun um fjölda starfsliðs í heilsugæzlustöðvum. Að jafn- aði er miðað við að á hvern lækni komi 1500—2000 íbúar í þéttbýli en I dreifbýli lækkar þetta hlutfall verulega þar sem ferðalög og vaktaálag er mikið og getur þá farið allt niður í 6—700 ibúa á lækni. I Reykja- vik og tilsvarandi þéttbýlis- kjörnum er gert ráð fyrir 2000—2500 ibúa á hvern lækni Aætlaður fjöldi hjúkrunar- fræðinga hefur verið miðaður við það verkefni, sem heilsu- gæzlustöðvum er ætlað að sinna og við þá reynslu, sem hefur fengizt af starfi hjúkrunar- fræðinga á heilsugæzlustöðv- um. Um síðastliðin áramót voru 65 stöðuheimildir fyrir heildu- gæzlulækna, 28 stöðuheimildir fyrir hjúkrunarfræðinga og 10 stöðuheimildir fyrir ljósmæður og voru allir þessir starfsmenn i fullu starfi um síðastliðin ára- mót. A fjárlögum ársins 1977 eru 4 nýjar stöðuheimildir fyrir heilsugæzlulækna og 10 nýjar stöðuheimildir fyrir hjúkrunar- fræðinga. Þegar þær breytingar hafa gengið fram sem heilsugæzlu- ákvæði laga um heilbrigðis- þjónustu gera ráð fyrir, þá þarf enn að bæta við starfsmönnum i heilbrigðisþjónustuna og nið- urstöður kannana ráðuneytis benda á, að alls þurfi að bæta við um 70 læknum í fullt starf og 70—80 hjúkrunarfræðing- um í fullt starf eða samtais um 150 manns. Þess ber þó að geta að hér er aðeins að nokkru leyti um beina aukningu að ræða, en miklu meira er um að ræða tilfærslu lækna, sem nú stunda heimilislæknisstörf og lækna og hjúkrunarfræðinga, sem starfa á heilsuverndarstöðvum, til heilsugæziunnar. Þannig er gert ráð fyrir að af þeim 70 læknum, sem þarf að bæta við, séu nú 50—55 í starfi og nýiið- um þurfi þar að vera 15—20 læknar. Einnig er gert ráð fyrir að um 25—30 hjúkrunarfræð- ingar séu þegar í starfi, þannig að nýliðun þar þarf að vera um 40 hjúkrunarfræðingar. Þessi upptalning sýnir að síð- an lög um heilbrigðisþjónustu tóku gildi hefur orðið mjög veruleg aukning á starfsliði i heilsugæzlu. Læknafjöldi var áður bundinn við héruð og voru læknaheimildir 55. Þá voru að- eins örfáar heimildir fyrir hjúkrunarfræðinga i heilsu- gæzlu og engar fyrir ljósmæð- ur. Þannig hefur á þessum ár- um síðan lögin voru sett verið markvisst stefnt að því að auka þjónustu í heilsugæzlu utan sjúkrahúsa eins og lögin gera ráð fyrir, enda þótt þessar breytingar hafi ekki gengið fram með þeim hraða, sem heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra hefur lagt til, en sem komið er. Ekki verður skilið svo við heilsugæzlumálin að ekki sé minnzt á íbúðarhúsnæði starfs- liðs i heilbrigðisþjönustunni, því i lögum um heilbrigðisþjón- ustu er gert ráð fyrir þvi að ibúðarhúsnæði lækna, hjúkrun- arfræðinga og ljósmæðra, skuli teljast hluti heilsugæzlustöðva utan Stór-Reykjavikursvæðis og Akureyrar. A siðastliðnu hausti voru 59 ibúðir i notkun, 46 fyrir lækna og 13 fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður. I Jiönnun og byggingu voru þá 4 ibúðir og ein að komast i gagnið eða sam- tals 64 íbúðir. I samræmi við það ibúðarhús- næði, sem nú er til ráðstöfunar, fjölda lækna og hjúkrunarfræð- inga og ljósmæðra í starfi, og þegar litið er á þá áætlun um aukinn fjölda opinberra starfs- manna i heilsugæzlu, sem fyrr var rædd, verður heildarfjöldi þeirra íbúða sem þarf að bæta við tæplega 90 eða rúmlega 30 fyrir lækna og tæplega 60 fyrir hjúkrunarfræðinga og ljós- mæður. Fjármálaráðherra og heil- brigðis- og tryggingaráðherra hafa komið sér saman um að stærð læknisbústaða skuli ekki fara yfir 200 fm. og ibúðir hjúkrunarfræðinga og ljós- mæðra séu um 120 fm og sé þetta lagt til grundvallar, þá skortir um 13000 fm íbúðarhús- næði fyrir starfslið i heilsu- gæzlu þegar lög um heilbrigðis- þjónustu eru að fullu komin til framkvæmda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.